Mjölnir


Mjölnir - 03.10.1952, Page 1

Mjölnir - 03.10.1952, Page 1
16. tölublað. Föstudagur 3. okt. 1952. 15. árgangur Alger eining um kjör fulltrúa Þróttar og Brynju á Alþýðusambandsþing Fulitrúarnir voru allir sjálfkjörnir.— Þróttarfundur i fyrrakvöld sam- þykkti með öllum atkvæðum tillögujvar sem fulltrúum félagsins á Al- þýðusambandsþingi í haust er falið að beita sér fyrir breytingum á stjórn sambandsins, með það fyrir augum að útiloka áhif atvinnurek enda og andstöðuflokka verkalýðsins í stjórn Alþýðusambandsins. Á dagskrá Þróttarfundarins í fyrrakvöld var m.a. kjör full- trúa á 23. þing A.S.Í., sem fram á að fara í nóvember í. haust. Aðeins einn listi kom fram, borinn fram af stjórn og trún- aðarmannaráði félagsins, og var hann því sjálfkjörinn. — Aðalfulltrúar voru kjörnir: Gunnar Jóhannsson, Jónas Jónasson, Óskar Garibaldason, Þessi tillaga og samþykkt hennar þarf engra útskýringa við. Hún er gleðilegur vottur um vaxandi stéttarþroska, vax- andi skilnings á nauðsyn sam- heldninnar gegn andstæðingum verkalýðsstéttarinnar, sem um margra ára bil hefur tekizt að halda verkalýðnum klofnum í Allmörg undanfarin ár hafa staðið yfir illvígar deilur innan Alþýðusambands íslands. Þarf ekki að rekja þá sögu, því hún er öllum kunn. Hitt er rétt að hugleiða, hverjum þessar deil- ur hafa orðið að gagni. Fyrir nokkrum árum skrif- aði Hannibal Valdemarsson grein undir fyrirsögninni: „Hækjur íhaldsins“ í blaðið Þjóðvörn. í þessari grein hélt hann því fram, að íhaldið ætti völd sín og viðgang að þakka stuðningi Alþýðuflokksins og Sósíalistaflokksins. Það hefði stuððzt við þessa flokka til skiptis eins og haltur maður við hækju. Fyrst og fremst hefði það þó haft gagn af þeim í alþýðusamtökunum. Gran Hannibals vakti feikna Gunnlaugur Hjálmarsson, — Bjarni M. Þorsteinsson og Frið- rik Márusson. Varafulltrúar: Gísli H. Elíasson, Gísli Sigurðs- son, Kristmar Ólafsson, Páll Ásgrímsson, Jóhann G. Möller og Einar Albertsson. Á fundinum kom fram eftir- farandi tillaga, borin fram af stjórn félagsins: fjandsamlegar fylkingar og jafnvel tekizt að koma skemmd arverkamönnum inn fyrir virk- ismúra verkalýðsstéttarinnar. FULLTKÚAK BRYNJU: í Brynju var fundur haldinn á þriðjudagskvöld. Aðeins ein uppástunga að fulltrúiun á athygli, bæði í herbúðum hinna pólitísku flokka og meðal al- mennings úti um allt land. — Litlu munaði, að Hannibal yrði rekinn úr flokki s'inum fyrir tiltækið. Hinsvegar mun hann hafa átt kost á því að verða í framboði fyrir Sósíalistaflokk- inn við kosningarnar, sem þá fóru í hönd. Og íhaldið tók kipp. Var brestur í hækjunni? Var það ætlun Hannibals að beita 'sér fyrir samfylkingu allra vinstri aflanna í landinu gegn íhaldinu? Menn vita hvernig fór.’ — Hannibal beygði sig fyrir flokksklíku sinni. Hækjan hélt í þetta skiptið — og heldur enn. Von stéttvísra verka- manna um allt land, sem þráðu stéttarlega einingu innan sam* sambandsþing kom fram og voru því fulltrúarnir sjálf- kjörnir. Aðalfulltrúar eru: Ásta Ólafsdóttir, Sigríður Þor- leifsdóttir og Guðrún Sigur- hjartardóttir. Varafulltrúar: Einarsína Guðmundsdóttir, — Sigurjóna Einarsdóttir og Guð- rún Meyvantsdóttir. Á fundum var eftirfarandi tillaga samþykkt einróma: „Fundur í verkakvennafélag- inu Brynju, haldinn 30. sept. 1952, fordæmir harðlega fram- komu forstjóra vélsmiðjunnar Héðins, er hann vék þremur forustumönnum járniðnaðar- manna úr vinnu fyrirvaralaust, og telur, að slíkum atvinnu- árásum beri að hrinda á eftir- minnilegan hátt“. taka sinna og gerðu sér ljóst, að hinar pólitísku erjur innan verkalýðssamtaJkanna voru engum til gagns nema ihaldinu, brást í þetta sinn. En kannske var ekki við því að búast, að maður, sem áratugum saman hafði staðið í eldlínunni í hinni pólitísku styrjöld á vettvangi landsmálanna yrði friðarstillir í hinni pólitísku styrjöld innan verkalýðssamtaikanna. ★ Ekki verður um það deilt, að íhaldsflokkurinn er fyrst og fremst valdatæki atvinnurek- enda og auðmanna á íslandi. Forustumenn íhaldsflokksins, mennimir, sem móta og ráða stefnu hans, hafa harla litla hagsmuni sameiginlega með verkalýðnum. Stéttarhagsmun- ir þeirra eru í öllum megin- atriðum gersamlega andstæðir hagsmunum verkalýðsins. Það er því mjög óeðlilegt, að íhaldið hafi völd í verkalýðs- samtökunum. Samt sem áður er það staðreynd, að íhaldið hefur í mörg ár átt fulltrúa 1 stjórn heildarsamtaka verka- lýðsins. Enginn skyldi ætla, að auðmenn og atvinnurekendur hafi í hyggju með afskiptum sínum af verkalýðsmálum að hækka kaup verkalýðsins, berj- ast fyrir 40 stunda vinnuviku, sömu launum fyrir sömu vinnu, fullri atvinnu handa öllum o.s.frv. Nei, þegar íhaldið er að skipta sér af málefnum Framhald á 4. síðu „Fundur í Verkamannafélaginu Þrótti miðvikudaginn 1. okt. 1952, telur, að hin sívaxandi dýrtlð ásamt æ víðtækara atvinnu- leysi skerði svo rnjög kjör verkafólks og launþega, að ósæm- andi sé fyrir verkalýðssamtökin að þola slíkt lengur án gagnráð- stafana. Því telur íundurinn brýna nauðsyn bera til, að allir verka- menn, hvar í flokki, sem þeir standa, sameinist til baráttu fyrir bættum kjörum og atvinnuöryggi. I því sambandi felur fundur- inn væntanlegum fulltrúum Þróttar á 23. þingi A.S.f. að vinna að íramgangi allra þeirra mála, sem miða í þá átt, og einnig að beita sér fyrir breytingum á stjórn A.S.Í. í þá átt, að útilokuð verði áhrif atvinnurekenda og andstöðuflokka verkalýðsins í stjórn sambandsins.“ I hvaða tilgangi skiptir íhaldið sér af máiefnnm verkalýðsins ? Orðsending frá hlutaveltunefnd Sósíafistafélagsins Eins og á undanförnum árum ætlar Sósíalistafélagið að efna til hlutaveltu til ágóða fyrir húsbyggingasjóð sinn. Hef- ur söfmm mun ó hlutaveltuna staðið yfir að undanförnu, og er enn verið að safna. í ráði er að hlutaveltan verði haldin um aðra helgi. Það eru vinsamleg tilmæli hlutaveltunefndarinnar til allra sósíaiista og fylgjenda þeirra, að ef þeir eiga eftir að gefa muni á hluíaveltuna, að gera það sem fyrst og koma mununum í skrifstofu Sósíalistafélagsins, Suðurgötu 10. Áríðandi er, að allir leggi eitthvað af mörkum. Margt smátt gerir eitt stórt. HLUTAVELTUNEFND Kosningin í Vestur-lsafjarðarsýsiu Úrslit aukakosninganna í Vestur-ísafjarðarsýslu hinn 22. þ.m. urðu þau, að frambjóð- andi Framsóknar, Eiríkur Þor- steinsson, var kosinn með 405 atkvæðum. (Eirikur J. Eiríks- son fékk 336 atkv. 1949). Þorvaldur Garðar, ikratinn, sem íhaldið bauð fram, fékk 243 atkv. (Axel Tuliníus fékk 217 atkv. 1949). Gunnar M. Magnúss, fram- bjóðandi Sósíalistaflokksins fékk 34 atkv. (Þorvaldur Þór- arinsson fékk 28 atkv. 1949). AB-flokkurinn fékk herfilega útreið í þessum kosningum. — Hlaut frambjóðandi hans, Sturla Jónsson, 233 atkvæði. (Ásgeir Ásgeirsson fékk 418 atkv. 1949). Nemur fylgistapið 44,2%. Úrslit forsetakosninganna í sumar hafa þannig orðið AB- liðinu skammvinn gleði. Fyrst missti það sinn snjallasta stjórnmálamann í forsetaem- bættið og þykir fullvíst, að hann muni aldrei framar vilja hafa neitt saman við AB-flokk- inn að sælda fremur en aðra flokka. Um leið tapaði AB bankastjórastöðunni í Útvegs- bankanum, sem var eitt feit- asta embætti flokksins og hafði reynzt drjúgt til áhrifa. Síðan missti flokkurinn eina helztu upprennandi stjörnu sína, Þorvald Garðar, yfir til aðalíhaldsins. Loks tapaði hann svo einu tryggasta kjör- dæmi sínu, V.-ísafjarðarsýslu, til Framsóknar, og nærri helm- ingnum af fylgi sínu þar til allra hinna flokkanna! Frá Marfundiniim í fyrrakvöld Á Þróttarfundinum 1 fyrrakvöld voru eftirfarandi tillögur samþykktar einróma: Mótmæli gegn ofsóknunum í Héðni: r „Fundur í verkamannafélaginu Þrótti, haldinn 1. okt. 1952, mótmælir harðlega hinum fyrirvaralausa brottrekstri járniðn- aðarmannanna þriggja úr vinnu hjá vélsmiðjunni Héðni i Reykja- vík. Hvetur fundurinn ÖH verkalýðsfélög og forystu þeirra til að standa vei á verði gegn hverskonar ofbeldisaðgerðum atvinnu- rekenda gagnvart verkafólki og trúnaðarmönnum þess.“ Áskorun til ríkisstjórnarinnar um að veita Siglufirði aðstoð. „Fundur haldinn í verkamannafélaginu Þrótti 1. okt. 1952 lítur svo á, að hér ríki algert neyðarástand vegna hins mikla atvinnuleysis. Fyrir því skorar fundurinn á ríkisstjórnina að veita þegar aðstoð til þess að hefja vinnu fyrir 60—70 menn, samkv. till. atvinnumálanefndar Siglufjarðar, lið II. Verði ekki orðið við þessari ikröfu Þróttar innan 8 daga, samþykkir fund- urinn að skora á bæjarstjórnina að kalla sendinefndina, er nú dvelur 1 Reykjavík, heim, til þess að gefa bæjarbúum skýrslu um gang þessara mála.“ i Nýtt hraðfrystihús hjá S. R. sem allra fyrst. „Fundur haldinn í verkamannafélaginu Þrótti 1. okt. 1952 samþykkir að skora á stjórn S. R., að hraða svo byggingu hins fyrirhugaða hraðfrystihúss S. R., að það geti tekið til starfa í marz—apríl næsta ár. í því sambandi skorar fundurinn á gjaldeyris- og innflutningsyfirvöld landsins, ríkisstjórn og aðra þá, sem um þetta mál þarf að sækja til, að veita stjórn S. R. alla nauðsynlega aðstoð og fyrirgreiðslu málinu til framdráttar," Atvimiuleysi verði útrýmt. „Fundur í verkamannafélaginu Þrótti, haldinn 1. okt. 1952, lítur svo a, að eitt af aðalmálum næsta Alþýðusambandsþings sé að krefjast og beita sér fyrir lækkun hinnar geigvænlegu dýrtíðar, svo og að krefjast útrýmingar á hinu alvarlega at- vinnuleysi, sem nú herjar mörg bæjar- og sveitarfélög. Fund- urinn telur, að hver sú ríkisstjóm, sem verður ekki við þessum kröfum, hljóti að vera í beinni andstöðu við verkalýðssamtökin,“

x

Mjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.