Framsóknarblaðið - 13.02.1947, Síða 4

Framsóknarblaðið - 13.02.1947, Síða 4
FRAMSÓKNA RBLAÐIÐ 4 Fundahöld og fram-hvæmdh Samkvæmt reglugerð um stjórn bæjarmála í Vestmanna- eyjum ber að halda almenna bæjarstjórnarfundi á þriggja vikna fresti og á þeim tíma dags, sem almenningi er hentugur til fundarsóknar. Mikið hefur skort á að þær bæjarstjórnir, sem hér hafa farið með völd hafi fylgt þessu ákvæði, enda lengi verið á- taldar fyrir. Með tilkomu vinstri meirihluta í janúar 1946 vonuðu menn að tekin yrði upp betri regla í þessu efni en verið hafði lengi. Enda var á fyrsta fundi hinnar nýkjörnu bæjarstjórnar samþykkt með handaupprétting- um að halda fundi að kveldi, í stað miðdegisfunda, sem áður höfðu tíðkast um skeið. En fyrst er allt frægast. Frá 2. febrúar til áramóta 1946 voru aðeins haldn- ir 8 — átta — almennir bæjar- stjórnarfundir, eða helmingi Á K A V í T I Framhald af 2. síðu. eftir að Áki flutti mál sitt hér, kom útvarpið með þá frétt úr kjördæmi Áka, Siglufirði, að þar væri afli mjög góður en aðstaðau til þess að gera sér eitthvað úr aflanum væri engin, nema með það, sem liægt væri að éta strax. Engin frystihús, ekkert salt, eng- in niðursuða. Úr því Áki liei'ur fyrir tilstyrk góðra manna losn- að við starfið í stjórnarráðinu, er vonandi að hann fari fljótlega til Siglufjarðar og haldi fyrirlest- ur um það, hvað stór og góð frystihús séu til í Vestmannaeyj- um. Að lokum hælir smáútvegs- maður Áka fyrir frumvarpið uin verðfestingu aflans, og með því kemur hann því upp um sig að hann er enginn útgerðarmaður hvorki smár eða stór og ber því , ekki skyn á, að þetta frumvarp, sem hann talar um er humbug eitt og hégómi. I fyrsta lagi er það aðeins heimild, og í öðru lagi nær það ekki til afla smá- útvegsmanna, kolans, og í þriðja lagi eru uppbæturnar teknar af útvegsmönnum sjálfum ef nokkr ar verða. Og ef frumvarp þetta á nokkra hliðstæðu í bókmenntun- um þá eru það „Nýju fötin keis arans“ og er ekki hægt að segja að það eigi illa við að þessi flokksbróðir punti Áka með þeim um leið og hann skilur til fulls við stjórn útvegsmála hér á landi. M.s. Álsey, sem verið^hefur í síldarflutningum, er nú að búast til veiða með herpinót. færri en vera átti samkvæmt reglugjörðinni. Fundardagar voru þessir: 1. 2. febrúar. 2. 29. marz 3. 5. apríl 4. 29. - 5. 3. júní- 6. 6. sept. 7. 4. okt. 8. 29. nóv. Þannig hafa alls engir fundir verið haldnir í maí, júlí, ágúst og desember eða í fjóra mánuði. Þegar lengst líður milli funda, er það horki meira né minna en 94 dagar eða á 14. viku. Von er að illa ganga að fram- kvæma hin stóru verkefni,' sem til þarf fjármagn og fram- kvæmdahæfni, þegar svo smá- vægileg atriði, sem opinn fund- ur í bæjarstjórn er látinn niður falla mánuðum saman. Innanbæjar og utan Gæftir hafa verið góðar und- anfarna daga og afli mjög mik- iII, allt upp í 14 tonn ó bót í róðri. Laugardaginn 8. þ. m. kom Lagarfoss hingað fró Reykjavík ó leið til Austfjarða og Kbh. Lagðist hann inn í Friðarhöfn. Losaði hann hér m.a. vélar í hið nýja skip Helga Benediktssonar. Farþegar til útlanda með Lag- arfossi voru meðal annara, Sig- urður Guttormsson bankaritari og frú hans. Ólafur Halldórsson læknir hef- ir verið skipaður formaður skóla- nefndar Barnaskólans, í stað Sig- vGuttormssonar. S.l. laugardag laust eldingu niður í íbúðarhús ó bæ einum í Landeyjum. Sundraðist skor- steinn og tvö göt komu ó þak hússins- Á Akranesi er nú afli mjög tregur, sækja þeir ó mið vestur við Snæfellsnes en fó ekki meir en 4 tonn í róðri til jafnaðar. Aflinn er allur tekinn í frystihús. % Bótar þeir, sem fóru til Síld- veiða í Kollafirði eru nú flest- ir komnir heim aftur. Jarðstrengur fró Rafstöð að sjódælu ó Skansi b'ílaði ó Þriðju- daginn. Unnið er nú að viðgerð. HneyLslanlegar ráðst-afanir. Framhald af 1. síðu. tals eru þeir bátar 25, sem bygg- ing hófst á í vor á kostnað og áhættu ríkisins, á sama tíma og fyrirsjáanlegt var að mannar'li var ekki til á þann flota, sem til var og í smíðum. En þó fáan- legir bátar erlendis frá á hag- stætt verð. Reynir nú þessi óhappa mað- ur að koma ábyrgðinni af sér yf- ir á forstjóra landssmiðjunnar, sem var undirmaður hans og varð að framkvæma hluta af þessari „nýsköpun“ ráðherrans. Mun það þó skammt hrökkva til þess að sýkna hann af því fjár- glæfrafyrirtæki sem hann stofn- aði til án samþykkis Aþingis og í augljósri ráðleysu, miðað við ríkjandi ástand og útlit í útgerð- armálum. Væri honum sæmra að láta verða alvöru úr því að leggja niður störf sem atvinnumálaráð- herra en beita undirmenn sína bolabrögðum í skjóli þess valds, sem hann hefir nú, aðeins að nafni til. Þá hefur Brynjólfur Bjarna- son nýlega hafnað Guðm. Kr. Guðmundssyni sem formanni I- þróttanefndar ríkisins og skipað í hans stað Hermann Guðmunds son úr Hafnarfirði, sem lítið er þekktur í sambandi við íþróttir, nema ef telja ber sveiflur þær og snarsnúninga sem hann hefur tekið á hinum pólitísku línum, en mestu mun hér urn valda að hann dansar þessa stundina á línu kommúnista og segir nú það svart, sem hann áður taldi hvítt. Grein þessi var rituð í blað, sem átti að koma út 10. jan. Síðan hefur það gerst í málinu að Finnur sá þann kost vænstan að setja Berg aftur í embætti sitt án frekari aðgerða. En Áki not- aði síðustu daga ráðherradóms síns til þess að víkja Kjartani Ól- afssyni frá störfum sem yfirfiski- matsmanni hér og skipa í hans stað Sigurjón Sigurðsson fisksala. Hefir sá maður þó aldrei starfað sem fiskimatsmaður. Enda tal-- inn hneigðari fyrir fé, (þ. e. a. s. gangandi fé) en lisk, þó afla- maður hafi verið meðan hann stundaði sjó. Kvenká pur teknar upp í dag GEFJUN Nytsamar vörur NÝKOMNAR: Gold Medal hveiti í 5 Ibs. pokum Ötkers gerduft. Matbaunir laus— ar. Kartöflumjöl. Soyjamjöl. Smjörsalt. Smjörkex. Skipskex. Þurmjólk, dönsk. Kristalsópa. Eitursóti. Þvottaduft- Ræstiduft. Blettavatn. Rakvélar. Hórgreiður. Skeggbrustar. Tann- burstar. Gerfitannaburstar. Emaleraðir pottar. Fægiskóflur. Vatnsglös. Hvít bollapör. Matskeiðar. Teskeiðar. Gafflar úr silfurpletti og fjölmargt fleira t.d. lausir lyklar og stólull. Brynjúlfur Sigfússon Kaupfélag Verkamanna Olíustakkar, enskir og ísl. Ullarnærföt Ullarsokkar Sjóstígvél Sjóhattar. Kaupfélag Verkamanna Hornafjarðarsmjör fæst í Kaupfélaginu Spaðsaltað trippakjöt. K.f. Verkamanna Karlmannabuxur feikna úrval. G E F J U N ................................................. Okkur vantar nokkrar stúlkur til fiskflökun- ac (pökkunar). — Upplýsingar gefur Kristjan Björnsson. ísfélag Vestmannaeyja.

x

Framsóknarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.