Elektron - 01.05.1918, Qupperneq 11
ÉLEKÍRON
39
helsta í nefndarálitinuí fyrir þá, sem
vilja kynna sér mál þetta betur, er
ráðlegt að lesa sjálft nefndarálitið,
sem.er til í bókasafni F. í. S.
Þegar Wheatstone's-tækin voru sett
upp hér í Reykjavík og á Seyðisfirði
árið 1915, gat eg eigi orðið sammála
nokkrum starfsbræðrum mínum um
ágæti þessa kerfis í samanburði við
önnur kerfi og að betra myndi vera
að nota »duplex« með prentandi
móttökulækjuin. Þegar ég svo sá í
nefndaráliti þessu, að einmitt því
sama er haldið þar fram, sem ég bar
hérna á árunum, gat ég ekki stilt
mig um annað en að lofa kunningj-
um mínum, sem ég mest þræLti við,
að sjá það.
O. B. A.
Vestmannaeyjasiminn.
Eins og getið var um í 7. tbl. El-
ektrons 1917, var gert við kabilinn
til Vestmannaeyja í fyrrasumar, en
sökum skorts á kabli var ekki hægt
að gera við eina smábilun nálægt
eyjunum, en liennar gætti lítið um
sumarið, en ágerðist þegar á leið vet-
urinn og tafði þá mjög fyrir afgreiðsl-
unni, því þá var ekki lengur hægt
að afgreiða í talsima og á ritsíma í
senn. Ogjörningur var að gera við
þetta í vetur, sökum veðra og ófull-
nægjandi kabilskips og varð því að
bíða með það þar til betur viðraði.
Hinn 1. dag þessa mánaðar leigði
landssíminn mótorbátinn »Valborgu«
og fór landssímastjórinn og O. B.
Arnar á honum til Vestmannaeyja
og höfðu með sér nægan kabil til
viðgerðar. Veður fengu þeir hið ákjós-
anlegasta í ferðinni og gekk alt að
óskum.
Bilunin reyndist vera 997 m. frá
eyjunum. Slæddu þeir kabilinn upp
nálægt 3 km. þaðan og settu hann á
hjól á hlið skipsins og fikruðu sig
svo eftir honum rétt að biluninni.
Þar var kabillinn fastur i botninum
og var hann því tekinn þar í sundur
og bilunin mæld, og reyndist hún að
vera tæpa 100 m. frá skipinu, eða
rétt niðrundan því. Var þar skeytt
inn í bút af nýjum kabli.
Á því svæði sem þeir tóku kabil-
inn upp (um 2 km.) var hann að
sjá eins og alveg nýr; aðeins á ein-
um stað var lítilfjörleg skemd á hon-
um, líklega eftir skipsakker, en þó
ekki til saka og var gert við hana.
Að þessu loknu var kabilinn mældur
og reyndist þá vera í ágætu lagi.
Þó að sæsímaviðgerðir séu mögu-
legar frá smá mótorbátum, eins og
landssímastjórinn hefir haldið fram
og sannað, þá er þó langt frá að þær
séu hættulausar, og verður að gæta
hinnar mestu varkárni, ef ekki eiga
að verða slys af, á jafn litlum skip-
um og með jafn ófullkomnum útbún-
aði og hér er fyrir hendi. Sýnist því
vera kominn tími til þess fyrir lands-
símann, að fara að útvega sér kabil-
skip, þar sem sæsímarnir eru orðnir
all margir og sumir þeirra gamlir og
má búast við fleiri bilunum í nánustu
framtíð en hingað til.
Jafnframt þessu mætti nola kabil-
skipið til margs annars, svo að það
þyrfti ekki að vera mjög þung byrði
á Landssímanum, en gæti á hinn
bóginn orðið honum til ómetanlegs
gagns.