Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Side 7
DV Sport FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ2006 41 Guðjón hefur í gegnum tíðina verið orðaður við ótal félög. Nú síðast spurð- ist það út að hann kom sterklega til greina sem knattspymustjóri Leicester, sem sonur hans Jóhannes Karl lék með í vetur. „Ég fékk ekki að vita fyrr en eftir á hversu nálægt ég var starfinu. Það mun- aði afskaplega litlu," segir hann. „En ég er viss um að ef ég leita nógu stíft þá finn ég mér starf. Ég veit að ég get fengið starf en það þarf ekki endilega að vera að ég vilji taka því. Ég hef oft hafnað störfum sem mér hafa verið boðin. Ég er nefni- lega ekki tilbúinn í hvað sem er og ætla ég að skoða mín mál betur en ég gerði síðast." Tvö lið sem koma til greina Hann segir að eins og stendur komi hann jafhvel til greina hjá tveimur ensk- um félögum, einu í 1. deildinni og öðru í 2. deildinni. „Það eru ákveðnir mögu- leikar í stöðunni. Nú var til að mynda einn að taka við hjá Charlton og þá losn- ar starfið hjá hans' gamla félagi. Þá gæti svo farið að einhver annar tæki við því sem þýddi að enn annað starf losnaði. Þetta er stór keðjuverkun sem fer í gang og gengur út og suður." Og skyldi hann sjá eftir einhverri ákvörðun sem hann hefur tekið í þess- um hraða heimi á Englandi undanfar- in sjö ár? „Ég held að ég hafi tekið þær áJcvarðanir sem voru bestar hverju sinni og sé ekki eftir þeim," segir hann, skýrt og skorinort. Guðjón hefur áður starfað hjá ensku félögunum Stoke City og Barnsíey og er mönnum enn ferskt í minni er fslend- ingar keyptu ráðandi hlut í fyrmefnda félaginu og réðu Guðjón sem knatt- spyrnustjóra. Þar starfaði hann í tvö og hálft ár en það þótti skjóta skökku við að loksins þegar liðið komst upp í 1. deildina var ákveðið að framlengja ekki samning félagsins við Guðjón. „Auðvit- að voru það mikil vonbrigði. Ég hafði á sínum tíma stytt samning minn og sagði þá að ég gæti komið liðinu upp ári síð- ar. Þá voru gerð fyrirheit um annan og öðruvísi samning. En þeir höfðu í sjálfu sér í sínum höndum hvort þeir ætluðu ' að standa við sín orð eða ekki og ákváðu að taka þennan pól í hæðina. Þannig er það oft, þetta er að mörgu leyti mjög ófyrirleitinn bransi þar sem sumt sem þar fer fram er ekki til fyrirmyndar." Góður tími hjá Barnsley Hann segir að tími sinn hjá Barns- ley hafi verið góður þótt hann hafi ver- ið stuttur. „Þar var félagið nýkomið úr greiðslustöðvun og mér mjög þröngur stakkur skorinn. Ég var í samstarfi við aðila sem vildu taka yfir félagið en á end- anum keypti Peter Ridsdale klúbbinn og var ég leystur frá mínum samningi fá- einum mánuðum síðar." Kvaddi landsliðið með trega Áður en Guðjón hélt til Englands gegndi hann stöðu landsliðsþjálfara hér á landi og náði frábærum árangri með liðinu. „Eg kvaddi landsliðið með ákveðnum trega. Það var gaman að tak- ast á við það verkefni og náðum við þeim árangri með samstilltu átaki leikmanna og sambandsins. Þegar ég tók við lið- inu var það í 88. sæti og hæst fór ég með það í 43. sætí. Atli náði því svo upp í 42. sæti eftír Norðurlandamótið á La Manga en skömmu síðar virðist sem brekkan hafi verið það hál að menn réðu ekki við sig," sagði Guðjón en staða landsliðsins í dag er slæm, liðið situr í 99. sæti styrk- leikalista FIFA. „Það er frekar sorglegt að horfa upp á hvernig landsliðið hefur þróast. En ég vona að menn nái tökum á þessu nú og hef ég fulla trú á að Eyjólfur eigi eftir að gefa allt sitt í verkefnið sem framundan er." Starfsaðferðir Guðjóns með lands- liðinu vöktu á sínum tíma mikla at- hygli, sér í lagi hvernig hann kynntí sér lið andstæðingsins. Gengu sögur um að hann hafi jafnvel kynnt sér matarvenjur viðkomandi þjóða. „Það gekk kannski ekki alveg svo langt en maður verð- ur þó að kynna sér ákveðin karakter- einkenni þessara þjóða. Þessi einkenni speglast í landsliðum þeirra og veita manni ákveðna innsýn í liðið. Og þetta eru ekki flókin ffæði. Fótbolti gengur út á að skora og fá ekki á sig mark og skiptir þá engu þótt markið komi á 80. mínútu. Þetta er svipað óg þegar menn byggja hús - þá byrja þeir á grunninum. Það er varnarvinnan. Það er erfitt að æda sér að vinna leik þegar maður er 2-0 undir eftir 60 mínútna leik. Þá er erfitt að skora þrjú mörk á síðustu 30 mínútunum. Tuttugu ár í bransanum 20 ár eru liðin síðan Guðjón Þórðar- son hóf sinn feril í knattspymuþjálfun og hefur hér að ofan verið farið í gróftím dráttum í gegnum síðari hluta þess fer- ils. En árin á íslandi voru árangursrík og tidamir margir sem hann vann með lið- um sínum, ÍA, KA og KR. Og hann segir að einna sætastur hafi verið títílinn sem hann vann árið 1989 sem þjálfari KA. „Ætli það hafi ekki verið einna skrýmasta og sérstakasta atvikið á ferlinum til þessa. Eftir áð við tókum við titíinum í Keflavík flugum við norður í brjáluðu veðri og hélt ég að Fokkerinn ætíaði að hristast í sundur. Ég man að það voru líka banda- rísk hjón í vélinni sem voru einu far- þegamir sem tengdust ekki liði KA. Þau vissu greinilega ekki í hverju þau hefðu lent. En svo lentum við og var mjög sér- stakt að koma með titilinn norður. Það verður lengi í minnum haft." Einstakur sigur með KR Og hann segir að titíarnir hjá ÍA og KR hafi verið mjög sætir. „Sérstaklega var tíminn minn hjá KR mjög skemmti- legur. Þá hafði liðið ekki unnið titíl í 27 ár og ef það hefði hent eitthvert annað fé- lag hefði það sennilega dáið. En félags- legur styrkur liðsins er gífurlega mikill og var gaman að blása lífi í glæðurnar hjá KR. Það var einstakur sigur sem þar vannst." Stoltur í Frakklandi En hvað með vonbrigðm? „Ég hef aldrei farið mjög langt niður og læt ekki slá mig út af laginu svo glatt. Auðvitað koma upp vonbrigði. Það var tíl dæmis með landsliðinu þegar við töpuðum fyrir Úkraínu hér heima eftir að Shevchenko hafði hent sér í jörðina og náð í víta- spyrnu. Það þýddi þá að við þurftum að vinna Frakka á útivelli en jaftitefli gegn Úkraínu hefði þýtt að jafntefli í Frakk- landi hefði getað fleytt okkur áfram í lokakeppnina. Við vorum ískyggilega nálægt þessu og ég var hvað stoltastur af mínu liði þegar við náðum að jafria met- in gegn Frökkum á Stade de France eft- ir að hafa verið 2-0 undir í hálfleik. Við töpuðum svo í blálokin en þetta sýndi að við gátum tekist á við hvað sem er. Við megum vera stoltir af þessum árangri." eirikurst@dv.is Ferill Guðjóns Þórðarsonar í máli og myndum (A 1987 6 uðjón Þóröarson leggurskóna á hilluna og tekur við þjálfun lA eftir aö hafa spilaö með liðinu í rúm 14 ár. Guöjón spilar 212 leiki fyrir Skagaliðið I efstu deild frá 1972 til 1986 og það I leikjamet hans stendur enn þann dag ídag. DV-mynd Óskar \) Ö ■ (A 1991-1993 Guðjón býr til grunninn að mestu sigurgöngu íslenskrar knattspyrnu þegar hann snýr aftur á Skagann. lA hafði fallið í 2. deild sumarið 1990 en vinnur 1. deildina örugglega á hans fyrsta ári og Guðjón verðursíðan fyrsti þjálfarinn tilaðgera nýliða að íslandsmeisturum sumarið 1992.Skagamennvinna slðan tvöfalt sumarið 1993 og tefla þar fram einu að bestu 1 liðum allra tima. DV-mynd Brynjar Gauti mm naa | lA 1996 Guðjón snýr aftur á Skagann og gerir lA að Islandsmeisturum fimmta árið Iröð eftir hörkubaráttu við KR. IA tryggirsér titilinn með 4-1 sigri á KR í úrslitaleik I lokaumferðinni. Skagamenn vinna einnig bikarinn og lið Guðjóns eru þar með búin að verða bikarmeistarar fjögur ár I röð. DV-mynd Brynjar Gauti StokeCity 1999-2002 Guðjón tekur við Knattspyrnustjórastöðu Stoke I kjölfarið þess að íslenskir fjárfestar eignast meirihluta I liðinu. Guðjón stjórnar Stoke I þrjú ár og undir hans stjórn vinnur liðið bikarkeppni neðrideildarliða á Wembley. Guðjón tekst að koma Stoke upp i B-deildina á þriðja ári en var sagt upp störfum aðeins nokkrum dögum eftir úrslitaleikinn. Guðjón tók við norska liðinu Start um sumarið en tókst ekki að breyta gengi liðsins en það var langneðst I deildinni og féll um haustið. DV-mynd Pjetur Keflavík2005 Guðjón tók við liði Keflavikur í ársbyrjun 2005 og var með liðið allt undirbúningstlmabilið eða þar til aðhann hætti þjálfun | þess aðeins þremur dögum fyrir fslandsmótið. DV-mynd Vikurfréttir KA1988-1990 Guðjón heldur ekki áfram með lA heldur tekur við KA á Akureyri. KA-menn ná4. sæti á fyrsta ári hans með liðið en gera siðan enn betur sumarið 1989 þegar Guðjón gerir KA aö Islandsmeisturum I fyrsta og eina skiptið. KA gengur ekki vel i titilvörninni árið eftir og rétt bjargar sér frá falli. DV-mynd Ægir Már I KR 1994-1995 Guðjón feryfir til KR og gerir Vesturbæinga að bikarmeistur- um bæði árin sin með liðið. Þegar KR vann bikarinn fyrra árið voru liðin 27 ársiðan félagið vann stóran titil. DV-mynd Brynjar Gauti I (slenska landsliðið 1997-1999 Undir stjórn Guðjóns fer íslenska landsliðið upp um 45 sæti á styrkleikalista FIFA (upp í43. sæti íárslok 1999), nærjafntefli við nýkrýnda heimsmeistara Frakka og Guðjón nær bestum árangri landsliðsþjálfara frá upphafi. ísland er með 5696 sigurhlutfall i þeim 26 leikjum sem Guöjón stjórnar liðinu. DV-mynd Hitmar Þór I Barnsley 2003-2004 Guðjón var atvinnulaus i8 mánuði en Ijúní2003 var hann ráðinn sem knattspyrnustjóri hjá enska 2. deildarliðinu Barns-1 ley. Guðjón fór vel afstað með liðið en eftir að það heltist úr toppbaráttunni varhann rekinn Imars. Guðjón fór til Hibernian i Skotlandi en hætti strax störfum þegar kom I Ijós að hann var aðeins ráðinn til bráðabrigða í þrjá leiki. DV-mynd Sheffield Newspaper I Notts County 2005-2006 Fjórum dögum eftirað Guðjón hætti með Keflavíkurliðið skrifaði hann undirsamning við enska 3. deildarliðið Notts County. Liðið fór vel afstað og Guðjón var meðal annars kosinn besti stjóri ágústsmánuöar en síðan fór að halla undan fæti og Guðjón hætti með liðið eftir að það vann aðeins einn afsíðustu 16 leikjum slnum og endaði 121. sæti eða aðeins tveimur sætum frá falli úr ensku deildarkeppninni. DV-mynd Tom Loakes I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.