Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2006, Page 10
SVJWI1MNMIHNN ERGUB
sjást átta efstu á forsíðu heimasíðunnar. Sjö af
átta vinum Helga eru þeldökkir en einn þeirra
er hvítur - hann sjálfur. Það ætti ekki að koma
nokkrum manni á óvart sem skilur titil síðunn-
ar.
FYRIRTÆKI BARÐfl GEFUR ÚT
Á þessari heimasíðu er einnig hægt að sjá
hver gefur út tónlist Helga Vals en það mun
vera Bang ehf. Það fyrirtæki á Barði Jóhanns-
son í Bang Gang og gaf út síðustu plötu sveit-
arinnar hjá því fyrirtæki. Velta menn því fyrir
sér hvort Barði kemur til með að hafa hönd í
bagga þegar kemur að framleiðslu disksins.
Það er ein af þeim fjölmörgu spurningum sem
er ósvarað um þetta verkefni Helga til heiðurs
svarta manninum.
SHS
TRÚBADORINN HELGIVALUR ÁS-
GEIRSSON HEFUR OPNAÐ MYSPACE-
SÍÐU Á NETINU UNDIR YFIRSKRIFT-
INNIBLACK MANIS GOD, THE
WHITE MANIS DEVIL. Á SÍÐUNNI
MA FINNA LÖG EFTIR ÞELDÖKKA
LISTAMENN SEM HELGIHEFUR SETT
f NÝJAN BÚNING. EINNIG ER HÆGT
AÐ TENGJA HELGA VAL VIÐ BARÐA í
BANG GANG. HELGIVILDIEKKITJÁ
SIG UM MÁLIÐ VIÐ SIRKUS.
HEL6IVALUR HELDUR ðTi
HEIMASÍBU SEM BERYFIR-
SKRIFTINA BLACK MANIS GOD,
THE WHITE MANIS DEVIL
„Þetta er milli mín og
svarta mannsins," var það
eina sem Helgi Valur Ás-
geirsson lét hafa eftir sér
þegar blaðcimaður Sirkuss
hafði samband við hann
íyrr í vikunni. Hann bætti
við að hann vildi einungis
tjá sig við fjölmiðlamenn af
afrískum uppruna áður en
hann lagði svo á. Helgi Valur
gaf í fyrrasumar út plötuna
Demise of Faith en áður
hafði hann sigrað í trú-
badorakeppni Rásar 2.
HYLLIR SVARTA MANNINN
Helgi Valur heldur úti
heimasíðu sem hefur slóðina
myspace.com/blackmanis-
godthewhitemanisdevil. Á
íslensku er yfirskrift síðunnar
„Svarti maðurinn er guð, hvíti
máðurinn er djöfull". Á þess-
ari síðu má finna lög sem trú-
badorinn Helgi Valúr hefur seft í
nýjan búning. Allt eru þetta lög
eftir þeldökka listamenn og má
þar á meðal nefna lagið Gin and Juice sem
rapparinn Snoop Dogg gerði frægt á síðasta
ári. Á sömu síðu hefur Helgi uppi háðsglósur
um listamanninn James Blunt og segir: „James
is the worst kind of Blunt".
SIÐASTIKAFLIRAPPSÖGUNNAR
Á þessari heimasíðu má einnig lesa um
Helga Val sjálfan þar sem hann segist vera síð-
asti kafli rappsögunnar. „Margir héldu að
þetta væri hvítur drengur að stela tónlist svarta
mannsins. Það rétt að mörgu leyti en hinsveg-
ar er þetta eina tónlistarstefnan sem hann gat
tengst," stendur á síðunni. Þar er því bætt við
að Helgi sé með Tupac tattoo og gat í nefinu.
Hann biður fólk um að bíða rólegt því von sé á
meistaverki frá sér þar sem hann ritar lokaorð
rappsögunnar.
BARA SVARTIR VINIR
Á myspace tíðkast það að fólk eignast vini.
Þeim er hægt að raða upp eftir mikilvægi og
ÚílAGINH
HVAÐ HEITIRÐU?
Auður Karitas Ásgeirsdóttir.
HVARERTU?
NewYork,NewYork
AFHVERJU?
Ég er í New York því ég er í framhaldsnámi hér. Ég
valdi borgina því ég þekkti hana ágætlega, elska
hana mjög og bjó hér sem barn.
HEIMILISAÐSTÆÐUR?
Ég bý í stúdíóíbúð á stærð við skókassa í göngufjar-
læ'gð frá skólanum mínum.Sem beturfer eru engir
kakkalakkar eða mýs sem deila íbúðinni með mér
enn sem komið er.
DAGUR f LÍFIÞÍNU?
Sumir dagar eru framtaksminni en aðrir. Þá sef ég of
lengi og hangi á tímaþjófnum msn og spjalla við
yndislegu vini mína heima á fslandi. Góður dagur er
þegar ég vakna snemma,fer í ræktina, vesenast og
læri fýrir skólann, labba nýja leið í skólann, borða
góðan mat eftir tíma og fer á tónleika eða á bíó.
KOSTIR ÞESSAÐ BÚA í NEWYORK?
Hér er hægt að finna allt og kostirnir eru endalausir.
Klisjan að New York sé borgin sem aldrei sefur er
sönn og það getur verið mjög hentugt. Hægt er að
panta mat heim frá öllum heimshornum hvenær sól-
arhringsins sem er, reykingar bannaðar á skemmti-
stöðum og já, ég get haldið áfram endalaust.
ÓKOSTIR ÞESS AÐ BÚA í NEW YORK?
Þrátt fyrir að New York sé frábær og frábrugðin flest-
um öðrum bandarískum borgum er hún engu að
síður í Bandaríkjunum og því miður er ansi margt
rotið í henni Ameríku. Svo er ég búin að fá nóg af
þessu veseni á krónunni takk fýrir, veik - sterk;
ákveddu þigi!
HVERS SAKNARÐU AÐ HEIMAN?
Fylltra lakkrísreima,kókosbolla,dracula brjóstsykurs,
Eldsmiðjunnar, bragðarefs, íslenskra sjónvarpsfrétta,
náttúrunnar og lyktarinnar af íslandi en aðallega fjöl-
skyldunnar og vina.
UPPÁHALDSSTAÐUR f NEWYORK?
Margir og listinn er ekki tæmandi. Mercer-hótelið,
Magnolia Bakery,Cipriani Downtown f sunnudags-
brunch, og síðast en ekki síst Film Center Café á 9.
breiðgötu þar sem fýlgir, með hverjum keyptum
brunch um helgar,ótakmarkað magn af kampavíni,
mimosa, screwdriver eða bloody mary!
fSLENDINGAR ERU...?
bestir í heimi.
NEW YORK-BÚAR ERU...?
Skapvondir og stundum frekar ferkantaðir.
EIN MANNESKJA SEM ÞÚ BIÐUR AÐ HEILSA:
Arthúr
Hvað kom æí, ég skar mig
fyrir þig? ítrekað. Ég þurfti
að tjá eymd mína
og reiði
Dorrit.
EYMD
tmm-
HERÓÍNf
Nú til sölu
á netinu!
Fjandinn.com/Arthur