Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Blaðsíða 8
42 FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ2006 Sport DV Tímabilið hefur verið gott hjá Veigari Páli Gunnarssyni sem leikur með norska úrvalsdeildarliðinu Stabæk. Liðið er nýliði i deildinni en hefur enga að siður látið til sin taka með Veigar Pál fremstan í flokki en hann er markahæsti leikmaður deildarinnar. „Ég er enginn markaskorari,“ sagði hann i samtali við DV Sport. Skyggnist á bak viðtjöldin í boltanum Fjórar umferðir búnar og veíslan heldur áfram Veigar PáH Gunnarsson er núna loksins að fá þá athygli sem hann verðskuldar. Eftir að hann gegndi lykilhlutverki í íslandsmeist- araliðum KR árin 2002 og 2003 hélt hann í atvinnumennskuna á nýjan leik og eftir að hafa bæði fallið um deild og unnið sig upp á nýjan leik með Stabæk er hann nú að blómstra. „Fyrir mig persónulega hef- ur tímabilið verið alveg frábært," sagði Veigar Páll. „Liðið byrjaði líka mjög vei en það hefur verið að dala í síðustu þremur leikjum og hrunið niður töfluna. En við erum þó um miðja deild eins og er og er það ágætt af nýliðum að vera." Veigar er sem stendur marka- hæsti leikmaður deildarinnar með sex mörk skoruð og deilir efsta sæti listans ásamt einum öðrum. Hann og félagi hans í sókn Stabæk, Dani- el Nannskog, hafa samtals skor- að 11 af 13 mörkum liðsins í vor. Nannskog þessi var langmarka- hæsti leikmaður 1. deildarinnar í fyrra og Veigar var þó ekki langt undan en lagði þá ófá mörk upp fyrir félaga sinn. Og sjálfur seg- ir hann að það sé fyrst og fremst hlutverk hans innan liðsins. og gekk það ekki betur en svo að ári síðar var hann kominn heim á nýjan leik og í búning KR-liðsins. Fallið það besta sem henti mig „Ég kom til Noregs fyrir tíma- bilið 2004. Það ár féll Stabæk en við unnum okkur aftur sæti í efstu deild ári síðar. Ég sé ekki eftir því að hafa haldið tryggð við félag- ið, sérstaklega núna þegar gengur svona vel. Mér er sérstaklega létt miðað við hvernig fýrsta tímabilið var hjá félaginu. Það leit út fyrir að það ætlaði að verða nákvæmlega eins og árið hjá Strömsgodset. Eg var alltaf meiddur og gekk þar af leiðandi mjög illa. Þegar liðið féll var það eiginlega það besta sem gat komið fyrir mig. í fyrstu deild- inni fékk ég mikið sjálfstraust. „Mér er sérstaklega létt miðað við hvern- ig fyrsta tímabilið var hjá félaginu. Það leit út fyrir að það ætlaði að verða nákvæmlega eins og árið hjá Strömsgodset. Ég var alltaf meiddur og gekk þar afleiðandi mjög iiia'' „Eins og ég hef alltaf sagt, þá er ég enginn markaskorari og það er góður bónus fyrir mig að vera markahæstur í deildinni. Ég spila í sókninni en er ekki þessi framherji sem er alltaf að reyna að stinga sér inn fyrir vörn andstæðingsins. Ég hef frjálsara hlutverk og er meira í því að sækja boltann aftar á vellin- um og dreifa spilinu." Og Veigar Páll hefur fengið mik- ið lof frá norskum fjölmiðlamönn- um. En það er þó í fýrsta sinn í fjögur tímabil sem hann vekur einhverja athygli í norska boltan- um. Árið 2001 gekk hann til liðs við Strömsgodset frá Stjörnunni Núna er tilfinningin allt önnur en í hin tvö skiptin sem ég lék í úrvals- deildinni. Það er ekki þetta von- leysi og vangaveltur um hvort ég sé nógu góður. Ég sé núna að ég er nógu góður," sagði Veigar Páll. Síðasta umferð norsku úrvals- deildarinnar fyrir mánaðarlangt sumarfrí hefst að loknum leik Stabæk og meisturum Válerenga á þriðjudagskvöldið. Þrátt fyrir að þarna séu meistarar síðasta árs að mæta nýliðunum eru liðin hlið við hlið í töflunni. Reyndar skilja aðeins fjögur stig á milli liðsins í þriðja og þrettánda sæti og lítur út fyrir að tvö lið - Brann og Lill- eström - ætli að stinga af. Brann, með alíslenskt miðvarðapar sitt, þá Kristján Örn Sigurðsson og Ólaf örn Bjarnason, er enn sem komið er taplaust í deildinni. Er það ekki síst íslenska tvíeykinu að þakka sem hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína, sér í lagi sá fýrrnefndi. Ekki í landsliðinu Þeir hafa báðir hlotið náð fyr- ir augum landsliðsþjálfara íslands síðastliðin ár en aðkoma Veigars Páls að liðinu er heldur misjafnari. Hann var til að mynda eldci val- inn í hóp liðsins í fyrsta leik Eyj- ólfs Sverrissonar gegn Trinídad og Tóbagó í febrúar síðastliðnum. Skyldi hann hafa heyrt eitthvað í Eyjólfi eða Bjarna aðstoðarmanni hans? „Nei, ekki neitt. Ég hef í sjálfu sér engar áhyggjur af því. Ég held að þeir viti vel að það gengur vel hjá mér. Aðalatriðið er að haldi mér meiðslafríum," sagði Veígar um málið. Það er þar að auki ekki slæm auglýsing að vera markahæsti maður deildarinn- ar. Samningur Veigars Páls við Stabæk rennur út að tímabil- inu loknu og hafa forráða- menn liðsins boðið honum nýj- an samning. „Ég er í viðræðum eins og er. Ég held að þeir viti þó að mig langar að komast að í stærri deild. En það e engin hreyfing á þeim mál- um eins og er." Skyldi einhver deild heilla meira en önnur? „Ég hef alltaf verið mjög spenntur fyrir hollensku deildinni. Veit svo sem ekki af hverju. Ég hef stundum heyrt að hún myndi henta mér vel. Þetta er nú bara smá draumur hjá manni en ég væri svo sem til í að skoða allt sem kæmi til." eirikunt@dv.is Fjórar umferðir búnar og allt að ger- ast í deildinni. FH-ingarnir ekki búnir að tapa leik en ég hef nú trú á því að það fari einhver að setja korktappa í FH-ingana og vinna helvítin. Það er leiðinlegt fyrir deild- ina ef þeir ætla að fara að stinga af, þó svo ég viðurkenni að það gæti alveg verið til- fellið aftur. Skagamenn ekki búnir að vinna leik og menn eitthvað farnir að ræða að Óli þórð- ar sé að fara að hætta. Það má náttúrulega bara ekki gerast. Þessi viðtöl við þjálfarana eftir leiki eru yfirleitt mjög fyrirsjáanleg og leiðinleg, koma flestallir bara með stöðl- uð svör sem maður hefur heyrt hundr- að sinnum áður. En ég bíð alltaf spennt- að segja hvernig svona leikir fara, það lið sem vill stigin meira vinnur, ekkert flókn- ara en það. Núna er Neggerinn líka mikill aðdáandi kvennaboltans á landinu og er grimm- ur að mæta á leiki hjá prinsessunum. En vilja menn ekki hafa spennu í þessari deild, eru menn þroskaheftir? Af hverju í and- skotanum er efsta deildin ekki bara 5 lið? Breiðablik, Valur, Stjarnan, KR og Keflavík og síðan spilaðar 4 umferðir. Þá fáum við spennandi leiki í hverri umferð og þá kem- ur í ljós hvaða lið er best! Það er ekíd spenn- andi þegar leikir eru að enda 12-0 og 15-0. Þangað til nœst! Sœlar! Kv, Gillz ur eftir viðtölunum við Óla því að hann er nagli og lætur menn heyra það gerir það skemmtilega. Menn eins og Óli gera deildina skemmtilegri og andskotinn hafi það ef að hann fer að hætta kallinn. Það vantar bara Guðjón Þórðar líka í deild- ina, þá erum við komin með ann- an snilling sem er skemmtilegur í viðtölum, þá er veisla fyrir fólkið í stofunni. Blikarnir eru óheppnir að vera ekki í öðru sætinu í deild- inni eftir að hafa fengið það óvænt bílskúrinn á síðustu 5 mínútun- um á móti Grindavík. Blikar 4| PS V 1 áttu þar seinni hálfleikinn og besti senter deildarinnar hann Marel setti þar tvö mörk og varð þar markahæstur í deildinni, kem- ur ekki á óvart enda ótrúlega góður leikmaður þar á ferð. Næsti leikur Blikanna verð- ur á móti KR í Frostaskjólinu, það verður örugglega hörkuleikur enda mæta þar bæði lið kolgeð- veik til leiks eftir að hafa skitið á sig í síðasta leik. Það er al- veg ljóst að Blikarnir eru með töluvert skemmtilegra, sterk- ara og betra lið en KR-ingarn- ir en það er samt ómögulegt Markaskorari VeigarPáll Gunnarsson fagnar glæsilegu marki sem hann skoraði gegn Möltu Í4-1 sigri islenska landsliðsins i fyrra. DV-mynd Pjetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.