Mjölnir


Mjölnir - 12.02.1947, Blaðsíða 4

Mjölnir - 12.02.1947, Blaðsíða 4
Miðvikuilagur 12. febrúar 1947. 5. tölublað 10. árgangiu- AÐALFUNDUR Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags ís- lands, verður haldinn í Kaupþingssalnum, í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn 7. júní 1947 og hefst kl. 1,30 e. h. D A G S R R Á : 1. Stjóm félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstand- andi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endnrskoðaÖa rekstursreikninga til 31. des. 1946 og efnahagsreiknrng með athugasemdum endur- skoðenda, svönun stjómarinnar og tillögum til úr- skurðar frá endurskoðendmn. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skipt- ingu ársarðsins. 3. Kosning f jögra manna í stjóm félagsins, í stað þeirra sem úr ganga samkvæmt félagslögum. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Tillögur til breytinga á reglugjörð Eftirlaimasjóðs h.f. Eimskipafélags Islands. 6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngiuniðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, daganna 4. og 5. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Reykjavík, 10. janúar 1947. STJÓRNIN Tryggingar! Tökum að oss: ★ Sjóvátryggingar ★ Farangurstryggingar ★ Ferðatryggingar ★ Bifreiðatryggingar ★ Bmnatryggingar ★ Rekstursstöðvatryggingar ★ Jarðskjálftatryggingar SIGLFIRÐINGAR ! Tryggið allt hjá alíslenzku félagi. ALMENNAR TRYGGINGAR H. F. Umboðsmaður á Siglufirði FRISRIK GUÐJðNSSON Símar 25 og 188 M O N T E S Eftir FRANK HARRIS toganum af Medina Celi — hann hafði vitjað mín undir eins samdægurs — að höggið hefði ekki valdið alvarlegum meiðslum, en ég mundi alltaf verða haltur, því horn nautsins hefðu rifið lærvöðvann frá beininu. „Það er hreinasta kraftaverk, að honum skyldi ekki blæða til dauða,“ sagði hann. ,,En nú mun honum batna, en hann getur aldrei framar tekið þátt í nauta- ati.“ Eg vissi þó betur en læknirinn, en svaraði honum engu. En við hertogann sagði ég: „Senor, loforð er loforð. Eg mun taka þátt í sýningu yðar í júlí, eins og ráð var fyrir gert.“ Ilann svaraði: „Já, vesalings drengur, ef þú vilt og verður fær um það. En hvað kom þér til að gera annað eins glappaskot eins og þetta?“ „Ég gerði ekkert glappaskot, senor.“ „Vissirðu, að þú yrðir stangaður?“ Eg kinnkaði kolli. Hann horfði dálitla stund á mig og rétti mér síðan höndina. Eg held, að hann hafi skilið, hvernig í öllu lá. En hann minntist ekkert á það. Juan heimsótti mig um kvöldið, og daginn eftir komu Clemencia og móðir hennar. Eg sá, að Clemencia var hrygg og langaði til, að ég fyrirgæfi henni. En mér fannst ég ekkert þurfa að fyrirgefa henni meðan hún stóð þarna, bein og mjúkvaxjin, með blómlegt yfirbragð og lokk- andi augnaráð. S'iðan kom kvaláfullur tími meðan læknarnir voru að græða vöðvana fasta. Bráðlega komst ég á fætur og gat haltrað um með hækju. Eftir því sem batinn jókst fækkaði komum Clemenciu og meðan hún stóð við, fór móðir hennar aldrei út úr herberginu. Eg skildi hvað það þýddi. Hún hafði beðið móður sína að fara ekki út. Móðir hennar hafði meðaumkvun með mér og þó hún teldi engan mann samboð- inn dóttur sinni, hefði hún lofað okkur að vera einum, að minnsta kosti stöku sinnum, ef ekki hefði verið þannig búið um hnútana Hún hafði konuhjarta. — En það kom aldrei fyrir. Þá ásetti ég mér að verða sem fyrst heill heilsu, Eg skyldi sýna þeim það, sagði ég við sjálfan mig, að Montes, þó haltur væri, gæti meira en aðrir menn. Og ég varð furðanlega fljótur að ná mér — Dag einn seint í júní sagði ég þjóni hertogans — hann sendi á hverjum degi til mín þjón með ávexti og blóm — að mér væri mjög mikið áhugamál að hitta húsbónda hans. Hertoginn heimsótti mig sama dag. Eg þakkaði honum fyrir góðsemi hans og spurði síðan: „Senor, hafið þér látið prenta nafn mitt sem nautabana á leikskrána?" „Nei,“ svaraði hann. „Þú verður að komast til heilsu áður. Ef ég væri í þínum sporum, mundi ég satt að segja ekki fást neitt við nautaöt fyrr en næsta sumar.“ Eg svaraði: „Senor hertogi, Það er mjög að- kallandi. Trúið mér. Þó ég sé lasburða get ég samt beitt sverðinu." Hann svaraði eins og hann hefði lesið hugs- anir m'inar: „Einmitt. Hún heldur, að þú getur það ekki. En þú villt sanna hið gagnstæða. Eg mundi ekki gera mér það ómak ef ég væri í þínum sporum. En rasaðu ekki að neinu, það eru enn fáeinir dagar til stefnu Eg kem seinna 1 heimsókn til þín, og ef þú verður þá sömu skoð- unar og nú, skal ég veita þér tækifæri. Því lofa ég.“ Augu mín voru tárvot, þegar hann fór út, en þó var ég glaður og öruggur. Hinir fölsku vinir mínir skyldu sjá, að ég væri eekki dauður úr öll- um æðum. Að undanteknum Antoniu, jámsmið, nokkrum ókunnum mönnum og þjóni hertogans hafði enginn komið til mín í rúma viku. Eftir þrjá daga skrifaði ég hertoganum og bað hann að efna lóforð sitt. Daginn eftir komu Juan, Clemencia og móðir hennar öll saman 'i heimsókn til mín. Þau vildu öll fá að vita, hvað þetta ætti að þýða. Þau sögðu, að um alla Madrid hengu nú auglýsingaspjöld fyrir nauta- atið næsta sunnudag, og á þeim stæði nafn mitt sem æðsta nautabanans, og að hertoginn hefði látið prenta fyrir neðan það: Vegna sérstakrar beiðni hennar hátignar drottningarinnar. Eg svaraði því einu, að ég færi bráðuih að starfa aftur. Eg tók eftir því, að Clemencia vildi ekki mæta augnaráði mínu. Hvílíkur dagur — ég á við sunnudaginn næsta á eftir. Drottningin sat í stúku sinni og hertog- inn við hlið hennar, þegar skrúðganga okkar heilsaði þeim. Hvert sæti var skipað og hún var í beztu stúkunni, sem ég gat fengið. En ég reyndi að hugsa ekki um hana. Það var eins og hjarta mitt væri frosið Þó skil ég nú, að jafnvel í þetta skipti vann ég vegna hennar. Þegar fyrsta nautið kom inn og klæðisberarnir hófu að erta það, byrjaði fólkið að hrópa á mig: E1 pequeno. E1 pequeno, — og vildu helzt stöðva leikinn. Eg haltraði fram 'i nautabanaskrúðan- um, tók veifu af manni einum og egndi nautið með henni. Það renndi sér á mig. Þetta var meinlaus boli, ég sá augnaráð hans, og vissi, að öllu var óhætt. Síðan vafði ég. veifunni utan um mig og sneri bakinu að honum. I sömu svipan sá ég fólkið standa upp úr sætum sínum og her- togann halla sér fram yfir stúkugrindumar. Þegar nautið hikaði og nam staðar, fór það að hrópa. Eg skilaði veifunni og fór á minn stað meðal nautabananna^ eftir að hafa hneigt mig fyrir áhorfendunum. Fólkið hafði nú valið mér nýtt nafn og byrjaði að hrópa: E1 cojo (sá halti). Eg varð því að ganga fram að nýju og hneigja mig hvað eftir annað. Drottningin fleygði til mín vindlingahylki úr gulli, sem ég á enn. Hérna er það. — Eg leit aldrei þangað, sem Clemencia sat, en þó vissi ég, hvað henni leið. Þennan dag fleygði hún engri rós til mín. — Loks kom að því, að ég átti að drepa nautið Eg gekk að því með nakið sverðið í annarri hend- inni. Engra bragða þurfti við. Eg stjómaði því með viljakrafti m'ínum og hann leit framan í mig. „Veslings dýrið,“ hugsaði ég, „þú ert ham- ingjusamari en ég.“ Hann beygði höfuðið með stóru, góðlegu undmnaraugunum og ég rak sverðið í gegn mn hjarta hans. Hann féll á hnén við fætur mína og valt síðan á hliðina, steindauður. Þegar ég stakk sverði mínu í slíðr- in og gekk burtu byrjaði fólkið að hrópa: „Vel af sér vikið. E1 cojo. Vel af sér vikið.“ Þegar ég gekk út af sviðinu þennan dag, var ég dáðasti nautabani á Spáni. Það sagði hertoginn að minnsta kosti og hann vissi hvað hann söng. Næsta sunnudag fór síðasta nautaat sumarsins fram; en þann sunnudag tókst mér betur en hinn fyrri og var ráðinn æðsti nautabani næsta sumar með fimmtíu þúsund duros í laun. Fjöru- tíu þúsimdum ráðstafaði ég eins og hertoginn réði mér til — ég hefi lifað á vöxtum þeirra síðan, en tíu þúsundum hélt ég eftir til daglegra þarfa. I Eg háfði ákveðið að skipta mér ekkert af Clemencia framar og hélt ákvörðun mína í margar vikur En dag einn kom Juan til mín og sagði mér, að Clemencia tæki sér f jarveru mína nærri. Hann mælti: „Hún er stærilát eins og þú veizt. Stærilátari vJ i 1 ■ hf .

x

Mjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.