Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Síða 5
DV Menning
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 47
Þegar hann kemur upp í hugann, kemur Kúba sömuleiðis upp. Tómas R. Einarsson djassisti með meiru hef-
ur „lokað hringnum“ með nýjustu kúbversku plötunni sinni, enda um að ræða þriðju og síðustu latínuplöt-
una frá honum í bili.
Það fyrsta sem Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari
gerir er að færa mér Romm Tomm Tomm, nýjustu plöt-
una sína, sem var að koma út fyrir bókstaflega örfáum
mínútum. Líkt og á tveimur síðustu plötum hans - Kúb-
anska og Havana - gegna Kúba og kúbversk tónlist þar
lykilhlutverki.
„Kúbönsk tónlist hefur tekið afskaplega stóran hluta af lífí mínu
síðastliðin 10 ár. Ég hef sökkt mér ofan í hana, skroppið þangað
nokkrum sinnum og tekið upp plötu þarna,“ segir Tómas.
Ævintýrið sem leitt hefur til þriggja platna hófst fyrir alvöru árið
2000 þegar Tómas fór í fyrsta skipti til Kúbu, þótt hann hafi reyndar
verið heillaður af landinu og tónlistinni í langan tíma eins og ff ægt
er orðið. „Árið 1992 var ég að tala vlð Bub'ba Morthens og hann
sagði méf áo hann væri á leiðinni til Brasilíu til að taka upp latínu-
plötu. Ég sagði þá við hann í bríaríi að hann ætti að fara til Kúbu
því allir popparar og rokkarar hefðu farið til Brasilíu og gert enda-
lausar plötur þar." Svo fór að Bubbi tók upp plötu á Kúbu, fyrstur
vestrænna tónlistarmanna frá því Bandaríkin settu viðskiptabann
álandið 1961.
Laðast að sterkum litum
Tómas er ekki aðeins litríkur karakter - músíkant, þýðandi og
háskólamaður - heldur er hann einnig litríkur í klæðaburði, með
rauð gleraugu og í grænum jakka þar sem hann situr á móti mér.
„Ég hef alltaf laðast að sterkum litum. Það sem hefur heillað mig við
Havana eru litlrnir og litagleðin, sterkir litir og öðruvísi litir en mað-
ur finnur til að mynda á Norðurlöndum eða í Mið-Evrópu."
Þegar Tómas hugsar um karabíska svæðið koma ákveðnir lit-
ir upp í huga hans, litir sem birtast í bæklingnum sem fylgir nýja
disknum. „Bleikur, eiturgrænn og alveg ákveðin tegund af bláum,"
telur hann upp og sýnir mér bláa forsíðumynd disksins sem minnir
mann helst á ljósblátt hafið sem umlykur karabísku eyjarnar.
Litirnir eru hins vegar ekki það eina sem er sterkt á Kúbu að
mati Tómasar. „Kaffið þarna er sterkt, rommið hefur mjög afger-
andi bragð sem og pólitísk saga Havana og vindlarnir eru auðvit-
að mjög góðir. Kannski er það öfgamaðurinn í mér sem hejllast af
öllu þessu."'
Áhrifin af Havana blönduð
Tómas man vel eftir fýrstu ferð sinni til Havana og upplifuninni
þegar hann gekk um miðborgina. „Fyrstu áhrifin eru ofboðslega
sterk og blönduð. Það er mikið af fallegum, gömlum húsum þarna
en borgin sjálf er náttúrulega í ofboðslegri niðurníðslu líka. Ahrifin
af Havana eru því, sama hvað þú gerir, blönduð."
Tómas hefur þó fortakslaust gaman af músíkinni á Kúbu og er
það ástæðan fyrir því að hann fer þangað aftur og aftur. „Músíkin
og dansinn eru auðvitað alltaf jafn heillandi, en svo er vöruskortur
þarna og fátækt. Og ekki er stórt úrval á skoðanamarkaðrium," seg-
ir hann og kímir.
Safnaði fyrir kontrabassa á olíuborpalli
Tómas byrjaði tiltölulega seint að spila á kontrabassa, eða 26
ára. Áður hafði hann lokið BA-prófi í sagnfræði og spænsku við Há-
skóla íslands. „Ég hafði spilað. eitthvað smá á gítar og harmonikku,
en árið 1979 sökk ég á bólakaf ofan í djassmúsfk, Ég vann um svip-
að leyti við að byggja olíuborpall rétt fvrir utan Noreg og keypti mér
kontrabassa fyrir launin."
Um vorið flutti Tómas til Kaupmannahafnar og datt inn í hljóm-
sveit sem samanstóð af mjög klárum tónlistarmönnum. „Ég byrj-
aði því bara að æfa mig 6-7 tíma á dag og gerði það í mörg ár," seg-
ir hann og brosir. „Þannig datt ég inn í atvinnumennsku, í gegnura
ýmsar tilviljanir."
Afkastamesti lagasmiður íslenskrar djassmúsíkur
En þrátt fyrir að Tómas hafi byrjað seint í djassmúsík og ef til
vill ekld farið hefðbundna leið í menntun sinni kemur það ekki að
sök hvað varðar sköpunargleði, enda hefur hann verið ótrúlega af-
kastamikill undanfarin ár.
„Ég er afkastamesti lagasmiðurinn í íslenskri djassmúsík," segir
hann glaður í bragði, en Romm Tomm Tomm er 14. diskurinn sem
inniheldur aðallega eða eingöngu frumsamin lög eftir hann. Disk-
ar Tómasar eru auk þess mjög ólíkir innbyrðis - sungnir, ósungnir
og með ljóðalestri. „Þetta er um allan skrattann. Ædi ég sé ekki að
reyna að forðast endurtekningar."
Þegar kemur að framtíðinni vill Tómas ekki gefa neitt upp. „Mér
finnst mjög óþægilegt að hafa framtíöina skipulagða. Það eru ýms-
ar hugmyndir í gangi, þó ekkert gerneglt."
ottar@dv.is
A
„Fyrstmíhr^
ofboðægo*
biðnduðe Þ$
afféWtiutú,
eru
husum þarna en borg-
in sjálf er náttúrulega í
ofboðslegrí niðumíðsll
líka. Áhrífín af Havand
eru þvi, samat^^^p
gerir, blönduð" WW
'f
V'
í 1
w
• * -
it
*fíS
■
Uppáhaldsvindlategund Tómasar er Cohiba-
vindlar, áður aðalsmerki Fidels Castro
Það er margt i kúbverskri menningu sem heillar
Tómas, eins og sterkt kaffið, afgerandi rommið og
j hinir bragðgóðu vindlar. DV Mynd: Hörður