Mjölnir - 13.07.1949, Page 1
Til kaupenda Mjölnis
Þ.ar sem gjalddagi blaðsins var
1. júlí verður næstu daga hafin
innheimta áskriftargjalda hjá
öllum þeim áskrifendum, sem
ekki hafa greitt gjald sitt.
Eru það vinsamleg tilmæli til
kaupenda, að þeir láti ekki inn-
heimtumann fara erindisleysu.
Miðvikudagur 13. júlí 1949.
27. tölublað. 12. árgangur.
Nýtt stórlán
Ríkisstjórnin tekur 33 milljón króna lán í Bretlandi. — Lánveitandinn er
Hambros Bank Ltd. í London, hinn gamli viðskiptavinur íslendinga frá
fjármálaráðherratíð Eysteins Jónssonar. Lántökur ríkisstjórnarinnar er-
lendis, undanfarna 12 mánuði, að meðtöldu gjafafé frá Bandaríkjunum,
komnar upp í 100 milljónir króna.
Fyrir nokkrum dögum var til-
kynnt í útvarpi og blöðum,, að
r'íkisstjórnin hefði tekið erlent
ián, að upphæð 1 millj. 250 þús.
sterlingspund, hjá Hambros
Bank Ldt. í London. Er lán
þetta tekið samkvæmt heimild
AJþingis, og á að ganga til
greiðslu á þeim 10 togurum, er
ríkisstjórnin hefur samið um
smíði á í Bretlandi.
Vextir af láninu eru reiknaðir
4i/2%, en séu stimpilgjöld og
ýmis annár kostnaður reiknaður
með vöxtunum, verða þeir rétt
um 5% á ári.*Lánið er tekið til
21 árs. Er það afborgunarlaust
fyrstu fjögur árin, en á síðan
að greiðast upp með hækkandi
afborgunum á 17 árum.
Er þetta fyrsta lánið, sem
Bretar veita öðrum þjóðiun í
9 ár, eða síðan í stríðsbyrjun.
Hefur brezka stjórnin lagt bann
við lánveitingum til útlendinga
síðan, þar til nú, er hún féllzt
á þessa lánveitingu til íslend-
inga.
Álíka mikið og tapaðist vegna
togarastöðvunarinnar
Eins og kunnugt er íá allur
íslenzki togaraflotinn bundinn
við hafnarbakka svo vikum
skipti í vetur vegna verkbanns
togaraeigenda, sem ríkisstjórn-
in studdi. Sú stöðvun kostaði
þjóðina gjaldeyristap, sem nam
litlu lægri upphæð en ríkisstjórn
in tekur nú að láni í Bretlandi
vegna kaupanna á nýju togur-
unum.
Slík er stjórn hrunstjórnarinn
ar á fjármálum þjóðarinnar, að
aðra stundina lætur hún sama
sem kasta 'í sjóinn tugmilljónum
í erlendum gjaldeyri, en hina
gengur hún betlandi um lánsfé
fyrir erlenda valdamenn.
.,ViðreisnarIánin“
Eins og kunnugt er hefur
Úikiss^jórnin undanfarna tólf
mánuði tekið við 65 millj. kr.
í doilurum af Bandaríkjastjórn,
sem lánsfé og gjafafé. Þegar
fyrst var rætt um aðild íslands
að Marshall-samningnum, hafði
ríkisstjórnin mörg orð 0g hát'íð-
leg um það, að hinar fyrirhug-
Ellidi
Seldi b. 1. máuudag í Cux-
haven. Reyndist aflinn vera 297
smálestir, þar af voru 2 smál.
skemmdar, en að öðru leyti var
aflinn sérstaklega góður. Togar-
inn fer til Reykjavíkur, en þar
verða sett í hann radartæki.
Þorsteinn Hannesson syngur hér á föstud.
Þorsteinn Hannesson óperu-
söngvari hefur dvahð hér í bæn-
um rúmlega hálfa aðra viku að
undanförnu. Er hann í fríi hér
heima á Íslandi, kom hingað
heim laust fyrir miðjan júní
og fer aftur til London um
næstu mánaðamót, en hann er
ráðinn hjá .Covent Garden óper-
unni næsta vetur.
Þorsteinn hefur ekki komið
hingað til Siglufjarðar síðan
1945. Hélt hann'hljómleika hér
þá. En næstkomandi föstudag
kl. 9 heldur hann hljómieika hér
í Nýja Bíó, með aðstoð dr,
Urbantsschitsch, hins kunna
undirleikara. Á söngskránni
verða ýmis erlend og innlend
lög, m.a. tvær óperuaríur. —
Verður þetta að líkindum eina
tækifærið, sem Siglfirðingar fá
til að heyra þennan vinsæia
söjjgvara syngja að sinni, en
vonandi á hann eftir að koma
oft hingað og halda hér hljóm-
leika.
Þorsteinn er nú á förum héð-
an, fer til Akureyrar um helg-
ina, heldur þar hljómleika, og
fer s'íðan -til Reykjavíkur. Er
óráðið, hvort hann heldur
hljómleika þar, en hann mim
syngja þar á grammófónplötur.
Þorsteinn Hannesson hefur
getið sér ágætan orðstír í Bret-
landi sem hetjutenór, og hafa
íslenzkir söngvarar sjaldan
hlotið jafn skjótan frama og
hann. .
Þorsteinn hefur stundað nám
hjá Joseph Hislop, sem var
heimskunnur söngvari á sínum
tíma, en er nú kominn á sjö-
tugsaidur, og hættur að syngja.
Er ekki að efa, að Siglfirð-
ingar fjölmenna á hljómleika
Þorsteins á föstudagskvöldið.
uðu lántökur væru ráðnar ein-
göngu- „til að tryggja áfram-
haldandi nýsköpun og viðreisn
atvinnulífsins.“ • Efndirnar á
þessum fyrirheitum hafa orðið
þær, að nærri 50 miUj. af þessu
fé hefur verið eytt fyrir rekstr-
arvörur og neyzluvörur, og hitt
bundið þannig, að ekkert er eft-
ir, sem verja mætti til kaupa
á atvinnutækjum, t. d. til kaupa
á þessum 10 togurum.
Gamall kunningi Eysteins
Nafnið Hambros Bank Ldt.
(Framliald á 4. síðu)
Opinberir starísmenn
íá launauppbætur
Ríkisstjórnin hefur tilkynnt, að hún hafi ákveðið
að nota heimild síðasta Alþingis, um að verja 4
millj. króna til uppbóta á laun opinberra starfs-
manna. Símamenn hafa fengið 20 % kauphækkun
í útvárpsfréttum í gærkveldi
var frétt frá ríkisstjórninni, þar
sem skýrt var frá því, að hún
hefði ákveðið að nota heimild
síðasta Alþingis um að verja
4 milljónum króna til launaupp-
bóta handa opinberum starfs-
mönnum. Hefur fjiármálaráðu-
neytið ritað Bandalagi starfs-
manna ríkis og bæja bréf, þar
sem það er beðið að gera tillög-
ur um skiptingu þessa f jár milli
manna 'i hinum ýmsu launa-
flokkum og starfsgreinum.
Áður höfðu símamenn náð
samningum um 20% kauphækk-
un frá 1. þ.m. Tókust þeir samn-
ingar s.I. sunnudag. Er saga
þess máls í stuttu máli á þá
leið, að félagið boðaði fyrir all-
löngu verkfall hjá símanum frá
og með 1. þ.m., ef ekki hefðu
náðst samningar þá. Vegna ein-
dreginna tilmæla ríkisstjórnar-
innar var því frestað til 10 þ.m.,
og kom það aldrei til fram-
kvæmda, þar sem samningar
tókust á s’íðusitu stundu.
Þótt s'imamannafélagið sé í
B.S.R.B., átti Bandalagið engan
þátt í samningum þess, heldur
hafði félagið sjálft og stjórn
þess þá algerlega með höndum.
Vaxandi velmegun í Sovétríkjunum
Framleiðslan á fyrsta ársf jórðungi 1949 varð 23% meiri en á sama tíma
í fyrra. Yfirstandi fimm ára áætlun verður sennilega framkv. á 4 árum.
Samtímis því, að stöðugt ber-
ast fregnir um kreppumerki
hvaðanæfa að úr auðvaldsheim-
inum, fréttist um ný framleiðslu
met, aukinn kaupmátt launa og
vaxandi velmegun í hinum
sósíalistiska hluta heimsins. At-
vinnuleysi og offramleiðsla, —
þessir leiðu fylgifiskar auðvalds
skipulagsins, tilheyra nú fortíð-
inni 'i ríkjum sósíalismans.
Á tímabilinu frá 1928 til 1940
þegar kreppan geysaði um allan
auðvaldsheiminn, jókst fram-
leiðslan í Sovétríkjunum að
meðaltali -um 17% árlega. Á
stríðsárunum dró nokkuð úr
framleiðslunni, vegna hinna stór
kostlegu eyðilegginga, sem her-
ir nazista frömdu í landinu, en
nú, aðejns fjórum árum eftir
styrjaldarlok, er framleiðslan í
mörgum greinum komin langt
fram úr því sem var fyrir stríð.
Árið 1946 fjölgaði fólki í at-
vinnu í Sovétríkjunum um 3
milljónir, árið 1947 um 1,2 millj-
ónir og 1948 um 900 þúsund.
Fyrsta ársfjórðung 1949
jókst framleiðslan um 23%,
miðað við fyrsta ársfjórðung
1948. Eru taldir hér á eftir
nokkrir vöruflokkar og fram-
leiðsluauikning í hverjum fyrir
sig á þessu tímabili:
Stál 27%, kol 12%, olía 10%,
rafmagnsmótorar 39%, vélar og
tæki til járn- og stáliðnaðar
59%, vörubifreiðar 48%, fólks-
bifreiðir 120%, eimvagnar 20%,
járnbrautarvagnar til vöruflutn
inga 50%, baðmullarefni 22%,
ullarefni 33%, skófatnaðu-r 34%
sokkar 48%, kjöt 17%, smjör
24%. Sala á matvælum jókst um
22% og sala á neyzluvarningi
almennt um 38% á sama tíma-
bili.
Mikill áhugi fyrir framleiðslu-
aukningu ríkir nú í Sovétríkj-
umun, og eru taldar góðar horf-
ur á, að yfirstandandi fimm ára
Skarðsvegurinn
„Dettiifoss“ mun nú vera
væntanlegur hingað á hverri
stundu með jarðýtu þá, sem
vegamálastjórnin sendi með hon
um frá Reykjavík til að moka
Skarðsveginn með.
Að sögn manna, sem farið
hafa um Skarðsveginn síðustu
dagana, er ennþá allmikill snjór
inni í botninum fyrir neðan
Skarðsbrekkuna, en þar fyrir
neðan eru aðeins fremur Mtil
snjóhöft til fyrirstöðu, Fljóta-
megin Skarðs eru einnig snjó-
höft og skaflar allvíða á vegin-
um, ennfremur hefur runnið á
hann aur á nokkrum stöðum.
Talið er að ekki geti verið
meira en svo sem vikuverk að
ryðja og gera svo við hann að
hann verði fær, ef sæmilega
gengur að ýta og nokkrir menn
verða settir í að gera við veginn
og hreinsa af honum aur, sem
sumsstaðar hefur runnið á hann
í vor.
framleiðsluáætlun verði fram-
"kvæmd á f jórum árum, eða jafn
vel skemmri tíma. Mest hefur
framleiðsluaukningin orðið í
Moskvu. Stálframleiðslan þar
komst í apríl í vor 18,7% upp
fyrir það magn, sem áætlað var,
að framleitt yrði að meðaltali á
mánuði 1950, rafmagnsfram-
leiðslan 29,6% og gúmmívöru-
framleiðslan 52,5% upp fyrir
sama mark.
Trésmiðaverkfall
hjá S.R.?
Verkfall trésmiða hjá S.R.
hefst á miðnætti n.k. fimmtu-
dagskvöld, ef ekki hefur þá
náðst samkomulag, milli verk-
smiðjanna og Trésmiðafélags
Siglufjarðar.
Trésmiðafélagið auglýsti fyrir
nokkru nýjan kauptaxta. Þegar
það kom í ljós, við næstu út-
borgun á eftir, að síldarverk-,
smiðjurnar viðurkenndu ekki
taxtann, boðaði Trésmiðafélag-
ið verkfall hjá.þeim frá og með
12. þ.m., og var það auglýst í
útvarpinu í fyrrakvöld. Kom þó
ekki til þess þá, því Sig. Jóns-
son, frkstj. SR, sem nú er
staddur í Reykjavík, bað um,
að því yrði frestað þar til hann
kæmi heim. Samlþykkti félagið
á fundi í fyrrakvöld að fresta
verkfallinu þar til á fimmtu-
dagskvöld, ef þá hafa ekki náðst
samningar.