Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2005, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2005, Side 39
X3V Síðastenekkisíst MÁNUDAGUR 19. DESEMBER 2005 39 Spurning dagsins Hvernig ganga jólagjafainnkaupin? Búinn að kaupa fjórar „Ég er ekki búinn að kaupa allar. Ég er búinn að kaupa fjórar og á þrjár eftir." Gunnar Þór Þorsteinsson, starfsmaður Símans. „Ég er búin að kaupa sjö stykki sem er um það bil helmingur." Rósa Dögg Gunnarsdótt- ir nemi. , „Ég er ekki búin að kaupa eina jóiagjöfen ég er búin að ákveða nokkrar." Lana (ris Guð- mundsdóttir. „Ég er ekki búinn að kaupa eina ein- ustu. Ég þarfað kaupa tíu stykki." Arnar Páll Arnarson „Ég er ekki búin að kaupa neina jóla- gjöf." Harpa Páls- dóttir nemi. Sumum finnst gott að hafa vaðið fyrir neðan sig og kaupa jólagjafirnar jafnt og þétt á aðventunni meðan aðrir hlaupa til á Þorláksmessu og redda málunum. Geirog grafarþögnin Hún er furðuleg graf- arþögnin sem umlyk- ur nýjan foringja íhaldsins. Geir H. Haardt. fékk mikið lof fyrir fum- laus valdaskiptin á lands fundi Sjálfstæðisflokksins í október. Allt einsog blómstrið eina, gekk firna vel og ekkert hik á mönnum í póst-Davíðsk- unni. Geir var maðurinn og nú var rætt um guðskristni og stétt með stétt. Nú skyldi snúið til baka frá hörku og hægrimennsku Davíðsáranna, sem að vísu var aðallega í orði hjá frjálshyggjuliðinu sem var að kæfa Davið í ást og aðdáun. Lítið sást á borði til raunverulegrar hægri- mennsku, sami gamli ríkiskap- ítalisminn og kerfishyggjan og umlukið hefur Sjálfstæð- isfiokkinn frá stofnun hans Landslæg íhalds- mennska sem nær mestu hæðunum þegar svartasta íhaldið er sent fram til að berja á íslenskum verkakon- um sem eru með um 120.000 kr. í mánaðarlaun! En síðan eru liðnir bráðum þrír mánuðir og Geir er horfinn. Grafarþögn umlykur Geir á meðan Þorgerður Katrín hefur átt býsna erfiða daga. Geir veit einsog Vilhjálmur borgarihald að þögn og kyrrð vinnur alltaf með Sjálfstæðis- flokknum. Það er hins- vegar undarlegt að Geir skuli almennt ekki hafa meiri metnað en raun ber vitni. Jú, mildari útgáfa af Davíð og verkefnið að endurheimta miðjuna. Það segir Mogginn allavega. En ekkert meir Geir? Lífið er staðreynd. Dauðinn líka. Lífið eftir dauð- ann veik von. Ekki hægt að búast við of miklu þar.l Eilíft líf í gufukenndu ástandi starandi í aðdáun á\ æðstu máttarvöld er frekar leiðinleg tilhugsun, og' mun skárri eru hugmyndir um flakk á milli vídda eða líf- reikistjarna. Endurfæðing er svo sem ágætis kerfi^ líka. Líklegast þó að við séum öll á leiðinni að . verða að gróðurmold, sem er bara fínt - „Af/ moldu ertu kominn..." og allt það. En aUavega: Við deyjum. Þetta er svaka-J leg staðreynd sem maður hugsar sem betur'' fer lítið um framan af ævinni. Hugsunin fer að ágerast með aldrinum. Hin sístarfandi markaðsöfl eru aðeins byrjuð að spá í þetta og bækur sem heita t.d. „500 hlutir til að gera áður en þú deyrð" njóta vinsælda. Þar er gengið út frá því að lífið sé einskonar löng verslunarferð í Kringlunni og manni er bent „hluti" sem ofsa sniðugt, eða hreinlega nauðsynlegt upp á sálarheillina, er að „gera" áður en maður hrekkur upp af. Þarna er bryddað upp á ýmsum hugmyndum, t.d. að fara í fallhlífarstökk, gróðursetja tré, synda j með höfrungum og rrá*l* e*ns og ^ ur fetn?1 Sei? 1 siníffSar ¥lð á Ieið 1 9*?ðrarstöð rev£íið«nf ‘Þessi stað- lg?Íur valdið utTCT itíSÍJíðL °9,sendirgg *narga i hendur vafa- sfitu'a trúarbragða eða enn vafasam- " ari andlegra meistara.“ 'hlaupa í ''maraþoni. Líklega gengur svo hver og einn með einhvern svona Iista á bakvið eyrað og þarf því varla bækur til. Ferðalög á framandi staði og það að verða betri manneskja í faðmi ástríkrar fjölskyldu verma líklega toppsæti flestra. Lífið er eins og gátlisti sem maður krossar við á leið sinni í gróðrarstöð dauðans. Þessi staðreynd getur vald- ið ugg og kvíða og sendir marga í hendur vafasamra trú- arbragða eða enn vafasamari andlegra meistara - allt í því skyni að finna „dýpri" tilgang og meiri hamingju. Það nægir mér þó alveg - eins og er allavega - að vera þakk- látur fyrir það sem ég er og hef, og að reyna að gera það besta úr því. Svo er gott að minnast þess reglulega að er hluti af þeim minnihlutahópi sem þarf ekki að hafa áhyggjur af því hvort hann fái að borða á morgun eða ekki. Svona bækur meðal hinna snauðu í þriðja heiminum yrðu mjög stuttar og einhæfar - „1 hlutur til að gera áður en þú deyrð: reyna að skrimta". llari Dr. Gunni Maður hefði haldið að óskapiltur íhaldsins léti að- eins meira að sér kveða. Sýndi með afgerandi hætti að það væri nýr karl í brúnni. Ekki bara rausið og skrumið um stétt með stétt. Tómt tal einsog opinberast nú þegar Steinunn Valdís borg- arstjóri semur við verkakonur hjá borg- inni um sanngjarnar og löngu tímabærar launahækkan- ir. Nei, þá tryllist íhaldið. Hvað finnst Geir Haarde um það mál? Er hann sammála Vilhjálmi Þ. um að þetta sé gott mál? Eða Gunnari B. og Einari Oddi um að þetta sé aðför að samfélag- nu? Verkakonurnar séu ekki lengur með tuttugu sinnum lægri laun en óskabörn íhaldsins, hátekjuhóp- arnir og lágskattaliðið sem borgar 10% fjármagns- tekjuskatt af sínum tekjum, heldur bara nítján sinnum lægri laun. Einhver fjölmiðillinn hlýtur að lokum að grafa Geir upp og þýfga hinn nýja leið- toga íslenskra íhaldsmanna um svör og viðhorf. Nema að allir bíði eftir því að sjá hvort hann api áramótadelluna ekki beint upp t eftir Davið og j mæti hálftíma 1 of seint í Krydd- » síldina á Stöð 2. Þá er nú toppnum náð. Björgvin G. Sigurðsson bloggar á bjorgvin.is/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.