Mjölnir - 24.10.1969, Blaðsíða 8
Frá hátíðatundi Alþýðubandalagsins í Borgarbíói
•:.. x
>•'< v\ ":-.v
: x " á
iláwl!
Báðir í sömu vilpunni
ÞaS vekur nokkra íurðu, að
ritstjórar stuðningsblaða ríkis-
stjórnarinnar, AM og Islend-
ings — Isafoldar, hafa báðir
gert að umtalsefni síðasta þing
A. N. og á þann hátt að segja af
því vísvitandi rangar fréttir. Eilt
er það, að þar hafi farið fram
pólitískt uppgjör milli mín ann-
ars vegar og Björns Jónssonar
hins vegar eða Alþýðubandalags
ins og hinna Vinstri-frjálslyndu-
jafnaðarmanna B. J. og hinir síð
artöldu haft betur. Þegar ritstjór-
arnir tveir eru búnir að fá þessa
útkomu, er samfagnað í kór yfir
góðum fréttum.
A 11. þingi A. N. voru við-
fangsefnin rædd málefnalega.
Þótt deilt væri nokkuð fast um
atvinnumálin og þau vinnu-
'brögð, sem viðhöfð voru við
kjarasamningana 1968 og 1969,
varð ekki vart við pólitískt hnútu
kast milli manna. Slíkt er einber
hugarburður ritstjóranna.
A þinginu ræddi ég nokkuð
um skýrslu formanns og spurði
um nokkur atriði varðandi samn
ingana. Björn Jónsson svaraði
mér af sinni alkunnu hógværð
•— eins og alþingismanni sæmir,
á þann veg, að sannleikurinn
kom ekki í Ijós. Umfram þetta
tók ég ekki þátt í umræðum á
þinginu. Kolbeinn Friðbjarnar-
son frá Siglufirði flutti ásamt
nokkrum öðrum þingfulltrúum,
ályktun í kjaramálum (Hún er
birt á öðrum stað í blaðinu),
sem var skýr og ákvcðin. I henni
fólst aðvörun til verkalýðssam-
takanna um að forðast þá villu,
sem fjölmargir telja að hent hafi
forustumenn samtakanna í samn-
ingum um atvinnu- og kjaramál
undanfarin ár. Þessa ályktun
þoldi Björn Jónsson ekki og
flutti hann strax tillögu um að
vísa henni til stjórnarinnar, sem
var „mild“ frávísunartillaga og
ekkert annað. Björn hafði hér
vilja sinn fram og það er yfir
þeim „sigri“, sem ritstjórarnir,
Herbert og Sigurjón, eru svo
kampakátir, ef þeir þá vita nokk-
uð við hvað þeir eiga.
Eg studdi ályktun Kolbeins o.
fl„ en tók ekki þátt í umræðum
um hana. Samt sem áður setja
þeir roitt nafn í sviðsljósið, og
segja mig hafa orðið undir við
eitthvert uppgjör. Eg veit ofur
vel hver tilgangurinn er hjá þess-
um ágætu mönnum. Þeir eru að
reyna að gera hlut okkar Alþýðu
bandalagsmanna sem minnstan.
Þeir fagna klofningsbrölti B. J.
og félaga, vegna þess, að það er
eingöngu vatn á myllu stjórnar-
flokkanna og gæti trvggt þeim
áframhaldandi völd við næslu
kosningar.
Sigurjón ritstj. AM segir að
ég hafi ekki fengið alla fulltrúa
Iðju til að samþykkja tillögu
„kommúnista“. Hann á þar við
ályktun Kolbeins o. fl.! Hvað er
hæft í þessu? Ég bað engan af
fulltrúum Iðju um atkvæði í
þessu sambandi. Við Iðju-full-
trúar erum algerlega frjálsir í at-
kvæðagreiðslum á verkalýðsþing
um og félagsfundum. Ég veit
hins vegar að ýmsir aðrir for-
menn stéttarfélaga vilja helzt
hafa handjárnað lið á svona
þing, þ. á. m. fylgismenn Sigur-
jóns og Herberts. En samræmist
það frelsi og lýðræði? Þeir ætlu
að líta sér nær.
A þingum A.S.I. hefur sá
ósómi verið innleiddur hin síð-
ari ár, að stjórnmálaflokkarnir
allir, nema Alþýðubandalagið,
hafa efnt til kvöldverðarboða fyr
Víi tiepiftlm íramsólmar
Þeir tvíeinu félagar, Björn og
Hannibal, fengu að kjósa með
Framsóknarflokknum við nefnd-
arkjör í upphafi þings, nú eins
og í fyrra. Þeir hlutu þá umbun
fyrir fylgispekt sína, að komast
í 2 eða 3 nefndir.
Nú er ár liðið síðan Björn
Jónsson lýsti því yfir í áheyrn
alþjóðar við útvarpsumræður á
alþingi, að þeir ætluðu sér að
stofna sérstakan þingflokk mjög
fljótlega og skapa sér þannig við
unandi starfsskilyrði, eins og
hann komst að orði. Enn hefur
enginn þingflokkurinn verið
stofnaður, — ekki einu sinni
skírður, — enda ekki hægt að
stofna þingflokk milli kosninga.
Raunar birti Verkamaðurinn og
hitt blaðið, glæsilega mynd af
þingflokknum í fyrra vetur. A
myndinni sáust greinilega fimm
menn. Þrátt fyrir þetta halda þeir
Bj örn og Hanniba áfram að vera
einn í hóp og tveir í lest, eins og
þar stendur, og eiga þann einn
kost, að hama sig undir heygarðs
horni Framsóknar í von um rekj
ur eða rudda. Allt er hey í harð-
indum.
Það er sagt að líkamningar
geti stundum komið fram á film-
um, ef fundirnir eru nógu „sterk-
ir“. Gæti sú skýring verið á
myndinni í Verkamanninum og
liinu blaðinu?
Wobref elHÉoid
Nú í haust hafa verið til sölu
skuldabréf Elliheimilanna á Ak-
ureyri og Skjaldarvík. Skulda-
bréf þessi eru boðin til sölu til
að flýta fyrir því, að stækkun
heimilanna verði sem fyrst full-
gerð. Það ætti að vera áhugamál
einstaklinga og félaga að kaupa
þessi bréf, þau veita beztu vexti
af þeim fjármunum, sem fyrir
þau eru greidd, en skapa um leið
möguleika á því, að búa sem bezt
að hinum aldurhnigna, sem er
verðugur þess, eftir langt og erf-
itt brauðstrit, að njóta þeirrar
umönnunar, sem hægt er að
veita.
ir fulltrúa, sem þeir eigna sér og
ætla að hafa áhrif á. Þetta á
kannski sinn þátt í því, að nú er
svo komið, að stunðingsmenn
ríkisstjórnarinnar ráða lögum og
lofum í stjórn heildarsamtak-
anna, Alþýðusambands íslands.
Þing Alþýðusambands Norð-
urlands hafa hins vegar verið
blessunarlega laus við pólitískt
þras og flokkadrætti ,og vænti ég
að svo verði framvegis. Mið-
stjórn A. N. var öll kjörin ein-
róma, eftir tillögum uppstillinga-
nefndar. Nokkrar breytingar
urðu á stjórninni og þær til bóta.
T. d. var Þorsteinn Jópatansson
ekki endurkjörinn sem fyrsti
varamaður í miðstjórn, en Þor-
steinn hefur um langt skeið alið
á óeiningu og rógi innan raða
verkalýðshreyfingarinnar og boð
að flokksstofnun, sem aldrei get-
ur orðið nema til skaða fyrir fag
lega og pólitíska samstöðu launa-
fólks.
Ekki þykir mér ótrúlegt, að
rógskrif tveggja áðurnefndra rit-
stjóra um gang mála á þingi
A. N., séu undan hans rifjum
runnin og það sé hans sök að
Herbert og Sigurjón vaða nú
verjulausir í sömu lygavilpunni,
sjálfum sér til skammar og
skaða.
Jón Ingimarsson.
Akureyringar og aðrir, sem
búa í nærliggjandi sveitum, ættu
því að gera sitt til að stuðla að
framgangi þessara mála, með
því að kaupa skuldabréfin, það
safnazt þegar saman kemur.
Skuldabréfin eru til sölu á
skrifstofu bæjarins og víðar.
J.
ÍBA-LIÐIÐ í UNDÁN-
ÚRSLIT í BIKAR-
KEPPNI K.S.Í.
Sl. laugardag léku Akureyring
ar við Víking, nýliðana í I.
deild, og sigruðu þá naumlega
í framlengdum leik með 4:3. Þar
með er ÍBA-liðið komið í und-
anúrslit í Bikarkeppninni í knatt-
spyrnu.
Lið ÍBA hefur orðið fyrir
miklu „mannfalli“ í sumar, og
bjuggust því fæstir við því að
liðið kæmist svo langt sem raun
hefur orðið í Bikarkeppninni.
F/nðrafok
Það er ekki ofsögum sagt, að
það sé fjaðrafok vegna Fjaðra-
foks, leikrits Matthíasar Johanne
sens, sem sýnt er um þessar
mundir í Þjóðleikhúsinu. Dag
eftir dag má lesa í Reykjavíkur-
blöðunum ummæli vegna leik-
ritsins, og þá eru það oftast skrif
vegna skoðana einhverra á leik-
ritinu, sem vægast sagt hefur
fengið misjafna dóma.
Og staðreyndin er sú, að þeir
sem hafa fylgzt að nokkru ráði
með þessum ritdeilum eru
hneykslaðir og hissa á því hvað
blaðamennskan getur komizt á
lágt stig. Er það einkum Morgun
blaðið sem leggst lægst þar, og
þeir sem ekki trúa því geta setzt
niður og lesið skrif um Fjaðra-
fok Matthíasar í Reykjavíkur-
blöðunum undanfarnar tvær
vikur.