Mjölnir


Mjölnir - 23.11.1962, Blaðsíða 3

Mjölnir - 23.11.1962, Blaðsíða 3
Frá sveit til sjávnr Aflabrögð. TOGARINN HAFLIÐI seldi afla sinn, 75—80 tonn fyrir 4800 pund á þriðjudaginn í Grimsby. TRILLUFISKIRÍ hefur að undan- förnu verið frekar rýrt. Þó fékk trilla Sveins Þorsteinssonar rúm- lega 5000 pund á laugardaginn var. AFLI BÁTANNA hefur verið sæmilegur að undanförnu og heldur verið að glæðast. Stærri bátarnir hafa i síðustu viku fengið ca. 5—7 tonn í róðri. * Skíðafélagið hefur hafið vetrarstarfið og hélt aðalfund sinn þriðjudaginn 13. þ. m. Þar var kjörin ný stjórn fyrir félagið og er Guðmundur Árnason formaður, en aðrir i stjórn þeir Hjálmar Stefánsson, Jóhann Vil- bergsson, Skarphéðinn Guðmunds- son og Baldur Ólafsson. Mikill hugur er innan félagsins að gera vetrarstarfið sem mest og bezt. * Rjúpnaveiðar Lítið mun enn um rjúpu og hafa jafnvel hinir skotfimustu veiði- menn orðið að hverfa heim með lítinn feng fram að þessu. Verð á rjúpu fyrir sunnan mun vera óheyrilegt. * Götuljósin í Aðalgötunni hafa tekið upp þann leiða sið að loga ekki þegar kólnar Tryggt verði fé til Stráka- vegar Eftirjarandi tillaga var sam- þykkt með öllum atkvœðum á síð- asta bœjarstjórnarfundi: „Bœjarstjórn Siglufjarðar sam- þykkir þau eindregnu tilmœli til Alþingis og ríkisstjórnar, að í fyrirhugaðri heildaráœtlun um vegaframkvœmdir í landinu verði lagning' Strákavegar tryggð á nœstu tveimur árum, og verkinu hraðað svo, að vegurinn verði opnaður til umferðar í árslok 1964.“ N Ý VERZLUN Verzlunin Túngata 1 er nú í þann veginn aö færa út kvíarnar, og mun á morgun eða eftir helg- ina opna herradeild í þeim enda hússins, sem áður var Diddabar. Innréttingu hefur verið ger- breytt og hefur Bjarki Árnason, trésmíðameistari, annazt þær. Þá hefur verið gerð ný innrétting í „dömudeildinni“ og framkvæmdu hana þeir Hjörtur Ármannsson ogGuðmundur Þorláksson. Eru hvort tveggja innrétting- arnar hinar smekklegustu. Verzlunarstjóri í hinni nýju herradeild verður Sveinbjörn Tómasson, en kona hans, frú Anna Hertervig, hefur veitt dömu- deildinni forstöðu. í veðri. Er þetta mjög bagalegt, því umferð er þarna einna mest í Siglufirði. * Nýr bótur hefur hafið róðra héðan og mun stunda veiðar héðan í vetur. Er Það ORRI fró Akureyri, um 27 tonn að stærð. Hann leggur upp hjó frystihúsi S.R. Skipstjóri er Júlíus Þorkelsson. * Skipakomur hafa verið með mesta móti undan- farið og hefur verið skipað all- miklu út af síld. * Sigluf jarðarskarð tepptist í annað skipti miðviku- daginn 14. nóv. Þegar þetta er ritað (þriðjudag) berast þær fréttir að moka eigi Skarðið í nótt og er ekki talið mikið verk, svo líklega verður það opið, þegar blaðið kemur út. * Jólapósturinn. Þeir sem þurfa að senda jólapóst til útlanda, ættu að gera það tím- anlega, og athuga í því sambandi auglýsingu um skipaferðir, sem liggur frammi ó póststofunni. * Síðbúin ofmæliskvcðja. Við fréttum heldur seint, að í sumar óttu tveir góðborgarar í Siglufirði merkisafmæli, þeir Sóp- hus Árnason, sem varð sjötugur hinn 8. júlí s.l. og Guðmundur Kristjónsson, sem varð sextugur tiu dögum seinna, eða hinn 18. júlí. — Viljum við verða fyrstir blaða til að óska þeim bóðum til hamingju, þótt seint sé. Leiörétting í viðtalinu við Friðriku Bjöms- dóttur, sem birt var í síðasta blaði, hafði vísan eftir hana brenglast í meðförum mínum og hið ég vel- virðingar á því. Rétt er vísan svona: Mikið er sólin blessuð blíð burtu hrekur kvíða. Rölta um í Reynihlíð Rikka, Sigga og Fríða. Ennfremur vil ég taka fram, að í greininni láðist mér að geta þess, að frú Hólmfríður Guð- mundsdóttir var fararstjóri hóps- ins f. h. Orlofsnefndar, og var hún ellefta konan í hópnum. G. A. SKlÐI SKÍÐÁSKÓR SKÍÐASTAFIR SKÍÐABUXUR fyrir dömur og herra. SKÍÐASLEÐAR SKAUTAR SKAUTASKÓR ★ Mikið úrval af ódýrum leikföngum. ★ Allt í jólabaksturinn. Komið og kaupið þar sem úrvalið er mest. Verzlunin Ásgeir Jónas Ásgeirsson Sími 80. NOTIÐ SÍMANN SPARIÐ TÍMANN Sendum heim. Sími 100. LITLABÚÐIN Höfum mikið úrval af borðbúnaði úr stóli og tekki. HNÍFAPÖR fyrir 4 og 6 KJÖTSETT ÁLEGGSGAFFLA og HNÍFA COCKTAILSETT og margt fleira. Verzlunin Ásgeir Jónas Ásgeirsson Sími 80. EGI LSREYKH ÚS Pantið sem fyrst jólahangikjötið EG I LSREYKH ÚS ÞAKKARÁVARP. Okkar innilegustu þakkir fyrir þó samúð og velvild, sem okkur Hefur verið sýnd við andlót og jarðarför konunnar minnar og móður okkar Jónu Sigurðardóttur. Guðjón Þórarinsson börn og tengdabörn. SÍMASKRÁIN Þar sem verið er að undirbúa prentun nýrrar símaskrár, eru þeir símanotendur, sem óska að koma breytingu við skrána, beðnir að tilkynna mér það skriflega fyrir 28. nóv- ember. Símastjórinn Siglufirði. Verkútboð Ákveðið hefur verið að bjóða út viðgerð á héraðslæknis- bústaðnum, Suðurgötu 52. Verður verkið boðið út í tvennu lagi: annars vegar þau verk, sem trésmiðir annist, hins vegar málaravinna. Verktakar þurfa að hafa aðstöðu til að ljúka útboðnu verki á skömmum tíma. Verklýsingar er að fá hjá byggingarfulltrúa kaupstaðarins. Tilboð í framangreind verk, skv. verklýsingu skulu sendast undirrituðum fyrir 10. desember n.k. Siglufirði 20/11 1962. Bæjarstjóri. TILKYNNING til útsvarsgjaldenda. Munið, að útsvör þurfa að vera greidd að fullu fyrir ára- mót, til þess að vera frádráttarhæf við álagningu útsvara næsta ár. Þeir, sem enn þá eiga óuppgerð útsvör, eru því beðnir að gera þeim skil strax. Bæjargjaldkeri. Aðvörun Að gefnu tilefni er viðkomendum bent á, að brýrnar á Fjarðará og Skútuá eru mjög lélegar orðnar og þola tak- markaðan þunga. Þar eð viðgerð eða endurbygging brúnna verður ekki viðkomið fyrr en að vori, eru allir viðkomendur alvarlega áminntir um, að umferð um brýrnar getur verið hættuleg. Siglufirði, 20. nóv. 1962. Bæjarstjóri. AUGLÝSIÐ í MJÖLNI Föstudagur 23. nóvember 1962 Mjölnir — (3

x

Mjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.