Mjölnir - 24.10.1969, Síða 4
Siglufjorður
Sigifirzh bœjarmálefni
Bygging nýs skuttogara
komin á undirbúningsstig
Bæjarstjórn Siglufjarðar og stjórn S. R. hafa
samþykkt aðild að félagi um kaup og rekstur
á ca. 500 lesta skuttogara af Raymond-gerð
TANNVIÐGERÐIR.
Fulltrúar Alþýðubandalagsins
í bæjarstjórn fluttu nýlega til-
lögu um athugun möguleika á
því, að Sjúkrasamlag Siglufjarð
ar greiddi tannlækningar sam-
lagsmeðlima að nokkru eða öllu
leyti. Tillagan var samþykkt og
málinu vísað til stjórnar sam-
lagsins.
SJÚKRAHÚSSRÁÐSMAÐUR.
Átta manns sótti um starf ráðs
manns Sjúkrahúss Sigufjarðar,
sem auglýst var laust í sumar.
Ekki var búið að ráða í starfið
þegar blaðið fór í prentun. Er
auðséð, að bæjarstjórn ætlar að
vanda mjög valið á þessum
starfsmanni; hafa verðleikar um
sækjenda verið í athugun bjá
henni í nokkra mánuði.
LJÓSMÓÐURSTARF LAUST.
Jóninna M. Sveinsdóttir, Ijós-
móðir, sem gegnt hefur staríi
sínu í Siglufirði um langt árabil
við ágætan orðstír, hefur nú sagt
upp frá næstu áramótum, þar
sem hún hefur náð hámarksaldri
opinberra starfsmanna, og hef-
ur starfið verið auglýst laust til
umsóknar.
JARÐBORANIR.
Lokið er borun einnar holu í
Á síðasta fundi bæjarstjórnar
Siglufjarðar var samþykkt önn-
ur hækkunin á árinu á rafmagns-
verði. Nam fyrri hækkunin, í árs
byrjun, um 19%, og nú, réttum
9 mánuðum seinna, er samþykkt
önnur hækkun, 12—13% að
meðaltali.
Hefur heimilistaxti hækkað
um rúm 46% síðan 1967, var þá
kr. 1,30, en er nú eftir þessa síð-
ustu hækkun kominn upp í kr.
1,90.
Beiðni um samþykkt þessarar
síðustu hækkunar kom frá raf-
veitustjórn á næstsíðasta bæjar-
stjórnarfund, en var þá frestað
til næsta fundar fyrir forgöngu
Alþýðubandalagsmanna og Krist
jáns Sigurðssonar, sem töldu
skorta rökstuðning, sem réttlætti
slíka hækkun. Fyrir síðasta fundi
lá svo bráðabirgðayfirlit frá raf-
veitunni um reksturinn fyrstu 9
mánuði ársins. Samkvæmt því
námu útgjöld hennar frá ársbyrj
un kr. 7.845.335,25, og er þar
meðtalin fjárfesting hennar
vegna framkvæmda við Skeiðsá
og virkjunina á þessum tíma.
Raforkusala 1968 nam alls
Skútudal, og gefur hún um 8
sekúndulítra af ca. 65 stiga heitu
vatni. Verið er að bora aðra
holu, og var hún orðin ca. 140
m. djúp um síðustu helgi. Ekk-
ert teljandi vatn kom úr henni
þá, en hita varð þó vart í henni.
Sérfræðingur var væntanlegur
um miðja þessa viku til að rann-
saka betur fyrstu holuna. Lík-
legt má telja, að fá megi með
dælingu meira vatn úr henni en
þessa 8 sekúndulítra.
Ekki er ljóst enn, hvort þriðja
lilraunaborunin, sem ráðgerð
var, verður framkvæmd í haust,
en versni tíð að ráði verður erfitt
að komast á bílum fram eftir, og
eins að ná tækjunum, sem þar
eru, þaðan aftur að borun lok-
inni.
HREINSUN NEYZLUVATNS.
Ríkharður Steinbergsson verk
fræðingur tók að sér í sumar að
afla upplýsinga um aðferðir við
hreinsun neyzluvatns, gera áætl-
un um kostnað o. fl. í því sam-
bandi. Hér í blaðinu var sagt
30. maí í vor, að greinargerð
hans um þetta efni væri væntan-
leg fljótlega. Bæjarstjóri skýrði
blaðinu svo frá nú fyrir nokkr-
um dögum, að greinargerðin
væri að vísu ókomin enn, en
væri væntanleg fljótlega.
8.354.055 kwst., á kr. 10.592.663
(Heimilistaxti kr. 1.50).
Raforkusala 1/1—30/9 1969
nam 4.280.420 kwst. eða kr.
5.651.881.85 (Heimilistaxti kr.
1.70).
Samanburðaryfirlit á raforku-
sölu tímabilið 1/1 1968 til 30/9
1968 og á sama tímibili 1969
sýnir, að raforkusalan hefur
minnkað um 386.090 kwst. eða
8.3%.
Ef heildarsala á raforku allt
árið 1969 reynist 8.3% minni en
hún reyndist 1968 (8.354.055
kwst. -4- 693355 kwst.) þá verð-
ur sala ársins 7.660.700 kwst.
og heildarverð þeirrar raforku-
sölu, án allrar verðhækkunar,
miðað við verð ársins 1968, kr.
9.593.775.00.
Af þessum upplýsingum virð-
ist ljóst, að ENGA hækkun hefði
þurft á raforkuverðinu árið
1969 til að standa undir rekstri
og óhjákvæmilegri fjárfestingu
þetta ár. Greiddu því bæjarfull-
trúar Alþýðubandalagsins, ásamt
Kristjáni Sigurðssyni, atkvæði
gegn hækkunartilögunni, en hin-
ir bæjarfulltrúarnir sex sam-
þykktu hana.
Mál þetta er búið að vera
lengi í undirbúningi og athug-
un, m. a. var Páli Guðmundssyni
skipstj óra, sem er einn af stj órn-
armönnum S.R., á sínum tíma
falin athugun á þeim gerðum tog
skipa, sem bezt mundu henta, en
tilgangurinn með skipskaupun-
um er fyrst og fremst öflun hrá-
efnis fyrir frystihús. Snemma í
þessum mánuði mætti Páll á
fund í bæjarstjórn og gaf þar
skýrslu um athuganir sínar.
Nokkrum dögum seinna var sam
þykkt á fundum, sem haldnir
voru samtímis í bæjarstjórninni
og stjórn S.R., að kjósa þriggja
manna samstarfsnefndir frá hvor
um aðila til frekari undirbún-
ings. Nefndarmenn frá S.R. eru
Sveinn Benediktsson, Sigurður
Jónsson og Páll Guðmundsson,
en til vara Þóroddur Guðmunds-
son og Jóhann G. Möller. Nefnd-
armenn bæjarstjórnar eru Ragn-
ar Jóhannesson, Kristján Sigurðs
son og Stefán Friðbjarnarson,
en til vara Hinrik Aðalsteinsson
og Kjartan Friðbjarnarson.
Skipsgerð sú, sem hér um ræð-
ir, mun hafa ýmsa kosti umfram
eldri gerðir skuttogara, m. a.
þann, að geta notað bæði venju-
legt troll og fottroll, sem hækka
má og lækka í sjónum eftir því
hvar fiskurinn heldur sig, og
ennfremur að hægt er að breyta
vörpuopinu. Þá mun vinnuað-
staða vera breytt til samræmis
við fengna reynslu, og lestaút-
SI. vor fluttu bæjarfulltrúar
Alþýðubandalagsins í bæjar-
stjórn Siglufjarðar tillögu um,
að bærinn semdi við Yöku um
að félagið tæki að sér að sjá um
vinnumiðlunina, sem bæjarfélag
inu er skylt að halda uppi. Var
tillagan flutt með það fyrir aug-
um, að gerð yrði alvarleg til-
raun til að framkvæma lögin um
vinnumiðlunina eins og til er
ætlazt, en mikið vantar á að svo
hafi verið hjá bæjarskrifstof-
unni.
Tillögunni var vísað til bæjar-
ráðs, þar sem hún lá í salti í sum
ar. Á síðasta bæjarstjórnarfundi
flutti svo meirihlutinn og sam-
þykkti tillögu um að flytja vinnu-
miðlunina, og um leið atvinnu-
leysisskráninguna, af bæjarskrif-
stofunni, og lausráða mann hálf-
an daginn til að annast þessi
störf í húsnæði því, sem Rauðka
notaði áður fyrir skrifstofu.
Augljóst er, að þessi samþykkt
er ekki gerð til að bæta úr þeirri
vanrækslu, sem verið hefur á
búnaður vera af fullkomnustu
gerð.
Ætlunin mun vera að stofna
formlegt hlutafélag um skipið,
með svipuðu formi og Utgerðar-
félagið h.f. En fyrstu störf nefnd
arinnar munu verða að leita eft-
ir fjármagni til kaupanna, og
síðan að semja um smíði skips-
ins við íslenzka skipasmíðastöð.
Afli þeirra skipa, sem stund-
að hafa togveiðar fyrir Norður-
landi, hefur verið góður. Minni
bátar, sem liafa stundað veiðar
með handfæri og nót, hafa aflað
minna en undanfarin ár. Tog-
skipin Siglfirðingur og Margrét
öfluðu prýðilega fram efir sumri,
en heldur hefur dregið úr afla er
líða fór á. Ungur Siglfirðingur,
Arngrímur Jónsson, tók við b/v
Hafliða skömmu eftir áramót og
hefur hann fiskað ágætlega.
Sennilega er b/v Hafliði með
aflahæstu togurum á landinu,
miðað við úthaldstíma. Þessi
góði afli togarans og togskip-
anna sannar okkur betur en nokk
uð annað, að við þurfum fleiri
togskip, svo að íshúsin bæði bafi
nægilegt hráefni. Hjá Isafold
hefur verið mjög stopul vinna
nú undanfarið og alls ekki líkur
á því, að hægt verði að reka það
framkvæmd vinnumiðlunarinn-
ar, þar sem aðeins er gert ráð
fyrir að skrifstofan verði opin
hálfan daginn, en fyrirfram er
vitað, að slíkt fyrirkomulag kem-
ur ekki að tilætluðum notum.
Tveir menn voru sl. vetur upp-
teknir meira og minna allan dag-
inn á bæjarskrifstofunni vegna
vinnumiðlunarinnar. Hér er því
greinilega stefnt til afturfarar í
þessu efni.
Það, sem ráðið mun hafa þess
ari samþykkt meirihlutans hefur
bersýnilega verið það að auka
næðið á bæjarskrifstofunni með
því að losna við umgang atvinnu
leysingja og annarra, sem erindi
kynnu að eiga þangað vegna
vinnumiðlunarinnar, en ekki
hitt, að bæta úr ástandinu.
Bæjarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins greiddu að sjálfsögðu at-
kvæði gegn tillögu meirihlutans
og héldu fast við þá afstöðu, að
bezt og affarasælast yrði, að fela
verkalýðsfélaginu framkvæmd
vinnumiðlunarinnar.
Gera menn sér vonir um, að hún
þurfi ekki að taka lengri tíma
en eitt ár.
Teikningar af skipinu munu
kosta um iy> millj. ísl. króna,
en innifalið í því verði er eftir-
lit með smíðinni.
Talið er, að skipið muni kosta
55—60 millj. króna.
Hér er um þýðingarmikið mál
að ræða, og má eflaust vænta
þess, að undirbúningsnefndin
hraði störfum eftir því sem hægt
er, og að stjórnvöld og fjármála-
stofnanir láti ekki standa á nauð
synlegri fyrirgreiðslu.
af neinum krafti, verði ekki ein-
hver breyting í sambandi við hrá
efnisöflun.
M/b Tjaldur og minni dekk-
bátar eru byrjaðir með línu, en
afli verið sáratregur.
Er þetta er skrifað, hefur eng-
in síld borizt hingað, önnur en
sú, sem söltuð hefur verið austur
á fjörðum fyrir Sigló-verksmiðj-
una. Siglfirðingar mega þó rauna
fífil sinn fegri í þeim efnum, því
að sennilega liefur þetta ekki
skeð sl. 80—100 ár. Nú er svo
komið, að við verðum að treysta
á annað en síldina, og er öllum
þetta ljóst orðið. En hvernig höf
um við brugðizt við þeim
vanda? Því er fljótsvarað. Við
höfum lítið sem ekkert gert lil
þess að fá einhver atvinnutæki í
bæinn. Þau atvinnutæki, sem nú
eru starfrækt voru öll fyrir
hendi; á meðan síld veiddist og
voru þá í fullum gangi. Því fólki,
sem við síldina vann, er því of-
aukið. Enda er nú svo komið, að
fólkinu fækkar ár frá ári, sem er
ósköp eðlilegt. Það hefur ekki að
neinu að hverfa hér. Verði eng-
in breyting til batnaðar heldur
þessu áfram. Það er skylda þess
opinbera að koma í veg fyrir að
þessu haldi áfram.
Sundmeistort-
mðtMirM
Dagana 20. og 21. sept. var
Sundmeistaramót Norðurlands
haldið á Húsavík. Keppendur
voru frá fjórum félögum: Hér-
aðssambandi Þingeyinga, Iþrótta
bandalagi Siglufjarðar, Sundfé-
laginu Oðni, Akureyri, og Ung-
mennasambandi Skagafjarðar.
Þátttakendur voru margir og
þar á meðal margt efnilegra sund
mánna og var áberandi, að hér
var flest keppenda enn á ung-
um aldri, og má því vænta góðra
Framhald á bls. 6.
Bafmagnsverð
hækkað
Vinnumiðlunin flutt of bœforshrífstofunni
Utgeri og oflðbrög} ð Siglufirií
4 — MJÖLNIR
Það er nú svo langt um liðið
síðan Mjölnir var síðast á ferð,
að þess er enginn kostur að gera
ýmsum þeim málum skil, sem á
döfinni hafa verið. Þó dauflegt
hafi verið hér í okkar bæ, Siglu-
firði, hefur samt sitt hvað verið
að gerast, sumt samkvæmt reglu-
legri atburðarás, annað óvænt
og vegna tilfallandi atvika. At-
vinnulífið befur verið bæði gott
og vont, á sumum vinnustöðum
hefur vinna verið á stundum
meiri en góðu hófi gegnir, ann-
arsstaðar sæmileg og sumsstaðar
stopul og afar léleg. Á þessari
skipulagningarinnar öld virðist
það vera ráðamönnum hér óyfir-
stíganlegt vandamál, að skipu-
leggja þannig þá atvinnu, sem til
staðar er, að sem flest vinnuþurf-
andi fólk fái notið hennar.
Utsvörum var jafnað niður
svo sem árleg venja er, og sem
fyrr varð margt í þeirri góðu út-
svarsskrá mönnum mikið undr-
unarefni. Menn undruðust það
stórlega hvernig einn verzlunar-
forstjóri, sem farið gat ásamt frú
sinni þrjár ef ekki fjórar utan-
landsferðir sama árið hefur ekki
nema 700 kr. meira útsvar en
verkamannsekkja, sem hörðum
liöndum vinnur fyrir sér og
barni í skóla; eða hvernig hjón,
sem reka flutningafyrirtæki
ásamt umfangsmikilli umboðs-
verzlun og konan vinnur a. m. k.
hálft starf á vegum bæjarfélags-
inSjigeta borið 3.800 kr. útsvar,
eða jafn mikið og heilsuveill
verkamaður með stopula vinnu.
Um augljósan mismun á fjárfest-
ingu í bílum og húsbúnaði þess-
ara tveggja fjöskyldna ætti þó
flestum að vera kunnugt, a. m. k.
framtalsnefnd. Þannig dæmi
mætti taka fjölmörg önnur, þar
sem augljós mismunun á sér stað
milli þeirra, sem möguleika hafa
til undandrátla frá skatti, og
hinna, sem engu skjóta undan.
Svo er það hin hliðin á málinu,
og það er meðferðin á því fé,
sem af útsvarsgreiðendum er
tekið. Eflaust verða menn ekki
á eitt sáttir um það hversu vel
eða illa er á þeim málum hald-
ið, en þó munu þeir samt fleiri,
sem telja að stjórnleysi og óhag-
sýni einkenni um of þær litlu
framkvæmdir, sem gerðar eru á
vegum bæjarins, og það þýðir,
að fjármunum skattborgarans er
illa varið.
★
Nokkurt dæmi um þetta eru
vatnsveituframkvæmdirnar. Mað
ur nokkur, sem árlega heimsækir
Siglufjörð og þarf að koma oft
á ári til bæjarins, bafði orð á
því að sér þætti undarlegt hversu
ástatt væri með umhverfi Sjúkra
hússins. I fyrra er hann kom
hingað ferð eftir ferð voru allt-
af opnir skurðir í kringum hús-
ið. I vor þegar hann kom sína
fyrstu ferð var byrjað að grafa
og enn væri verið að grafa
skurði. Hann sagðist hreint ekk-
ert skilja í þessum framkvæmd-
um og sig furðaði stórlega það
langlundargeð, sem forráða-
menn Sjúkrahússins hefðu, að
geta þolað þetta moldarsvað og
opna skurði við húsið mánuð
eftir mánuð og ár eftir ár. Og
það er von að maðurinn undrist.
Það gera bæjarbúar líka. Það er
furðulegt að ár eftir ár skuli allt
vera sundurgrafið kringum
Sjúkrahúsið og ekkert hreyft við
því að fegra eða lagfæra um-
hyerfi þess, sem að brekunni
snýr. Og menn spyrja: Er þetta
nauðsynlegt? — og ef svo er:
hvers vegna er þessum aðgerð-
um ekki hraðað meir en raun
ber vitni.
★
I sumar var Túngatan grafin
upp á kafla og skipt um jarðveg,
átti þetta að vera áfangi að því
að gatan yrði steypt. Það var
slæmt að ekki skyldi ráðizt í að
fullgera þennan kafla, því strax
og breytti um veður og regn fór
að streyma á götuna varð hún
svo holótt að hún má teljast
óakfær. Það mundi liafa kostað
verulega upphæð að steypa þenn
an kafla, en það á líka eftir að
kosta mikið fé, óþægindi og leið-
indi að halda henni sæmilega við
eða hafa hana illfæra ella.
Síðan nýja Sjúkrahúsið tók
til starfa hefur starfi ráðsmanns
verið sinnt af tveim, frú Hulda
Steinsdóttir hefur annazt bók-
liald og fjárreiður ásamt inn-
kaupum og Skúli Jónasson hefur
liaft á liendi umsjón með bygg-
ingunni o. fl. Þessi tvískipting
starfsins hefur reynzt illa og því
ákvað bæjarstjórn að auglýsa
starf ráðsmanns laust til umsókn-
ar og var umsóknarfrestur til 10.
ágúst sl. Um starfið bárust a.
m. k. 7 umsóknir. Þetta setti bæj-
arráð í mikinn vanda því flest
voru þetta menn tilheyrandi
meirihlutaflokkunum í bæjar-
stjórn og því erfitt nokkurn um-
sækjanda að styggja, og ekki
hillti heldur undir neinar fleiri
lausar stöður. Hinir ráðasnjöllu
bæjarráðsmenn hafa enn ekki
séð neina færa leið út úr þessu,
þó munu hafa verið skrifuð fjöl-
mörg bréf og eflaust leitað álits
hinna færustu sérfræðinga, sam-
kvæmt venju. Fátt varpar betur
Ijósi á starfshæfni og vinnu-
brögð þessara ráðamanna bæjar
ins en svona smámál. Ráðning
manns í starf, sem að vísu er þýð
ingarmikið, verður þeim óleys-
anlegt um langan tíma vegna
þess, að ekki verður viðkomið
hinum einföldu pólitísku valregl-
um eða kaupskap um stöður.
Margir pólitískir samherjar
sækja um sama starfið, og þótt
allir væru vel til starfsins hæfir
er engan hægt að velja vegna
þess, að hinir kunna að hlaupa í
pólitíska fýlu, — og kosningrr
eru í vor.
★
Þótt atvinnulegt árferði hafi
verið misgott á liðnu sumri —
og mannanna stjórn slæm, þá
hefur gæzka veðurguða sjaldan
verið meiri en þetta sumar hér
norðanlands. Allur gróður náði
fullum þroska, kartöflu- og berja
spretta var mikil og hafa margir
haft mikla búbót af að hagnýta
þau gæði jarðar. Hinsvegar
munu bændur og búalið hafa átt
full erfitt með að ná góðri nýt-
ingu á heyfeng sinn, þó ólíkt
muni það betra en á Suðurlandi,
þar sem neyðarástand ríkir
vegna samfelldra óþurrka allt
sumarið.
Og senn líður að þeirri stund
að Siglfirðingar geti eins og aðr-
ir í „menningu“ landsins glápt
á sinn imbakassa kvöldin út o'g
inn. Þó mun enn ekki hægt að
spá hvenær sú stund rennur upp,
en menn munu sem óðast að und
irbúa móttöku þessa vinsæla fjöl-
miðlunartækis. Siglfirðingar
munu samt óska þess allir að
útsending sjónvarps verði betri
til þeirra en bljóðvarpið hefur
verið allt til þessa.
STRPA
Fréttabréf trá Skagaströnd
10. okt.
Sauðfjárslátrun hófst hér um
miðjan september-og lýkur um
20. október. Slátrað verður um
10.000 fjár í sláturhúsi S.A.H.
-hér á staðnum. Fallþungi dilka
mun vera lieldur fyrir neðan
meðallag. Við sláturhúsið vinna
um 40 manns. — Heyfengur
bænda mun vera lélegur hér á
þessu svæði, en þó það góður að
ekki verður um fækkun á bú-
stofni að ræða, nema þá i fáum-
tilfellum.
Héðan hafa róið 5 bátar í sum
ar og hefir afli þeirra verið mjög
rýr og því mjög stopul vinna í
frystihúsinu, en það er svo til
eina vinnan, sem hér hefir verið
í sumar. Atvinnuleysi hefir því
verið talsvert t. d. voru um 50
manns á atvinnuleysisskrá í júlí
og ágúst, þessvegna eru dálítið
skothentar fréttir frá íhaldsbrodd
unum hérna, í blöðum og út-
varpi, um grózku í atvinnulífi
hér, en það mun eiga að vera
einhver skrautfjöður í hatti rík-
isstjórnarinnar, skemmtilegra
væri samt að það ætti sér stoð í
veruleikanum.
Tilraun var gerð hér fyrir
nokkrum árum með rækju-
vinnslu, sem mistókst því miður
hrapalega. Nú á hins vegar að
gera aðra tilraun, og er einn bát-
ur byrjaður fyrir nokkru, en
veður hefir hamlað veiðum nú
undanfarið svo ekki hefir gefið
á sjó nema einu sinni og veidd-
ist þá um hálft tonn og virðist
vinnan við það lofa góðu um
framhaldið. Það eru því nokkr-
ar vonir bundnar við rækju-
vinnsluna.
Nokkur vinna var hér fyrri-
part sumars við að ljúka við
steinker, sem hér voru byggð fyr
ir hafnargerðirnar á Blönduósi
og Þórshöfn.
Byggingarvinna hefir hér eng-
in verið nú undanfarið nema
hús sem byggt hefir verið hér í
sumar yfir tæki sjálfvirkrar sím-
stöðvar, sem áætlað er að taki
hér til starfa um mánaðamótin
nóvember—desember 1969.
Forseti vor, Kristján Edjárn,
og frú hans, komu hér við á ferð
sinni um Norðurland á síðast-
liðnu sumri. Móttaka hér var öll
hin lágkúrulegasta og skal þeim
sem að þeirri móttöku stóðu vin-
samlegast bent á að lesa reglur
um meðferð íslenzka þjóðfánans
áður en þeir draga hann næst að
húni við hátíðleg tækifæri.
Það breytir engu í þessu sam-
bandi þó ekki væri um opinbera
heimsókn forsetans að ræða.
Atvinna hér á komandi vetri
fer algerlega eftir aflabrögðum
■bátanna eins og venjulega, þar
sem uppbygging atvinnuífsins
hér er einhiða byggð á sjávar-
afla og vinnslu hans í landi.
Aukning hefir orðið á bátaflot-
anum, þar sem okkur bættist ný-
legt 200 lesta togskip á síðast-
liðnum vetri og hefir það fiskað
fyrir frystihúsi síðan það kom í
marz síðastl. og er þetta skip bú-
ið að leggja hér á land um 1200
lestir af fiski og skapa mikla
vinnu. Nú mun vera nokkurn veg
inn ákveðið að Skagstrendingur
bf. (en svo heitir félagið, sem
kéypti togskipið í fyrra) láti
byggja 400 lesta skuttogara á
Akranesi og ættum við þá að
verða sæmilega settir með skipa-
stól til hráefnisöflunar fyrir
frystihúsið.
Það held ég sé nokkuð almennt
álit manna hér, að dragnótaveiði
hafi engum orðið til góðs en öll-
um til ills. Ekki bjargað útgerð-
inni fjárhagslega og sáralitla
vinnu gefið í landi, ef undan er
tekið fyrsta sumarið sem opnað
var fyrir þessa veiði.
Ég er persónulega sannfærður
um að þetta veiðarfæri er búið
að gera okkur meira ógagn en
gagn. Það er að minnsta kosti
staðreynd, að hér hefir ekki sézt
fiskur á grunnmiðum eftir að
'búið var að stunda þessar veiðar
eitt sumar. En eftir að fiskveiði-
landhelgin var færð út í 12 míl-
ur 1958 og þar til opnað var
fyrir dragnótina 1964 var fiski-
gengd hér á grunnumiðum allt-
af að aukast og þá sérstaklega
ýsa.
Ég er hræddur um að það
þætti lélegur bóndi í sveit, sem
ætti eina kú og skæri hana sér
til matar, hann hefir að vísu að
borða á meðan hann étur kjötið
af kúnni, en livað svo? Osköp
finnst mér þetta svipað með
dragnótaveiðina.
Kjósi.
MJÖLNIR
Utgefendur: Alþýðubandalagið I Norðurlands-
kjörd. vestra og Alþýðubandalagið á Akureyri
Abyrgðarmenn: Hannes Baldvinsson og
Haraldur Asgeirsson.
Afgreiðslustaðir: Suðurgata 10, Siglufirði, sími
71294, og Prentsmiðja Björn Jónssonar h.f.,
Akureyri, sfmi 1 1 024.
Ársgjald kr. 100,00. Lausasala kr. 10,00 eint.
Prentsmiðja Björns Jónssonar hf., Akureyri
VÍSNAÞÁTTUR
ÞaS er iikt og ylur í
ómi sumra braga.
Mér hefur hlýnað mest ó því,
marga kalda daga.
Þannig kvað skóldið góða, Þorsteinn Erlings-:
son, og mun ekki ofmælt, enda hafa margir hag-
yrðingar tekið í likan streng. Bjarna Ásgeirssyni
hlýnar lika um hjartarætur í sambúð sinni við
stökuna. Hann kveður svo um ferskeytluna:
Ljóðadísin hjartahrein,
hjartaisinn bræðir.
Góða vísan munamein i 1
mýkir, lýsir, græðir.
Guðrún Þórðardóttir fró Valshamri leitar
huggunar hjó stökunni, þegar hún er unglingur
í hjósetu og leiðist einveran. Hún kveður svo:
Þegar ég er mædd og móð, ‘
mínum yfir kindum. ,
Oft til gamans yrki ég Ijóð, '
ein á fjollatindum.
Kolbeinn Högnason fró Kollafirði er einrj
hinna mörgu, sem styttir sér stundir við vísna-*
gerð. Hann kveður:
Bezt mér hefur stundir stytt
stakan yndisríka.
Hún gat verið hjarta mitt,
himinn, veröld lika.
Jóhann Olafsson fró Krossi metur hringhend-
una mest allra braghátta. Um hana kveður hann
"þessa vísu:
Skóldavald og dægradvöl,
dýr ó spjaldið skróist.
Gegnum alda bliðu og böl,
blóm sem aldrei móist.
Það er gott að vaka í samfélagi visna og kveð-:
skapar. Þormóður Pólsson fró Njólsstöðum kveð-
ur svo:
Gott er að vaka og vera til,
— vængjablakið til min seyðir.
Þegar stakon yndi og yl, ]
yfir klakann til mín leiðir.
Ekki þarf að kvarta, þó ekki gangi allt í vil.
Stakan gefur vonir um að aftur batni. Guðrúrí
Gísladóttir kveður:
Býsna tómur andinn er,
ei mun skarta að kvarfa.
Vísnahljómur veitir mér
von i hjarta, bjarta.
Ekkert það er til, sem góður hagyrðingur gef-
ur ekki kveðið stöku um. Sigurður Snorrason
kveður svo:
Þó á tungan engan yl, [
— enga fagra sögu,
þegar ekkert efni er fil,
í ferskeytta bögu.
Guðfinna Þorsteinsdóttir fró Hömrum kveðui*
um fegurð stökunnar og líkir henni við skrýdda
brúði:
Er hún þjóðlcg, alltaf ný,
óþekk skrýddri brúði.
Stakan rétta reifuð í v
rims og stuðla skrúði.
Það er rétt að enda þennan þótt með hinnJ
alkunnu snilldarvisu Andrésar Björnssonar:
Ferskeytlan er frónbúans
fyrsta barnaglingur, \
enwerður seinna í höndum hans
hvöss, sem byssustingur.
Þó læt ég þessu lokið að sinni, en mig langar
til að biðja lesendur þáttarins, sem eiga vísur í
fórum sínum, annað hvort eigin kveðskap eða
annarra að senda mér þær til birtingar I Mjölni.
Höfundanöfn þurfa að fylgja, en þau verða ekki
birt ón leyfis. Þetta mó senda til Sigurjóns Sig-
tryggssonar, Suðurgötu S9, Siglufirði. Vona ég
oð lesendur bregðist vel við þessari ósk minni.
S. S. ;
MJÖLNIR — 5