Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2006, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2006
Menning DV
Umsjón: Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir lirefna@dv.is
Æðahnutar
og blóðsug-
ur í ljóðum
Ljóðafiktar geta aldeiljs glaðst | ^BUBdOÍÍLlí 3e|Xi flytja VWMÖ 1 SalflÉ
: . gSMKf!> ___
yj'jifymisj x\j/Jijd=iiJ5 Í'JWzuíí Scimdi öÆmemþátcim||jffl íiljátJiijj útfíj
begar hcixm varíemimgie tólí* ái*a gamali. NQ em baö xiejxtí
'Töniktafekóia Hópayogs imdir stjórn Sjjjju JjjJjöíju
innilega þessa dagana.
Ljóðið í lfkamlegri nálægð er
heiti annarrar ljóðaskemmtunar
fræðsludeildar Þjóðleikhússins
sem haldin verður í Leikhúskjall-
aranum í kvöld. Yfirskrift þessara
þematengdu ijóðaskemmtana er
Ljóðs manns æði.
Viðfangsefnið að þessu sinni
er líkaminn, útlit, nautnir og
sársauki í ljóðum fyrr og nú. Flutt
dagákyöidiö, e_a baö em ekki aliir eej
Jean-JaqiLee Koueeeaii á
xyriimyndina £tö yerkl^s
vita að
I
r-4'
Sjgurbjörg Þrastardóttir rithöfund-
ur og blaðamaður Hefur unnið Ijóða-
dagskrá þar sem fjallað verðurm.a. um
útlit, nautnir og sársauka.
I Kristín Ómarsdóttir skáld
I Er gestur í Þjóðleikhúskjallar-
I anum i kvöld, enda hefur hún
I heilmikið skrifað um líkamann
I / Ijóðum sínum og sögum.
iHir eiga aö vera
verða fjölbreytt ljóð um útlit,
nautnir, sársauka og ýmsa líkam-
lega króka og kima. Við sögu
koma augu, æðahnútar, blóðsug-
ur, höfuðkúpur, sítrónur, fagurt
hár og hnífar, sveiflast verður frá
Passíusálmum til samtíma, milli
eldhúsa og svefnherbergja.
Sigurbjörg Þrastardóttir rit-
höfundur hefur umsjón með
kvöldinu og tengir saman ljóð
rúmlega þrjátíu skálda, en þeir
Eysteinn Þorvaldsson, Ástráður
Eysteinsson og Hjalti SnærÆgis-
son hafa valið ljóðin ásamt Sig-
urbjörgu. Gestur kvöldsins er
Kristín Ómarsdóttir rithöfundur,
sem les eigin ljóð er tengjast
þessu margslungna viðfangsefni.
Hún spjallar síðan við Sigur-
björgu og gesti um skáldskapinn.
Það var Þórhallur Sigurðsson,
deildarstjóri fræðsludeildar, sem
átti hugmyndina að ljóða-
skemmtununum, en flytjendur
þar verða leikarar, höfundar og
fleiri. Leitast verður við að skapa
ljúfa stemmingu og gestir geta
notið veitinga meðan á dag-
skránni stendur. Skemmtanirnar
hefjastkl. 21, en
húsið verð-
ur opnað
kl. 20:30.
Söngdeild Tónlistarskóla Kópa-
vogs mun flytja óperueinþáttunginn
Bastían og Bastíana eftir Wolfgang
Amadeus Mozart í Salnum á
fimmtudaginn kl. 20. Leikstjóri er
Anna Jútíana Sveinsdóttir og
Krystyna Cortes annast píanóleik-
inn.
í stuttu spjalli við menningarsíðu
segir Anna Júlíana að Mozart hafi að-
eins verið tólf ára þegar hann samdi
óperuna árið 1768. „Bastían og Bastí-
ana er byggt á franskri fyrirmynd, en
það eru fáir sem vita að rithöfundur-
, inn og heimspekingurinn Jean-
Jacques Rousseau var einnig tón-
skáld, sem samdi þetta verk þegar
deilur höfðu staðið um það hvort óp-
erur ættu að vera fluttar á frönsku
eða ítölsku. Hann samdi verkið til
þess að sýna fólki hvernig óperur
ættu að vera!“
Sýnt 544 sinnum
Anna Jútí'ana segir að verk Rous-
seau, sem bar nafiiið Le Devin du
Village og var samið 1752, hafi verið
sýnt 544 sinnum í frönsku óperunni.
„Mozart var auðvitað undrabam
og hann ferðaðist mikið með föður
sínum og systur. Hann drakk í sig
áhrif alls staðar að úr heiminum og
m.a. tók hann þetta vinsæla verk upp
á sína arma þegar það hafði verið
þýtt á þýsku. Auðvitað setti hann á
það sinn persónulega stíl."
Áður hefur Anna Jútíana sett Ba-
stían og Bastíönu upp með Tónlist-
arskóla Kópavogs, þar sem hún
kennir. Enda segir hún að það sé
bráðnauðsynlegur hluti af skóla-
starfinu að söngnemendumir læri
óperuhlutverk og þjálfist í því að
hreyfa sig og syngja á sviði. „Þessi
hópur er tíka bráðskemmtilegur og
Ragnar Ólafsson, Fjóla Kristfn Nikulás-
dóttir og Sigurjón örn Böðvarsson
Nemendur Tónlistarskóla Kópavogs setja
upp Bastian og Bastiana, eftir Mozart
hefur tekið miklum framförum. Við
hilökkum mildð til fimmtudags-
kvöldsins."
Söngvarar em Ragnar Ólafsson,
Fjóla Kristín Nikulásdóttir og Sigur-
jón öm Böðvarsson. Áður en óperan
hefst mun hljómsveit skólans undir
stjóm Unnar Pálsdóttur flytja þátt úr
sinfómu eftir Haydn og svítu úr óp-
emnni Carmen.
Aðgangur er ókeypis.
Tryggvi P. Friðriksson er ómyrkur í máli í Listapóstinum
Þekkingarsvamparnir vita lítið um myndlist
í nýjasta Listapóstinum, sem
gefinn er út af Gallerí Fold, skrifar
Tryggvi P. Friðriksson bráð-
skemmtilega grein um myndlistar-
vankunnáttu æskunnar. Hann seg-
ist hafa gaman af því að horfa á
spurningaþætti í sjónvarpi, enda
séu þátttakendur ótrúlega fróðir um
flest milli himins og jarðar...
„Á því er þó oftast ein áberandi
undantekning, það er ef spurning-
arnar fjalla um myndlist, þá standa
keppendur oftast á gati," segir
Tryggvi og bætir við: „Vankunnátt-
an er í raun bæði aumkunarverð og
ótrúleg. Nýlega kannaðist úrvalslið-
ið frá Akureyri ekkert við Kristínu
Gunnlaugsdóttur, eina kunnustu
núlifandi myndlistarkonu þaðan úr
bæ.“
Hver er Tolli? Hver er Kar-
ólína?
Tryggvi er steinhissa yfir öðm
Gettu betur-liði, sem hélt að Georg
Guðni væri Tolli og því þriðja sem
hélt að Karólína Lámsdóttir væri
. Sigrún Eldjárn.
„Þessir þekkingarsvampar, sem
draga í sig flest sem þeim er kennt,
þeir heyra og lesa, vita yfirleitt lítið
um myndlist," segir Tryggvi og ekki
er að undra þó að galleríeigandan-
um blöskri vankunnáttan. Þó em
ljóstýmr í tilvemnni og Tryggvi seg-
ist hafa glaðst í hjarta sínu þegar
keppnislið hans gamla skóla, Verzl-
unarskólans, þekkti bæði til Gull-
Qalla Svavars Guðnasonar svo og til
Tryggva Ólafssonar.
Umfjöllun í skötulíki
Tryggvi segir að umfjöllun í öðr-
um fjölmiðlum en Mogganum og
DV sé „annað hvort engin, lítil,
ómarkviss eða eitthvert mgl". Hann
segist ekki búast við miklu af ráða-
mönnum, en hins vegar sé „spurn-
ing hvort ástæða sé til að sætta sig
við að fræðsla og umfjöllun um list-
ir og menningu sé í slíku skötulíki
að helstu lærdómsnördar þjóðar-
innar þekki ekki hið minnsta til
listafólks sem þó verður að telja
þokkalega þekkt. Umræðan um
skólakerfið snýst um styttingu
námstímans. Skyldi það lofa góðu
fyrir listgreinarnar?"
Með góðu eða illu
Tryggvi segir að það sé mikilvægt
að fanga huga nemenda á þeim
tíma þegar þeir em móttækilegastir
fyrir listrænum áhrifum og gmnar
að það sé á framhaldsskólastigi.
Hann talar um að heppilegasta að-
ferðin til þess sé að fjalla um mynd-
list í sjónvarpi, svo hægt sé að ganga
að henni vísri, líkt og íþróttaum-
fjöllun. Að lokum setur eigandi
Gallerí Foldar fram átta óskir sem
gætu orðið myndlistarlífinu til
framdráttar. Þriðja óskin hljóðar
svo:
„Hann vill að með góðu eða illu
verði komið á listaumfjöllun á góð-
um áhorfstíma í Sjónvarpinu og
fengnir til framkvæmda færir listaf-
réttarmenn sem lausir em við hé-
góma og eru ekki of uppteknir af
sjálfum sér."
Hyernig er annað hægt en að
taka undir með Tryggva?
(Heimildir Listapósturinn á Myndlist.is)