Mjölnir


Mjölnir - 21.05.1947, Blaðsíða 2

Mjölnir - 21.05.1947, Blaðsíða 2
2 M J ö L N I R MJÖLNIR — VIKUBLAD — . . Otgefandi : Sósíalistafélag Siglufjarðar Blaðið kemur út alla miðvikudaga. Simar 19U og 210 Áskriftargjald kr. 20,00 árg. Benedikt Signrðsson Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Afgreiðsla Suðurgötu 10. Siglufjarðarprentsmiðja h. f. Réttmæt krafa Árás ríkisstjórnarinnar á lífs kjör alþýðunnar, með hinum gífurlegu tollaálögum, mælist æ ver fyrir, eftir því sem al- menningur hugsar og ræðir mál ið meira. I verkalýðsfélögunum viðsvegar um landið er rætt um hvernig svara s'kuli árásinni og stjórn Alþýðusambands Islands ráðleggur félögunum að svara með uppsögn kjarasamninga, og kref jast kauphækkunar, sem svarar kaupskerðingunni, er af tollahækkuninni leiðir. Verkamannafélagið Dagsbrún í Reykjavík er hér í broddi fylk- ingar, eins og endranær, það hefur þegar sagt upp samning- um og krefst 35 aura grunn- kaupshækkunar á tímann. Mörg félög hafa sagt upp samningum og er nú meiri hugur til sam- vinnu milli félaga ura kröfur sínar en nokkru sinni fyrr. Heildsalarnir hafa óskerta möguleika. til að raka saman stórgróða á kostnað almenn- ings. Þeir r'iku halda sínum sér- réttindum, en á verkaiýðinn er ráðist. Væl afturhaldsblaðanna um slæmt útlit, að atvinnuveg- irnir beri sig ekki og að nú verði verkalýðurinn að sýna þegnskap og fórna fyrstur allra stétta til að lækka dýrtíðina, fær lítinn hljómgrunn hjá al- þýðunni. Geti atvinnuvegirnir ekki borið sig á þessu ári, er það fyrst og fremst fyrir glópsku núverandi ríkisstjórnar í afurðasölumálunum, og þar næst fyrir heildsala og allan af- ætulýðinn, sem skattleggur at- vinnuvegina í skjóli ranglátrar gjaldeyrismeðferðar og hefð- bundinna sérréttinda. Núverandi ríkisstjórn neitaði tilboði verkalýðssamtakanna um samvinnu. Má því með sanni segja, að ill var hennar fyrsta ganga, þótt verra yrði síðar. Rikisstjórnin hefur mikinn blaðakost, mörgum sinnum meiri en verkalýðshreyfingin, ekki mun það þó stoða, þrátt fyrir það mun almenningsálitið í landinu verða með verkalýðs- hreyfingunni. Enginn heiðarleg ur og sanngjarn maður getur krafizt þess, að þeir fátæku fórni fyrst. Að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur þykir aldrei hetjuskapur á Islandi. Að ríki maðurinn slátri lambi fá- tæka mannsins mun aldrei þykja réttlæti hjá íslenzku þjóð inni, hversu hávært sem sá boð- s'kapur er boðaður. Afturhaldið í landinu er að þreifa fyrir sér, um hvað hægt sé að bjóða alþýðunni. Takist því að rýra lífskjör alþýðunnar með tollahækkuninni, án veru- legra gagnráðstafa alþýðunnar, verður næstu árásar skammt að bíða. — En alþýðan er þegar byrjuð á viðeigandi gagnráðstöf unum. Kauphækkun, sem vegur á móti tollahækkuninni, er ó- umdeilanlega réttmæt krafa og standi verkalýðurinn vel saman um hana, nær hún fram að ganga. 2 vörubifreiðar 2Vz tonna, model 1942. Góðir greiðsluskilmálar. Upplýsingar gefur ERLENDUR PÁLSSON Símar 261 og 271 TILKVIMNENG UM UMFERt) I SIGLUFIRÐI Bæjarstjórn Siglufjarðar hefur með tilvísun til igildandi um- ferðalaga samþykkt einstefnuakstur á eftirtöldum götum: Aðaígata frá vestri til austurs. — Gránugata frá austri til vesturs. — Vetiarbraut frá suðri til norðurs. — Norðurgata frá norðri til suðurs. Ennífemur hefur bæjarstjórn samþykkt, að Aðalgata og Gránugata skuli vera aðalbrautir, en aðalbrautir njóta þess for- réttar, að umferð bifreiða og annarra ökutækja frá vegum, sem að þeim liggja, skaf skilyrðislaust Víkja fyrir umferð aðalbrautar, eða staðnæmast áður en beygt er inn á aðalbraut, ef þess er þörf. Lögreglustjórinn í Siglufirði, 17. maí 1947. Guðm. Hannesson TILKYNNING Þar sem mjög mikil vöntun er á liúsnæði hér í bæmmi, eru þeir, sem liafa yfir húsum að ráða, aðvaraðir um það að leigja eltki utanbæjarfólki. Eru þeir bæjarbúar, sem komast að því að slíkt sé gjört, beðnir að tilkynna það húsaleigunefndinni, svo hún geti gert sínar ráðstafanir. Siglufirði, 16. maí 1947 Húsaleigunefnd Siglufjarðarkaupstaðar Ameríka á hraðri leið til nazisma Framhald af 3. síðu. og lúta forsjá þeirra og stjórn, beint eða óbeint. En það er ekki aðeins i utan- ríkismálum, sem stefna Amer- íku er ískyggileg. Innanlands hnígur einnig allt í afturhalds- átt. Kynþáttahatur og kúgun -er í algleymingi. Þótt negrar séu allt að 10. hluti Bandaríkja- þjóðarinnar, eru þeir sviftir al- mennustu mannréttindum og lifa við kúgun og harðrétti. Sví- virðileg þrælalög gegn verka- lýðssamtökunum eru samþýkkt í báðum deildum Bandaríkja- þings. Með framkvæmd þeirra laga eru verkalýðsfélögin raun- verulega svift samningsréttind- um fyrir meðlimi sína, og í fé- lagsmálum þjóðarinnar er stigið aftur á bak um áratugi. Auð- jöfrarnir raka saman feikna gróða og frekja þeirra og pen- ingahroki vex. Atvinnuleysi er að byrja að gera vart við sig í Bandaríkjunum og ýmislegt bendir til að fjármálastjórnin þar stefni að 'kreppu og stór- kostlegu atvinnuleysi innan skemms. NÝJAR BÆKSIR llitsafn Jóns Trausta, 8 bindi Bílabókin, aukin og endurbætt 7—8—9 Knock Out Vísindamenn allra alda Iceland and the Icelanders Á skákborði örlaganna o. fl. . Bókaverzlun Lárusar Þ. J. Blöndal Stripskór á karlmenn Sandalar á börn og fullorðna Kaupfélag Siglfirðinga Skódeild ★ Ársþing Iþróttabandalags Siglufjarðar var haldið 6. og 11. maí s.l. í Suðurgötu 10. For- maður ' bandalagsins Ragnar Guðjónsson ver'kstjóri setti þingið. Sátu þingið 17 fulltrúar og var ríkjandi áhugi fyrir íþrótta- málum, sem var allmikið rætt, og eftirfarandi samþ. gerðar: Skorað var á Alþingi að sam- þykkja frumvarp Hermanns Guðmundssonar um slysatrygg- ingu íþróttamanna. Þá var samþykkt að skora á bæjarstjórn að skattur sá, sem lagður er á s’kemmtanahald hér í bænum verði hækkaður úr kr. 30,00 upp í kr. 50,00 og gangi sú upphæð óskipt til ÍBS til ráð- stöfunar. Einnig að ráðinn verði hingað 'iþróttafulltrúi. Að bæjarsjóður leggi til íþróttamála árlega í næstu^þrjú ár, allt að 100 þús. krónur á ári, og að ÍBS, ásamt íþrótta- fulltrúa, geri áætlun um hvernig fénu skuli skipt milli hinna ein- stöku íþróttaframkvæmda. Þá var samþykkt áskorun til bæjar stjórnarinnar um að koma sundlauginni sem fyrst í not- hæft ástand. Að lokum var kosin nefnd til að afla teikninga af þeim stöð- um, sem til greina koma undir stökkbraut. Stjórn íþróttabandal. Siglu- fjarðar skipa nú: Bragi Magnússon, form. Jóhann G. Möller, ritari Einar Kristjánsson, varaform. Sigurgeir Þórarinsson, gjaldk. Meðstjórnendur: Helgi Sveinsson Vilhjálmur Hjartarson Erlendur Stefánsson ★ Sú strauinharða elfa ... Að vísu hefi ég ekki heyrt, að menn geti beinlínis dáið úr ó- þrifnaði, því ef svo væri, mundi það fólk, sem býr kringum Ráð- hústorgið liggja á börunum stirðnað, og sennilega búið að grafa suma. Og þegar menn ganga þar um, koma þeim í hug borgir, þar sem óvinir hafa bar- izt um hvert hús í lengri tíma, brenglaðir húskofar, brotnar rúður, fallnar girðingar og skakkir snúrustaurar, að ó- gleymdri straumharðri skólp- elfu, sem rennur ofanjarðar þvert yfir það virðulega torg, í stað þess að renna 'í rörum neðanjarðar eins og í öðrum bæjum. — Ef ég ætti börn, þyrði ég ekki fyrir mitt litla líf að vita af þeim í námunda við þetta stórhættulega fúadíki, því ef þau dyttu ofan í, og væru ekki svo lukkuleg að geta gripið í höldu á næturgagni eða flotið á mjólkurdós, væri vonlaust um björgun. Enginn mundi heyra neyðarópin. Þau myndu kafna 'í hundgánni og hænsnagarginu, því auðvitað er hænsnabú á miðju torginu. g. ★ Héraðslæknirinn biður þess getið, að vegna veikinda (misl- inga) í bænum, verði bólusetn- ingu frestað, en verði auglýst jafnskjótt og fært þykir. Hatrið gegn Áka (Framhald af 1. síðu) sagt 12 þúsund krónur á einu ári, stundum er upphæðin 17 þúsund, stundum 18 þúsund og einn taldi hana 18 þúsund og átta hundruð krónur. Tæpast geta nú allir sagt satt, sem svona segja frá því sama. En hvað varðar Bjarna Benedikts- son um það? Það sanna í þessu máli er svo það, að þegar Áki ferðaðist eitthvað fyrir ríkið, tók hann sömu dagpeninga og starfsmönnum ríkisstofnana er greitt fyrir ferðalög þeirra í þágu stofnananna. Staðhæft er margsinnis að Áki hafi haft haft Gottfredsen sem sendimann sinn í útlönd- um. Sagan er gersamlega til- hæfulaus. Þá er fullyrt, að það sé Áka að kenna, að þakið datt niður á mjölhúsinu hér og það sé einnig honum að kenna, að byggingarkostnaður nýju verk- smiðjanna hefur farið langt fram úr áætlun. Mikil má fyrir- litning þeirra manna vera á al- menningi, sém svo heimskulega tala. Byggingu nýju verksmiðj- anna annaðist fjögurra manna nefnd. Áki réði vali tveggja mannanna, en stjórn Síldarverk smiðja ríkisins réði vali hinna tveggja. Ef gengið væri út frá að byggingarnefndin hefði gert einhver voðaleg axarsköft, og draga ætti til ábyrgðar þá menn sem réðu vali nefndarmannanna hlyti ábyrgðin að hvíla á r'ikis- verksmiðjustjórninni engu síður en Áka. Enda er ekki vitað um að neinn ágreiningur hafi verið í byggingarnefndinni um nein mál, sem einhverju skipta. Hitt er svo mála sannast, að alhr byggingarnefndarmennirnir eru menn, sem mikils álits njóta. Mennirnir sem Áki skipaði í nefndina eru þeir Snorri Stef- ánsson og Þórður Runólfsson.' Sjálfsagt hefði flestum Siglfirð- ingum þótt skrítið, ef svona byggingarnefnd hefði verið skip uð án þess að Snorri Stefánsson væri í henni. Það er Bjarni Benediktsson, sem fyrst og fremst stendur fyrir ofsóknarherferðinni gegn Áka. Hvort offors Bjarna og rætni í herferð þe“ssari hjálpar honum eitthvað í valdastreitu hans innan Sjálfstæðisflokks- ins, skal ósagt látið. En aukist álit Bjarna við þessa herför inn- an flokksins, þá er Bjarni verð- ugur foringi hans í framtíðinni. B. K.

x

Mjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.