Mjölnir


Mjölnir - 03.04.1964, Síða 4

Mjölnir - 03.04.1964, Síða 4
Plastiðnaður ó Blönduósi Tíðindamaður Mjölnis skoð- aði síðastliðið sumar nýtt iðn- fyrirtæki á Blönduósi, sem ber nafnið Trefjaplast h.f. Það er fagnaðarefni, að nokkur iðnað- ur hefur á undanförnum árum fest rætur á Blönduósi og er þar ágætt atvinnuástand, en eins og kunnugt er, verður ekki sagt hið sama um aðra staði í kjördæm- inu. Einn af þremur starfsmönn- um fyrirtækisins, Ragnar Jóns- son, sýndi okkur starfsemina og rakti stutta sögu fyrirtækisins. Hann sagði okkur, að vélarnar hefðu kostað um 600 til 700 þúsund og hefðu þeir keypt gamalt hús á Blönduósi undir reksturinn. Þeir hafa unnið ýmsa hluti úr tref j aplastinu, sem er flutt inn, og munu smábát- arnir vera kunnastir af fram- leiðsluvörum fyrirtækisins. Bátarnir eru frá 8% til 15 fet á lengd og kostuðu á síðast- liðnu ári 7200 til 30.500 krónur, en þeir dýrustu eru timbur- klæddir og mjög vandaðir. Tólf feta báturinn á að geta gengið 23 mílur með 18 ha vél og þrem mönnum, en auðvitað er það aðeins hægt í mjög góðu veðri, sagði Raganar. Allir bátarnir eru gerðir með loftþéttum liólf- um og geta því ekki sokkið. Þeir íélagar húðuðu að inn- an með plasti lestina í fyrsta stálfiskiskipinu, sem smíðað var hér á landi, Arnarnesi, og tókst það ágætlega. Einnig hafa þeir sett plasthúð í geymslurúm frystibíls. Aðalkosturinn við plasthúðun er sá, að miklu auðveldara er að hreinsa og þrífa plastið en önnur efni, sem notuð eru. Þessi iðnaður á tvímælalaust mikla framtíð fyrir sér, og benti Ragnar Jónsson sérstaklega á byggingariðnaðinn, bílayfir- byggingar og fjölda margar aðr- ar iðngreinar. Ýmsar tegundir af plasti eru að koma í staðinn fyrir málma, en plastið er bæði létt og sterkt og tærist ekki. Þar við bætist, að mjög auðvelt er að gera við skemmdir, og hafa þeir á Blönduósi tekið að sér viðgerðir á bátum og plastyfir- byggingum bíla. Það var ekki annað að heyra á Ragnari Jónssyni en menn væru bjartsýnir á framtíðina. Mjölnir óskar þessu kornunga fyrirtæki til hamingju með byrj- unina og væntir þess, að það eigi langa lífdaga fyrir hönd- um. R. A. Hér eru þeir Júlíus Karlsson og Ásmundur Leifsson oð ganga fró plast- keri, sem nýbúið er að steypa. Framkvæmdarstjóri Trefjaplasts h.f. er Zophanias Zophaniasson, yngri. Skíðamót- íslands 1964. Framh. af 3. síðu. ýmislegt sögulegt. Keppnin fór fram í afar slæmu veðri. Vegna mistaka og misskilning tóku að- eins 7 karlar af 35 tilkynntum þátt í keppninni og engin í kvennaflokki. Siglfirðingar og Reykvíkingar töldu keppni þessa hafa verið ólöglega og kærðu til yfirdómara, Helga Sveinsson- ar. Úrskurður hans var sá, að karlakeppnin skyldi teljast lög- leg en kvennakeppnin skyldi end urtekin. Var svo gert. Af hinum sjö keppendum í Hejirit hefur | að ríkisstjórnin hafi fengið fransk- an sérfræðing fró Efnahags- samvinnustofnun Evrópu til að kveða upp úrskurð um orsak- irnar að fækkun fólks ó Vest- fjörðum, og að meirihlutinn í bæjarstjórn Siglufjarðar hafi lagt drög að því að hann kæmi við ó Siglufirði i annarri hvorri leiðinni að bæjarstjórinn ó Sauðórkróki ætli að spila ó fiðlu ó sæluvik- unni, að fyrirmynd frægs róm- verks keisara. stórsvigi karla var Kristinn Bene diktsson frá ísafirði fyrstur, ann ar varð Árni Sigurðsson frá ísa- firði og þriðji Svanberg Þórð- arson frá Ólafsfirði. 1 stórsvigi kvenna varð Ár- dís Þórðardóttir, Siglufirði, nr. 1, önnur varð Kristín Þorgeirs- dóttir frá Siglufirði, þriðja Martha B. Guðmundsdóttir frá Reykj avík. Unglingakeppni í sambandi við íslandsmótið var tekin upp sú nýbreytni, að hafa unglingakeppni í svigi og stórsvigi á vegum Skíðavikunn- ar. Mættu þar unglingar frá ísa- firði, Siglufirði og Reykjavík. Siglfirzku drengirnir stóðu sig með mestu prýði, þeir skipuðu sér í fmm fyrstu sætin í sviginu, Sigurbjörn Jóhannsson, Bergur Eiríksson, Albert Einarsson, Sig urður Jósafatsson og Jóhann Tómasson. í stórsviginu var útkoman á- líka, nema ísfirzkum pilt tókst að verða númer þrjú á eftir þeim Sigurbirni og Jóhanni. Það var mjög gaman að sjá frammistöðu þessarra efnilegu unglinga. Siglfirzku þátttakendurnir áttu að venju ágætri gestrisni að mæta hjá Isfirðingum. Öllum var þeim boðið að borða í heima húsum hjá skíðamönnum, en flestir gistu í Skátaheimilinu í bezta yfirlæti. Þá sýndi bæjarstjórnin þá rausn, að bjóða öllum þátttak- endum mótsins og starfsmönnum þess til hófs í Góðtemplarahús- inu að móti loknu. Að því loknu var að ísfirzkri venju stiginn dans frá klukkan 24 á páskadag til fjögur um nóttina. 10 ÁRA Ungur Reykvíkingur, 10 ára gamll, hefur beðið mig að grennslast eftir því, hvort ekki væri einhver bóndi í kjördæminu, sem vildi hafa hjá sér ungan kaupamann í sumar. Þeir sem væru til við- 1 ræðu um þetta mál, eru beðn- ir að hafa samband við mig bréflega, annað hvort með utanáskrift Mjölnis, Siglu- firði eða Alþingis, Reykjavík. RAGNAR ARNALDS. ORÐ, ORÐ .... Framhald af 1. síðu. hina brýnu þörf- Siglfirðinga fyrir vetrarfæran veg til þess að sníkja út atkvæði þeirra í kosningum. Þessum ljóta leik er nú Jokið. Siglfirðingar heimta efndir á loforðinu um Stráka- veg FYRIR næstu kosningar, en ekki bara innantóm loforð — og svik! Mjölnir ÚTG. ALÞÝDUBANDALAGIÐ í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI VESTRA Ábyrgðarmaður: Hanncs Baldvinsson. Afgreiðsla: Suðurgötu 10, Siglufirði, simi 194. Árgjald 75 kr. — Prentsmiðja Björns Jónssonar h.f. Akureyri Ranghermi leiðrétt Þau mistök urðu í seinasta blaði að rangur texti var undir mynd fró Hofsósi. Maðurinn hér ó myndinni heitir Kristjón Ágústsson og hefur stundað smóbótaútveg ó Hofsósi í nokkra óratugi. Hitt er rétt, að Vilhjólmur Gcirmundsson og Jón' Steinþórsson reru siðastliðið sumar ó Sæfaxa, eins og sagt var undir myndinni. Biðjum við vel- virðingar ó þessum nafnaruglingi. — R. A. Bifreiðar til sílii Til sölu er vörubifreiðin F 126, með stöðvarplássi á bílastöð- inni i Siglufirði. Einnig fólksbifreiðin F 70 (Studibaker 1947) ÁGE JOHANSEN, sími 351, Siglufirði. Dijjlega nýjir kjðtrinnslBvörar Siglufjarðarbjúgu Fjölbreyft ólegg Pylsur Állskonar salöt Kjötfars Siglósíld Gerið innkaupin þarsem þau eru hagkvæmust. Kaupið Siglufjarðarbjúgu og Siglósíld í KJÖTBÚÐ SIGLUFJARÐAR. K. B. S.

x

Mjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.