Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2005, Síða 20
20 MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2005
Sport jDV
jafnvel átt að standa. Liverpool
sótti nánast linnulaust í síðari
hálfleik og til marks um yfirburði
liðsins fékk það sautján horn-
spyrnur í leiknum en Sao Paulo
ekki neina. Brasilíumennirnir með
Rogerio Ceni í stuði í markinu
spiluðu hinsvegar agað og unnu
góðan sigur á þessu heimsmeist-
aramóti.
sig mark, sagði Bemtez í kald-
hæðni og hann bætti við: „Við átt-
um mörg færi til að skora og hefð-
um einnig getað fengið víta-
spyrnu. Þetta var mjög mikilvæg
keppni en við verðum að einbeita
okkur að öðrum hlutum núna.“
Deportivo Saprissa frá Kosta
Ríka endaði í þriðja sæti á þessu
móti sem hefur farið fram í Japan
að undanförnu en liðið sigraði A1
Ittihad frá Sádi-Arabíu 3-2 í leikn-
um um þriðja sætið þar sem Ron-
ald Gomez skoraði sigurmarkið
mínútu fyrir leikslok. Sidney FC
endaði svo í fimmta sætinu eftir
2-1 sigur á A1 Ahly á föstudaginn.
Enska liðinu Liverpool mistókst í gær í þriðja sinn að vinna
Heimsbikar félagsliða þegar fyrsta markið sem liðið fékk á sig í
1042 mínútur kostaði þá titilinn, en spilað var í Japan. Deporti-
vo Saprissa frá Kosta Ríka sem Liverpool sló út í undanúrslit-
unum tryggði sér þriðja sætið á mótinu en Brasilíumennirnir í
Sao Paulo unnu Heimsbikarinn í þriðja sinn í sögu félagsins.
Liverpool gerði nokkrar breyt-
ingar á liði sínu frá því í sigrinum á
Deportivo Saprissa í undanúrslit-
um síðastliðinn fimmtudag. Eftir
um hálftíma leik í gær komst Sao
Paulo yfir þegar Amoroso sendi á
Mineiro sem skoraði af öryggi
framhjá Jose Reina í markinu en
fram að þessu hafði Reina ekki
fengið mark á sig í meira en
sautján klukkustundir.
Sótti linnulaust í síðari hálf-
leik
Luis Garcia átti skalla í slá og
þrjú mörk voru dæmd af Liverpool
vegna rangstöðu í leiknum en síð-
asta markið sem dæmt var af hefði
Gerðum allt sem við gátum
Rafael Benitez stjóri Liverpool
hrósaði sínum mönnum þrátt fyr-
ir tapið. „Við gerðum allt sem við
gátum til að sigra leildnn. Það er
erfitt að vinna þá ef þeir fá ekki á
Ert þú leið(ur) á
að skipta um perur?
DÍÓÐULJÓSIN FRÁ OKKUR ERU:
ORKUSPARANDI
ÓBRJÓTANDI
10.000 KLST. ÁBYRGÐ
PASSA FYRIR ALLAR
GERÐIR VÖRU- OG
FLUTNINGABÍLA
Klettagarðar 11, 104 Reykjavík
Sími 568 1580 • Fax 568 0844
TRUCK - LITE
Ljósasamlokurnar frá okkur eru:
ÓBRJÓTANDI
HÖGGÞOLNAR
ENDAST OG ENDAST
Essien ekkert
með í janúar
Miðjumaður
Chelsea, Michael
Essien, hefur verið
valinn í 23 manna
landsliðshóp
Ghana fyrir Afríku-
keppni landsliða í
knattspymu sem
fer fram í Egypta-
landi 1 næsta mán-
uði. Þjálfarinn Ratomir
Dujkovic valdi Essien í liðið
en Ghana er í riðli með Ní-
geríu, Senegal og
Zimbabwe. Essien verður í
banni 116 liða úrslitum
Meistaradeildarinnar í febr-
úar og missir síðan af öllum
leikjum Chelsea frá og með
27. desember þegar Ghana-
liðið fer í æfingabúðir. Fyrsti
leikur Afríkukeppninnar er
23. janúar.
Björgvinvann
sitt sterkasta
mót
Björgvin Björg-
vinsson vann
glæsilegan sigur í
svigmóti f Rogla í
Slóvemu um helg-
ina. Mótið var al-
þjóðlegt stigamót
og styrkleikinn var 14 punkt-
ar en FlS-mótin verða ekki
sterkari en upp á 9 punkta.
Þetta er sterkasta mót sem
Björgvin vinnur á ferlinum
en honum gekk sérstaklega
vel í fyrri ferðinni þegar
hann skíðaði niður á 41,93
sekúndum. Björgvin hélt
síðan velli í seinni ferðinni
og vann mótið með rúmri
hálM sekúndu. Kristinn Ingi
Valson var einnig að keppa á
sama stað en kláraði ekki
seinni ferð.
Mæta
Makedóníu
ívor
íslenska kvennalandslið-
ið í handbolta mætir
Makedómu í und-
ankeppni EM í
handbolta næsta
vor en íslensku
stelpurnar tryggðu
sér sæti í umspilun
með góðum ár-
angri í undanriðlinum á Ital-
íu. Fyrri leikurinn verður hér
á landi 27. eða 28. maí en sá
síðari í Makedóníu viku síð-
ar. Sigurliðið tryggir sér síð-
an farseðilinn á Evrópu-
meistaramótið í Svíþjóð í
desember 2006. Makedóma
komst ekki upp úr sfnum
riðli í úrslitakeppni HM á
dögunmn.
Grétar Rafn
skoraði
ísigriAZ
Grétar Rafn
Steinsson skoraði
síðasta mark AZ Alk-
maar sem sigraði
RKC Waalwijk 3-0 í
hollensku deildinni í
gær. Grétar Rafn sem spilaði
allan leikinn með AZ í hægra
bakverði skoraði markið
með skalla á 64,mínútu eftir
sendingu frá danska sóknar-
manninum Kenneth Perez.
Demy de Zeeuw og Stein
Huysegems skomðu hin
mörk AZ í leiknum en liðið
er nú í toppsætinu í hol-
lensku deildinni með 38 stig
eftir sextán leiki.