Mjölnir


Mjölnir - 31.03.1948, Page 2

Mjölnir - 31.03.1948, Page 2
2 M J 0 L N I R — YIKUBLAÐ — Útgefandi: Sósíalistafélag Siglufjarðar Símar 194 og 210 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Helgi Guðlaugsson Blaðið kemur út alla miðvikudaga. Áskriftargjald kr. 20,00 árg. — Afgreiðsla Suðurgötu 10 Siglufjarðarprentsmiðja h. f. Tilræðið við verkalýðsfélögin Ríkisstjórn Islands er hreinræktuð einræðisstjórn í viðskipta- og atvinnumálum. Ekkert má flytja inn né út nema með leyfi stjórnarvaldanna. Enginn má stofna atvinnufyrirtæki nema með sérstöku leyfi, ekki einu sinni lítið verkstæði. Ríkisstjórnin selur allar vörur út úr landinu, fyrir það, sem henni sýnist, eigendur varanna, framleiðendurnir, fá þar ekkert um að segja. Þessi beinu afskipti ríkisstjórnarinnar og yfirstjórn atvinnurekstursins í land- inu, verður eðli sínu samkvæmt til þess, að í öllum átökum og hagsmunaárekstrum milli verkalýðsins og atvinnurekenda verður ríkisstjórnin beinn deiluaðili og þá gagnaðili verkalýðsins. Reynsla síðasta árs sannar þetta glögglega. Hin glæfralega verzlunarpólitlk ríkisstjórnarinnar, þar sem íslenzkar afurðir eru sí og æ seldar undir markaðsverði af pólitískum ástæðum, þrengir mjög kosti atvinnuveganna, en það ástand notar svo ríkisstjórn- in til að krefjast kauplækkana. Með lögum frá Alþingi hafa laun allra launþega í landinu verið lækkuð. Vísitalan er fölsuð og sögð mikið lægri en hún er í raun og veru. En ríkisstjórninni nægir þetta ekki, hún undirbýr nú stórfelld- ar launalækkanir til viðbótar. R'íkisstjórninni er ljóst, að verka- lýðssamtökin eru sterk, þegar eining þeirra er góð og þau myndu ekki þegjandi láta bjóða sér nýjar launaárásir. Þetta veit ríkis- stjórnin vel og leggur hún því allt kapp á það nú, að lama verka- lýðssamtökin. Hinn ofsalegi áróður gegn kommúnistum er einn liður í þeirri herferð. Ríkisstjórnin hefur tekið upp kjörorð Hitlers, „allir gegn kommúnistum.“ Eftir á, þegar æsingar væru komnar á það stig að menn væru hræddir að láta bendla sig við komm- únisma, er svo hægurinn á fyrir ríkisstjórnina að skilgreina hvað kommúnismi er. Og þá verður það kommúnismi að fallast ekki á stórfelldar kauplækkanir, „þjónusta við Rússa“, „glæpur“ og ann- að eftir því. Ríkisstjórnin hefur meira að segja ekki getað beðið eftir því, að „æskilegt hugarástand“ væri komið hjá fólkinu. 1 deilunum s.l. sumar rigndi yfir verkamenn ásökunum um, að afstaða þeirra væri ,,kommúnismi“, verkföllin væru „glæpur“, „skemmdarstarfsemi" og gerð eftir „fyrirskipunum 'frá Moskva“. Verkalýðnum er nauðsynlegt að gera sér ljóst að hverju stefnir, og vera tilræðinu viðbúinn. Sósíalistafélag Siglufjarðar heldur aðalfuiul sinn í Suðurgötu 10, kl. 8,30 síðd., íimmtudaginn 1. apríl næstkomandi. ,.. D A G S K R Á : Félagsmál, inntaka nýrra félaga Skýrsla formanns og gjaldkera Kosningar Önnur mál. Félögum Æskulýðsfylkingarinlnar boðið á fimdinn. Stjórnin IB 0 Ð Hef til sölu 4 herbergi og eldliús, ef viðunandi boð fæst. — Tilboðum sé skilað til uiydirritaðs fyrir 1. apríl n. k., sem gefur allar nánari upplýsingar. — Réttur ásltilinn til að táka hvaða tilboði sem er eða hafn,a öllum. HALLGRÍMUR MÁRUSSON BÍLL TIL SÖLU Nýr 5 tonna Austin bíll, ásamt vélsturtu, til sölu nú þegar. — Upplýsingar gefur undirritaður. K. HELLAND. ★ Páskafriður og mjólkurslag- ur. Páskahelgin er nýliðin hjá, þessi hátíð upprisunnar og vaknandi l'ífs, boðberi vorsins á norðurhjara veraldar. Varla munu páskar öðru sinni hafa heilsað jafn blítt og nú, inn- dælis vorblíða hefur verið hér yfir helgina blómarósirnar hafa tekið fram sínar litskrúðugu dragtir og kápur, og með því sett sitt vormerki á bæinn. Jafn- vel grösin hafa látið freistast af hinni miklu blíðu og skotið öng- um, sem strax hafa orðið græn- ir. Já, víst hefur vorið drepið á dyr og er óskandi, að það verði ekki hrakið frá þeim áður en það fær að stíga að fullu inn fyrir þröskuldinn. Vorblíðan hefur sett sinn svip á bæinn um þessa helgi og er þar náttúrunni fyrir að þakka. Það er líka annað, sem sett hefur svip á bæinn um helg- ina og það eru, „mjólkurslag- irnir“, — leiðindafyrirbæri, er menn bera ábyrgð á og hljóta að verða dómfelldir fyrir af öll- um þeim fjölda, sem af brýnni nauðsyn hafa orðið að gerast þátttakendur í þessu leiðinda- fyrirbrigði mjólkurmála bæjar- ins. Það brá mörgum í brún, er þeir fóru að sækja mjólkina á föstudaginn langa. Mjólkurbúð samsölunnar var harðlokuð svo allur skarinn varð að knýja á hjá mjólkurbúð bæjarins. Varð þar strax mikil þröng, svo leita varð aðstoðar lögreglunnar. — Hópurinn, sem beið afgreiðslu varð það stór, að hann náði þvert yfir Túngötu. Biðin reynd- ist löng hjá mörgum, því að ekki eru allir jafn frekir að koma sér áfram í slíkum ,hasar‘ Nokkru fyrir kl. 12 var sagt, að öll samlagsmjólk væri búin. En fjöldi var þarna, sem þurfti að kaupa bæði Hólsmjólk og samlagsmjólk, svo þröngin minkaði lítið en óánægjan óx og margfaldaðist, því að vitað var, að nóg mjólk var til í búð sam- sölunnar. Héldu flestir hinir mjólkurlausu þangað með lög- regluþjónana í fararbroddi. — Hittu þeir forstj. búðarinnar og fór þess á leit, að hann af- greiddi þá, sem enga mjólk fengu í hinni búðinni. Fór svo, að hann opnaði kl. hálf eitt, og var þá kominn geysistór hópur fólks, sem frá hafði horfið við hina búðina áður. Á páskadaginn endurtók sag- an sig, aðeins önnur búðin opin, búð samsölunnar harðlokuð all- an daginn. Troðningurinn og vandræðin þau sömu og á föstu- daginn. Á annan páskadag voru báðar búðirnar opnar, en nú brá svo við, að engin samlagsmjólk var til í bæjarbúðinni, en allur slagurinn í samlagsbúðinni. — Menn hafa spurt og spyrja enn: Hver stjórnar slíkri endemis vitleysu? Hvaða vinnuvísindi eru í slíku og hvaðan er það tak- markalausa virðingarleysi, gagn vart bæjarbúum í heild, sprottið sem lýsir sér í þessari fram- komu forstj. mjólkursamsölunn ar hér, en hann verður óumflý- anlega að teljast ábyrgur gagn- vart okkur bæjarbúum. Þessi síðustu fyrirbrigði í mjólkurmálum okkar gefa til- efni til frekari hugleiðinga um það í hverju ástandi þau eru. Og þau minna óþægilega á hina leiðinlegu „rjómaslagi", sem sí og æ eiga sér stað, minna á ósvífna framkomu mjólkursam- sölunnar við Sigluf jörð, sem ef- laust er einn stærsti viðskipta- vinur hennar, t.d. fyrir jólin s.l. þegar hún sendi rjóma til Reykjav'ikur og vestur um alla firði, en Sigluf jörður mátti gei'a sig ánægðan með slatta fenginn frá Húsavík. Fleira og fleira mætti nefna, en skal eigi gert nú. Hinsvegar finnst mér, að ekki væri úr vegi fyrir bæjarstjórn að taka þessi mál til athugunar því áreiðan- lega eru allir bæjarbúar á einu máli um það, að slíkt ástand og það, sem birtist um páskahelg- ina sé til vansæmdar og vand- ræða öllum bænum. Með þökk fyrir birtinguna. Óánægður mjólkurkaupandi. ★ Æskulýðsfylkingin. .. heldur fundu í Suðurgötu 10 n.k. föstu- dag kl. 9 e.h. Sjá auglýsingu á öðrum stað í blaðinu. ★ Sósíalistafélagið heldur aðal- fund sinn n.k. fimmtudag 'i Suð- urgötu 10. Meðlimum Æ.F.S. sérstaklega boðið á fundinn. ★ Göturnar í bænum. Eftir hina miklu umferð, sem verið hefur um götur bæjarins í vetur í sam- bandi við síldarflutningana, ma segja, að allar göturnar, sern ekki eru steyptar séu ófærar gangandi mönnum og hverskyns farartækjum. Þetta er í sjálfu sér ekki óeðlilegt, þegar það er athugað, að göturnar eru yfir- leitt þannig byggðar í fyrstu, að ekki hefur verið gjört ráð fyrir nema mjög takmarkaðri bíla- umferð, og alls ekki nema yfir stuttan t'ima úr ári. Efnið sem göturnar eru byggðar úr er að mestu leyti mold og „grús“ og slitlag þunnt og úr ófæru efni. Má segja, að öll vinnubrögð við gatnagerð hér hafi verið þannig, að tjaldað hefur verið til einnar nætur. Nú verður ekki hjá því komizt, að hefjast handa og byrja á lagfæringum og endur- byggingu gatnanna almennt. — Bæjarsjóður á ágætis grjót- mulningsvél, og ætti veganefnd in nú þegar að gera ráðstafanir til þess, að hún verði sett í gang og mölun á grjóti til gatnagerðar hafinn í stórum stíl. Nú eru í bænum fjöldi verkamanna, sem lítið sem ekkert hafa að vinna. Er það sjálfsögð skylda bæjarstjórnar, að þeir verkamenn, sem nú ganga hér atvinnulausir verði teknir til vinnu hjá bænum og þá fyrst og fremst í það að koma götum bæjarins 'i keyrslu- fært ástand, en eins og þær eru nú ,er langt frá þvi að svo sé. Bæjarbúar eiga heimtingu á því, að það fé, sem samkvæmt fjár- hagsáætlun bæjar og hafnar- sjóðs er ákveðið að verja til gatnagerðar og til viðhalds gatna verði notað, og að fram- kvæmdir verði hafnar á þeim tíma, þegar menn vantar vinnu. Við heyrum oft talað um, að bærinn okkar sé óþrifalegur. Þetta er því miður alltof mikill sannleikur, en til þess að hægt sé að fegra og bæta útlit bæjar- ins er það fyrst og fremst nauð- synlegt, að sú ómenning, sem hér ríkir í sambandi við útlit gatnanna í bænum hverfi og að bæjarstjóm sé sér þess meðvit- andi, að það er henni til stór- skammar, hvernig götumar í bænum hafa verið og hvernig þær eru nú, og að það sé hennar Æ.F.S. Æ.F.S. Æskulýðsfylkingin félag ungra sósíalista heldur félagsfund n.k, föstudag 2. apríl kl. 9 e.h. í Suðurgötu 10, DAGSKRÁ: 1. Inntaka nýrna félaga. 2. Félagsmál 3. Sundlaugarniál 4. Málfundaratriði: Hvort er betra að vera í sveit eða kaupstað. Tvær framsögu- ræður. 5. Öimur mál. Félagar! Fjölmennið stund- víslega, komið með nýja félaga. STJÓRNIN Nýkomið: Kjólar Kvendraktir Kvenpeysur (peysusett) Undirfatasilki Telpukápur Dúkliuhöfuð Gammosíubux.ur Skóhom Bamasokkar VERZLUN JÓNfNU TÓMASDÓTTUR Herra-hattar nýkomnir Verð kr. 46,00 VERZLUN JÓNÍNU TÓMASDÓTTUR NÍ)A 810 sýnir Miðvikudag kl. 9: Kveiuiíagull kemur lieim. Fimmtudag kl. 9: Kveniiagull kemur heim. Föstudag kl. 9: Hátíð í Mexíco Laugardag kl. 9: Kaptain Kid Sunnudag kl. 5: Smámyndir og þættír Sunnudag kl. 9: Ópiir óttans RÉTTUR Tímaritið Réttur 2. hefti 31. árg. er nýkomið út.- Flytur það þrjár merkar greinar: Island og Ameríka, eftir Einar Olgeirsson — Hugleiðingar um líf og list, eftir Jóhannes úr Kötlum; Allur almenningur verður að styðja verkalýðshreyfinguna í þeirri miklu varnarbai'áttu, sem nú fer í hönd, ræða Brynjólfs Bjarna- sonar við umræðurnar um þrælalög ríkisstjórnarinnar. skylda að bæta úr slíkri ómennsku. Bæjarbúar hafa kosið þessa bæjarstjórn í trausti þess, að hún yrði störfum sínum vaxin og héldi þannig á málefn- um bæjarins, að viðunandi væri, en eins og götur bæjarins eru og hafa verið er ástandið óþol- andi. Það er krafa bæjarbúa, sem bæjarstjórn getur ekki skotið sér undan, að hafist verði nú þegar handa um, að götum bæjarins verði komið í viðun- andi horf. j 1

x

Mjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.