Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Síða 10
44 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006
Sport DV
Eþróttir í
»jóxivarpi
Barcelona-Valencia
SÝN - sunnudagur - kl. 18.50
Barcelona tekur á móti
Valencia í spænsku úrvals-
deildinni og nú lengir okkur
eftir að sjá okkar mann, Eið
Smára Guðjohnsen, spila eitt-
hvað meira en nokkrar mín-
útur í lok leikja. Þetta er topp-
slagur af bestu gerð en bæði
lið hafa unnið þrjá fyrstu leiki
sína, en Sevilla er líka með
fullt hús.
Tvö lið sem verða að
vinna
Skjársport - laugardagur -
kl. 11.15
Liverpool fær Tottenham
í heimsókn á Anfield og bæði
lið þurfa að fara vinna leiki ef
þau ætla að blanda sér í bar-
áttuna í efri hlutanum. Liðin
sitja nú hlið við hlið í 15. og
16. sæti. Liverpool hefur tap-
að tveimur leikjum í röð og
Tottenham er án sigurs í síð-
ustu þremur leikjum.
Hvaða lið fellur í 1. deild?
Sýn - laugardagur - kl. 13.45
Það verður bein útsending
frá lokaumferðinni í Lands-
bankadeild karla í knatt-
spyrnu. Gríðarleg spenna er
í deildinni um hvaða lið mun
falla og einnig hvaða lið mun
tryggja sér Evrópusætið. Sýn
verður með beina útsendingu
frá fjórum leikjum dagsins.
Aðalleikurinn verður Grinda-
vík-FH, en einnig verður skipt
yfir á þrjá aðra leiki, Víking-
ur-ÍA, Breiðablik-Keflavík og
Valur-KR, ef eitthvað mark-
vert gerist þar.
Ryder-bikarinn
í golfi
RÚV - laugardagur
ogsunnudagur-
frá kl.10
Það verður
bein útsending
frá Ryder-bikam-
um í golfi sem að
þessu sinni fer fram á heima-
velli Evrópu á K Club-vellin-
um á írlandi. í þessari keppni
keppa bandarískir golfar-
ar við golfara frá Evrópu en
keppnin fer nú fram í 36.
sinn. Evrópa vann Stærsta
sigurinn í 23 ár með 18,5
vinningum á móti 9,5 þegar
keppnin fór síðast fram fyrir
tveimur árum. Bandaríkja-
meim hafa' nú tapað tvisvar
í röð og í fjögur skipti af síð-
ustu fimm.
f vandræðum Hlynur
Bæringsson fann sig ekki f
Evrópukeppninni og nýtti
aöeins 7 af27 skotum sin-
um I leikjunum fjórum.
DV-myndAnton Brink
Hvern getum viö sett inn á?
Þaö er ekki mikið úrval afstórum
miöherjum á Islandi. Landsliösþjálfar-
arnir Siguröur Ingimundarson og Friðrik
Ingi Rúnarsson. DV-mynd Anton Brink
Karlalið íslands í körfubolta tapaði
þremur af fjórum leikjum sínum i
fyrri hluta B-deildar Evrópukeppn-
innar og á engan raunhæfan mögu-
leika lengur á að ná háleitu markiniði
sínu sem var að vinna sér sæti í A-
deildinni. Umræðan um A-deild er
óraunhæf á meðan íslenska landslið-
ið hefur ekki alvöru miðherja.
Of litlir Það er sama hversu mikið er lagt á sig, ef hæöin er ekki
tilstaðar lenda menn ívandræðum. Helgi Már Magnússon
sýnir hér tilþrif gegn Finnum. DV-mynd Anton Brink
Endalaust boltarak og algjört skipulagsleysi í sókninni, villuvand-
ræði og sentimetraskortur í vörninni. Það var öllum ljóst sem á
horfðu að íslenska karlalandsliðið í körfubolta er langt frá því að
vera í standi til þess að berjast um sæti meðal bestu körfubolta-
þjóða Evrópu. Liðið vann aðeins Lúxemborg í fyrri hluta riðils
síns og endaði á að steinliggja með 21 stigi fyrir Austurríki á úti-
velli. Það má vissulega minnka boltarakið og æfa betur skipulag-
ið en vandamál íslenska liðsins liggur fyrst og fremst í lítilli ógnun
inni í teig og erfiðleikunum við að reyna að verjast stóru leik-
mönnum andstæðinganna.
Það er enginn að segja að verk-
efni Friðriks Stefánssonar, Fannars
Ólafssonar og Hlyns Bæringssonar
hafi verið auðvelt, að þurfa að glíma
við mun hærri og þyngri menn. Það
verða að teljast mikil vonbrigði að
þessir þrír leikmenn skuli aðeins vera
með samanlagtl4,5 stig að meðaltali
í leik. 41% vítanýting og 10,5 villur að
meðaltali eru aðrar tölur sem þrenn-
ingin státar af í þessum fjórum leikj-
um. Mestu vonbrigðin eru hins veg-
Tölurnar hjá...
ar tölur þeirra leikmanna sem þeir
áttu að dekka í þessum fjórum leikj-
um. Stóru leikmenn íslenska liðsins
skoruðu þannig 150 stigum færra en
stóru leikmenn mótherjanna, tóku
44 færri fráköst og fengu 57 færri víti,
yfirburðirnir voru algjörir.
Aðferð Georgíumanna
Hvað er til ráða? Egill Jónasson er
okkar hæsti maður en hann spilaði
aðeins í samtals átta mínútur í þess-
um fjórum leikjum og það er ekki
eins og það sé umframflæði af stór-
um körfuboltastrákum hér á landi.
1988-landsliðið (tvisvar sinnum
Norðurlandameistari, vann 3 leiki
í A-deild í sumar) hefur notið góðs
af frábærri frammistöðu fsfirðings-
ins Sigurðar Gunnars Þorsteinsson-
ar en það er eitthvað í að hann nýtist
landsliðinu enda að spila sitt fýrsta
tímabil með Keflavík í úrvalsdeild-
inni í vetur. Það er hægt að sjá hvern-
ig Georgíumenn fóru að þessu. Þeir
voru veikir fyrir í leikstjórnenda-
stöðunni og „fengu sér“ tvo banda-
ríska bakverði, það er gáfu tveimur
sterkum leikstjómendum ríkisfang
sem nýttist leikmönnunum vel í bar-
áttu sinni fyrir betri samningum og
hjálpaði landsliðinu við að þurrka út
aðalveikleika sinn.
Enginn annar Pétur á leiðinni
Island eignast ekki mann eins og
Pétur Guðmundsson nema kannski
í mesta lagi einu sinni á öld og ef
við leitum ekki út fyrir landsteinana
verður það alltaf hlutverk manna
eins og Friðriks Stefánssonar, Hlyns
Bæringssonar og Fannars Ólafs-
sonar að spila „uppfyrir sig", það er
glíma við mótherja sem em bæði
mun stærri og sterkari en þeir.
Óraunhæft markmið
Umræðan um A-deild er því
óraunhæf meðan íslenska landsliðið
hefur ekki ógnun inni í teig, hún er
óraunhæf á meðan íslenska lands-
liðið er uppfullt af boltaglöðum bak-
vörðum sem ætla að vinna leikina
upp á eigin spýtur, á meðan íslenska
landsliðið treystir alltaf á að erfiðu
skotin detti og á meðan mótherjamir
villa stóru mennina okkar út og raða
niður körfunum inn í teig. Með einn
alvöru aðfenginn miðherja gætum
við hins vegar verið að tala um allt
aðra hluti og aðeins þá getum við
farið að nefna A-deild Evrópukeppn-
innar á sama tíma og íslenska körfu-
boltalandsliðið.
ooj@dv.is
...íslenska körfuboltalandsliðinu í
18.81
eð 1
I Brenton Birming-
. ham var langstiga-
'hæstur í íslenska
liðinu með 18,8 stig að meðaltali í
leik en hann nýtti 51,2% skota sinna.
Brenton fékk líka 21 fleiri víti (35) en
næsti maður.
eins 28,2%. Hlynur klikkaði á 20 af 27
skotum sínum utan af velli og 4 af 10
vítum.
28.2%!
47,1%!
8 af 17 þrfeeja stiea skoti
2Aðeins tveir leikmenn íslenska
liðsins byrjuðu inni á í öllum
fjómm leikjunum, Brenton
Birmingham og Hlynur Bæringsson.
Friðrik Stefánsson, Logi Gunnars-
son og Jón Arnór Stefánsson byrjuðu
inni á í þremur leikjum hver.
Það gekk
, ekkert
J t ímJ / hjá Hlyni
Bæringssyni í sóknarleiknum, hann
reyndi að skora 71 stig í leikjunum
fjórum en skoraði aðeins 20, eða að-
Jakob
. Sigurðar-
I son nýtti
8 af 17 þrfggja stiga skotum sínum
sem gerir 47,1% nýtingu. Jakob nýtti
hins vegar aðeins 2 af 14 tveggja stiga
skotum sínum. Jakob Sigurðarson
gaf flestar stoðsendingar allra í ís-
lenska liðinu, eða alls 12.
^ Logi Gunnarsson tók flest
I skot allra leikmanna ís-
KJ _L lenska liðsins eða alls 51 í
leikjunum fjómm. Logi lék í samtals
98 mínútur og reyndi því yfir 20 skot
á hverjar 40 mínútur sem hann spil-
aði. Logi nýtti 37% skota sinna.
UFriðrik Stefánsson, mið-
herji íslenska landsliðs-
ins, tók aðeins 11 skot á
þeim 62 mínútum sem hann spilaði
og var með næstum því jafnmargar
stoðsendingar (9). Friðrik nýtti 55%
skota sinna sem er gott en það liðu
næstum því 6 mínútur á milli þess að
hann reyndi skot. Friðrik tók aðeins
einu færra af vítaskotum (10).
/W Islenska landsliðið tap-
I 1 aði öllum leikhlutun-
V/ /\J um eftir hálfleiksræðu
þjálfaranna. ísland tapaði 3. leik-
hlutanum 10-25 fyrir Finnum, 19-20
fyrir Georgíu, 23-29 fyrir Lúxemborg
og 10-11 fyrir Austurríki.
64,5
íslenska landslið-
ið skoraði aðeins
64,5 stig að með-
B-deild EM
altali í útileikjunum tveimur og að-
eins 33% (40 af 121) skotum íslenska
liðsins fóru rétta leið í leikjunum í
Georgíu og Austurríki.