Mjölnir


Mjölnir - 11.10.1944, Page 4

Mjölnir - 11.10.1944, Page 4
Miðvikudaginn 11. október 1941 39. tölublað 7. árgangur Pólland. (Frambald á 3. síðu) þeim möguleika til að halda því fram, að þeir hefðu stuðning höfuðborgarinnar og komá þann ig í veg fyrir, að samningar tækjust. Pólska stjórnin í London. Pólska stjórnin, sem nú situr í London, var skipuð eftir dauða Sikorskis hershöfðingja. Hún telur sig hafa stuðning f jögurra aðalflokkanna, sem leyfðir voru sem andstöðuflokkar í Póllandi undir einræðisstjórninni, Sósíal- ista, Bændaflokksins, Þjóðernis sinna og Þjóðlega verkamanna- flokksins. f raun og veru eru allir þessir flokkar klofnir, bæði í útlegð- inni í London og jafnvel meira heima í Póllandi, þar sem stærstu hlutar þeirra hafa sýnt það í hinum frjálsu héruðum, að þeir styðja stefnu Þjóðfrels- isnefndarinnar. Stjórnin í Lond- /on er líka klofin. Einn hluti hennar hefur miklar tilhneig- ingar í lýðræðisátt, viðurkennir þörfina á að sameina alla pólska lýðræðissinna og halda vináttu við Sovétríkin. Annar hluti henn ar, þar á meðal nokkrir hægri sósíalistar, mun aldrei fallast á neitt samkomulag við Þjóð- frelsisnefndina né við Sovétrík- in. Mokolajczyk f orsætisráð- herra leiðtogi Bændaflokksins meðal útlaganna er sagður óska eftir samkomulagi. Þjóðfrelsis- nefndin hefur sýnt honum virð- ingu sína með því, að bjóðast til að starfa undir hans for- ystu sem forsætisráðherra. Enn sem komið er hefur þó hvorki hann né aðrir ráðherrar verið tilbúnir að snúa baki við aftur- haldssinnum. En með því að kjósa heldur einingu við Sosnkowski heldur en pólsku lýðræðissinnana ljá þeir sig og stjórnin í heild til bellibragða, sem aðeins gera Þjóðverjum gagn, en leiða til ófarnaðar fyrir Pólver ja. Sérhver pólskur útlagi, sem er einlægur í ósk sinni, að Pól- land verði frjálst, öflugt, óháð, lýðræðisríki, getur bezt unnið að hagsmunum lands síns og málstað Bandamanna með því að segja skilið við bragðarefina og ganga í lið með Þjóðfrelsis- nefndinni við að byggja upp og græða hið lemstraða land. NfKOMID: Drengjaföt Smábarnasokkar, livítir Smábarnabuxur Smábarnajakkar Anna & Gunna. Siglufjarðarbíó Fimmtudag kl. 9: VÍKINGAR VEGA \ UM ÓTTU Sýnd vegna áskorana Allra síðasta sinn SIGLUFJARÐARBÍÓ sýnir aðeins sunnudaga þriðjudaga og fimmtudaga TIL SÖLU Af sérstökum ástæðum er til sölu lítið notaður Miðstöðvarketill með tækifærisverði. Upplýsingar á afgreiðslu blaðsins. SENDIL vantar okkur nú þegar Kjötbúð Sigluf jarðar TARSO miðstöðvareldavél til sölu á Hlíðarveg 32 Gunnl. Guðlaugsson OLlUVELAR koma með Lagarfossi Einnig OUUOFNAR EINCO HINN SVARTI NAPOLEON náði í veslings Potin og lét hýða hann til dauða. Þeir sitja ennþá og ræða. Eg skildi allt, sem þeir sögðu, þótt þeir töluðu frönsku en ekki kreólamál.“ „Reyndu að koma þér að efninu, bjálfinn þinn. Hvað sögðu þeir um okkur?“ Rigaud rétti út hendina eins og hann vildi þrífa í svarið og stinga því í vasa sinn. Vilattes bað hann að stilla sig. „Láttu piltinn segja frá þessu eins og hann vill. Síðan getur þú fengið að tala og skipa fyrir eins og þú vilt.“ Rigaud ypptir öxlum með fyrirlitningarsvip og stingur sígarettu á milli svartra tannbrot- anna. „Síðar munuð þið gera það, sem ég hef ráðið ykkur til svo mánuðum skiptir. Upp mcð byss- urnar og út 1 skógana. Það er betra að vera útlagi heldur en þræll. Þið munuð einnig kom- ast að raun um, að það er betra en að vera kynblendingur. — En hann skal fá að halda áfrarn, þessi asni “ Vilattes stappar í gólfið. „Jæja, Carmilly ætlar fyrst að semja við Englendinga. Það hefur ha.'.n sagt og hinir hrópuðu: Lifi England,- Þeir hafa kosið þrjá aðalsmenn til að fara þangað til samninga. Þeir vilja ekki borga meiri skatta. , Bravó,“ segir Rigaud og tæmir vermouth- glas sitt. „Það er einmitt ætlun mín!“ Allir hlusta og rísa óttasleginr á fætur. Þeir hlusta þögulir á blásturinn og; hvininn í nætur- húminu. Rigaud slekkur ljósið. , Við höfum múlvð varðmanvinum, en djof- u’iinn má vita, hvið svo’.a asnar geta látið sé’" detta í hug.“ þeir heyra, er ekki fallið til að auka þrá þeirra eftir ljósinu. Þeirn finnst þeir vera útskufaðir traðkaðir menn og hatur þeirra til hvítu mann- anna brennur þeim í blóðinu . Allt í einu kveður við hin grófa rödd Rigauds, sem skýrir málin skýrt og einfalt: „Þetta er stríðsyfirlýsing, sem ég hef alltaf verið að bíða eftir. Þessi bölvaði jarðeigandi, Carmilly, hefur loksins hert upp hugann. Hann ætlar að afnema ákvæði svertingja-laganna, svo ætlar hann að leggja bann við því að búa í borginni, banna að fara til Parísar, banna að reka verzlun, banna að stunda nám, banna að ber vopn, og svo að lokum —“ það heyrist hvæs- andi hljóð „— af með höfuðið! Þú hefur lagt þetta vel niður fyrir þér, heiðraði bróðir Carm- illy. Þessu verðum við að svara með því að heimta að hin nýju lög, sem gefa öllum frönsk- um borgurum sama rétt og sömu vernd án tillits til hörundslitar, komi til framkvæmda einnig hér gagnvart okkur, beztu borgurum San Dómingó. Við verðum að heimta þetta strax á morgun.“ Vilattes ýrir ofurlitlu Kölnarvatni á jakka- ermina. Það hringlar í armböndum hans eins og bjöllum. „En ef nú hinn heiðraði bróðir, jarðeigandinn, lætur kasta þér út?“ „Þá flý ég til skógar, en ég fer ekki ein- samall, ég tek mína járnklgddu brúði* með, hlaðna blýkossi." Þegar kynblendingarnir komu svo daginn eftir, klæddir sínum mesta skrúða, gyrtir blik- andi sverðum og með mjallahvitar hárkollur, lét hinn heiðraði bróðir þá bíða í tvær stundir úti í brennandi sólarhitanum. „Það er gott fyrir þá, að andlitsfarðinn fái tækifæri til að bráðna.“ Svo lét hann vísa þeim inn. Carmilly sat við skrifborð sitt, jakkalaus, í lágum sokkum og hárkollulaus. Hann leit undrandi og móðgaður á hina þrjá herra. Eftir KARL OTTEN „Hver ert þú?“ Hann benti með fætinum á Vilattes lækni. Vilattes hneigði sig og nefndi nafn sitt. Svo kom röðin að Rigaud og svo Daguin. Hinn síð- astnefndi var auðugur bómullarkaupmaður. „Og hverju á ég að svo að þakka þennan sjaldgæfa heiður ?“ Hann hlustaði á Vilattes tala án þess að hið óviðfeldna bros hyrfi eitt andartak af andlitinu. „Það á með öðrum orðum að ganga svo langt í frekjunni, að ekki verði einu sinni tekið ofan fyrir okkur og ekki borgaðir skattar. Kynblend- ingarnir vilja fá að kaupa land og hafa kosn- ingarétt. Hvað þýðir það, að hafa kosningarétt ? Það eru bara við hvítu mennirnir, sem höfum kosningarétt. Það er einungis að þakka hinni miklu geðprýði minni, að ég ekki læt varpa ykkur strax í fangelsi fyrir þá frekju, sem þið hafið sýnt hér. Hverfið héðan strax, ellegar ég læt húðstrýkja ykkur. Hvað er það, sem fólk ímyndar sér? Vegna þess að nokkrir svika- hrappar í París hafa fundið upp einhver mann- réttindi, sem aldrei hafa verið til, þá viljið þið gera byltingu og kúga okkur. En við skulum sýna ykkur í tvo heimana. Svertingjarnir verða að halda áfram að vera það, sem þeir hafa alltaf verið vegna síns svarta skinns og svörtu sálar — þrælar. Eg sel ykkur alla til Jamaica eða Florida.“ Jafnskjótt og hinir þrír kynblendingar komu heim til sín, komu þar hermenn með brugðna byssustingi og tóku þá fasta. Þrjú hundruð kyn- blendingar voru handteknir dagana þar á eftir. Svo byrjuðu réttarhöld, sem aldrei höfðu átt sinn líka fyrr á San Dómingó. Dómararnir voru hreinræktaðirjáðalsmenn. En, málafærslumennirnir voru lágstéttarmenn, borgarar, sem að vísu var ekkert annt um kyn- blendingana, en mændu vonaraugum til nýs frelsis. Og vegna haturs síns á aðalsmönnum unum sýknuðu þeir alla kynblendingana undan- tekningarlaust. Heift jarðeigendanna var takmarkalaus. Margir þeirra hófu stríð út af fyrir sig. Það kom oftlega fyrir, að kynblendingarnir hurfu og fundust svo aftur liðin lík. En Massíac-klúbburinn gat hrósað sigri. Hon- um tókst með hjálp gullpeninga sinna að sann- færa þjóðþingsmennina um það, að ástandið í nýlendunum væri allt öðruvisi en í heimalandinu Þjóðþingið samþykkti að skipta sér ekki fram- ar af ástandinu á San Dómingó. Það var mikil ólga meðal kynblendinganna. Heróp Rigauds um að grípa til vopna, fékk margfaldan hljómgrunn. En það vantaði ennþá kjörorðið, sem gæti kveikt í hjörtunum, hrifið alla og hvatt þá fram til dáða, kjörorðið um frelsun, sem krefð- ist skilyrðislausra fórna eigna og blóðs. Þessu kjörorði sló niður til þeirra frá himnum og eins og alltaf, þegar svo stendur á, var það óvinurinn, sem lagði það upp í hendurnar með sínum vanhugsuðu ofbeldisaðferðum. OGÉ Þetta er sagan um hinn ógæfusama bjálfa Ogé. Ogé var kynblendingur. Faðir hans, sem var ríkur indigó-kaupmaður, dó snemma og móðir hans setti sér það markmið að gera herramann úr hinum fagra syni, lækni eða embættismann. Þegar hann var nítján ára var hann sendur til Parísar. Ogé lagði stund á stærðfræði, lögfræði og læknisfræði. Hann gat notið hverskonar skemmt ana og lystisemda, því að hann var eins og áður er sagt efnaður og stúlkurnar litu hann hýru auga.

x

Mjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.