Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Side 11
DV Sport FÖSTUDAGUR 2. JÚNl2006 45 Sextánda heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu fór fram í Frakklandi 10. júní til 12. júlí 1998. Frakkinn Jules Rimet var maðurinn á bak við að koma heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu á laggirnar en það var ekki fyrr en árið 1998 sem Frakkar unnu heimsmeistaratitilinn í fyrsta sinn 68 árum eftir að bikarinn fór fyrst á loft. Fullkomin fótboltaveisla Frakka Frakkar héldu heimsmeistarakeppnina 1998 með glæsibrag og nýttu sér heimavöllinn til þess að tryggja sér heimsmeistaratitilinn en Frakk- land varð þar sjöunda þjóðin til þess að verða heimsmeistari. Zine- dine Zidane var stjama liðsins og skoraði meðal annars tvö mörk í úr- slitaleiknum en Brasilíumenn voru í heimsmeistaraformi allt fram a úrslitaleiknum þegar þeir mættu til leiks andlausir og óþekkjanlegir. Heimsmeistarakeppnin í Frakk- landi 1998 var fyrsta HM-keppnin þar sem 32 þjóðir tóku þátt óg fjöldi liða á HM hafði því tvöfaldast frá því að 16 lið léku í Argentínu 1978. Lið- um var skipt niður í átta riðla og að- eins tvær efstu þjóðirnar komust í 16 liða úrslit. Minni álfurnar fengu nú fleiri sæti og alls tóku 174 þjóðir þátt Kossinn frægi Frakkar fengu á sig aðeins tvö mörk og það var frægt þegar Laurent Blanc kyssti alltafskailann á Fabien Barthez markverði liðsins fyrirhvern leik. í undankeppninni eða 43 fleiri en í keppninni á undan. Fengu aðeins á sig tvö mörk Frakkar höfðu ekki komist í úr- slitakeppni HM frá því í Mexíkó 1986 og væntingar heimamanna voru því jarðbundnar fyrir keppnina. Aime Jacquet hafði tekist að búa til sterkt lið með gríðarlega sterka vörn sem átti aðeins eftir að fá á sig tvö mörk í allri keppninni, vítaspyrnumark frá Dananum Michael Laudrup í riðla- keppninni og svo mark frá Króat- anum Davor Suker í undanúrslita- leiknum. Frakkar fylktust um lið sitt eftir þrjá góða sigra í riðlakeppn- inni og mikið fótboltaæði greip um sig í landinu og átti sitt hámark þeg- ar Frakkar tryggðu sér HM-titilinn í fyrsta sinn. Byrjaði ekki vel hjá Zidane Heimsmeistarakeppnin byrjaði ekki vel hjá Zinedine Zidane sem fékk tveggja leikja bann eftir að hafa FR/KNCE9S verið rekinn út af í öðrum leik liðs- ins á mótinu. Zidane snéri aftur í liðið, óx með hverjum leik og skor- aði tvö skallamörk í úrslitaleiknum. Bæði mörkin komu með skalla eftir hornspyrnur Emmanuels Petit sem innsiglaði síðan sjálfur sigurinn með því að skora þriðja og síðasta markið undir lokin. Hetjurnar voru fleiri, Laurent Blanc skoraði fyrsta gullmark HM- sögurnnar gegn Paragvæ í 16 liða úrslitunum og annar varnarmaður, Lilian Thuram, skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri á Króatíu í undan- úrslitunum. Davor Suker skoraði í sex leikj- um, varð markakóngur keppninnar með sex mörk og Króatar fóru alla leið í undanúrslitin og tryggðu sér síðan bronsið með 2-1 sigri á Hol- lendingum í leiknum um 3. sætið. Einna mesta athygli vakti 3-0 sigur liðsins á Þjóðverjum í átta liða úr- slitunum. Hvað gerðist fyrir úrslitaieik- inn? Titilvömin hjá Brasilíumönn- um gekk vel og það bjuggust flest- ir við að þeir myndu vinna úrslita- leikinn og ná því sem enginn hafði gert frá 1962, að verja heimsmeist- aratitilinn. Úrslitaleikúrinn breyttist hins vegar í algjöra martröð sem á eftir að verða efniviður í endálausar samsæriskenningar um ókomna tíð. Brasilíumenn voru óþekkjanlegir í 3- 0 sigri Frakka og þetta var stærsta tap Brassanna í HM frá upphafi. Romar- io missti af HM vegna meiðsla en í hans stað var Ronaldo orðinn aðal- Besti maður keppninnar Ronaldo var valinn besti maðurHM 1998 en hannvar óþekkjanlegur I úrslitaleiknum. HM-veisía í Frakklandi Hérsjást heimamenn í Frakklandi fagna fyrsta heimsmeistaratitlinum. hetja liðsins. Ronaldo var aftur á móti miðpunkturinn í hinni furðulegu at- burðarás í kringum úrslitaleikinn þar sem hann var á varamannabekkn- um þegar byrjunarliðið var fyrst til- kynnt. Hvort sem það var pressan, meiðsli eða veikindi sem ollu því að Ronaldo átti ekki að spila leikinn var hann á endanum meðal þeirra ellefu sem gengu inn á völlinn. Þar var þó ekki sá Ronaldo á ferðinni sem all- ir þekktu heldur ungur maður með heiminn á herðum sér sem leið um völlinn í einhvers konar móki. Rauða spjaldið hans Beckhams David Beckham mátti þola illa meðferð í ensku blöðunum eftir að enska landsliðið tapaði fyrir Arg- entínumönnum í vítakeppni í 16 liða úrslitunum. Hinn 18 ára gamli Michael Owen skoraði frábært mark í leiknum en það dugði ekki til sig- urs. David Beckham var rekinn útaf á 47. mínútu og félagar hans þurftu því að leika manní færri í 73 mín- útur. Líkt og oft áður var það hlut- skipti Englendinga og ítala að detta út úr HM í vítakeppni en verðandi heimsmeistarar Frakka unnu ítali í vítakeppni í átta liða úrslitunum. Þrjár þjóðir, Argentína, Hol- land og Danmörk, fá mikið hrós fyrir að spila sókndjarfann og frábæran fótbolta á mótinu og leikmenn eins og Gabriel Batistuta hjá Argentínu, Denn- is Bergkamp hjá Hollandi og Laudrup-bræðurnir Michael og Brian í danska liðinu voru allir meðal bestu leikmanna keppninn- ar. Hollendingar slógu Argentínu- menn út úr átta liða úrslitunum og fóru í undanúrslitin en duttu þar út fyrir Brasilíu sem hafði slegið Dani út úr 8 liða úrslitunum. ooj@dv.is Markakóngurinn frá Króatíu Davor Suker skoraði í sex leikjum og varð markakóngur HM 1998. HM 1998 í FRAKKLANDI Þátttökuþjóðir: I74(32lursl,tum) Heimsmeistarar: Frakkland (I. titill) Úrslitaleikur: FrakklandjBrasilia 3-0 Fyrirliði heimsmeistaranna: DidierDeschamps Þjálfari heimsmeistaranna: AimeJacquet Leikir: , , Mörk: 17 J (2,67 ileik) Markahæsta lið: Frakkland I5mörk(2,14ileik) Áhorfendafjöldi: 2.785.100 (43.517 áleik) Markakóngur: Davor Suker, Króatlu 6 mork Besti leikmaður: Ronaldo, Brasilíu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.