Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Side 5
PV Sport
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ2006 39
r
um Landsbanka-
deild karla
• Daninn Allan Dyring
hjá FH á enn eftir að skora í
Landsbankadeildinni í sum-
ar en hann hefur þegar spilað
264 mínúUir í fremstu víglínu
íslandsmeistaranna. Þetta
er ekki öll sagan því Dyring
hefur leikið 10 KSÍ-leiki með
FH síðan að kom til liðsins í
apríl og hefur ekki skorað í
neinum þeirra. Allan hefur
því verið markalaus í þær 827
mínútur sem hann hefur spil-
að í íslenska boltanum. Allan
skoraði reyndar í
sínum fyrsta
leik en það
var í æf-
ingaleik
gegn Drö-
bak/Frogn
IL 1. apríl.
• Valsmenn
unnu á mánudag
sinn fyrsta leik undir stjóm
Willums Þórs Þórssonar eftir
að hafa lent 1-0 undir. Vals-
menn höfðu tapað öllum 8
leikjum sínum þar sem þeir
voru ekki fyrstír tíl að skora
síðan að Willum tók við. Þeg-
ar Valsmenn skora fyrsta
markið hefur liðið náð í 52 af
54 stígum í boði undir stjórn
Willums.
• KR-ingar hafa ekki unnið
Keflavík í síðustu sex leikj-
um liðanna eða síðan að KR
vann 1-0 á KR-vellinum 10.
júní 2002. Frá þeim tíma hef-
ur Keflavík unniðfjóra af sex
leikjum liðanna og hinir tveir
hafa endað með jafntefli.
Markatalan er 14-6 Keflavík-
urliðinu í vil.
• Víkingur unnu sinn fyrsta
leik í efstu deild í Vestmanna-
eyjum í 14 ár þegar Vikt-
or Bjarld Amarsson tryggði
sínum mönnum 1-0 sigur
á sunnudaginn. Eyjamenn
höfðu unnið þrjá heimaleiki í
röð gegn Vfldngum og skorað
þrjú mörk í þeim öllum.
• Það hafa verið skomð 18
mörk í fyrstu fjórum leikjum
Blika í deildinni eða 4,5 mörk
að meðaltali í leik. Blikar hafa
skorað 9 mörk sjálfir en hafa
jafnrframt fengið á sig 9 mörk
þar af 7 þeirra í síðustu tveim-
ur leikjum sínum. Marel Bald-
vinsson er búinn að skora í
þremur leikjum í röð í Lands-
bankadeildinni er marka-
x hæstí leikmaður hennar með
fimm mörk.
LANDSBANKADEILD KARLA
Staðan:
FH 4 4 0 0 9-2 12
Grindavík
2 0 2 6-5
Víkingur 4 2 0 2 6-5
2 0 2 5-4
Breiðablik 4 2 0 2 9-9
3-7
IBV 4 1 0 3 3-9
6
6
6
6
6
3
ÍA 4 0 0 4 5-9 0
Markahxstu menn:
MarelBaldvinsson, Breidabliki 5
Jóhann Þórhallsson, Grindavik
Næstu leikir:
Vikingur-Valur mán.kl. 19.15
1 lA-Fylkir mán.kl. 19.15 1
Grindavík-lBV mán. kl. 19.15
Færeyingurinn Símun Eiíar Samuelsen er leikmaður 4. umferðar að mati DV Sports
enda átti hann stórleik og skoraði eitt af þremur mörkum Keflavíkur sem lagði KR á
heimavelli. Símun er reyndar hálfur íslendingur en hefur alla tíð alið manninn í Fær-
eyjum. Einu kynni hans af íslenskri knattspyrnu voru greinar sem hann las um Kefla-
vík í Víkurfréttum sem móðir hans fékk sent til Færeyja.
me
Símun Samuelsen
Skoraði eitt gegn KR og
upp annað.
DV-mynd
Mikil útlendingahersveit er í Keflavík og eirtn þeirra sem hana
skipa er færeyski landsliðsmaðurinn Símun Eilar Samuelsen.
Hann hefur átt afar sterka innkomu í Keflavíkurliðið síðan hann
gekk til liðs við félagið síðastliðið sumar og hefur verið einna sterk-
astur leikmanna Landsbankadeildarinnar það sem af er móti.
„Það er auðvitað alltaf gaman
að vinna leiki og kannski sérstak-
lega gegn KR, ég veit það ekki svo
sem," sagði Símun í samtali við
DV Sport. Hann kom tíl Keflavflon
í lok júlímánaðar í fyrra og einmitt
í sínum fyrsta leik með nýja félag-
inu skoraði hann í 3-3 jafnteflis-
leik gegn Þrótti eftir að hafa kom-
ið inn á sem varamaður.
í ár hins vegar hefur hann átt
fast sæti í byrjunarliði Keflavík-
ur og gegnt hlutverki sóknarþen-
kjandi miðvallarleikmanns. Sér-
staklega mikla athygli hefur vakið
hversu duglegur hann er á vell-
inum og virðist algerlega óþreyt-
andi. Það er engum blöðum um
það að fletta að hann myndi sóma
sér í hvaða liði sem er í deildinni.
Útsendari fylgdist með
„Mér hefur gengið vel lengst af.
Ég áttí kannski ekkert góðan dag
gegn ÍBV þrátt fyrir að hafa skor-
að. En í leiknum gegn KR lék ég á
eðlilegri getu og var leikurinn ör-
ugglega minn bestí með Keflavík
til þessa," sagði Sfmun. Ekki var
verra að einmitt í leiknum gegn
KR voru bæði landsliðsþjálfari
færeyska liðsins sem og útsend-
ari frá erlendu liði að fylgjast með
kappanum. „Mér líður vel í Kefla-
vík og strákarnir í liðinu eru hress-
ir og kátir," bætti hann við. Ekki
skemmir fyrir að móðir hans, sem
er íslensk, er frá Keflavík og fékk
Víkurfréttír sent á fjölskylduheim-
ilið í Færeyjum. Umfjöllun blaðs-
ins um Keflavíkurliðið er það eina
sem Símun þekkti af íslenskri
knattspyrnu áður en hann kom
hingað sjálfur síðastliðið sumar.
Höfðu þá liðið ellefu ár frá síðustu
heimsókn hans til íslands.
„Eins og er fylgjast færeysk-
ir fjölmiðlar þó nokkuð með ís-
lensku deildinni en þá aðallega
með þeim færeysku leikmönnum
sem þar spila. Ef engir Færeying-
ar væru í deildinni væri áhugi fjöl-
miðla sjálfsagt lítíll sem enginn."
Símun segir að þessa stundina séu
fáir atvinnumenn í knattspyrnu
frá Færeyjum, nokkrir á Norður-
löndunum og einhverjir ungling-
ar á Englandi. Og rétt eins og oft er
tilfellið með unga íslenska knatt-
spyrnumenn sem halda ungir í
víldng, koma þeir oft fljótlega aft-
ur heim.
Á langan feril fyrir höndum
„Ég ætla að reyna að fara eins
langt og ég get. Ég er 21 árs og á
vonandi langan feril fyrir hönd-
um," sagði Símun sem á þegar
fjóra landsleiki að baki. Nú síð-
ast skoraði hann í 2-1 tapi liðsins
gegn ísrael á útívelli eftir að hafa
komið inn á sem varamaður.
Aðspurður segir hann að sér lít-
ist vel á deildina. „Mér líst þó lítið
á að FH-ingar séu að stinga af en
við eigum þá einmitt í næsta leik.
Ef við fáum ekki stig þar verðum
við átta stigum á eftir FH og er það
ekki traustvekjandi. Það eru ann-
ars erfiðir leikir framundan en við
ætlum okkur að ná stigi og stigum
úr öllum þessum leikjum."
Kristján Fínribogason
KR
aJðmundsson
Birkir Ma^ævarssori
Guöjón Æntöníasson
Keflavik _
Birkir Már Sævarsson
Val
Freyr Biarnason
jjónsson
Grétar 5. Sigurösson
Ármann Smári Björnsson
Baldur Aöalsteinsson
Peter Gravesen
Fylki
Hólma'r Runarsson
SinisaKekic
Sigurviri Öiafsson
FH
Keflavík
Grindavfk
Óskar Örn Hauksson
■ Grindavlk
Símun Sámúelsen
Keflavík
ViktorB. Arnarsson
Vlkingi
VnarJón Sigurqeirsson
Vfkínar
Atli Guönason
FH
Garöar Gunnlaugsson
________Val
Viktor BIArnarsson
VÍkinqi
Garöar Gurinlaugsson