Tuðran - 01.01.2007, Side 3
Kuml og grafningar
ÍMinjaverndarsjóður
knattspyrnudeildarinnar var
stofnaður á aðalfundi deil-
darinnar sl. haust. Stofnfram-
lag sjóðsins er hagnaður sem
varð á útgáfu 50 ára afmælis-
rits sem út kom í des. 2005.
Bárður Guðmundsson hefur
safnað saman mörgum mu-
num frá sögu knattspyrnunnar á Selfossi,
m.a. búningum en eins og margir vita er
búningasaga Selfossliðsins litskrúðug,
íjölda mynda, leikskráa og margra an-
narra muna sem hafa verið settir í sýn-
ingarskáp í Tíbrá, félagsheimili Ung-
mennafélagsins. Á 50 ára afmælishófinu
18 des. 2005 sem haldið var á Hótel
Selfossi afhenti Pétur H. R. Sigurðsson
(Pétur Prebens) gullmerki sitt Bárði til
varðveislu, en Pétur er einn af 3ju deil-
darmeisturunum frá 1966. Á
fyrsta stjórnarfundi sjóðsstjómar 20. jan
2007 kom Örn Grétarsson og afhenti
gullverðlaunapening 3ju deildarmeistara
frá 1978. Svo skemmtilega
vill til að þeir Örn og Pé-
tur voru báðir markmenn í
þessum meistaraliðum. Nú
bíðum við eftir 3ja gull-
peningnum, kannski ke-
mur hann í ár!
Á þessum sama fundi var
samið við Marteinn Sigur-
geirsson um gerð DVD disks um sögu
knattspyrnunnar á Selfossi og mun dis-
kurinn koma út 15. nóvember í haust.
Stefnt er að því að diskurinn verði
til sölu í helstu verslunum bæjarins
og jafnvel víðar. Marteinn á í fórum
sínum mikið efni og hefur að un-
danfömu safnað saman gömlum og
nýjum hreyfimyndum, en margir
muna eftir stuttri mynd sem Mar-
teinn sýndi á afmælishófinu á Hótel
Selfossi. Við viljum koma því á fram-
færi að ef að fólk á í fórum sínum
gamlar ljósmyndir eða kvikmynda/
videoupptökur að hafa samband
við einhvern okkur í stjórn minjav-
erndasjóðsins. Stjórn sjóðsins skipa
Björn 1 Gíslason formaður, Bárður
Guðmundsson ritari og Kristinn M.
Bárðarson gjaldkeri.
Áfram Selfoss!
Selfyssingar hrepptu gullið
Myndatcxti: Úrklíppa úr Þjóðviljanum (úr safni Bárðar Guðmundssonar) Efri
röð f.v. Gylfi Þ. Gíslason þjálfari, Einar Jónsson, Kristbjörn Ólafsson, Þór-
mundur Bcrgsson, Sumarliði Guðbjartsson, Óskar Marelsson, Ólafur Sigurðs-
son, Þórarinn Ingólfsson, Magnús Öfjörð Guðjónsson, Anton Hartmannsson
og Jón B. Stefánsson.
Neðri röð f.v. Eiríkur Jónsson, Guðjón Arngrímsson, Heimir Bergsson, Tryggvi
Gunnarsson, Örn Grétarsson, Stefán Larsen, Sigurður Reynir Óttarsson og
Gísli Sváfnisson.
Vcriö veikomin oð Gyrovcgi 35