Mjölnir


Mjölnir - 01.11.1963, Blaðsíða 1

Mjölnir - 01.11.1963, Blaðsíða 1
Mjölnir XXVI. árgangur Föstudagur 1. nóv. 1963 18. tbl. Lögbfinn d hjarabœtor verhafélhs Stjórnarfl. hafa í hyggju að koma í veg fyrir allar kjarabætur tif handa verkafólki og iðnaðarmönnum W i Glæsilegt félag'sheimifti ■ byggiugiB a HvamniiSiÉanga Hálaunamenn hafa fengiö sitt, og þá finnst xíkisstjórninni tími til kominn að banna frekari kauphækkanir Það hefur legið í loftinu und- anfarna daga, að ríkisstj órnin hefði í undirbúningi frumvarp til laga um bann við öllum kaup- hækkunum næstu tvo mánuði eða til áramóta. Þegar blaðið fór í prentun í gær, var búizt við, að frumvarp þetta myndi þá og þegar sjá dagsins ljós. Tilefni frumvarpsins er að sjálfsögðu það, að almennt verkafólk, verzlunarfólk og ýms- ir hópar iðnaðarmanna hafa sett fram kröfur um kjarabætur, og verkföll eru yfirvofandi næstu daga, verði ekki orðið við þess- um kröfum. Prentarar hafa boð- að verkfall frá og með deginum í dag, verzlunarfólk frá og með næsta mánudegi, og almennu verkalýðsfélögin eru þessa dag- ana að afla sér heimilda til verkfallsboðunar. Sama sagan endurtekur sig nú, eins og jafnan áður, að þegar þær stéttir þjóðfélagsins, sem lægst laun hafa, gera kröfur um hækkanir eða kjarabætur í einhverri mynd, þá eru við- brögð atvinnurekenda og stjórn- arvalda á þá lund, að það er lík- ast því að heimurinn sé að far- ast. Allur atvinnurekstur á að vera í stórhættu og þjóðarbúið að sporðreisast, séu kjör verka- fólks bætt. Hins vegar heyrast aldrei slíkar raddir, þótt há- launamenn fái enn hærri laun, en þeir hafa haft, og á það er aldrei minnzt, að takmarkalaus auðsöfnun braskaralýðs eða stórfyrirtækja sé á nokkurn hátt varasöm fyrir þjóðarbúið. Nú ætla þeir að hugsa! Það má með sanni segja, að núverandi ríkistjórn og flokkar þeir, sem að henni standa, hafa ekki verið hliðholl vinnustéttum landsins,. Allt frá því stjórnin kom til valda hefur kaupmáttur launa farið síminnkandi, og vit- andi vits hefur ríkistjórnin unn- ið að því, að svo færi. Þó keyrir nú um þverbak, ef setja á lögbann við kauphækk- unum til þeirra lægstlaunuðu, eftir að allir hálaunamenn hafa fengið 50 til 100 prósent hækk- un á sín laun á þessu ári. Ríkis- stjórnin ber fyrir sig, að hún þurfi að fá tíma til að hugsa málið, en til hvers hefur hún notað tímann frá í vor? Henni var þó fullkunnugt, að allir samningar voru lausir frá 15. október. Hún hafði einmitt feng ið frest þangað til til að hugsa. En kannske hefur ráðherrunum þótt meira við liggja að nota sumarið í lúxusflakk út um lönd að hugsa um kjarabætur en og iðnaðarmenn, sem á að níð- ast á. Það á að banna kauphækk anir, þegar aðrir hafa fengið tvöföld og þreföld verkamanns- laun í sína pyngju og þaðan af meira. En verkafólkið hlýtur að svara fyrir sig, og þakka svona góðgerðir á viðeigandi hátt. SELUR í ÞÝZKALANDI TOGARINN „Hafliði hefur verið á veiSum síðan 17. þ. m. Veður hefur verið óhagstætt og hefur togarinn af þeim sökum ekki getað „verið að" allan tímann. Þá kom fram þilun I frystikerfi lestarinnar, og fór Hafliði inn til Patreksfjarðar fyrra sunnudag til að fá það lagfært. Þeir sem lagt hafa leið sína til Hvammstanga í sumar munu hafa tekið eftir stórbygg- ingu, sem er að rísa í miðju kauptúninu. Þarna er verið að reisa stórglæsilegt félagsheim- ili á tveimur hæðum, c.g rnun gólfflötur hússins vera sarnan- lagt 11—1200 fermetrar. Tvö sveitarfélög standa f\ rir þessari miklu bvggingu: Hvammstangi og Kirkju- hvammshreppur, sem er sveitin vestan megin á Vatnsnesinu út að Tjörn. Sex félagasamtök taka einnig þátt í kostnaðimim og auk þess leggur sýslusjóður Vestur-Húnavatnssýslu fram nokkurt fé, þar eð héraðsbóka- safnið mun verða til húsa í þessari byggingu. Blaðinu er ekki kunnugl um, hver er áætlaður byggingar- kostnaður. enda mun næsta tilgangslítið fyrir húshvggj- enaur nú á tímum að áætla eitt eða neitt, þegar vevðlag fer hækkandi um tugi af bundraði á hverju ári. Vitað er, að i sumar mun verða unnv') f\ rir um tvær milljónir króna og er stefnt að því að steypa húsið alveg. Á neðri hæð hússins cr ráð gert að hafa íundarsali og hði- bergi fyrir einstök féiög. en auk þess aðstöðu fyrir veit- ingar og jafnvel gistingu. A þeirri hæð verður einnig bóka- safn, lesstofa og ýmislegt fleira. Á efri hæðinni verður hin? vegar aðalsamkomusalurinn og er gert ráð fyrir að hann rúmi 265 manns í sæti. Formaður bygginganefndar er Skúli Magnússon, vega- vinnuverkstj óri á Hvamns- tanaa. RA. Fréttir frá Sauðárkroki handa verkafólki? Þeir voru hvort eð var búnir að fá sína hækkun, og hana myndarlega. Bankastjórar og verkafólk Gott dæmi um hugarfar ráð- herranna og hve miklu meiri áhuga þeir hafa fyrir að bæta við þá, sem mikið hafa en hina, sem minnstu hafa úr að moða, er, að nú í vikunni, eftir að þeir höfðu ákveðið að láta setja bann við kauphækkunum, þá héldu þeir fundi í bankaráðum í Reykjavík, en ráðherrar eru formenn þeirra flestra. Á öllum fundunum var sama dagskrár- mál. Kauphækkun handa banka- stjórunum. Og það var sam- þykkt, að þeir skyldu fá sömu laun og forsætisráðherrann, en það munu vera 24.500 krónur á mánuði. Það mátti sem sagt ekki koma fyrir, að hækkunar- bannið næði til bankastjóranna. Þó höfðu þeir lífvænleg laun fyr ir. Nei, það er bara verkafólkið Sauðárkróki 24/10. Þann 15. okt. sl. lestaði hér hollenzkt skip, Francois Buis- mann. Tók það 3000 poka af fiskimjöli frá Fiskiðju Sauár- króks h/f. Skip þetta bað um neyzluvatn, og var hafnarvörður, Fárus Runólfsson, kvaddur til að af- greiða vatnið. Kom hann strax, þó að nóttu til væri, en sagðist ekki geta látið skipið hafa vatn, það væru engar slöngur til. Þetta þótti afgreiðslumanni skipsins ótrúlegt og spurði, hvort það væri mögulegt, að Sauðárkróks- höfn gerði sér og landinu þá háðung að tilkynna erlendu skipi að vatn gæti það ekki feng- ið vegna þess, að ekki væri til slanga til þess að veita vatninu í gegnum yfir borðstokkinn. Fárus kvað já við, hann væri búinn að biðja um slöngur í 4 ALLHERJARATKVJEDAGREIÐSLA Ákveðið hefur verið að fram fari allsherjaratkvæðagreiðsla meðal verkalýðsfélaganna í Siglufirði, „Þróttar“ og „Brynju“ um þá kröfu kjararáðstefnu A.S.Í., að almennur dagvinnutaxti verkafólks verði hækkaður í 40 kr. Atkvæðagreiðslan fer frain í Gránugötu 14 í dag og á morgun, frá kl. 4 til 10 báða dagana. Það er brjn nauðsyn að samstaða verkafólks í launamálum komi skýrt í Ijós. Mœtum því öll við atkvœðagreiðsluna. STJÓRNIR FÉLAGANNA. ár, bæði bæjarstjóra og hafnar- nefnd, en þær væru ókomnar enn. Þegar stýrimaður skipsins heyrði þetta, kvaðst hann geta bjargað málinu, sótti síðan og tengdi sjálfur brunaslöngur skipsins við vatnshana hafnar- innar. Skyldi það ekki vera eins- dæmi, svo háðuleg eymd í stór- skipahöfn, að geta ekki afgreitt neyzluvatn vegna slönguleysis? —0— Drangajökull var hér í gær, losaði fóðurmjöl til fóðurblönd- unarstöðvar Kaupfélags Skag- firðinga og lestaði frosinn fisk. —0— Rýr afli. Enn er afli bátanna hér mjög rýr, næstum ördeyða. Mun enginn bátur héðan hafa aflað fyrir kostnaði, hvorki í sumar né haust, og margir orðið fyrir tilfinnanlegu rekstrartapi. Einnig hefur afkoma frysti- húsanna verið léleg, og eru þeir Marteinn Friðriksson forstjóri Framh. á 4. síðu.

x

Mjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.