Tuðran - 01.01.2007, Síða 12
Frábær liðstyrkur
í fyrrasumar barst Selfossliðinu mikill
Iiðstyrkur frá Bítlaborginni Liverpool.
Þá kom til landsins Andy Pew, sem
festi sig strax í sessi sem einn helsti
burðarás liðsins. Andy er hávaxinn
og sterkur miðvörður, sem hefur vakið
feiknaathygli fyrir frammistöðu sína á
vellinum. Andy er alin upp hjá Everton
og hefur víða komið við á ferli sínum.
Hann kom til landsins að nýju í upphafi
þessa árs eftir að hafa spilað á Englandi
í vetur og hefur tekið til við fyrri iðju
að stöðva sóknir andstæðinga Selfos-
sliðsins í öftustu línu liðsins. Kappinn
kveðst vera feiknaánægður með að vera
kominn aftur á Selfoss og muni leg-
gja sitt af mörkum til að koma liðinu
upp um deild á þessu tímabili. A milli
fótboltaæfinga og leikja situr drengurinn
ekki auðum höndum, en hann starfar
hjá verktakafyrirtækinu Smíðanda við
smíðar. Smíðandamenn hafa verið
ötulir stuðningsmenn Selfossliðsins og
hafa þeir tekið Andy fagnandi í vinnu
og bera honum vel söguna á vinnustað,
enda drengurinn hvers manns hugljúfi
og mikill gleðipinni. “Mér líkar mjög
vel hér á Selfossi og það er ástæðan fyrir
að ég kom aftur. Auðvitað er fótbol-
tinn aðalatriðið hjá mér, en mér líkar
líka mjög vel í vinnunni hjá Smíðanda.
Strákarnir í vinnunni hafa tekið mér vel
og eigendurnir eru ótrúlega skilningsríkir
yfir þessu fótboltabrölti á mér.”. Það
þarf ekki að koma á óvart að Smíðandi
hafi viljað halda í Andy í vinnu hjá sér.
Fyrirtækið hefur á að skipa öflugu fót-
boltaliði sem hefur gert garðinn frægan
í firma- og hópakeppnum. Líklega sjá
þeir góðan feng í Andy í þann hóp og
munu mæta margefldir til leiks takist
þeim að véla hann til að spila með.
Með Andy á myndinni er Eiður Ingi Sigurðsson, annar ciganda Smíðanda.
pizza oq bolti í beinni...
... það er iífstíll
Afram
Selfoss!!!
hlaðborð í hádeginu alla virka daga
sendum pizzur í bústaðnn
sími 482 2267
live music every