Mjölnir


Mjölnir - 10.02.1967, Page 3

Mjölnir - 10.02.1967, Page 3
 Flutnindur d síld til söltunar I i sumri Eins og áður hefur verið skýrt jrá hér í blaðinu, er starfandi hér í bœnum 5 manna nefnd, sem starfar að s'ófnun hlutafjár með það fyrir augum að stofna hlutafélag til að kaupa og reka flutningaskip, sem flytji síld aj fjarlœgum miðum til. söltunar á Siglufirði. Nefnd þessi á ennjremur að vinna ýmis jleiri undirbúningsstörf í málinu, þ. á. m. að gera rekstraráœtlun um slíka flutninga. Nefndin hefur riú samið slíka áœtlun, mjög vel unna og raunhæfa og kemst að þeirri niðurstöðu, að 1500 tonna skip með 19 manna áhöfn beri sig ágœtlega með þriggja til fjögurra mánaða út- haldstíma, ef það flytur hingað 48 þúsund tunnur, eða sem svarar að það kœmi fjórum sinnum með fullfermi. Miðað við aðstœður í fyrarsumar hefði þetta tekizt og vel það. Að sjálfsögðu getur eng inn sagt með viss um, hvernig reynslan verður nœsta sumar, en það eitt er víst, að til margra útgerðarfyrirtœkja hefur verið stofnað und- anfarna tíma, sem óálitlegri liafa verið en þessi útgerð. Þann tíma ársins, sem skipið vœri ekki í síldarflutningum, eru horfur á rekstri þess góðar, skal þó ekki farið ut í þá sálma frekar að sinni. Undirtektir undir þetta mál eru yfirleitt góð- ar hjá Siglfirðingum. Að sjálfsögðu er hér til eins og annars staðar nöldrunarseggir og böl- sýnismenn, sem aldrei sjá neitt framundan nema svart myrkrið, sem betur fer eru þeir þó fáir, en dugnaðar- og bjartsýnismennirnir fleiri, sem skilja að vandamálum Siglufjarðar verður ekki bjargað við með því að halda að sér höndum, heldur verður að hefja raunhœf- ar aðgerðir til að bœta úr vandanum, og að þeim, sem ekki vill bjarga sér sjálfur, verður aldrei við bjargað. Verði fluttar hingað 48 þúsund tunnur af uppmœldri síld og úr því kœmu 30 þúsund tunn ur uppsaltaðar, er það mikil björg í bú fyrir Siglfirðinga, Það myndi að verulegu leyti bjarga við öllurn söltunarstöðvunum, sem hér starfa nœsta sumar Þá eru það verkamennirn- ir, verkakonurnar og bílstjórarnir, en þeirn myndi þessi rekstur gefa í vinnulaun milli 10 og 15 milljónir króna. En jleiri eiga hlut að máli, ekki fara launþegarnir með þessar 10 til 15 milljónir heim í handraðann eða leggja þœr í bankabók. Það verður keypt í verzlun- um, af iðnaðarmönnum og mörgum öðrum, fyrir mestalla þessa peninga, Þá myndi þessi rekstur gefa bœjarfélaginu sjálfu, í hajnar-, vöru- og bryggjugjöld, aðstöðugjaldi o. fl. um 2 milljónir króna, Að öllu þessu athuguðu, verður Ijóst, að vandjundinn verður sá maður í bænum, sem ekki hefur beina hagsmuni af að máli þessu verði hrundið í framkvœmd, og að vel takist til. Það kostar mikið fé að kaupa skip með nauðsynlegum útbúnaði eins og áformað er, og teksl ekki nema með skilningi og góðvilja stjórnarvalda, hins vegar hejur ekki jormlega verið leitað eftir neinum fyrirgreiðslum enn. Hins vegar telja ýmsir áhugamenn í þessu efni, að engu þurfi að kvíða hvað þetta snertir, heldur þvert á móti. Enda hejur hœstvirt rík- isstjórn lojað því, að gert verði á þessu ári stórkostlegt átak í atvinnumálum Norðlend- inga og fé haft tiltœkt til þeirra hluta, eins og fulltrúi ríkisstjórnarinnar, herra hagfrœðing- ur, Jónas Haralz, skýrði frá á fundi liér á Siglufirði síðastliðið haust. En sá geindi mað- ur, Jónas Haralz, sagði fleira á þeim fundi. Hann sagði, að cnginn Siglfirðingur skyldi láta sér delta í hug, að ríkisstjórnin myndi ein, án tilverknaðar þeirra sjálfra, verja stór- um fjárfúlgum til uppbyggmgar atvinnulífs- ins hér. Frumkvœðið yrði að vera hjá Sigl- firðingum sjálfum. Siglfirðingar sjálfir yrðu að athuga málin vel og koma fram með hyggi- legar tillögur, þá vœri stuðningur vís, annars yrði ekkert fyrir okkur gert. Atvinnumál Norðlendinga eru ekki í góðu lagi, og sums staðar ríkir óþolandi ástand, eins ag t. d. á Skagaströnd, og reyndar fleiri stöð- um. A sumum þessum stöðum þarf mjög mik- ið til, það þarf að byggja upp ný fyrirtœki frá grunni og sjá þeirr, fyrir hráefni og rekstrar- möguleikum. Hér á Siglu/irði erum við það vel í sveit settir, að stór og mikil atvinnufyrirtœki eru fyrir hendi, þar sem eru verksmiðjurnar og söltunarstöðvarnar. Það er eingöngu hrá- efnisskorturinn, sem þjáir okkur. Með þeirri lillögu, sem hér um ræðir, til að bœta úr hráefnisskorinum, eru okkar vanda- mál að mestu leyst í atvinnumálum, ef sá rekstur sem fyrir er, lieldur áfram. Það er því mikið minna hjá okkur en flesl- um stöðum öðrum, sem til þarf til að leysa vandann. Þessi hyggilegu áform um björgun Siglufjarðar, œttu sem flestir að styðja. Það œlti enginn að hugsa sem svo: Það munar ekliert um mig. Því margt smátt gerir eilt stórt. Því síður œttu menn að hugsa sem svo: Eg er ekkert að skipta mér af þessu, ef hinir koma því fram, nýt ég góðs af því hvort eð er. Siglfirðingar œttu sem jlestir að veita þessu góða máli styrk, með því að gerast þátttakend- ur í samtökunum til að koma því fram, og þess fleiri, sem leggja hönd á plóginn, þess léttara verður verkið. Nkaðaveðnr í Skagafirði Föstudaginn síðasta í janúar skemmdum víða, aöallega a ■skemmdum víða, aðallega á ingshúsum. Mestu skemmdirnar gerði mi'kið aftakaveður af heyjum, sem fuku út í buskann, munu hafa orðið á bæjunum austri um austanverðan Skaga- þá tók járn af þökum, rúður Úlfsstöðum, Hjarðarhaga, Hof- fjörð. Veðrið olli miklum brotnuðu í íbúðarhúsi og pen- staðaseli og Víðivöllum. Londtmit shíiomuonu d Slglufirði um pdshuno Samkvæmt ákvörðun Skíðasambands Islands fer hið árlega landsmót íslenzkra skíðamanna fram á Siglufirði um komandi páska. Skiðafélag Siglufjarðar, Skíðaborg, sér um framkvæmd mótsins og er undirbúningur þegar hafinn og dagskrá ákveðin. En siglfirzkir skíðamenn bíða ekki aðgerðarlausir eftir landsmót- inu, heldur stunda skíðaíþróttina af kappi. Frá áramótum hefur hinn gamalkunni skíðakappi Jónas Asgeirsson starfað sem þjálfari á vegum Skíðasambandsins og lagt aðaláherzlu á hinar norrænu greinar, göngu og stökk. Hefur þátttaka í námskeiðum hans verið mikil, bæði af ungum sem öldnum, en þeim er nú því miður lokið og Jónas farinn tii starfa annars staðar á Norðurlandi. Skíðamót Siglufjarðar (meistaramót) stendur nú yfir og hófst þar um næst síðustu helgi með keppni í göngu, öllum aldursflokk- um. Um síðustu helgi var keppt í stökki, sömu flokka, og næstu helgar verða svo notaðar fyrir alpagreinarnar. Þátttaka í mótinu er allgóð og áhugi mikill. Urslit í þeim greinum mótsins, sem þegar er lokið, urðu þessi: , • .. 'VFéSiiySfdýÚ i Urslit í göngu laugardaginn og sunnudaginn 14. og 15. janúar: 6—8 ára: • ! : JiJ 1. Þorsteinn Sæberg Sigurðsson .............. 13 mín. 55 sek. 2. Sigurbjörn Ragnar Antonsson .............. 14 mín. 00 sek. 3. Kristján Kristjánsson..................... 17 mín. 33 sek. 9—11 ára: 1. Þófhallur Renediktsson ................... 13 mín. 45 sek. 2. Hallgrímur Sverrisson .................... 16 mín. 39 sek. 3. Rögnvaldur Gottskálksson.................. 16 mín. 47 sek. 12—13 ára: 1. Sigurgeir Erlendsson ..................... 13 mín. 32 sek. 2. Þórhallur Gestsson........................ 14 mín. 04 sek. 3. Sturlaugur Kristjánsson .................. 14 mín. 36 sek. 14-—16 ára: 1. Olafur Baldursson ........................ 13 mín. 08 sek. 2. Sigurður Steingrímsson.................... 13 mín. 13 sek. 3. Ingólfur Jónsson.......................... 15 mín. 38 sdk. 17—19 ára: 1. Sigurjón Erlendsson .................... 53 mín. 27 sek. 20 ára og eldri: 1. Þóbhallur Sveinsson ...................... 47 mín. 45 sek. 2. Gunnar Guðmundsson ....................... 47 mín. 56 sek. 3. Haraldur Erlendsson ...................... 49 mín. 28 sek. Úrslit í slökki laugardaginn og sunnudaginn 21. og 22. janúar: 6—8 ára: 1. Hörður Júlíusson ................. 5.5 m 6.5 m 125.0 stig 2. Ólafur Marteinsson .............. 4.0 m 3.7 m 112.0 stig 3. Birgir Ólafsson .................. 3.0 m 3.5 m 104.8 stig 9—11 ára: 1. Andrés Stefánsson................. 7.5 m 7.7 m 124.7 stig 2. Ásmundur Jónsson ................. 8.0 m 7.2 m 124.3 stig 3. Rögnvaldur Gottskálksson ......... 6.2 m 8.0 m 121.8 stig 12—13 ára: 1. Guðmundur Ragnarsson ........... 15.5 m 13.5 m 133.0 stig 2. Jón B. Hannesson................ 13.5 m 16.0 m 130.0 stig 3. Þorsteinn Jóhannsson ........... 12.5 m 14.5 m 124.5 stig 14—16 ára: 1. Ingólfur Jónsson ............... 16.5 m 19.0 m 100.0 stig 2. Haukur Snorrason ............... 19.5 m 19.0 rii 83.9 stig 17—19 ára: 1. Sigurjón Erlendsson............ 22.0 m 23.5 m 120.6 stig 20 ára og eldri: 1. Sigufj.meistari: Haukur Freysteins. 27.5 m 27.0 m 138.5 stig 2. Steingrímur Garðarsson ......... 26.5 m 26.0 m 137.8 stig 3. Geir Sigurjónsson .'............ 26.0 m 25.5 m 134.8 stig Stökkkeppnin fór fram inni í Hvanneyrarskálarbotni í minni brautinni (30 m). — Veður var gott, skýjað hægviðri og frostlaust. — Færi var gott. — 15 menn gerðu brautina tilbúna fyrir keppni ú ca. 3 tímum, enda mikið verk að troða undirbrautina nægilega vel, þar sem snjór var blautur og gljúpur. Áhorfendur voru margir. Mótsstjóri landsmótsins verður Sverrir Sveinsson. — Núverandi formaður Skíðafélagsins er Reynir Sigurðsson. Mjölnir — (3

x

Mjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.