Mjölnir - 20.12.1950, Blaðsíða 1
36. tölublað.
Miðvikudagur 20. des. 1950.
13. árgangur.
SósíaSistafélag Siglufjarðar
óskar félögum sínum og oðrum velunnurum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs,
með þökk fyrir ánægjulegt sams/arf.
] ó I
Eftir Þorstein Erlingsson
Ég veit þú segir satt. Við höldiun Jól.
Við sjáum, eins og vant er, nú um tíma,
hvað ból og hól og hjól og skjól og sól
er himnesk sending þeim, sem eiga’ að ríma.
Nú kallar þetta hvella bjölluliljóð
að liorfa’ á gamla leikinn, sem við kunnum,
svo smjatta þeir, sem þykir vistin góð
við þvættituggu’ úr voígum blaðurmunnum.
En svo var fagra friðarstjarnan þín;
þann fögnuð vildir þú ég kæmi’ að skoða;
en gætu’ ekki’ álvrif hennar sagt /il sín,
þó sigur hennar væri færri’ að boða?
Ég lieyrði fyrri segja sama flokk
frá sigri þeim, á mörgum kirkjustólum;
en skein hún ekki blítt á Bielostock
með boð um náð og frið á síðstu Jólum.
Og hvar er sigur Krists inn kristinn heim?
Að kirkjum hans er enginn vandi að leita,
en krossinn Iians er orðinn einn af þeim,
sem algerð þý og hálfa manndygð skreyta.
Og heldurðu yfir hugsjón þessa manns
og heimsins frelsi þessir kaupmenn vaki,
sem fluttu milda friðarríkið hans
á fölva stjömu að allra skýja baki?
Þar komst hún nógu liátt úr hugum burt
og hér varð eftir nógu tómur ldiður,
svo aldrei verði’ að æðri jólum spurt
og aldrei komist friðarríkið niður.
Og dýpstu þránum drekkir spekin sú,
sem djúpið mikla þurrum fótrnn gengur
og spennir yfir endaleysið brú
með orðum, þegar hugsun nær ei Iengur;
því rún úr geimnum engin önnur skín
en eintóm núll úr köldum stjörnubaugum.
Nei, ég vil lifa litlu Jólin mín
við ljósið það, sem slán í barnsins augum.
Mér finnst þar inn svo frítt og bjart að sjá,
að friðarboðið gæti þangað ratað,
og enn þar minni heit og þögul þrá
á þúsund ára bróðurríki glatað.
Þar vefst úr geisliun vonarbjarmi skær,
sem veslings kakla jörðin fær eigi’ að ldýna;
ég sé þar eins og siunar færast nær,
ég sé þar friðarkonungs stjörnu skína.
19. DESEMBER 1906.
KIRKJAN
GLEÐILEG JÓL!
FARSÆLT KOMANDI ÁR!
Messur um hátíðirnar
JÓLIN. — Aðfangadagur:
Aftansöngur kl. 6
Jóladagur: Hátíðamessa kl. 2
2. jóladagur: Barnamessa kl.
11 f.h. Skirnarmessa kl. 2 e.h.
NÝARIÐ. Gamlaárskvöld:
Aftansöngur -kl. 6
Nýársdagur:
Hátíðamessa kl. 2
Umboð almannatrygginganna
í Siglufirði.
Sjúkrasamlag Siglufjarðar
GLEÐILEG JÓL!
FARSÆLT KOMANDI ÁR!
Afgr. Eimskipáfél. Islands
Afgr. Skipaútg. rikisins
Þormóður Eyólfsson h.f.
— Æskulýðsfylkingin —
— félag ungra sósíalista —
sendir öllum félögum sínum, nær og f jær, sínar beztu
jóla og nýársóskir,
með þöklí fyrir samstarfið á hinu Bðandi ári.
Siglufjarðarkaupstaðnr
óskar öllum bæjarbúum gleðilegra jóla, og farsældar
á komandi ári.
BÆJARSTJÓRI.
mm
Þið skuluð athuga
að oft hefur það komið fyrir, að kviknað hefur i húsum um
jólin. — Því er óvarlegt að hafa ótryggt innbú yðar.
Tryggið nú í dag, því á morgun getur það verið um sehtan.
Hvergi betri kjör en hjá ALMENNUM TRYGGINGUM h. í.
KRISTMAR ÖUAFSSON
umboðsmaður
♦♦♦♦♦♦♦
Á ekkert að gera út á vetrarvertíðinni?
Happdrœtíi
Pjódviljans
Dregið var í liappdrætti
Þjóðviljans liinn 16. þ. m.. —
Þessi númer komu upp:
No. 85410 Stofusett.
— 63849 Stofuskápur
— 77873 ísskápur
— 1440 Málverk
— 32683 Þvottavél
— 12087 Saumavél
— 61807 Kaffistell, 12
— 13429 Gólfteppi
— 92125 Rafliavél.
— 4708 Ryksuga
— 54264 Kaffistell, 6
— 9295 Matarstell
— 54881 Rit Kiljans.
— 721 Hrærivél
— 61543 Hrærivél
Birt án ábyrgðar.
Frá verkalýðs-
féliigunum
Verkalýðsfélögin Þróttur
og Brynja vilja vekja athygli
meðlima sinna á því, að milli
jóla og nýárs verður haldinn
jóladansleikur eins og að undan
förnu. — Nánar tilkynnt í götu
auglýsingum.
Wttía kíc
sýnir
2. jóladag kl. 9:
ANNA og SIAMSKONUNGUR
Nýársdag kl. 9:
AL JOLSON
Stórfengleg músikmynd í
eðlilegum litum.
GLEÐILEG JÓL!
FARSÆLT KOMANDI ÁR!
Þökk fyrir viðskiptin
á liðna árinu.
RAMMAGERÐIN
Jón Jólianneson Móberg
;*♦* ». _ ... . —i-
GLEÐILEG JÓL!
FARSÆLT KOMANDI ÁR!
Þökk fyrir viðskiptin
á liðna árinu.
Egill Stefánsson
GLEÐILEG JÓL!
FÁRSÆLT KOMANDl ÁR!
Þökk fyrir viðskiptin
á liðna árinu.
Jóhann Jóliannesson,
-rafvirki
Hlé hefur nú verið gert á
störfum Alþingis fram yfir ára
mót. Ekki vannst tími til þess,
áður en þingmenn fóru heim i
jólafríið, að gera neinar ráð-
stafanir til þess að -bátaflotinn
geti hafið vertíð nú upp úr
áramótunum, svo sem venjulegt
er.
Fyrir nokkrum dögum flutti
Einar Olgeirsson frumvarp um
að útgerðarmönnum skyldi
frjálst að selja sjálfir þann
fisk, sem skip þeirra öfluðu
eftir 24. des. og þar til ríkis-
stjórnin hefði tryggt sölu á
aflanum fyrir það verð, sem út
gerðin þarf að fá til þess að
hægt sé að gera út, en flytja
inn í staðinn ýmsar -brýnustu
nauðsynjavörur, svo sem vefn-
ararvörlu, kom, timbur, veiðar
færi o. þ.h.
Með samþykkt þessa frum-
varps hefði útgerðinni verið
veittur möguleiki til að hefja
vertíðina strax um áramót,
eins og venja er, svo framar-
lega sem nokkrir möguleikar
væru á að selja fiskinn. En
ríkisstjórnin mátti ekki heyra
þetta nefnt. Einokuninni skal
haldið áfram, hvað sem það
kostar. Frumvarpið var því
fellt, og veitti Alþýðuflokkur-
inn stjómarflokkumun aðstoð
til þess. .. _.;*** . ,
Útgerðarmannafélag Reykja-
víkur gerði nýlega samþykkt,
þar sem sagt er, að engir mögti
leikar séu á að gera bátaflot-
ann út í vetur, nema fiskiverð-
ið hækki verulega, eða minnst
um 25—30 aura pr. kg., en það
er nú 75 aurar. Samskonar
raddir hafa heyrzt frá útgerðar
mönnum viða um land og frá
landssamtökum þeirra. Er fyrir
sjáanlegt, að bátaflotinn fer
ekkert af stað fyrst um sinn,
og ekki fyrr en fiskverðið hef-
ur verið hækkað um þá upp-
hæð, sem áður greinir, eða
aðrar ráðstafanir verið gerðar
til að tryggja afkomu bátanna.
★ S. 1. sunnudag voru gefin
saman í hjónaband af sr. Ósk-
ari J. Þorlákssyni, frk. Inga
María Magnúsdóttir frá Reykja
vík og Eberg Elefsen, atúdent,
Gránugötu 20 hér í bæ, og frk.
ngibjörg ThoKarsnsen frá Dal-
vík og Sigurður EJefsen, Gránu
götu 20. — Sama dag áttu for-
eldrar brúðgumanna, Sigríður
og Óskar Ehefsen, silfurbrúð-
kaup.
. Ritstjóri og nbyrgðlarmaður:
Benedikt Sigurðsson