Mjölnir - 01.11.1963, Page 3
Tortjmingarhctta
Á fyrstu dögum Alþingis þess, sem sett var
10. þ. m. komu til umtals óform þau, sem rikis-
stjórnin hefur uppi um að leyfa NATO aukna
aðstöðu i Hvalfirði, stækkun birgðastöðvar þar
og gerð lcgufæra fyrir herskip, væntanlego bæði
kafbóta og ofansjóvarskip.
Fjórir þingmenn Alþýðubandalagsins fluttu
þingsólyktunartillögu þó, sem hér fer á eftir:
„Alþingi ólyktar að gefnu tilefni að lýsa yfir
því, að óhcimilt er að gera nokkra samninga
við Atlanzhafsbandalagið um framkvæmdir í
Hvalfirði, nema samþykki Alþingis komi til."
Flutningsmenn eru þeir
Ragnar Arnalds, Gils Guð-
mundsson, Alfreð Gislason og
Einar Olgcirsson.
I greinargerð, sem tillög-
unni fylgdi leggja flutnings-
menn fram rök fyrir því,
hverja hættu slík flota- og
kafbótastöð leiðir yfir landið
ef stríð skellur ó, og vitna
þar til hinna merku skýrslu
dr. Ágústs Valfells, þar sem
m. a. er skýrt fró hugsanlegum óhrifum kjarn-
orkuórósar ó landið og Hvalfjörður sérstaklega
ncfndur sem hættusvæði. Þó rekja þeir ósælnis-
feril Bandaríkjamanna eftir Hvalfirði og þau
hcrnaðarlegu og landfræðilegu sjónrmið, sem
gera hann að eftirsóttum stað fyrir kjarnorku-
kafbótastöð.
I niðurlagi greinargerðarinnar minna þeir ó,
að skv. stjórnarskrónni hefur rikisstjónin enga
heimild til að gera slíkan samning við NATO,
ncma samþykki Alþingis komi til.
í 21. gr. stjórnarskrórinnar segir svo: „For-
seti lýðveldisins gerir samninga við önnur riki.
Þó getur hann enga slíka samninga gert ef þeir
hafa í sér fólgið afsal eða kvaðir ó landi eða
landhelgi, eða ef þeir horfa til breytinga ó
stjórnarhögum rikisins, nema samþykki Alþingis
komi til."
Ragnar Arnalds
1. flm. tili.
TrjMmjðiir
landbúra&arins
Þrir þingmenn Alþýðubandalagsins, þeir
Björn Jónsson, Ragnar Arnalds og Gils Guð-
mundsson hafa flutt í sameinuðu þingi svo-
hljóðandi tillögu til þingsólyktunar:
„Alþingi ólyktor að skora ó ríkisstjórnina
að undirbúa í samróði við Búnaðarfélag Islands
og Stéttarsamband bænda, löggjöf um trygg-
ingarsjóð landbúnaðarins, er ætlað sé það hlut-
verk að bæta bændum tjón, er þeir verða fyrir,
þegar uppskerubrest eða annoð afurðatjón ber
að höndum, svo sem vegna sérstaklega óhag-
stæðs tíðarfars, kalskemmda í túnum eða nótt-
úruhamfara.
Við undirbúning þcssarar löggjafar skal höfð
hliðsjón af kjörum, sem sjóvorútvegurinn nýtur
samkvæmt lögum um aflatryggingasjóð sjóvar-
útvegsins."
í greinargerð, sem till. fylgdi er lögð óherzla
ó, að með aðstoð ríkisins sé rekin eins konar
tryggingastarfsemi, sem jafni afkomumöguleika
þcirra, sem sjóvarútveg stunda, og fleyti þeim
yfir ófyrirséða erfiðleika, sem að höndum ber,
þegar atli bregzt eða rýrnar mjög ó einstökum
veiðisvæðum.
Að búrekstri landsmanna steðja alltaf öðru
hvoru erfiðleikar sem telja verður alveg hlið-
stæða aflabresti útvegsins og eðlilegt er, að
tryggðir séu ó hliðstæðan hótt.
s
i
I
:
:
:
•
:
:
:
•
o
i
o
o
e
o
:
i
o
e
o
©
o
o
o
e
:
Tuttugu og fimm ór í sókn og vörn
i.
Hinn 24. október síðastliðinn
voru 25 ór liðin fró stofnun Sam-
einingarflokks alþýðu — Sósíalista-
flokksins. Tuttugu og fimm ór í
stjórnmólasögu einnar þjóðar er að
visu ekki langur tími, en þó hafa
oft gerzt örlagarikir atburðir ó
skemmri tíma og mó þoð sannar-
lega heimfæra um timabil það sem
hér um ræðir i sögu íslenzku þjóðar-
innar. Og óhrif Sósíalistaflokksins ó
hagþróun og stjórnólaþróun þessara
óra hafa verið býsna mikil og raun-
ar meiri en liggur i augum uppi, því
að þvi er eins varið um Sósialista-
flokkinn og aðra róttæka vinstri
sinnaða flokka, að hann hcfur haft
og hefur ennþó mikil óhrif bæði
bein og óbein ó starfsemi andstöðu-
flokka sinna.
Það mun vera skoðun flestra
róttækra vinstri manna og sósíal-
ista, að stigið hafi verið heilla-
ríkt spor fyrir alþýðu þessa
lands, þegar Sósíalistaflokkurinn
var stofnaður, en aðalefniviður-
inn var sem kunnugt er vinstri
armur Alþýðuflokksins og
Komúnistaflokkurinn, sem þá
var lagður niður sem slíkur. Þá
tóku höndum saman allir þeir,
sem í einlægni trúðu á sósíal-
ismann sem framtíðarskipulag,
en töldu þó mest aðkallandi að
vera málsvari alþýðunnar í bar-
áttu hennar fyrir bættum kjör-
um og aukinni menningu, án
þess að missa þó nokkurn tíma
sjónar á lokatakmarkinu, skipu-
lagi sósíalismans, þó fjarlægt
virtist.
Það sýndi sig líka fljótt, að
afturhaldið skildi livað hér var
á ferðinni. Ekkert var til sparað,
að hnekkja áhrifum Sameining-
arflokks alþýðu. Svo gegndar-
laus var áróðurinn, að svo mátti
segja að reynt væri að gera ís-
lenzka sósíalista ábyrga fyrir til-
tektum erlendra stórvelda, og
gekk jafnvel svo langt að and-
stæðingar beittu fyrir sig er-
lendu herliði til að lama starf-
semi flokksins og banna mál-
gagn hans, en sjálfir höfðu þeir
aldrei kjark til að banna hann
með lögum, og leyndi sér þó
ekki, að það var þeirra heitasta
ósk. Enginn annar íslenzkur
stjórnmálaflokur hefur orðið að
þola slíkar ofsóknir andstæðinga
sinna eins og Sósíalistaflokkur-
inn, og ætti það eitt að nægja
sem sönnun þess, hve hættulegur
hann er afturhaldinu.
II.
Hver er þá hinn sýnilegi ár-
angur af starfi Sósíalistaflokks-
ins? Hér er ekki rúm til að rekja
það til nokkurrar hlítar, enda
verður aðeins stiklað á stóru.
Sósíalistaflokkurinn hafði for-
ustu um að brjóta niður hin iii-
ræmdu gerðardómslög með
skæruhernaðinum 1942. Þá
höfðu borgaraflokkarnir í skjóli
þess, að þeim hafði tekizt að
lama áhrif fiokksins í Finna-
galdursofsóknunum og með því
að fá málgagn hans bannað af
erlendu hervaldi, tekizt að halda
niðri öllu kaupi verkamanna
þrátt fyrir mikla peningaveltu
og stórgróða auðstéttarinnar, og
notað til þess löggjafarvaldið.
Tvisvar sinnum hefur Sósíal-
istaflokknum og samherjum hans
tekizt að snúa við efnahagsþró-
un þjóðarinnar, þegar aftur-
haldsöfiin stefndu til minnkandi
framleiðslu og atvinnuleysis.
Árið 1944 var nýsköpunar-
stjórnin mynduð fyrir atbeina
flokksins, en þá voru jafnvel
uppi raddir um það að frysta
innstæður íslendinga erlendis í
stað þess að nota þær til upp-
byggingar atvinnulífsins í land-
inu eins og varð ofan á fyrir at-
beina flokksins. Aftur tókst
flokknum í samstarfi við sam-
herja sína í Alþýðubandalaginu,
að hefja nýtt tímabil uppbygg-
ingar í atvinnulífi þjóðarinnar
1956 með myndun vinstri stjórn-
arinnar. Þá hafði afturhaldið
ríkt óslitið í 10 ár, enda var svo
komið að atvinnutæki þj óðar-
innar voru orðin úrelt og at-
vinnuleysi hafði aftur haldið
innreið sína. Mögru kýrnar aft-
urhaldsins höfðu gleypt í sig
feitu kýrnar nýsköpunarinnar
og voru nú komnar að horfalli.
Þá var það sem ennþá var snúið
við til nýrrar atvinnuuppbygg-
ingar undir forustu sósíalista,
og þá var einnig stigið eitt heilla-
ríkasta skref til þróunar íslenzk-
um sjávarútvegi með útfærslu
landhelginnar.
III.
En þó er ef til vill ótalið það
sem mestu máli skiptir af verk-
um Sameiningarflokks alþýðu.
Árið 1946 kom hann í veg fyrir
að Bandaríki Norður-Ameríku
fengju hér herstöðvar til 99 ára,
og þótt þróun þjóðfrelsismála
hafi sannarlega ekki verið sem
skyldi síðastliðin 17 ár, þá vita
það allir og Bandaríkin og lepp-
ar þeirra bezt, að viðnám Sósíal-
ista hefur bjargað því sem
bjargað varð. Án hans hefðu tök
Bandaríkj anna verið fullkomin
á þjóðinni eins og þau eru full-
komin á leppum þeirra. Eins og
fyrr er sagt í þessari grein, þá
eru það ekki síður óbein áhrif
flokka eins og Sósíalistaflokks-
ins, sem úrslitum geta valdið.
Meðan alþýðan kann að meta
flokkinn og flokkurinn er stefnu
sinni trúr mun hann liafa heilla-
vænleg áhrif á störf jafnvel sinna
svörnustu andstæðinga, og skipt-
ir þá ekki alltaf miklu máli,
hvort flokkurinn er í valdaað-
stöðu eða ekki. Otti afturhalds-
ins við fylgistap mun bæði
þvinga það til að gera margt,
sem er eðli þess andstætt, og
varna því frá að gera mörg
óþurftarverk, sem það annars
mundi framkvæma.
Það er því undir því komið
hve miklu fylgi flokkurinn á að
fagna, hversu vel alþýðu þessa
lands mun vegna í framtíðinni
og hversu vel tekst um að vernda
menningu og sjálfstæði íslenzku
þjóðarinnar á komandi tímum.
Ilngieiðiiig' uin aíviiiiiiiinsil I Niglufirði
Framhald af 4. síðu.
að virðist verksmiðjurekstur
þessi helzt muni hindra að ráð-
ist verði í frekari framkvæmdir
á þessu sviði hér í Siglufirði.
Virðist þó, að í sambandi við
fullnaðarvinnslu síldarinnar til
neytenda erlendis, sé að finna
eðlilegustu og þjóðhagslega hag-
kvæmustu lausnina á atvinnu-
vandamálum Siglufjarðar.
ÞAÐ SEM FYRST OG FREMST
ÞARF AÐ GERA
Það virðist því liggja í aug-
um uppi að fyrst og fremst beri
að krefjast fullnaðar nýtingar á
þeim atvinnutækjum, sem þegar
eru til á staðnum, áður en born-
ar eru fram kröfur um önnur ný.
Bæjaryfirvöldin verða að láta
sér skiljast að hér þarf að byggja
upp aðstöðu fyrir aukinn báta-
útveg, sem er grundvöllur fyrir-
aukinni hráefnisöflun fyrir
frystihúsin. Bátum af heppilegri
stærð þarf að fjölga, en enn er
ekki hæjrt að tala um neina aukn-
ingu á skipastóli Siglufjarðar,
þó að hingað hafi verið keyptir
tveir bátar í stað togarans Ell-
iða. Útgerð þeirra er að vísu
heppilegri, með tilliti til atvinnu-
aukningar í landi en útgerð tog-
ara, sem aflar fyrir erlendan
markað, en betur má ef duga
skal.
Því hefur verið haldið fram,
sem rökum gegn aukningu báta-
útvegs, að ekki myndi fást mann-
skapur til að stunda sjómennsku
á bátunum, en reynslan sannar
hið gagnstæða. Bátar þeir sem
héðan róa eru mannaðir harð-
duglegum sjó- og landmönnum
og engar líkur á að ekki sé unnt
að manna enn fleiri báta.
Tunnuverksmiðjuna þarf að
reka með fullum afköstum og
auknum framleiðslugæðum.
Og síðast en ekki sízt þarf að
ljúka byggingu niðurlagningar-
verksmiðjunnar og koma fram-
leiðslu- og afurðasölumálum
hennar í eðlilegt horf.
Ábyrgð og rekstur þeirra at-
vinnutækja, sem hér hefur verið
minnzt á, er í höndum örfárra
ráðamanna og ef skilningur og
vilji væri fyrir hendi hjá þeim,
til að ráða bót á atvinnuástand-
inu, mætti mikið gera á tiltölu-
lega skömmum tíma.
Á meðan það er ekki gert, er
í raun og veru ekki tímabært að
setja fram kröfur um ný atvinnu-
tæki, en með eðlilegri þróun
þessara mála ætti að skapast
grundvöllur fyrir aukinn og fjöl-
breyttari atvinnurekstur í fram-
tíðinni og algera útrýmingu at-
vinnuleysis í framtíðinni.
Prentum
BÆKUR
BLÖÐ
TÍMARIT
Hvers konar
SMÁPRENT
LITPRENTUN
Prentsmiðja
Björns Jónssonar h.t.
Sími 1024.
Ilólaskóli fullskipaðnr
Bændaskólinn á Hólum er nú
fullskipaður, og verða um 30
nemendur í honum í vetur.
Skólastjóri er Haukur Jörunds-
son. Þrír nýir kennarar starfa
við skólann í vetur, Steifán Jóns-
son, sem áð.ur var kennari á
Hvannpyri, Stefán Þorláksson
iðnverkfræðingur frá Svalbarði
í Þistilfirði og Kárni Árnason
íþóttakennari frá Akureyri. Af
störfum við skólann létu í haust
kennararnir Vigfús Helgason og
Páll Sigurðsson.
Gert er ráð fyrir, að kennsla í
meðferð véla verði í vetur aukin
mjög frá því, sem verið hefur,
bæði bókleg og verkleg.
Fjárlagfaf runivarpið;
Upphiei fjdrlaga hefur þrefald
ust i »viireisninni«
Síðasta árið, sem vinstri
stjórnin sat við völd, var niður-
stöðutala fjárlaganna 807 millj.
króna. Auk þessa var bætt við á
árinu um 75 millj. kr. vegna
aukinna niðurgreiðslna á vöru-
verði innanlands. Að þessari
upphæð viðbættri varð niður-
staðan um 882 millj. kr.
Þetta var árið 1958. Nú skrif-
um við 1963. Fyrir hálfum márt-
uði lagði Gunnar Thoroddsen
fram fjárlagafrumvarp sitt á Al-
þingi. Nú er niðurstöðutalan um
2540 milljónir, og enginn efi er
á, að hún á eftir að hækka í
meðförum þingsins, en slíkt hef-
ur alltaf tíðkast. Ef hún hækkar
um 107 milljónir, sem má telja
væga hækkun hlutfallslega, yerð-
ur niðurstaðan þrisvar sinnum
hærri en árið 1958!
Þetta er nú „viðreisn“, sem
segir sex, á 5—6 ára tímabili!
Gítarar
teknir upp í dag.
Verð: kr. 400.00
og kr. 465.00.
Gestur Fanndal
Sttlka
óskast til aðstoðar á lítið heim-
ili í Kópavogi hálfan eða allan
daginn.
Upplýsingar í síma 437,
Siglufirði.
A nú oð tolu
Gylfi Þ. Gíslason ráðherra
talaði fyrir hönd Alþýðuflokks-
ins í útvarpsumræðunum um
f j árlagafrumvarpið. Verulegur
hluti af ræðu hans fjallaði um
það, hvílík fásinna það væri að
tengja kaup bóndans við íekjur
verkamanna, iðnaðarmanna og
sjómanná. Var á honum að
skilja, að sökum góðra afla-
bragða hjá sjómannastéttinni
bæru bændur nú meira úr být-
um en sanngjarnt væri.
Auðséð er á síðasta Siglfirð-
ingi, að varabæjarstjórinn hefur
mein mikið á heilanum: fólks-
fækkunina í bænum. Hann held-
ur því fram að „kommúnistar“
fagni yfir hverjum einum sem
flytur og hvetji til burtflutn-
ings og séu ávallt með stóran
„óskalista“ yfir þá sem fluttir
eru eða að flytja burtu.
Það einkennilega er að þeir,
sem mest tala um flóttann úr
bænum eru einmitt íhaldskrat-
arnir, sem bænum stjórna, og
hafa ekki aðrir orðið frægari af
skrifum sínum um það mál í
blöð landsins. Og þó að þetta
heilamein þeirra á bæjarskrif-
stofunum æri þá til sþretthlaupa
um allan bæinn og þeir „eygi á
hlaupum“ eitt og annað, sem ein-
hvern lífsvott ber (ryksugu eða
grj ó Lm u 1 n.i n gsvél). þá stöðvar
það ekki burtflutningana, ekki
heldur grobbgreinar þeirra hæj-
arstjóranna, Sigurjóns og Stef-
áns, um allar framkvæmdirnar,
unnar og óunnar.
Eða hvers vegna flytur fólk
héðan burt? Er það vegna of-
mikillar velsældar, — er of mik-
ið fyrir það gert, — fær það
ekki að borga nóg í útsvar og
annað slíkt — sér það fram á
Alþýðublaðið hefur imprað á
svipuðum málflutningi undan-
farið. Mun skýringin á þessu
vera sú, að ríkisstjórnin hefur
nú til athugunar lagasetningu
um lækkun á kaupi bænda. Mun
þeim, ásamt launastéttunum,
vera ætlað að gefa blóð í æðar
stórgróðalýðsins í Reykjavík,
sem gerir viðreisnarflokkana út
og segir stj órninni fyrir verkum,
eftir því sem hagsmunum hans
hentar hverju sinni.
of mikla fjölgun bæjarhúa og
finnst því bæjarmálunum alilof
vel stjórnað? Eða fer það ein-
göngu vegna þess að „kornmún-
istar“ skamma íhaldskrata
stjórnina á bæjarmálunum?
Eftir þessu ættu þeir að
skyggnast skriffinnar Siglfirð-
ings á hlaupum sínum, og er
vonandi að hlaupastingur kvelji
þá ekki um of.
ORÐABÓKlN
Nýja, íslenzka orðabókin er
komin út. Félagsmenn Bóka-
útgáfu Menningarsjóðs fá bók-
ina á félagsverði, og bið ég hér
með þá, sem ætla sér að kaupa
bókina að láta mig strax vita.
EINAR M. ALBERTSSON
Til sölu
Til sölu er trilla í góðu standi
2,5 tonn að stærð. Vél: Uni-
versal.
Upplýsingar gefur.
NJÁLL SIGURÐSSON
Norðurg. 12b Sigluf.
AUGLÝSEN DU R
á
SAUÐÁRKRÓKI
09
SIGLUFIRÐI
Mjölnir kemur á meir en
annað hvert heimili i
kjördæminu.
Bezta auglýsingin er í Mjölni.
TILKYNNING
Nr. 25/1963.
Verðlagsnefnd hefur ákveðið hámarksverð á eftirtöldum unn-
um kjötvörum svo sem hér segir:
Heildsöluv. Smásöluv.
Vínarpylsur og kindabjúgu, pr. kg. Kr. 40.00 Kr. 50.00
Kjötfars, pr. kg...................... — 24.50 — 31.00
Kindakæfa, pr. kg..................... — 62.00 — 82.00
Tilgreint smásöluverð á vínarpylsum gildir jafnt, hvort sem
þær eru pakkaðar af framleiðanda eða ekki. Heildsöluverðið
er hins vegar miðað við ópakkaðar pylsur.
Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Reykjavík, 19. október 1963.
Verðlagsstjórinn.
Mcú fshhHnina il heilnnum
Samkvæmt lögum og reglugerðum um atvinnuleysistryggingar
og vinnumiðlun fer fram almenn atvinnuleysisskráning í
Siglufirði dagana 4., 5, og 6. nóvember n.k.
Viðkomendur láti skrá sig á bæjarskrifstofunum á venjuleg-
um skrifstofutíma frá kl. 9—12 árdegis og 1—5 síðdegis téða
daga.
Siglufirði 28/10 1963.
Bæjarstjóri.
LÖGTÖK
Eftir kröfu bæjargjaldkerans í Siglufirði, og að undan-
gengnum úrskurði, uppkveðnum í fógetarétti Siglufjarðar í
dag, verða lögtök látin fram fara, án frekari fyrirvara, á
kostnað gjaldenda en ábyrgð bæjarsjóðs Siglufjarðar, að
liðnum 8 dögum frá birtingu auglýsingar þessarar, fyrir eftir-
töldum gjöldum, ógreiddum en gjaldföllnum 1963:
1. Útsvörum
2. Fasteignasköttum
3. Vatnssköttum
4. Lóðagjöldum
5. Holræsagjöldum
6. Aðstöðugjöldum
Bæjarfógetinn í Siglufirði, 16. okt. 1963.
Pétur Gautur Kristjónsson
— settur —
_______________________________________
AUGLÝSING
Frá og með 1. nóv. n.k. verður bílastöð Siglufjarðar opin frá
kl. 9 f. h. til kl. 18 e. h.
Þeir sem þurfa á bílum að halda kl. 7 að morgni eftir þann
tíma eru vinsamlega beðnir að gera viðvart deginum áður í
síma 171 eða 271.
Stöðvarstjóri.
TILKYNNING
Nr. 26/1963.
Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á
gasolíu og gildir verðið hvar sem er á landinu:
Gasolía, hver lítri ....... Kr. 1,55
Heimilt er að reikna 5 aura á líter af gasolíu fyrir útkeyrslu.
Heimilt er einnig að reikna 28 aura á líter af gasolíu í
afgreiðslugjald frá smásöludælu á bifreiðar.
Sé gasolía afhent í tunnum, má verðið vera 2eyri hærra
hver olíulítri.
Ofangreint hámarksverð gildir frá og með 21. október 1963.
Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Reykjavík, 19. október 1963.
Verðlagsstjórinn.