Tuðran - 01.01.2007, Page 2
Vertíð knattspyrnufólks
hafin
aEnn á ný er
Selfossi mætt
til keppni
á íslandsmótum
sumarsins, eftir
æfingar og undir-
búning í vetur.
Mikil gróska
er í knattspyrnuiðkun á Selfossi um
þessar mundir og unglinga- og eldri-
flokkastarf er rekið af miklum þrótti.
Æfingaaðstaða hefur farið batnandi og
umgjörð um þjálf-un, iðkun og rekstur
knattspymudeildar hefur einnig batnað
síðustu misseri.
Starf deildarinnar fer einnig ört vaxandi.
I ár er m.a. boðið upp á íjölbreytt nám-
skeið og knattspyrnuskóla á vegum un-
glingaráðs sem nánar er fjallað um hér
í blaðinu. Einnig fer verkefnum á borð
við þjálfaranámskeið, í samvinnu við
Knattspyrnuakademíuna, og mótahaldi
yngri flokka ijölgandi á Selfossi.
2. flokkur kvenna hefur verið að festa
sig í sessi undanfarin 1-2 ár, en flok-
kurinn fór ásamt 3. fl. í velheppnaða
æfingaferð til Englands nú í vor en
umljöllun um kvennaboltann er að finna
í blaðinu. 2. flokkur karla er einnig fjöl-
mennur og sterkur í ár en farsælt sam-
starf hefur verið um rekstur þess flokks
milli nágrannaliða Selfoss, Ægi, Hamar
og KFR. Viðræður hafa einnig verið í
gangi um samstarf í kvennaflokki en
Selfoss stefnir a.m.k. að því að senda lið
til keppni í meistaraflokki eftir 1-2 ár.
Um þessar mundir er íslandsmót hin-
na ýmsu flokka óðum að heljast, en
meistaraflokkur karla lék einmitt sinn
fyrsta leik 13. maí sl. Fyrsti heimalei-
kurinn fór síðan fram sunnudaginn 20.,
nokkuð á undan áætlun, en ósk kom
frá Hattarmönnum að víxla leikjum
liðanna milli landshluta. Undirbúning-
stímabilið hefur gengið vel og leikman-
nahópurinn betur og fyrr mótaður en
oft áður. Stjórnin hefur haft á að skipa
úrvals meistaraflokksráði sem hefur
unnið ötulega að leikmannamálum og
undirbúningi fyrir tímabilið. I því sam-
bandi var lögð áhersla á að endurnýja
samninga við heimamenn og útlenda
lykil-leikmenn frá fyrra ári ásamt því að
endurheimta burtfarnar fótboltahetjur
frá Selfossi. Kjaminn í liðinu hefur
verið nokkuð stöðugur undanfarin ár
með menn eins og Jón Sveins, Arilíus,
Ingþór, Einar Ottó, Hallgrím og Elíasi
markvörð. Það voru síðan að sjálfsögðu
mikil fagnaðarefni að fá aftur í raðir
liðsins þá félaga Sævar Gíslason, Ingólf
Þórarinsson og Njörð Steinarsson. Þá
hafa yngri leikmenn verið að koma
fyrna sterkir inn í hópinn og verður
spennandi að fylgjast með afrekum
þeirra næstu árin, en eins og kunnugt er
hafa tveir ungir leikmenn Selfoss þeir
Viðar Kjartansson og Sigurður Eyberg
Guðlausson verið viðloðandi unglinga-
landslið íslands að undanfömu og Viðar
leikið þar marga leiki.
Það er óþarfi að ljölyrða um væntingar
og óþreygju aðstandenda og áhuga-
manna um knattspyrnu á Selfossi um
verðugt gengi meistaraflokks Selfoss.
Það er hins vegar huggun harmi gegn í
því efni að ekki virðist vera neinan bil-
bug að finna á stuðningmönnum liðsins
nema síður sé því alltaf virðast menn
vera tilbúnir að bretta upp ermar og hafa
af því ánægju og eftirvæntingu að byg-
gja upp liðið og starfa að undirbúningi
tímabilsins. Því er það alveg ljóst að lið
mfl. Selfoss kemur betur undirbúið og
sterkara til leiks nú en um árabil. Því
vonumst við til að sem flestir mæti á
völlinn í sumar og veri með í að skapa
góða stemningu, liðinu og
okkur öllum til handa!
F ótboltakveðj u r,
Hermann Olafsson,
formaður knattspyrnudeildar
Karlar athugið! Bylting í öryggismálum!
í dag er jafnrétti milli
kynja sjálfsagt mál.
Þess vegna bjóðum við
uppá þriggja punkta
öryggisbelti fyrir ykkur
líka í á þriðja tug hóp-
ferðabifreiða af
öllum stærðum.
Hafðu samband og
sérpantaðu einn slíkan
fyrir þá sem þér þykir
vænt um.
L,uomimaur iyrnngsson ent
www.gtyrfingsson.is - S. 568 1410 / 482 1210 - Grænir og góðir ;)