Mjölnir - 10.02.1967, Page 1
Mjölnir
XXX. árgangur Föstudagur 10. febrúar 1967 2. tbl.
Aðalfundur Vðku
Aöalfundur verkalýösfélags-
ins Vöku, Siglufirði, var haldinn
29. jan. sl. Reikningar félagsins
sýndu, að hrein eign þess um síö.
ustu áramót var tæplega 1.6
millj. kr. Ur Sjúkrasjóði voru
greiddar á sl. ári um 110 þúsund
krónur.
Uppbót á fiskverð norðanlands
sama og sl. vetur
Sex togbátar verða gerðir út frá Siglufirði og Eyja-
fjarðarhöfnum, netabátur frá Hofsósi og ráðstaf-
anir gerðar til örvunar útgerð frá Sauðárkróki
Dagana 21. og 22. janúar hélt Atvinnumálanefnd Norð-
urlands fund á Akureyri með fulltrúum útgerðar og fisk-
móttökustöðva víða að af Norðurlandi. Voru þar teknar
ákvarðanir um sams konar uppbótagreiðslur á afla og greidd-
ar voru sl. vetur á vegum nefndarinnar. — Viðtal við Óskar
Garibaldason, fulltrúa Alþýðusambands íslands í nefndinni,
fer hér á eftir:
— Það hefur heyrzt, að þetta
hafi verið mjög fjölmennur fund
ur, og mörg þýðingarmikil at-
vinnumál rœdd þar.
— Auk nefndarmannanna 5
og framkvæmdastjórans, voru
boðaðir til fundarins útgerðar-
menn og forráðamenn frysti-
húsa á svæðinu Horn — Langa-
nes. Alls munu hafa mætt nærri
40 manns, flestir af Mið-Norð-
urlandi. Ur Húnavatnssýslum,
Strandasýslu og Norður-Þingeyj-
arsýslu komu engir fulltrúar, því
miður. Það hefði verið æskilegt,
að mætt hefðu fulltrúar frá stöð-
um, þar sem atvinnuáslandið hef
Daglegar
Mikið fjör hefur verið í
flugsamgöngum milli Reykja-
víkur og Siglufjarðar Undan-
farið. Hefur 4ra sæta Cessna-
vélin, sem Flugsýn hefur haft
á þessari leið, farið upp í
fjórar ferðir á dag á milli,
með farþega, póst og vörur.
Er að þessu hin bezta sam-
göngubót, ferðin tekur aðeins
rúrnan klukkutíma. — Farið
kostar 900 'kr. fyrir manninn.
Er því bæði mikill tíma- og
peningasparnaður að því að
r
fara með Flugsýnar-ferðun-
um ,miðað við aðra mögu-
leika.
Ekki hefur fengizt leyfi til
að nota nýja völlinn til lend-
ingar, og virðist hann þó í
góðu lagi. Gamli völlurinn
hefur undanfarið verið eins
og hann beztur getur orðið,
auður, en frosinn og rennslétt
ur að heita má, að því er Gest
ur Fanndal, umboðsmaður
Flugsýnar hér, tjáði blaðinu
fyrir nokkrum dögum.
ur verið slæmt, eins og t. d.
Skagaströnd. En samgöngurnar
hér norðanlands eru erfiðar um
þetta leyti árs.
— Hver voru aðalverkefni
jundarins?
— Fyrst og fremst að rabba
um viðhorfin á hinum ýmsu
stöðum með fulltrúum þeirra, og
taka ákvarðanir um, hvernig
haga skyldi starfinu þessa mán-
uði, sem eftir eru af þeim tíma,
sem í upphafi var gert ráð fyrir
að nefndin starfaði, en honum
lýkur 31. maí í vor.
— Hvernig er atvinnuástand-
ið á svœðinu nú?
flugferðir
"*ir
Óskar Garibaldason.
— Það er misjafnt, eins og
gefur að skilja, og e. t. v. veit
maður ekki nógu vel um það
til þess að geta kveðið upp dóm
um það. Eins og ég sagði áðan,
vantaði fulltrúa frá ýmsum
stöðum. En eins og stendur virð-
ist mér, að Húnaflóasvæðið og
Skagafjörður, þ. e. Hofsós og
Sauðárkrókur, séu einna við-
kvæmastir atvinnulega séð.
— Hver heldurðu, að útkom-
an yrði, ef gerður vœri saman-
hurður á atvinnuástandinu nú
og í fyrra um sama leyti?
— Eg veit ekki. Ætli meðal-
talið yrði ekki eitthvað svipað.
Kannski er það ögn skárra á
stöku stað, á öðrum lakara, t. d.
í S'kagafirði.
— Er þetta dragnótaveiðin að
hefna sín?
— Það veit ég ekki. En hvað
útgerð og afla snertir, er ástand-
ið í Skagafirði nú eitlhvað það
versta, ef ekki það al-svartasta,
sem þar hefur komið.
En þú varst að spyrja um
verkefni fundarins. — Höfuð-
verkefni nefndarinnar hefur frá
upphafi verið að reyna að hafa
áhrif til örvunar atvinnulífi á
svæðinu Horn — Langanes, og
til þess hefur hún mátt eyða
vissri upphæð árlega. A þessum
fundi var gengið frá starfs-
skýrslu fyrir sl. ár, og verður
hún væntanlega birt innan tíð-
ar. En aðalverkefnið var það
sarna og á fyrri fundum, og nú
var um það að ræða að leggja
drög að síðasta starfsáfangan-
um. Það helzta, sem gerðist á
þessum fundi, var það, að sam-
þykkt var að leggja fram fé til
greiðslu uppbóta á vinnslufisk
á sama hátt og í fyrra, gegn fram
lagi frá fiskkaupanda eða öðr-
um aðila. Nemur framlag ’nefnd-
arinnar 50 aurum á kg af afla
Framhald á bls. 7.
Stjórn félagsins var endur-
kjörin, en hana skipa: Formað-
ur Oskar Garibaldason, varafor-
maður Guðrún Albertsdóttir, rit-
ari Ólína Hjálmarsdóttir, gjald-
keri Kolbeinn Friðbjarnarson og
meðstjórnendur Þorkell Benónýs
son, Þórunn Guðmundsdóttir og
Guðbrandur Sigurbjörnsson.
Kosin var á fundinum nefnd
til að gera tillögur um fyrirkomu
lag við innheimtu félagsgjalda,
sem eru kr. 700 fyrir karla og
kr. 500 fyrir konur.
AÐILD AÐ FÉLAGSHEIMILI
Þá var samþykkt á fundinum
ályktun um að félagið gerðist
aðili að byggingu félagsheimil-
is í bænum. Var hér um að ræða
eins konar viljayfirlýsingu, en
endanleg'ákvörðun er háð sam-
þykki félagsfundar að lokinni
nánari athugun málsins.
STYÐJA SÍLDARFLUTNINGA
Þá var á fundinum samþykkt
áskorun á félagsmenn og aðra
Siglfirðinga að stuðla að því að
keypt verði skip til flutnings á
söltunarsíld, með því að kaupa
hlutabréf í fyrirtæki því, sem
unnið er að því að stofna í þess-
um tilgangi.
»SplíiriiBjor« d trell
Vélskipið Siglfirðingur er fyr
ir nokkru hættur síldveiðum og
er skipið nú farið á togveiðar
hér fyrir Norðurlandi og mun
leggja aflann upp á Siglufirði.
KldpHli d BretdtÉnim!
Nefnd sú, sem starfar hér í
Siglufirði að undirbúningi und-
ir byggingu félagsheimilis, sam-
þykkti nýlega að sækja til bæj-
arins um lóð undir væntanlegt
félagsheimili á svonefndu Breta-
Fjárhagsáætlun Siglutjarðarkaup-
staðar 1967 síðbúin
Ekki er fjárhagsáætlun Siglufjarðar 1967 enn farin að sjá dags
ins ljós, þótt ljósmæðrunum, sem eiga að aðstoða við fæðingu henn
ar, liafi fjölgað. En miklir klíkufundir hafa staðið yfir hjá meiri
hlutanum undanfarið, auk þess sem troðningar á leiðinni bæjar
skrifstofa — verksmiðjulóð — Síldarútvegsnefnd — áfengisverzl
un, — hafa dýpkað mikið undanfarið, að fróðra manna sögn. Bend
ir þetta til þess, að meirihlutinn hafi brátt fullsmíðað frumburð sinn
Ef að vanda lætur, verður ekki mikils að vænta í atvinnumálum
í sambandi við áætlunina. I þetta sinn mun hin svonefnda Fram-
kvæmdaáætlun Norðurlands, sem ríkisstjórnin hyggst láta semja
fyrir kosningarnar í vor, verða notuð sem átylla til þess að halda
að sér höndum í atvinnumálum.
túni. Verður umsóknin væntan-
lega til umræðu á næsta bæjar-
stjórnarfundi.
Flest félagasamtök í bænum
hafa samþykkt aðild að félags- ■
heimilinu, þ. á. m. verkalýðsfé-
lögin.
Skortur á góðu húsnæði til
skemmtanahalds og ýmis konar
félagsstarfsemi er fyrir löngu
farinn að segja til sín hér í bæn-
um. Er það því ánægjuefni, að
einhver skriður skuli vera kom-
inn á þetta mál. Að vísu má gera
ráð fyrir, að þungt verði undir
fæti við bygginguna, þar sem
Félagsheimilasjóði mun vera fyr
irframt ráðstafað langt fram í
tímann, sumir segja til næstu
aldamóta. Samt ætti að vera
kleift að koma hér upp góðu fé-
lagsheimili, ekki síður en í mörg
um öðrum byggðarlögum, jafn-
vel margfalt fámennari, ef geng-
ið er að verki með þrautseigju
og dugnaði.