Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Page 6
40 FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ2006 Sport DV T Guðjón Þórðarson stendur á tímamótum. Hann er nýhættur með enska 3. deildarliðið Notts County eftir stormasamt ár í Nottingham, hjá elsta félags liði heims. Undanfarna daga hefur hann verið orðaður við endurkomu í ís- lenska boitann og þá til síns gamla télags á Skipaskaga en hann blæs á allt slíkt og segist vera með mörg járn í eldinum. Gárungamir voru ekki lengi að orða Guðjón Þórðarson við sitt gamla fé- lag, ÍA, eftir að Ólafur Þórðarson, þjálf- ari liðsins, sagði eftir leikinn gegn Val í vikunni að hann væri orðinn þreyttur á slæmu gengi. En Guðjón gefur lítið fyr- ir slíkar vangaveltur. Hann var meðal áhorfenda á leiknum og eins og öðmm Skagamönnum leist honum ekki á blik- una. „En það er erfitt fyrir mig að dæma þetta. Ég er svo nátengdur þessu félagi," sagði Guðjón við DV Sport. Guðjón sagði, eins og flestir vita, upp störfum hjá enska 3. deildarliðinu Notts County í síðustu viku eftir að hafa stjórnað því í eitt ár. Þangað fór hann eft- ir skrautlega mánuði hjá liði Keflavíkur en mikið var rætt og ritað um brotthvarf hans frá liðinu aðeins nokkrum dögum áður en íslandsmótið hófst. Raunin varð önnur En nú er hann að leita sér að nýju starfi og segist vera með mörg járn í eldinum, enda með tvo umboðsmenn á Englandi. En um Notts County segir hann að forráðamenn liðsins hafi ekki staðið við sitt. „Þróunin varð önnur en ég bjóst við í haust. Þetta var þungur og erfiður vetur en mér var sagt að það sem ég væri að laga til í félaginu og liðinu myndi nýtast mér á næsta ári. Svo varð bara raunin önnur. Félagið er vissulega illa statt fjárhagslega en það er hægt að komast yfir allt slflct með samstillm átaki. Það eru á heildina litið margir þættir sem koma að því að reka knatt- spymufélög og þurfa þeir að ná saman til að félagið nái árangri." Guðjón er guð Guðjón segir að allt hafi litið vel út í upphafi enda var hann með stranga æf- ingaáætlun á undirbúningstímabilinu sem vakti mikla athygh. Liðið kom svo eins og stormsveipur í upphafi móts og náði meira að segja toppsæti deildar- innar eftir nokkrar umferðir. Þá var Guð- jón hylltur af mörgum stuðningsmönn- um sem guðleg vera. En Guðjón hélt sér á jörðinni og sagði að þrátt fyrir allt mætti ekki mik- ið láta undan. „í liðinu voru sex eða sjö leikmenn sem voru áberandi bestir og ómissandi. Þegar sá hópur fór að þynn- ast skipti í sjálfu sér ekki máli hver kæmi inn í staðinn. Ef þessi hópur væri ekki allur með myndi það hafa mikil áhrif." Þegar uppi var staðið náði liðið sama stigafjölda og í fyrra en lauk keppni neð- ar í töflunni. Reyndar var liðið ekki langt frá því að falla í utandeildina og hefðu það verið grimm örlög fyrir elsta knatt- spymufélag heims en Guðjón var fyrsti stjóri liðsins sem er fæddur utan Bret- landseyja. Sér ekki eftir neinu En Guðjón sér ekki eftir neinu, frekar en fyrri daginn. „Ég sé aldrei eftir neinu svona. Þetta er bara reynsla sem maður tekur til sín. Ég þurfti að kljást við fullt af málum í þessu starfi sem forverar mínir gerðu ekki. Þetta stefndi í rétta átt en svo voru teknar ákveðnar ákvarðanir sem ég gat ekki fallist á.“ Sem fyrr segir er Guðjón með mörg járn í eldinum og því hefur hann ekki miklar áhyggjur af atvinnuleysi. „Ég var rétt í þessu að leggja á einn umbann og vorum við að fara yfir nokkur mál," sagði hann við blaðamann sem spurði hvað tæki svo við. „Það er alltaf eitthvað að gerast," bætir hann við. i $

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.