Mjölnir


Mjölnir - 04.12.1970, Side 1

Mjölnir - 04.12.1970, Side 1
MjöLnir XXXIH. árgangur Föstudagur 4. des. 1970 8. tölublað. Norðlenzk verkalýðssamtök krefja ríkisstjórnina efnda Óska eftir viðræðran við ríkisstjórnina ran efndir á loforði frá 1965, um gerð framkvæmdaáætlunar í atvinnumálran fyr- ir Norðurland Á í'undi sambandsstjórnar Al- þýöusambands Noröurlands, í-em haldinn var á Akureyri 22. nóv. s. 1., báru fulitrúar verka- iýðsféiagsins Vöku á Siglufiröi fram eftiríarandi tillögu, sem var samþykkt einróma: „Fundur í sambandsstjórn AN 22. 11. 1970, samþylckir aö óska ejtir vi'öræöum viö ríkisstjórn Islands um fram- kvœmd á samningsbndnu fyrirheiti ríkisstjórnarinnar frá 7. 6. 1965, um gerö fram- kvæmdaáætlunar i atvinnu- málum fyrir Noröurland. Fundurinn telur aö ekki hafi veriö staöiö viö þaö fyrirheit, sem þá var gefiö um atvinnuuppbyggingu á Noröurlandi og bendir í því sambandi á, aö um s. I. mán- aöamót var helmingur skráös atvinnuleysis á landinu, á Noröurlandi vestra. Sambandssijórnin álitur aö gera beri tafarlaust fram- kvæmdaáætlanir í atvinnu- málum einstakra kauptúna og bæjarfélaga á Noröur- landi, og bendir á, aö aukn- ing togskipaúigeröar og fisk- vinnslu mundi í mörgum til- fellum eitt saman nægja til útrýmingar atvinnuleysis. Þá telur sambandsstjórn þaö kjöriö verkefni Atvinnu- leysistryggingasjóös, aö fjár- magna slíkar áætlanir, og trúlegt aö fjármagn sem til slíkrar atvinnuuppbyggingar færi, myndi á fáum árum skila sér til sjóösins aftur, vegna minnkaöra atyinnu- leysisbóta." Eins og margir minnast, var loforð ríkisstjórnarinnar um atvinnuuppbyggingu beinlínis forsenda júnísamninganna 19ö5. Þetta loforð hefur ríkisstjórhin svikið. 1 stað raunhæfra úrbóta í atvinnumálum liafa Norðlend- ingar fengið ófullnægjandi kák- og sýndarráðstafanir, og i stað raunhæfrar áætlunar um upp- byggingu atvinnulífsins hafa þeir fengið óbermi það, sem kallað er Norðurlandsáætlun og á sáralítið skylt við áætlana- gerð, enda samin af einum af trúboðum íhaldsins hér norð- anlands og mótað af hagfræði- kreddum þess, sem aldrei hafa hæft aðstæðum hér norðanlands verr en nú. Það er því ekki ófyrirsynju, að norðlenzk verkalýðshreyfing gerir nú kröfu til efnda á lof- orði rikisstjórnarinnar, eftir að hafa verið dregin á þeirn með sýndartilburðum í fimm ár. Skíðalyftur og slökkpallur Ti,l Siglufjarðar koma á næst- unni tvær skíðalyftur af Borer Star gerð, 300 m. langar drátt- arlyftur. Eiga þær vafalaust eftir að hleypa auknum krafti í skíðaiðkanir hér. Verð lyftanna er samtals 500 þús. kr., en smávegis uppsetn- ingarkostnaöur mun bætast við. Verðið er greitt með 300 þús. kr. gjöf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík, en Iþróttasjóður leggur fram 40%, eða 200 þús. Það er því hin stórhöfðinglega gjöf Siglfirðingafélagsins, sem gerir Skíðaféiaginu fært að kaupa þessi tæki. Innflytjandi er Framkvæmdabankinn, sem alls flytur nú inn 17 lyftur til landsins. Auðvelt er að koma lyftunum fyrir. önnur verður sett í ljosa- brautina fyrir neðan Gimbra- Fulltrúar AB í bæjarstjórn hafa fengið samþykkta tillögu um, að framvegis verði af og til haldnir sérstakir spurninga- fundir í bæjarstjórninni. Ekki er enn fyllilega ákveðið með hverjum hætti þeir fundir verða. Megin tilgangurinn meö þessari tillögu er sá, aö bæjar- búum gefist tækifæri lil þess aö' beina spnrningum um bæjar- mál til bœjarstjóra og bœjar- fulltrúa. Þessir fundir verða auglýstir sérstaklega og eru bæjarbúar eindregiö hvattir lil kletta. Mun vera nær einsdæmi, að fólk hafi þannig skíðalyftu svo að segja við húsdyr sínar. Hin lyftan, sem verður knúin með dísilvél, verður færð lil eftir hentugleikum. Hefur Skiða- félagið í hyggju að koma upp festingum fyrir hana á nokkr- um stöðum. Næstum er lokið smíði stökk- brautar í Gryfjunum, — líka inni í miðjum bænum. Þar má stökkva um 22 metra. Þetta er talsvert mannvirki, unnið í sjálfboðavinnu af skíðamönn- um. Skíðamenn hafa staðið" að þessum málum af miklum dugn aði og fyrirhyggju. Þeir hafa notið aðstoðar Hákonar Ólafs- sonar verkfræðings, en formað- ur lyftunefndar er Sverrir Sveinsson. þess aö notfæra sér þessa lil- högun. Eins og kunnugt er, þá eru nær allir fundir bæjarstjórnar opnir, en mjög fáir notfæra sér þá aðstöðu til þess að fylgjast með gangi bæjarmála. Þetta er þeim mun bagalegra, þar sem blaðaútgáfa hér í bænum er bæði lítil og óregluleg. Þá póli- tísku lognmollu, áhugaleysi og uppgjöf, sem ihér ríkir, má án efa rekja að stórum hluta til þess, hvað opinberar umræður og skoðanaskipti eru takmark- Hörpudiskur Tveir ungir menn hér í bæn- um, Sveinn Björnsson og Haf- þór Rósmundsson, hafa átt frum kvæðí að því að leitað yrði að hörpudisks-miðum hér í grennd- inni. Þeir rituðu bæjarráði bréf og bentu á, að líkur væru til að slík mið fyndust út af Haga- nesvik og Héðinsfirði. Siðan hefur bæjarráð sam- þykkt að styrkja þá Svein og Hafþór og sömuleiðis Björn Karlsson, til þess að leita slikra miða og kanna þau. Báðir þess- ir aðilar hafa útvegað sér við- eigandi veiðitæki (plóga). Hér er um mikiisvert mál að ræða og fyllsta ástæða til þess að gefa atliugunum fyllsta gaum og allan stuðning. Vinnsla á hörpudisk er tiltölulega mann- frek og gæti því veitt mikla at- vinnu og er þar að auki talin mjög ábatasöm. aðar. Sú hugmynd hefur komið fram, að flokkarnir allir stæðu saman að útgáfu bæjarmála- blaðs, sem kæmi reglulega út. Enn er þetta aðeins hugmynd. Hitt er augljóst, að málefnaleg- ar umræður gætu orðið upp- spretta nýrra hugmynda og veitt stjórnendum bæjarins nauö synlegt aöhald. Sérstök athygli lesenda Mjöln- is skal vakin á því, að AB held- ur í vetur reglulega fundi ann- an hvern föstudag í Suðurgötu 10, kl. 8,30. Þar eru bæjarmálin rædd og bæjarfulltrúar AB gera grein fyrir því, sem er að ger- ast hverju sinni og svara spurn- ingum fundarmanna. Þessir fundir eru öllum opnir. Spurningafundir í bæjarstjórn Hörmulegt slys Það hörmulega slys varð um miðjan dag fimmtudaginn 26. nóv. s. 1., að geysisterk stormhviða þeytti bifreið út af veginum við Sauðanes. Hrapaði bifreiðin niður í fjöru mikið fall. 1 bifreiðinni var einn maður, Jón Gunnar Þórðarson, símaverkstjóri, og beið hann bana. Þennan dag gekk á með sterkum stormhviðum. Síma- menn höfðu undanfarið unnið að viðgerðum í fjarskipta- stöðinni á Sauðanesi og var því verki lokið, aðeins eftir að ganga frá húsinu og þess háttar og fór Gunnar í síma- bílnum út eftir, ásamt viðgerðarmanni frá Akureyri, en sá ætlaði að aka beint heim á leið frá Sauðanesi. Þeir voru á heimleið, komnir ofarlega á afleggjarann heim að vitanum, er sterk stormhviða gekk á, og stöðvuðu þeir bílana. En allt í einu herðir vindinn og símabillinn, sem var Volvo fjallabíll, þeyttist út af veginum, en einmitt þar var skemmst fram á brúnina og síðan snarbratt niður í fjöru. Hjálparmenn frá Siglufirði komu á staðinn nokkru síð- ar og fundu Gunnar látinn. Mun hann hafa dáið strax. Jón Gunnar Þórðarson var á bezta aldri, 35 ára, og lætur eftir sig konu og þrjú börn. Þetta sviplega slys sló þungum harmi á bæjarbúa. Þarna fórst inndæll maður, allra hugljúfi í umgengni og starfi sínu. 235 á atvinnuleysisskrá Um síðustu mánaðamót voru 235 menn skráðir atvinnulausir hér á Siglufírði. Skiptust þeir þannig eftir starfsstéttum: Verka menn 65, verkakonur 134, verzlunarkonur , 2, sjómenn 23, iðnaðarmenn 5 og bílstjórar 6. Af þessu fólki höfðu 59 kon- ur og 44 karlmenn einhverja stopuia vinnu. Við síðustu út- borgun atvinnuleysisbóta fengu alls 160 manns einhverjar bæt- ur. Af þeim fjölda munu nálægt 50 karlmenn og ca. 90 konur fengið greiddar fullar bætur. Ekki eru horfur á, að atvinnu- ástandið batní að ráði í desem- ber, en úr áramótum ætti að geta ræzt úr að mestu eða öllu leyti. Siglóverksmiðjan virðist eiga ársverkefni framundan, Tunnuverksmiðjan fer væntan- lega í gang um áramót, og þess ætti að mega vænta, að þau fjögur togskip, sem gerð eru út héðan, gætu ásamt bátunum tryggt hraðfrystihúsunum báð- um nokkurn veginn samfelldan rekstur. Kvöidsölur ræddar í bæjarstjórn A næstsíðasta bæjarstjórnar- fundi báru Alþýðubandalags- menn fram tiUögu þess eínis, að kvöldsöluleyfi yrðu frá næstu áramótum háð því, að aðeins yrði afgreitt gegnum söluop á kvöldin. Tillögunni var vel tekið, og var henni visað til bæjarráðs og barnaverndar- nefndar til umsagnar og frek- ari athugunar. Á síðasta bæjarstjórnarfundi iá fyrir bókun bæjarstjóra varð- andi þetta mál. Segir þar, að barnaverndarnefnd mæli ein- dregið með samþykkt tillögunn- ar. Hinsvegar dugi einhhða samþykkt bæjarstjórnar ekki til að takmarka kvöldsöluleyfi þeirra sölustaða, sem hafi veit- Aflafróttir Gæftir hafa verið heldur slæmar i nóvember og sjósókn erfið. 1 mánuðinum hafa borizt hér á land 336 lestir, en á sama tírna í fyrra 296 lestir. Af þess- um afla eru 107 lestir togbata- fiskur, en 229 lestir línufiskur. Héðan róa nú 11 bátar með línu. Aflahæstir í nóv. voru Dagur með 67 lestir í 14 sjó- ferðum og Tjaldur með, 53 lest- ir í 12 sjóferðum. Heildaraflinn á þessu ári nemur nú 6.004 lestum, en á sama tíma í fyrra 7.650 lestir. Munar þar auðvitað mestu að togarinn Hafliði hefur verið í klössun undanfarna mánuði. Afli togbátanna hefur verið lítill, og einnig hafa þeir selt erlendis. Þegar þessi frétt er skrifuð er hið nýja skip, Hafn- arnes, t. d. í söluferð. ingaleyfi útgefið af bæjarfógela, nema þá með reglugerðarbreyt- ingu, er takmarki lokunartíma veitingastaða almennt í umdæm- inu, þar með talin t. d. hólel og matsöluhús. Hins vegar geti bæjarfógeti i vissum tilfellum afturkallað veitingaleyfi, ef á- stæða þyki til. Samþykkt var að vísa málinu aftur til bæjarráðs, bæjarstjóra og barnaverndarnefndar til frek- ari athugunar. Munu allir hafa verið á svipuðu máli um, að lítil bót yrði að umræddri breyt ingu, ef hún næði aðeins til þeirra kvöldsala, sem hafa kvöldsöluleyfi frá bæjarstjórn, en hinar væru opnar eftir sem áður. Það er því augljóst, að enn verðum við Siglfirðingar að treysta á smáútveginn og efla hann. Nýjar verzlanir Síðan Kaupfélag Siglfirðinga hætti rekstri hafa þrjú ný verzl unarfyrirtæki með fjórar búðir verið sett á laggirnar og mæitu ókunnugir álíta, að mikil grózka væri í verzlunarlífi bæjarins. Mjólkursamlögin á Akureyri og Sauðárkróki settu fljótlega upp matvöruverzlun í samlagshúsinu við Aðalgötu og opnuðu 1. des. útibú í húsi KFS að Hvanneyr- arbraut 42. Óli Geir Þorgeirs- son hefur opnað matvöruverzl- un að Suðurgötu 42 og Gunnar Möller mun vera að opna verzl- un á neðstu hæð skrifstofuhúss KFS og þar seldar ýmsar vörur, annað en matvara.

x

Mjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mjölnir
https://timarit.is/publication/864

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.