Mjölnir - 02.08.1944, Qupperneq 2
2
MJÖLNIR
HVÍT MARINERUÐ KRYDDSÍLD
RAUÐ MARINERUÐ MATJESSÍLD
„Kennið börnnnnm að borða síld“
#vr#sr»#\#^rs#vrvr^\#\#s#s#\#s#v#\#s#vr^rs#sr^s#v#s#sr^^#sr
INGÓLFUR ÁRNASON
Beztu þakkir votta ég öllum þeim, er veittu samúð og hluttekn-
ingu við fráfall og jarðarför Johanns Beck.
CLEMENT JÓHANNESSON
mmmmMmmmmmmmmmmmmmmmm,
HÖS TÍL SÖLU
Húseignin Hlíðarvegur 32 er til sölu strax ef viðunandi tilboð
fæst. Tilboðum sé skilað fyrir 5. ágúst til undirritaðs, er gefur
allar nánari upplýsingar. — Réttur áskilinn til að taka livaða til-
boði sem er eða liafna öllum.
ÖLAFUR SVEINSSON
Hlíðarveg 32.
VATNSÞÉTT ÖR
í stálkössum
1 i
Kristinn Björnsson
gullsmiður
Sölusamlagið
(Framliald af 1. síðu)
un Sölusamlagsins að fela SÍS
að annast fyrir sig sölu síldar-
innar og í vandræðum' sínum
fer það að hæla starfsmanni
SÍS vestra Helga Þorsteinssyni.
Það getur vel verið að Helgi
þessi Þorsteinsson sé „sam-
vizkusamur dugnaðarmaður,“
en ■ hann er samvizkUsamur
gagnvart húsbónda sínum Jóni
Árnasyni, þar sem hann er
ekkert annað en þjónn S. I. S.
I síldarsölumálunum gerir hann
það, sem Jón Árnason leggur
fyrir hann að gera og ekkert
annað, en Jón Árnason e^ sá
maður, sem ísl. sjávarútvegur
getur sízt treyst.
rJtSjHÍk
• • </•>« '*’■** •<»*']
NÝJA-BÍÖ
sýnir í kvöld myndina
ÞORPARINN
Ný mynd á- fimmtudag.
Það verður ekki snúið aftur
með það, að með stofnun Sölu-
saml. síldarframleiðenda ogmeð
þeirri ráðstöfun þess ao fela
SÍS söluumboð þess hefur ísl.
síldariðnaði verið gert mikið ó-
gagn. Það eina, sem getur
bjargað landinu frá stórtjóni af
þessum sökum strax í ár er það,
hye takmarkaðar tunnubirgðir
eru í landinu.
Stúlku vantar
nú þegar til aðstoðar
við vorhreingerningu
Barnaskólans.
Upplýsingar gefur
undirritaður umsjónar-
maður skólans.
ANGANTÍR EINARSSON
GÖTURYKIÐ
Tíðarfar hefur verið með af-
brigðum gott undanfarið, sól-
skin og hlýindi. En engin rós
er án þyrna. í slíku tíðarfari
þorna og skrælna götur bæjar-
ins, og þar sem ofaníburðurinn
er slæmur, þá verður göturykið
KAUPGJALDSSAMNINGUR
milli bifreiðastöðvanna á Siglufirði og Bílstjóradeildar Þróttar
I. Bifreiðastöðvarnar skuldbinda sig til að láta meðlimi bíl-
stjóradeildarinnar liafa forgangsrétt til vinnu við bíla-
keyrslu, og skulu bifreiðastöðvarnar tilkynna stjórn bí!-
stjóradeiidarinnar þegar menn vantar til keyrslu.
II. Lágmarkskaup fyrir fullgilda bílstjóra skal vera sem hér
segir:
a. Mánaðarkaup í allt að 4 mánuði kr. 525.00 á mánuði.
b. Mánaðarkaup í 4 til 6 mánuði 475.00 á mánuði.
c. I sex mánuði eða meir 429 00 á mánuði.
Kaup jjetta miðast við áfcta stunda vinnudag.
III. Tímavinna:
a. Dagvinna pr. klst. kr. 3.0J, grunnkaup.
b. Eftirvinna. greiðist með 50% álagi og lielgid. 100%
c. Bílstjórar, sem ráðnir eru fyrir mánaðarkaup skulu í
eftirvinnu hafa 30% á stærri bíla og 40% á minni bíla.
d. Bílstjórum cr óheimilt ao vinna með bílum við fermingu
og affermingu, nema fyrir fullt Þróttarkaup, undanskilin
er þó ákvæðisvinna í sandi, möl og uppfyllingu er stöðv-
arnar taka að sér svo sem verið hefur.
IV. Kaup bifreiðastjóra, sem keyra fólksbifreiðar, sltal vera
sama og annarra bifreiðastjóra, en eftirvinna þeirra greiðist
með 35% af innkeyrslu bifreiðarinnar í eftirvinnu. Stöðvar-
stjóri og bifreiðastjóri koma sér saman um á livaða tíma
vinnudagurinn sé unninn,
V. Bifreiðastjóri skal skráður á ákveðinn bíl, og ber lionum
réttur til keyrslu, sem á hann fellur.
VI. Stöðvist bifreið vegna bilunar skal bifreiðastjóra skylt að
vinna við rekstur bifreiðastöðvarinnar ef þess er óskað af
viðkomandi aðila, eða liætta störfum ella.
/ (
VII. Utborgun vinnulauna fer fram viku- eða hálfsmánaðarlega
eftir samkomulagi beggja aðilja.Þó skal eftirvinna og
helgidagavinna greidd vikulega. Bifreiðastöðvarnar taka að
sér að greiða ársgjöld meðlima og aukameðlima bílstjóra-
deildarinnar af kræfum vinnulaunum þeirra bílstjóra, sem
á stöðvunum vinna gegn stimplaðri kvittun undirritaðri af
starfsmanni Verkamannafélagsins Þróttar.
Bifreiðastjórar, sem ráðnir eru fyrir mánaðarkaup, skulu
vera ráðnir með skriflegum samningum og skulu báðir
aðiljar koma sér saman um orðalag samningsins.
Trúnaðarmanni Þróttar, eða öðrum, sem bílstjóradeildin
tilnefnir er lieimilt að vera við útborgun vinnulauna ef
þess er óskað af bílstjóra.
Um önnur atriði, sem ekki eru tiltekin í samningi þessum
og fyrir kunna að koma, skulu gilda sömu reglur og eru í
samningi Verkamannafélagsins Þróttar við Vinnuveitenda-
félag Sigluf jarðar.
Samningur þessi er gerður í tveim samliljóða eintökxun,
og heldur hvor aðilji sínu eintaki. Samningi þessum má
segja upp með mánaðarfyrirvara. Samningur þessi gildir
frá 1. júní 1944.
Fyrir hönd bifreiðastöðvanna.
f.li. Bifreiðastöð Siglufjarðar li.f. f.h. Bifreiðastöð Baldvins h.f.
RAGNAR GUÐJÓNSSON SVAFAR HELGASON
Fyrir hönd Bílstjóradeildar Verkam.fél. Þróttar:
ÖLAFUR H. GUÐMUNDSSON
F. h. Verkamannafél. Þróttar
GUNNAR JÖHANNSSON
alveg óskaplegt. Kom þetta
bezt í ljós í gær, þegar hvessti
snögglega. Varð rykmökkurinn
þá svo mikill, að hann náði hátt
yfir húsin, og stóð fólkið á göt-
unum alveg eins og úlfaldar í
eyðimerkurstormi. Nú á bærinn
tæki til þess að vökva með göt-
urng.r, en það hefur mjög verið
sparað í tíð núverandi ráða-
manna. Hjá mörgu fólki hagar
svo til, að það verður að fara
út með börnin sín í kerrum og
er þá ekki annað að fara en
eftir götunum. Er það óhugn-
anleg sjón, að sjá ungbörn í
kerrum í þykkum rykmekki,
hvort sem það eru bílar eða
vindkviður, sem þyrla honum
upp. Það er með öllu óforsvar-
anlegt af bæjaryfirvöldunum að
láta ekki vökva göturnar þegar
svona viðrar.
TÖMATAR
nýkomnir
Kjötbúð Siglufjarðar
Fengum nokkur
„TEIKNIBESTIKK"
af mjög vandaðrí gerð
Verð kr. 255.00
Kaupfélagið.
Kvenblússur
hvítar og mislitar,
einnig
■ 1
rósótt pils
Verzl. Anna & Gunna
Vetrarbraut 5.