Mjölnir - 10.12.1947, Blaðsíða 2
‘■*v+*
MÍÖLNIR
MJÖLNIR
— VIKUBLAf) — . .
Útgefandi :
Sósfalistafélag Siglufjarðar
Símar 19't og 210
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Helgi Guðlaugsson
Blaðið kemur út
alla miðvikudaga.
Áskriftargjald kr. 20,00 árg.
Afgreiðsla Suðurgötu 10.
SighifjarZarprentsmiðja h. f.
Tveir verkai.flokkar
Framhald af 1. síðu
því og reyndu að fá málið
dregið á langinn, og höfuðmál-
gagn flokksins, Alþýðublaðið
barðist eins Icngi og það þorði
gegn lýðveldisstofnuninni. —
Sósíalistaflokkurinn beitli
blaðakosti sínum og öllum
kröftum sínum í þágu þessar-
ar sjálfstæðisbaráttu og álti
meiri ])átt í en margur veit,
að málið náði fram að ganga.
Island bafði ekki verið lengi
tullvalda og sjálfstætt ríki
þegar Bandaríkin byrjuðu bér
ágengni og kröfðust þess af
Islendingum, að þeir afsöluðu
sér íslenzkum landsréttindum
í þeirra bendur. Sósíalista-
flokkurinn beitti sér af alefli
fyrir, að íslenzka þjóðin vísaði
á bug slíkum kröfum. Alþýðu-
blaðið og flestir foringjar Al-
þýðuflokksins börðust fyrir
kröfum Bandaríkjanna og
stuðluðu að því að landráða-
samningurinn um amerískar
berstöðvar á Islandi var gerð-
ur. Að vísu greiddu tveir þing-
menn flokksins atkvæði gegn
samningnum á þingi, en létu
svo þar við sitja. I Ameríku
bafa nú fyrir nokkrum mán-
uðum verið sett þrælalög, sem
svifta verkalýðsfélögin svo að
segja öllum starfsmöguleikum,
og gera ofsóknarherferð gegn
hverri frjálsri bugsun í land-
inu, þá er það vitað, að þær
12—13 milljónir negra, sem
búsettir eru í Bandaríkjunum
eru svo að segja réttlausir og
meðhöndlaðir eins og dýr. —-
Alþýðublaðið hefur ekkert
skrifað um þessa biminhróp-
andi svívirðingu, en þreytist
]>ess í stað aldrei á að lof-
syngja Ameríku fyrir bið full-
komna lýðræði og frelsi, sem
þar ríki. Tilraunir Bandaríkj-,
anna nú til íhlutunar í ýms-
um ríkjum Evrópu er mjög
dáðar í Alþýðublaðinu og af
foringjum Alþýðuflokksins. —
Sósíalistaflokkurinn hefur for-
dæmt þetta athæfi.
Alþýðuflokkurinn segir ])að
vera lokatakmark sitt að koma
sósíalismanum á á Islandi, —
ekki hefur floklcurinn þó gefið
út eitt einasta fræðirit um
sósíalisma í mörg ár. Og þó
leitað sé með logandi Ijósi í
dálkum Alþýðublaðsins, síð-
ustu árgangana er þar hvergi
að finna fræðilega grein um
sósialisma eða áróður fyrir
sósíalislisku þjóðskipulagi. —
Þveröfugt er ])etta með Sósíal-
istaflokkinn, sem hefur af litl-
um efnum gefið út á íslenzku
mörg fræðileg rit um sósíal-
ismann og beldur uppi sleitu-
lausum áróðri fyrir sósíalism-
anum í blöðum sínum.
A siðastliðnu vori átti Verka-
mannafélagið Dagsbrún í Bvík
i harðvítugu verkfalli til að
koma á kauphækkun. Nokkur
sjómannafélög undir forustu
stjórnar Alþýðusambandsins
voru í verkfalli til að l)æta kjör
sín og verkalýðsfélögin á
Norðurlandi voru í verkfalli
til að fá samræmd kjör í síld-
arverksmiðjum við það, sem
þau voru bezt, Siglufj arðar-
kjör, en það var stórfelld
bækkun hjá þeim stöðum, sem
kjörin voru lökust. Sósíalista-
flokkurinn studdi þessi verk-
föll af alefli og átti drýgstan
þáttinn í því að þau enduðu
með sigri. Alþýðuflokkurinn
barðist af alefli með atvinnu-
rekendum gcgn þeim verka-
mönnum, sem í baráttunni
stóðu.
Frá upphafi befur það vcrið
stefnumál bæði Alþýðuflokks-
ins og sósíalistaflokksins að
berjast gegn tollum á nauð-
synjavörum. A síðastliðnum
vetri báru afturhaldssinnar á
Alþingi fram frumvarp til laga
um að stórbækka tolla þ.á.m. á
nauðsynjavörum. Sósíalistafl.
beitti sér af miklu barðfylgi
gegn setningu laganna, en AI-
þýðuflokkurinn studdi hana og
lögin voru sett.
Nú heimtar íslenzkt aftur-
bald stórfelldar kauplækkanir
og rýrð kjör alþýðunnar, ekki
er annað sjáanlegt en að Al-
þýðuflokkurinn sé þegar í
einni sæng með svartasta aft-
urbaldilandsins að skipuleggja
þessi skuggalegu áform. Al-
þýðublaðið hefur óslitið rekið
áróður fyrir kauplækkunum í
marga mánuði. Sósíalista-
flokkurinn befur þegar af-
bjúpað hvað sé á seyði og cin-
beitir sér að því að skipuleggja
alþýðuna til varnar þessum
árásum. Hér liafa verið teknar
örfáar staðreyndir l'rá starf-
semi ])essara tvegg'ja flokka,
hundruð svipaðra dæma eru
til. En þessi fáu dæmi eru ein-
kennandi fyrir báða þessa fl.
og verða því látin nægja.
Fyrir alþýðunni liggur nú
að gera sömu ráðstafanir á
pólitíska sviðinu og hún gerði
fyrir nokkrum árum, í öng-
þveitinu á klofningstímum
verkalýðsfélaganna. Pólitísk
eining alþýðunnar, einn sterk-
ann pólitískan flokk alþýðunn-
ar á Islandi. Alþýðuflokkurinn
er einskis nýtt baráttutæki
fyrir alþýðuna lengur, forusta
hans er horfin frá fyrri stefnu
og gengur upp í samstarfi við
afturhaldið. Sósialistaflokkur-
inn er nú binn eini raunveru-
legi flokkur alþýðunnar og
þegar afturhaldið réttir alþýð-
unni hnefahöggið með hjálp
Alþýðuflokksins, næstu daga,
á alþýðan að svara með því að
streyma inn í Sósíalistaflokk-
inn og fylkja sér um liann,
gera hann sterkan og voldug-
ann alþýðuflokk, sterkasta
flokkinn á Islandi.
rposturmn
PÓST- og SÍMA-
ÞJÓNUSTAN I BÆNUM.
Kæri bæjarpóstur!
Út af grein, sem birtist í
Siglfirðing nú fyrir stuttu um
síma-afgreiðslu langar mig til
að biðja þig fyrir eftirfarandi
línur:
Síminn er nú orðinn eitt af
þeim tækjum, sem við teljum
okkur sízt geta verið án. Eðli-
leg afleiðing af þessari nauð-
syn og þægindum eru þær
kröfur, sem við notendur ger-
um til þeirra, sem með stjórn
þeirra fara. Nú er það svo bér
á Siglufirði, að allar kröfur
símnotenda bafa verið bunds-
aðar þar til í sumar að binni
liáu símamálastjórn þóknaðist
að gera örlitla bragarbótt, ekki
þó eingöngu fyrir Siglfirðinga,
þó að þeir njóti góðs af, heldur
miklu fremur fyrir aðkomu-
fólkið, sem hér dvelst yfir
sumarið. — Það var sem sé
komið upp fjölsímatæki bér
um mitt sumar og batnaði þá
stórum langlínuafgreiðslan. —
Þetta virðist liafa farið fram
hjá greinarhöf. Siglfirðings.
Honum hefur skotist yfir það
eins og honum skauzt yfir or-
sök þess ófremdarástands, sem
ríkt hefur fram á þennan dag
í póstmálum okkar Siglfirð-
inga engu síður en símamál-
urn. En sú orsök er fyr-st og
fremst skilningsleysi og vilja-
leysi póst- og símamálastjór-
ans á þarfir okkar og nauðsyn
á úrbótum. Skilningsleysið
lýsir sér í því, að ennþá skuli
hann álíta fullnægjandi búsa-
kynni og starfsskilyrði starfs-
fólksins, eins og þau voru
fyrir 25 eða 30 árum fyrir
margfallt færri íbúa en nú eru
í bænum. Viljaleysið lýsir sér
í þvennóðsku við allar um-
bætur á þessum stofnunum bér
og því verða Siglfirðingar að
láta sér nægja ófullnægjandi
póst- og símaþjónustu árið um
kring og þó sérstaklega á
sumrin er allur síldarfólks-
skarinn bætist við.
I þessum efnum verða Sigl-
firðingar að gera sameiginleg
átök, krefjast þess sameigin-
lega að bót verði ráðin á þessu
vandræða-ástandi, krefjast
samskonar aðgerða bér og átt
bafa sér stað á Isafirði, Akur-
eyri og í Vestmannaeyjum. —
Annað er ekki þolandi og ekki
sæmandi fvrir Siglufjörð.
Símanotandi.
ER EKKI HÆGT AÐ
MOKA GÖTURNAR.
Nú hefur bæjarstjórnin keypt
jarðýtu, auk þess er hér til á
staðnum önnur jarðýta, sem
leigð er hverjum, sem hafa vill.
Þrátt fyrir þetta er ekki einu-
sinni Aðalgatan mokuð, bvað
þá aðrar götur. Vill nú bæjar-
stjórnin ekki hlutast til um,
að fjölförnustu götur bæjarins
verði hreinsaðar, svo sæmilega
greiðfært vcrði að komast um
þær?
GÓÐUR
FÉLAGSSKAPUR
Sunnudaginn 7. þ.m. var
fundur baldinn i deild Nátt-
úrulækingafélags Islands, sem
stofnuð var bér s.l. baust. I
félagið gcngu 48, og eru þeir
þá orðnir 92 félagar og má
það heita mjög góður ábugi
enda gott málefni, sem unnið
er að.
A fundinum var i’ælt um
stofnun matstofu með svipuðu
sniði og rekin cr í Reykjavík á
vegum félagsins, sem befur
gefið mjög góðan árangur,
með að útrýma úr fæðunni því,
scm skaðlegast cr fyrir melt-
inguna.
Var kosin þi-iggja manna
nefnd til að athuga möguleika
fyi’ir því að brinda þessu rnáli
í framkvæmd.
Einnig var ákveðið að allir
félagar, senx óska eftir að fá
afgi-eitt grænmeti, sem félagið
fær bingað þurfi að framvísa
félagsskírteini, er því nauð-
synlegt fyrir þá félaga, sem
bafa ekki innlevst skírteini sín
að gjöra það senx allra fyrst.
Frú Guðriin Rögnvaldsdóttir,
Túngötu 27, tekur á móti félags
gjöldum frá kl. 8—10 heima
næstu kvöld. Félagsmaður.
FÁLM en EKKI
FYRIRHY GG JA
Hingað til I)æjarins
komu
fyrir nokkrum mánuðum um
60 þvottavélar, og voru margar
húsmæður glaðar við þegar
fregnin barst út, að þessi þörfu
verkfæri væru nú komin, því
vitað var, að gjaldeyris- og inn-
flutningsleyfi voru fyrir hendi;
en það var þá ekki geðfellt Fjár-
hagsráði, og þessum öllum
nefndum, sem búið er að stofna
utan um það og þessa starfs-
lausu ríkisstjórn, að leyfa að
leysa þær út; liggja þær því í
húsi, sem búast má við, að sjáv-
arloft hafi þau áhrif á rafmót-
orana, er drífa vindu og hreyf-
il þvottavélanna að þær liggji
undur skemmdum. Væri hart til
þess að vita ef svo illa færi, að
þessi þörfu heimilistæki eyði-
legðust að einhverju leyti vegna
ímyndaðra örðugleika um
gjaldeyrisyfirfærslu á sama
tíma, sem ausið er upp úr gull-
kistu okkar Islendinga verðmæt-
um fyrir tugi milljóna. Eru að
þessu allveruleg óþægindi fyrir
þá, sem vélarnar áttu að fá, og
áhætta fyrir þann, sem innkaup-
in gjörir, og tjón ef um skemmd
ir verður að ræða, því vart mun
þessi haftaklíka, sem allt er að
stöðva taka það á sig. Frekar
mætti búast við, að einhver úr
hrunsöngskórnum kæmi í út-
varpið og hældi sér af því, að
þessar vélar hefðu eyðilagst,
eins og formaður Fjárhagsráðs
gat hælt Fjárhagsráði fyrir að
hafa stórkostlega dregið úr
byggingum í sveit og við sjó, og
með öllu bannað byggingar á
sex hundruð og sextíu og sex
íbúðum. Það virðist svo, að ekki
sé margt hólsvert í störfum
ríkisstjórnar o gþeirra nefnda,
sem hún hefur ungað út, þegar
farið er að hæla sér af því að
banna húsnæðislausu fólki að
komast í viðunandi húsnæði, og
ættu þeir, sem við húsnæðisörð-
ugleikana eiga að búa, sem eru
alltof margir, bezt að geta
dæmt slík vinnubrögð.
Verkamaður.
PLI
EPLI
Jólaeplin koma 15.—20. þ.m. Uthlutun fer fi’am gegn stofn-
auka nr. 16. Leggið hann því inn á skrifstofu vora hið allra fyrsta.
KAUPFÉLAG SIGLFIRÐINGA
VIÐSKIPTAMENN VORIR
eru vinsamlegast áminntir um að skila stofnauka nr. 16 í
sölubúð vora hið fyrsta gegn kvittun, sem gefur þeim rétt til að
fá EPLI afgreithl. Athugið að gera ekÁi stofnaukann ónýtan með
því að liggja með þá heima, því er mesta öryggið að skila þeim
sem fyrst.
VERZLUNIN ÆGIR
VIDSKIPTAVINIR VORIR
vora gegn kvittun, sem gildir sem innkaupalieimild fyrir EPLA-
SKAMMTINUM í sölubúð vorri.
eru vinsamlegast beðnir að skila stofnauka nr. 16 í skrifstofu
KJÖTBtÍÐ SIGLUFJARÐAR