Mjölnir


Mjölnir - 02.06.1948, Blaðsíða 2

Mjölnir - 02.06.1948, Blaðsíða 2
— VIKCBLAÐ — Útgefandi: Sósíalistafélag Siglufjarðar Símar 194 og 210 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Sigurðsson Blaðið kemur út alla miðvikudaga. Áskriftargjald kr. 20,00 árg. — Afgi-eiðsla Suðurgötu 10 Siglufjarðarprentsmiðja h. f. Keflavíkurflugvöllur opinber herstöð , ,Fulltrúadeildin samþyldcti i gærkvöld fnunvarpið um 207.930.100 dollara f járveitingu til umhóta á herstöðvum og varð- stöðvulm frá íslandi til Hawaii. Samkvæmt frxunvarpinu á að verja 8,5 milljónum dollara til leynilegra flugstöðva í Alaska og á Nýfundnalandi og 10 milljónum dollara til Keflavíkurflug- vallar á Islandi. Frumvarpið fer nú til athugimar í nefnd, sldp- aðri af fulltrúadeildinni og öldungadeildinni í sameiningu.“ Þannig hljóðaði Reuters-skeyti, sem danska blaðið Land og Folk birti 22. maí s.l. Sé rétt með farið í skeyti þessu, og enn hefur ekkert komið fram, sem bendi til >þess að svo sé ekki, hafa Bandaríkin nú alveg kastað grímunni; þykjast þegar hafa komið ár sinni svo vel fyrir borð, að þau hirða ekki lengur um, þótt leppar þeirra standi afhjúpaðir sem landráðamenn í augum þjóðar sinnar. Það þurfti enga opinbera staðfestingu Bandar'ikjastjórnar um þetta efni. Allir Islendingar vita, jafnvel iþótt sumir þrjóskist vegna pólitísks ofstækis við að játa það, að þjóðin var blekkt og svikin og land hennar selt á leigu undir erlenda herstöð fyrir tveim árum síðan. Svo að segja hvert einasta smáatvik, sem gerzt hefur á Keflavíkurflugvelli síðan, sannar það, að Bandarikjamenn skoða sig sem einvalda húsbændur þar. Islenzk lög eru þverbrotin þar, greini þau á við geðþótta útlendinganna, sem starfa þar. Fram- koma Bandaríkjamanna gagnvart Islendingum, jafnvel þó 'islenzkir ráðherrar eigi í hlut, minnir oft meira á viðskipti þeirra við negr- ana í heimaland þeirra en samskipti frjálsra og jafnrétthárra að- ila. Og þeir, sem gæta skyldu réttar Islendinga, taka hverri móðg- un við hina fullvalda íslenzku þjóð með flaðurslegri auðmýkt, lof- syngja yfirgangsseggina fyrir ást þeirra á frelsi og lýðræði, og virðingu fyrir rétti smáþjóðanna. En það er ekki á betra von. Mennirnir, sem í krafti valda sinna og aðstöðu ættu að gæta hagsmuna íslendinga gagnvart „herraþjóðinni,“ eru einmitt sömu mennirnir, og sviku sig inn á íslenzku þjóðina við þingkosningarnar sumarið 1946, með loforð- um, yfirlýsingum og drengskaparheitum um, að þeir skyldu ekki láta útlendingum í té herstöðvar á Islandi. Undanfarið hefur verið á kreiki þrálátur orðrómur um það, að ríkisstjórnin sé að makka við Bandaríkjamenn bak við tjöldin um að láta þá hafa opinberar herstöðvar hér. Símskeytið, sem birt var í upphafi þessarar greinar, styrliir fremur en veikir þá skoðun. Bandaríkjamenn hafa fram að þessu látið svo heita opinberlega, að Keflavíkurflugvöllur væri bara meinlaus viðkomustaður fyrir flugvélar, og væri undir yfirstjóm íslendinga. Þeir mundu tæplega fara að tilkynna öllum heiminum, að hér væri opinber herstöð, nema þeir teldu hérumbil fullvíst, að svo yrði innan tíðar. Það er líka margt, sem bendir til þess, að agentar Bandaríkja- anna hér heima á Islandi ætli sér að láta þeim í té opinberar her- stöðvar hér. Til dæmis hefur verið fenginn hingað áróðursmaður frá Noregi, Amulf överland, til þess meðal annars að eggja Is- lendinga á að „fórna sér“, láta BandaríkjuíiiUn í té lierstöðvar hér, til notkunar f múgdrápastyrjöld þeirri, er samvizkulausasta aftur- hald heimsins þráir nú heitast af öllu að koma í framkvæmd til þess aið hnekkja sókn sósíalismans. Hafa áróðurtæki afturhaldsins fagnað honum með kostum og kynjum og gert mannhatursboðskap hans að sínum, og sjálfur forsætisráðherrann tekið hann alveg sér- staklega upp á arma sér svo sem væri hann frelari þjóðarinnar. Það hefur verið borið á ríkisstjórnina, að hún stæði 1 makki við Bandaríkjamenn um að láta þá hafa herstöðvar hér. Hingað til hefur 'hún ætíð svarað svo þungum ásökunum, borið þær af sér. En nú þegir hún. Hún hefur ekki, né heldur blöð hennar, látið orð frá sér fara viðvíkjandi fjárveitingu Bandaríkjaþings til Kefla- víkurflugvallar. Hún veit, að þjóðin bíður þess með eftirvæntingu, að þessi óviðfeldni orðrómur um, að enn eigi að láta Bandaríkj- unum í té herstöðvar hér, verði kveðinn niður 4 einn eða annan hátt. Hversvegna þegir ríkisstjórnin? Er þögn hennar samþykki við orðróminum um að hún sé að semja við Bandaríkin um opnberar herstöðvar? iEða tákn þess, að rlkisstjórnin ætli sér að leyfa Bandaríkjamönmun að fara sínu fram á Keflavíkurflugvellinum, hér eftir sem hingað til, svo sem væri hann hluti af þeirra landi? En hvort sem heldur er, mun það geymast 1 sögunni sem dæmi nm ræfildóm og óþjóðhollustu aumustu ríkisstjórnar, sem setið hefur á Islandi. rposturinn • Barnaskólanum slilifi. Barnaskóla Siglufjarðar var slitið s.l. laugar- dag kl. 2. Alls sóttu 388 börn skól- ann í vetur. 56 Juku fullnaðarprófi. Hlutu tvö beirra 1. ágætiseinkunn, Gunnar Gunnlaugsson 12 ára, sem l'ékk 9,6 í aðaleinkunn, og Jóhann Jónsson 13 ára, sem fékk 9,2 í aðaleinkunn. Skólinn starfaði í 16 deildum í vetur. I.ýsisgjafir og ljósböð voru í skól- anuin í vetu'r eins og að undanförnu Fengu nærri því öll börn ljósböð, og flest lýsi. Voru notaðir um 500 lítrar af lýsi í skólanum í vctur. ' Heilsufar var ineð lakara móti, bar talsvert á kvefi og ýmsum smá- kvillum. 11 fastir kennarar störfuðu við skólann í vetur og 3 stundakenn- arar. menningur Ijá henni lið á ýmsan liátt. l>að er skömm að þessum staðar- ríg milli Akureyrar og Siglufjarðar og eiga báðir aðilar sök á honum. Svona ríg á að útrýina, en það er ekki hægt nema með meira sam- starfi og kynningu en verið hefur. Við Siglfirðingar viljum, að okkur sé sýnd full virðing og sann- girni í viðskiptum okkar við Akur- eyringa, t. d. við íþróttakeppnir milli bæjanna, en á því hefur slund um verið misbrestur að okkar dómi. Sömu kröfu gera Akureyringar til olckar. Eg held að það væri lieppilegt, að íþrótlafélög þessara nágranna- bæja skiptust oftar á lieimsóknum en þau gera, ennfremur verkalýðs- telögin, skipzt yrði á leikliópum, söngflokkum o.s.frv. — Eðlileg sam keppni milli staða getur verið ágæt, en rígur, sem byggður er á óvilil, er alltaf skaðlegur.“ S. • Iijónaefni. — Nýlega hafa opin- Iierað trúlofun sína, ungfrú Elín R. Eyfells og Þór Jóhannsson, hús- gagnabólstrari. Nýlega opinberuðu trúlofun sína ungfrú Sigríður Sigmundsdóttir frá Akranesi og Alfreð Einarsson, stud. phil. Mjölnir óskar hjónaefn- unum lil hamingju. • Ujónaband. — Síðastliðinn þriðju dag voru gefin saman í lijónaband, á skrifstofu bæjarfógeta, fröken Kristbjörg Ásgeirsdóttir frá Seyðis- firði og Sigurjón Sigtryggsson frá Ölafsfirði. Ileimili þeirra verður á Háveg 9. Mjölnir óskar brúð- hjónunum til hamingju. LÁGMARKSKAUPTAXTI • Gaonfræöaskólanum slilifi. Gagn- fræðaskólanum var slitið s.l. laug- ardag lcl. 5. Að þessu sinni útskrifuðust 15 gagnfræðingar úr skólanum. Enn- fremur þreytti einn nemandi lands- próf. Heilsufar i skólunutn hefur verið sæmilegt í vetur. Hæslu einkunnir hlutu þessir nemendur: 1 3. bekk: Iris Svala Jóhanns- dóttir, lilaut 8,75 í aðaleinkunn. I 2. bekk: Katrín Guðmunds- dóttir og Ólafur .Tóhann Jónsson, lilutu 7.71 í aðaleinkunn. I. 1. bekk: Ríkharður Sigurðsson, hlaut 8,38 i aðaleinkunn. • Um H0 nemenclur úr efslu bekkj- um beggja skólanna fóru s.l. sunnu- dag til Ólafsfjarðar til sundnáras. Þarf varla að cyða að þvi orðum, hvílíkt óhagræði er að sundlaugar- leysinu hér. Sund er nú lögboðin námsgrein i barna- og gagnfræða- skólum. Má vart teljast vansalaust fyrir Siglufjörð, að á hverju ári skuli þurfa að senda unglinga liéð- an i önnur héruð til sundnáms. Verkamannafélagsins Þróttiar, Siglufii'ði í jútú 1948. Gildir hjá ödum síldarverksmiðjummi og Siglufjarðarkaupstað og fleirum. LÖGBUNDIN VÍSITALA 300 stig. 1. Almenn dagvimia (2,80) 8,40 13,44 16,80 2. Handlangarar hjá múrurum (2,90) 8,70 13,92 17,40 3. Þróarvinna, grjótnám og holræsa- hreinsun (2,95) 8,85 14,16 17,70 4. Gerfismiðir, lager- og skipavinna (3,00) 9,00 14,00 18,00 5. Stokerkynding á þurrkofnum, lempun á kolum, olíukynding og bílaakstur (3,10) 9,30 14,88 18,60 6. Vinna við kol, salt og sement, losun síldarúrgangs úr skipum og vinna með loftbora; kynding á ikötlum, er mokað er inn á m. skóflum (3,30) 9,90 15,84 19,80 7. Boxa- og katlavinna (3.67) 11,01 17,62 22,02 Kaup unglinga 14—16 ára (2,15) 6,45 10,32 12,90 Mánaðarkaup í 2—6 mánuði (553,78) ... 1661,34 Mánaðarkaup í 6 mánuði eða lengur (520,00) . 1560,00 Vökumenn, þar með taldar helgidaganætur (640,00) .... 1920,00 • Sjómannadaourinn er næslkom- andi sunnudag. Verða þá liátíða- liöld og merkjasala, svipaö og und- anfarin ár. Skipstjóra og stýri- mannafélagið Ægir liefur forgöngu um hátíðahöldin, en ýmis önnur samtök taka þátt í undirbúningi og framkvæmd hátíðahaldanna. Má þar til nefna Kvennadeild Slysa- vaynafélagsins Vörn; Sjómanna- deild Þróttar; íþrótlabandalag Siglufjarðar; K. S. og F.l.S. Er þess að vænta, að bæjarbúar fjölmenni til hátíðalialdanna og kaupi merki dagsins. Allur ágóði af hátíðahöldunum mun renna til sundlaugarinnar. Vonar nefndin, að framlag Sjómannadagsins til laugar innar geti komist upp í 20 þús. kr., ef þátttakan í hátíðahöldunum verður ekki minni en hún var í fyrra. Aðaltekjur nefndarinnar eru af merkjasölunni. Siglfirðingar! Muniö, oð hver ei/rir, sem þiS látiö fyrir mcrki Sjómannadagsins, rennur lil sund- laugarbijggingarinnar. • „S,“ sendir Bæjarpóstinum eftir- farandi pistil. Hefur þótt rétt að birta hann, enda þótt mörgum muni finnast gert fullmikið úr ríg þeim, sem einstaka maður fullyrðir að sé milli Siglufjarðar og Akureyrar. „Sumir hafa látið í Ijós óánægju yfir því, að Lúðrasveit Akureyrar var ráðin til þess að leika hér á hátíðahöldunum 20. maí, og töldu þá ráðstöfun til minnkunar fyrir kaupstaðinn. Veðrið sá um það, aö flugvélin, sem átti að flytja lúðra- sveitina, komsl ekki liingað, en nokkrir menn úr lúðrasveitinni, er höfðu verið svo forsjálir að koma daginn áður, gengu fyrir skrúð- göngunni með trumbur sínar og var það strax til bóta. Hafi þeir þökk fyrir komuna! Annars finnst mér, að þeir, sem eru óánægðir með þessa ráðstöfun hátíðanefndarinnar ættu þá að sýna manndóm sinn með því að koma hér upp lúðra- sveit. Efast ég ekki um ,að bærinn mundi fást til að styrkja slíka starf- semi, ef nauðsynlegt þætti, og al- Siglufirði, 30. maí 1948 STJÓRN ÞRÓTTAR TILKYNNING . .Frá 1. júní verður tekið heimsendingargjald kr. 1,50 af öllum vörusendingum, sem eru innan við kr. 50,00 að verðmæti. — Stærri pantanir sendar ókeypis. Ekki tekið á móti vörupöntunum til heim- sendingar eftir kl. 1 á laugardögum. Siglufirði, 29. maí 1948 F. li. Verzlunarfél. Siglufjarðar Pr. pr. Kaupfélag Siglfirðiuga (Ásgeir Jónasson) (Hjörtur Hjartar) Verzlunin Sveinn Hjartarson Verzlun Péturs Bjömssonar (G. Þórðarson) (Pétur Bjömsson) Skipaverzlun Víkings h.f. Verzlunin Ægir (A. Jónsson) (Kári Jónasson) Gestur Fanndal TIL SÖLU Af sérstökum ástæðum er til sölu 2ja manna svefnsófi, sér- staklega hentugur í litlu húsplássi; 2 fullstoppiaðir stólar; sófaborð og 5 lampa útvarpstæld. Afgreiðslan vísar á.

x

Mjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.