Mjölnir


Mjölnir - 03.10.1952, Qupperneq 2

Mjölnir - 03.10.1952, Qupperneq 2
X MJÖLNIE tJTGEFANDI: SÓSlALISTAFÉLAG SIGLUFJARÐAR Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Sigurðsson Áskriftargjald kr. 20,00 árg. — Afgreiðsla Suðurgötu 10. Símar 194 og 210. Siglufjarðarprentsmiðja h.f. LönÉnarbannið og viðskiptin við Bretland' Brezkir togaraeigendur í Hull, Grimsby og Aberdeen, helztu löndunarstöðvum ís- lenzka togaraflotans í Bret- landi, hafa nú ákveðið að neita íslenzkum togurum um afnot af löndunartækjum, og enn- fremur hafa Bretar ákveðið, að íslenzkum togurum skuli neitað um ís, oliu og kol í þessum höfnum. Er tekið fram, að tilefni iþessara ráð- stafana sé stækkim fiskveiða- landhelginnar við ísland. $ Sumir kunna ef til vill að hafa búizt við öðru af Bretum. Hundruð íslenzkra sjómanna létu líf sitt á styrjaldarárunum við að veiða fisk handa brezku þjóðinni og flytja hann til brezkra hafna, en þúsundir lifðu í stöðugri lífshættu við þessi störf. Fiskmagn það, sem íslendingar færðu Bretum á stríðsárunum, nam mörg hundr uð þúsund smálestum. $ En iþað var ekki við öðru að búast af Bretum. Þrátt fyrir allt hræsniskrum brezkra auð- valdsins um frelsi, lýðræði, jafnrétti þjóða án tillits til stærðar og mannfjölda og aðrar fagrar hugsjónir, hefur það alltaf gengið lengra en allir aðrir í hverskonar kúgun, arðráni og yfirgangi gagnvart smáþjóðum, og ekki svifizt neinna meðala í þeim tilgangi. Eru dæmi um það nærtæk. — Þegar alþýðan á Malakkaskaga krefst umráða yfir landi sínu og auðæfum þess úr blóð- stoikknum krumlum brezku tin- og gúmmí-auðhringana, svarar brezka stjórnin með því að siga leigumorðingjum á for- ustumenn hennar. Þegar Ir- ansbúar heimta umráð olíu- linda sinna úr ránsklóm Breta, svara þeir með viðskiptabanni í þeim tilgangi að knésetja Ir- an efnahagslega. Það er því ekki að undra, þótt Bretar sýni hnefann þegar smáríkið ísland gerir ráðstafanir, sem skerða hag brezka útgerðarauð valdsins. $ Það er fróðlegt, iþótt það skipti ekki máli út af fyrir sig að athuga viðbrögð blað- anna og ríkisstjórnarinnar gagnvart löndunarbanninu. — Mogginn felur fregnina um það á lítt áberandi stað. Tíminn birtir hana athugasemdalaust, eins og um lítt áreiðanlega kvennafarssögu væri að ræða. AB-blaðið flytur hógværa kvörtun, rétt eins og ef okkur hefði verið sýnd smávægileg ónærgætni. Víðir, blað útgerðar manna, leggur áherzlu á, að við megum engar gagnráðstafanir gera. Rikisstjórnin þegir, en sendir tvo útgerðarforstjóra til Bretlands til að reyna að semja um málið. — Manni dett ur í hug, hvílíkt öskur þessi sömu blöð (og ríkisstjórnin) hefðu rekið upp, ef það hefðu verið t.d. Rússar, en ekki Bretar, sem þarna hefðu átt hlut að máli. $ Sem betur fer er löndunar- bannið ekki svo alvarlegt áfall fyrir íslendinga, að nein þörf sé á að beygja sig. Það er hægt að selja fisk til fleiri landa en Bretlands, og þær vörur, sem við fáum frá Bret- landi, er flestar eða allar hægt að fá frá öðrum löndum. Áhrifamesta svarið við lönd- unarbanninu væri eflaust að hætta að kaupa brezkar vörur. Samkvæmt opinberum skýrsl- um keyptum við á fyrra árs- helmingi þessa árs vörur frá Bretlandi fyrir 132 millj. kr., En Bretar á sama tíma af ökkur fyrir aðeins 56 millj. Hefur því viðskiptajöfnuðurinn verið Bretum hagstæður um 76 millj. króna. Og þótt við- skiptin við ísland séu e.t.v. ekki mikil á mælikvarða berzka heimsveldisins, er ósennilegt að Bretar, sem eiga við stór- felld markaðsvandræði að etja mn allan heim, kæri sig um að þau leggist niður, sizt á meðan þau eru þeim hagstæð. Hitt hljóta Bretar að gera sér ljóst, að kúgunarráðstafanir eins og löndunarbannið megna ekki að fá Islendinga til að hvika frá rétti sínum til fiski- miða sinna. Okkur Islendingum er bezt að gera ökkur það ljóst strax, að Bretar mimu ekki láta neinna ráða ófreistað til að kúga ofekur í landhelgismálinu. Ef við sýnum hik og hálf- velgju nú strax í byrjun, munu þeir verða hálfu ósvífnari en ella. Sterkasta svaraði við kúg- unartilraunmn þeirra er stöðv- un á vörukaupum frá Bret- landi. ____ Íbúð til solu í miðbænum. Lítil útborgun. Hagstæðir greiðsluskilmálar. VIGFÉS FRIDJÓNSSON, Skrifstofa Túngötu 3. ★ Um geymsluhólfin hjá Isa- fold. Páll Ásgr. skrifar. „Mig hefur lengi langað til að skrifa nokkrar línur um matar- geymsluhólfin hjá Þráni Sig- urðssyni. Eg var búinn að heyra það, að við fengjum ekki að hafa þessa geymslu áfram os það fannst mér alveg óþol- ★ Bókasafn Siglufjarðar verð- ur opnað til útlána á laugar- daginn 4. okt. Rekstur þess ’i vetur verður með sama sniði og í fyrra. ★ Barnaskólinn verður settur laugardaginn 4. okt. kl. 2 e.h. Fjöldi barna í skólanum verð- ur svipaður og í fyrra. Kenn- aralið skólans er óbreytt frá því í fyrra. ★ Gagnfræðaskólinn verður settur laugardaginn 4. ofet. kl. 5 e.h. Um 120 nemendur verða í skólanum i vetur, og er það fleira en nokkru sinni áður. Einn af fastakennurum skól- ans, Árni Ölafsson, verður við framhaldsnám í Englandi í vet- ur. Hefur í hans stað verið ráðinn Flosi Sigurbjörnsson, er lokið hefur kennaraprófi í ís- lenzkum fræðum frá Háskóla Islands. ★ Tónlistarskólinn verður sett ur í dag (föstudag) kl. 5 e.h. Kennari verður Haukur Guð- laugsson. ★ Frá Karlakórnum Vísi. — Karlakórinn Visir er nú að hefja vetrarstarfið og eru fé- lagar beðnir að mæta í Norska sjómannaheimilinu n.k. sunnu- dag kl. 5,30 e.h. Nokkra söng- menn vantar og eru þeir sem áhuga hafa á að gerast Vísis- félagar, beðnir að gefa sig fram við söngstjórann, Hauk Guðlaugsson. ★ Vélritunarnámskeið. Eins og auglýst er á öðrum stað í blað- inu, ætlar Björn Dúason að efna til námskeiðs í vélritun, sem hefst um miðjan þennan mánuð. Til viðbótar við aug- lýsingima hefur Björn gefið blaðinu eftirfarandi upplýsíng- ar um þetta væntanlega nám- skeið: „Kennsluaðferð sú, er ég mun nota, verður hin svo- nefnda blindskrift „Tuch Type- writing,“ en það er sú aðferð, sem heita má að alsstaðar sé kennd nú orðið, og hefur raun- ar verið notuð af öllum beztu vélriturum heimsins s.l. 20—30 ár. Það er auðvelt að slá alla lyklana á ritvélinni, án þess að þurfa fyrst að l'ita á þá, en það er undirstaða þess, sem kallað er blindskrift. Árangur nemenda kemur að sjálfsögðu undir ástundun hvers og eins, en nemendur ættu að geta lokið um 100 slög- um á minútu að mánuði liðn- um. Æfingin er ákaflega mikið atriði, og það er hún sem ger- ir meistarann. Kennslugjaldinu hef ég reynt að stilla í hóf, eða kr. 200,00 fyrir námskeið- ið. — Eg hef hug á því, ef þátttaka verður góð og áhugi nemenda gefur mér tilefni til, að efna til fleiri námskeiða í vetur og þar á meðal fyrir þá, sem áður hafa lært vélritun eftir þessu kerfi og náð nokkr- um hraða, en vilja teljast full- komnir vélritarar. Þar á meðal uppstilling verzlunarbréfa o.fl., er færir vélritarar þurfa að inna af hendi I starfi.1 andi að tapa hólfinu mínu, því ég taldi víst að það væri að einhverju leyti okkur að kenna, sem hólfin höfum. Eg fór þv'i og talaði við Þráinn Sigurðs- son, eiganda hraðfrystihússins, en hann vildi ekkert segja mér um þetta. En ég hélt áfram að leita mér upplýsinga um þetta. Eg fékk að vita, að all- mikil vanskil væru á leigugjaldi fyrir hólfin og hjá sumum meira en árs vanskil. Mér finnst nú engin þörf vera á því að láta vanskila- menn hafa hólf, því nógir bíða eftir að geta fengið hólf, ef eitthvað losnar, og sá sem ekiki vill borga skilvíslega leiguna, er ekki í mikilli þörf fyrir að hafa hólfið. Og það ætti Þrá- inn að hafa í hendi sinni, að fá leigu fyrir öll hólfin. En svo er það nú annað, sem vert er að minnast á og snýr að mestu að okfeur, sem hólfin höfum og göngum um frystiklefann. Eg á þar við um- gengnina í klefanum. Hún er svo langt fyrir neðan það sem mönnum sæmir, að furðulegt má kalla. Oft er varla hægt að stíga á bert gólfið fynr bréfarusli og pappakassaræfl- urn o.fl., og þetta finnst mér því undarlegra, sem margar konur- ganga þarna um, en lík- lega eiga karlmennirnir aðal- söfeina á þessum óþrifnaði. Það er fyrirhafnarlaust fyrir hvern mann, að hirða sjálfur sitt bréfarusl eða sinn pappakassa. Að skilja þetta eftir á gang- vegi er ekkert annað en ó- mennska og sóðaháttur, og að brjóta tröppurnar, sem ætlaðar eru fyrir þá, sem efstu hólfin hafa, er einskær skemmdar- verknaður, þær voru það sterik- ar í upphafi. Sem sagt: mér finnst skömm að þvi fyrir okk- ur, sem þessi hólf höfum, að nenna ekki að ganga þrifalega um klefann og þess vegna vil ég mælast til þess við alla, er þarna hafa geymslu, að láta verða annan svip á umgengn- inni framvegis, svo að hvorki sóðaskapur né vanskil verði til þess að hætt verði að leigja okkur hólfin áfram. Eg vona að hlutaðeigendur taki þessi orð mín vinsamlega. Páll Ásgrímsson.“ ★ Hjónaband. Hinn 6. sept. s.l. voru gefin saman af sr. Krist- jáni Róbertssyni Guðlaugur Helgi Karlsson loftskeytamað- ur, Hvanneyrarbraut 40, og frk. Magðalena Sigr. Hallsdótt- ir (Garibaldasonar). Fór hjóna vígslan fram í kirkjunni. ★ Jarðarför. Hinn 6. sept. fór fram útför Sigurlaugar Jónas- dóttur, Lindargötu 26. ★ Dánardægur. Hinn 10. sept. lézt á elliheimilinu í Skjaldar- vik Stefanía Björnsdóttir, til heimilis að Hlíðarvegi 34. Var hún sjötug er hún lézt. Útför hennar fór fram 19. sept. Hinn 24. sept. lézt frú Sigur- laug Sfeúladóttir, Hlíðarvegi 34. Hafði hún átt við langvar- andi vanheilsu að str'iða. Hún var 47 ára er hún lézt. Útför hennar fer fram 1 dag. K O L lækkað verð. Kr. 60010 pr. smáli Rauðka Nýkomið! Fallegt áklæði, 2 litir, nagla- þjalir 4 teg., (ódýrar), bað- sápa: „Apple Blossom. Ódýr sirseíni, kr. 11,00 pr. meter. Reynið viðskiptin. VERZL. BRÆÐRAÁ Sími 76. Myndavél tapaðist fyrripartinn í september, rétt lijá Höfðaliólum. — Finnandi vinsamlega beðinn að skila henni til Ólafs Þorsteinsson- ar íæknis, gegn fundarlaun- um. TILKYNHIHG UM LÖCTOK Samkvæmt beiðni innheimtumanns opinberra gjalda í Siglu- f jarðarkaupstað og að undangengnum úrskurði, tilkynnist liér með, að lögtök til lúkningar nökkrum opinberiun gjöldum fyrir árið 1952, auk dráttarvaxta, kostnaðar við lögtaksgerðina og eftirfarandi uppboð, ef til kemur, mega án frekari fyrirvara fram fara að 8 dögum liðnum frá birtingu þessara tilkynningar. Gjöldin eru þessi: Tekju- og eignaskattur, fasteignaskattur, tekjuskattsvið- auki, stríðsgróðaskattur, persónulðgjald til almanna trygginga, atvinnurekendaiðgjald, námsbókargjald, lesta- og vitagjald, mjólkureftirlitsgjald, vélaeftirlitsgjald og rafmagnsgjald raf- stöðva. Lögtökin fara fram á kostnað gjaldenda, en á ábyrgð ríkissjóðs. Bæjarfógetinn í Siglufjarðarkaupstað, 16. sept. 1952. EINAR INGIMUNDARSON

x

Mjölnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.