Tuðran - 01.01.2007, Blaðsíða 16

Tuðran - 01.01.2007, Blaðsíða 16
Allir á völlinn ! Nú er sumarið komið og líf og fjör á vellinum sem aldrei fyrr. Yngri flokka starfið er í miklum blóma hjá Knattspyr- nudeild UMF. Selfoss, aðstæður hinar bestu á nýju gervigrasi og flottu æfin- gasvæði. Börnin una sér vel í þessari vinsælu íþrótt og eflast sem einstaklingar með hverri æfingu. Islandsmótin fara að byrja hjá öllum flokkum og nóg um að vera á vellinum. Okkur þjálfarana hjá Knattspymudeild Selfoss langar að hrinda af stað smá átaki sem standa mætti í allt sumar og helst lengur eftir því hvenær leikir eru spilaðir hjá okkar góða félagi. Okkur langar til að hvetja foreldra, og eða forráðamenn barna sem stunda knattspymu að koma á völlinn og fyl- gjast með þegar bamið er að keppa. Hvetja liðið áfram, sýna barninu stuðn- ing, spjalla við aðra foreldra og um leið taka þátt í að gera Selfoss að betra liði. Vissulega eru margir foreldrar sem mæta vel á völlinn, en nú viljum við fá fleiri. Kíkið á völlinn í sumar, takið með kaffi á brúsa og sólstólinn (kannski teppi) og látið svo aðeins heyra í ykkur. „Afram Selfoss, í boltann, berjast” og fleiri góð hvatningarorð eru vel þegin, bæði þegar vel gengur og eins þegar á móti blæs. Fyrir bamið er þetta mikill styrkur, hversu gamalt sem það er. Oft vill það verða þannig að eftir því sem barnið eldist þá hætta pabbi og mamma að koma á völlinn. Það er alveg bannað að okkar mati! Börnin/unglingarnir þurfa á ykkur að halda ekki síður í 3.flokki en í ó.flokki. Svo ekki sé minnst á 2.flokk. Sá flok- kur hefur alltaf verið hálf einstæður! og þá fara einmitt margir að hætta og gera eitthvað annað. Það ætti að vera áhyggjuefni, því best er að halda sig við efnið, stunda holla og skemmtilega íþrótt og ná enn lengra. Ómetanlegt er að hafa einhvern í brekkunni sem styður mann áfram og hefur áhuga á því sem maður er að gera. Viljurn við hér með skora á ykkur kæru foreldrar/forráðamenn að láta sjá ykkur á vellinum í sumar þegar leikir og mót fara fram. Hægt er að sjá leikjaröðun hvers flokks fyrir sig inn á ksi.is og slá þar inn þann flokk sem við á og prenta síðan út og eiga, þannig að gott sé að fylgjast með hvenær leikirnir fara fram. Sum, ef ekki öll börn fá þessar upplýsingar hjá sínum þjálfara.

x

Tuðran

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tuðran
https://timarit.is/publication/740

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.