Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2005, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2005, Page 32
c 32 MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2005 Menning DV ri Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is Trippið selst Búið er að selja A little Trip to Heaven til Spánar og Portúgals og hefur myndin þar með verið seld til yfir 40 landa. Samningarnir sem gerðir hafa verið um myndina eru mun stærri og umfangs- meiri en áður hafa verið gerðir um ís- lenskar myndir. Á Spáni verður myndin sýnd i að minnsta kosti 100 bíósölum og tugum milljóna varið f kynningu. Mynd- in er seld til fjölmargra Evrópulanda, allra Norðurlandanna, til Mið-Austur- landa og Brasilíu. Auk þess standa samningaviðræður yfir við nokkra dreif- ingaraðila i Bandaríkjunum, Bretlandi og víðar. Söluaðilar myndarinnar, Katapult Film Sales í Bandarikjunum, segja þetta gefa góða vísbendingu um áhuga kvikmyndahúsaeiganda á myndinni. Hér verður Trippið frumsýnt annan dag jóla. Julia Stiles í Trip to Heaven. Rauðirskór Tónlistin á disknum Rauðu skónum var samin við samnefnda brúðusýningu sem var frumsýnd snemma árs í fyrra. Það var Helga Am- alds sem átti upphaf að sýn- ingunni sem byggði á kunnu ævintýri eftir H.C. Andersen. Peter Mate gerði brúðuna í sýninguna sem Benedikt Er- lingsson leikstýrði. Ragnhild- ur Gísladóttir samdi tónlist- ina alla, lék hana inn og hafði umsjón með frágangi. Það var ekki fyrr en um mitt ár að diskurinn kom út. Hann hefur fengið afar takmarkaða dreifingu sem er synd. Þetta er heilstæöasta verk sem hefur komið frá Ragn- hildi og sýnir betur en flest annað hversu fjölhæf hún er sem tónskáld. Alls eru 16 smáverk á disknum og standa algerlega sjálfstætt þó þau beri mörg svip hermitónlistar, eigi við tiltekin atriði í sögunni og taki nafn sitt þar af: Berfætt í skógininum, Fyrsti dansinn, Dauðadansinn. Verkið er allt unnið út frá hljómborðinu en sækir stuðning í margs konar hljóðabanka. Röddin er afar lítið notuð. í sýningunni var tónlistin gríðarlegur áhrifa- valdur og fyllti söguna og . leikinn andrúmi sem nýtur sín ekki síður á heimagræjum og öðlast þar nýtt líf. Áhugamenn um feril Ragnhildar ættu að næla sér í þennan kjörgrip. Hann hefur ekki notið þeirrar athygli sem hann á skilið en boðar góðar vonir um að þegar Ragnhild- ur snýr sér að fuUu af tón- sköpun megi mikils frá henni vænta í fijálsu falli. pbb&dv.is í i Ármann Jakobsson segir ævisögu Guðjóns Friðrikssonar um Hannes Hafstein afreksverk og skáldinu og skörungnum sé sómi sýndur með verklagi sagnfræð- ingsins. Þversagnir hans og örlög séu skýrðar, verkið miði að því að lesandi skilji manninn. Hannes Hafstein loksins í brívídd Ævisaga Hannesar Hafstein eft- ir Guðjón Friðriksson er myndarleg bók og kápan ótvírætt sú fegursta í ár. Þar starir Hannes á okkur ögn tileygur og næstum sorgmæddur en í bakgrunni grá og horfin Reykjavík. Þetta er fyrirheit um ferðalag til aldamótanna 1900 og við það fyrirheit stendur bókin. í henni er auðvelt að týna sér; ég tala nú ekki um þegar menn eru þeirrar skoðunar að fá tímabil séu áhuga- verðari í íslenskri stjórnmálasögu en einmitt þetta. Afrek og grimm örlög Hannes Hafstein var afreks- maður: afburðanámsmaður, gott skáld, mikill framkvæmdamaður, klókur stjórnmálamaður. Á bak við hann var ástríkur frændgarður en yfir honum hvfldi þó skuggi skap- mikils og yfirþyrmandi föður sem var ekki fullkomlega heill á geði. Eins og margir aðrir íslendingar á þeim tíma þurfti hann líka að búa við ógæfu sem mörg okkar kynn- umst líka en í öðru veldi: Hann missir ekki eina systur heldur margar, heittelskaða konu og börn og að lokum missir hann heilsuna aðeins hálfsextugur. Ragnhildur Gísladóttir Rauðu skórnir ★ ★★★★ Tónlist IGuðjón Friðriksson sagnfræðingur „Ég hef ekki veriðjafn hrifinn afævisögu eftir hann siðan hann skrifaði um Jónas frá Hriflu, segir Ármann Jakobsson —- DV-mvnd GVA Guðjón Friðriksson. Ég elska þig stormur. Ævisaga Hannesar Hafstein. Mál og menning, Reykjavik 2005. Verð 5990 kr ★ ★★★★ Bókmenntir Róttæklingur gerist íhalds- sinni Hannes var þversagnakenndur. Ein grundvallarþversögn á ferli hans skýtur ítrekað upp kollinum: Hvernig stendur á að hann átti í heiftúðugum pólitískum átökum við menn sem hann var sammála um ýmis grundvallaratriði? Hvern- ig stóð á því að Brandesar-róttæk- lingurinn varð leiðtogi íhalds- manna? Guðjón Friðriksson vekur oft at- hygli á þessu en leysir aldrei úr málinu. Það er ein leið til að virkja lesendur. Mín skýring er þessi: Stjórnmál á þessum tíma snerust í mun ríkara mæli um ættartengsl en nú er. Vinir og velgjörðarmenn Hannesar voru fhaldsmenn og þess vegna tók hann við „lands- höfðingjaflokknum" þó að hann sjálfur væri um margt annarrar skoðunar. Aðdáun frjálshyggjumanna Það er einnig þversagnakennt að arftakar og aðdáendur Hannesar Hafsteins séu talsmenn óheftra við- skipta. Sjálfur var hann opinber starfsmaður og átti í mestu íjár- hagskröggum á meðan hinn róttæki Skúli Thoroddsen (sem hann leysti af hólmi sem sýslumaður) varð sterkefnaður á viðskiptum. í stjóm- málum standa eftir hann veglegar opinberar framkvæmdir, ffemur en arfleifð sem þeir sem kalla sig frjáls- hyggjumenn geta sótt í. Frekari greining- ar óskað Frásögn Guðjóns Friðriksson ar er hófstillt. Minna er um sviðsetningar en áður og hann rýfúr frásögnina ekki heldur' með löngum og miklum ályktunum, skýtur þó stundum inn setningu og ekki laust við af lesendur hefði annað veifil þegið frekaj greiningu. Bói in opnar fremu en að loka. henni er sög\ skoðunum ek haldið ákaft ; lesendum en í burðir og heimi ir settar fram geta dregið eigin ályktanir. Þar tekst svo vel til að maður fær á til- finninguna að í þessari bók sé allt sem þarf til að skilja Hannes Haf- stein. Markmið Guðjóns er fremur að gera söguna lifandi en að deila við fyrri fræðimenn eða draga heimspekilegar ályktanir. Um leið er sagan studd af mikilli rannsókn- arvinnu sem gerir þessa bók ívið nýnýstárlegri en ævisögu Jóns Sig- urðssonar eftir sama höfund. Mikið mærður Hannes Hafstein hefur stund- um verið mærður úr hófi fram. Guðjón dáist að honum og tekur sér stöðu nálægt honum en er líka gagn- rýninn og nær sam- bandi við andstæðingana líka. I Þetta hefur þau áhrif að þeir sem oflofið fældi frá öðlast jafnvel meiri; virðingu fyrir mannkostum Hann- esar. Sjálfur kemst ég í betri tengsl i við pólitísk klókindi hans og sátta- j vilja þó að ég sé áfram andstæðing- ur millilandafrumvarpsins. Guðjón Friðriksson hefur unnið i afrek með þessari bók. Ég hef ekki' verið jafn hrifinn af ævisögu eftir! hann síðan hann skrifaði um Jónas ■ frá Hriflu. Hannesi Hafstein og; sögu heimastjórnaráranna er sómi i sýndur með þessu verki. Ármann Jakobsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.