Mjölnir - 28.09.1972, Blaðsíða 4
TÍMASKEKKJR SIGLFIRfllHGS
,.‘r '• Á ' ‘
Það liggur brúnan bjarma
af leiðara Siglfir.ðings 30.
ágúst s.l. Óttasleginn höf-
undurinn sér alheimskommú
nisnjann gægjast fyrir hvert
liorn, tilbúinn að hremma
hvern þann sem gefur færi
á; sér.
Kommunistagrýlan er ekk-
ert nýtt fyrirbrigði á síðum
Siglfirðings né annarra í-
haldsblaða, fremur en fals
og lygi. Nú er hins vegar
svo farið að þessi gamla
grýla er dauð og fóik liefur
fremur samúð með gröfnum
aðilum en hitt.
Sífellt stærri fjöldi fólks,
einkum ungs fólks, 'uin all-
án lieim fylkir ,sér stolt und-
ir merki sósíalismans og
berst markvissri baráttu fyr-
ir afnámi auðvaldsþjóðfél-
agsins og óréttlátri skiftingu
arðs þess sem verkalýðurinn
skapar, en fyrir réttlæti í
garð allra á jafnréttisgrund-
velli. Styrk hinnar sósíal-
ísku hreyfingar má marka
af viðbrögðum borgaralegra
valdhafa auðvaldsríkjanna,
sem verða æ lítilmótlegri og
oft svo lág að þeir neyðast
til að beita valdi sínu, lög-
reglu og herliði, til að hefta
tjáningafrelsi þeirra róttæku
að.ila, ,sem fiytja sannleikann
um ástand auðvaldsþjóðfél-
agsins. En sem kunnugt er
óttast lygarinn ætíð sannleik
ann.
★
Ísland er engin undantekn
ing, gorkúlurnar, ' félögin,
. spretta á hinum rotnandi
mykjuhaug, þjóðfélaginu, sé
notuð líking leiðarahöfundar
Siglfirðings. Þessir „auka-
fætur undir starfsemi
á íslandi“ eru alls ekki
gerfisamtök eða sýndarfélög
fremur en flokkur „lýðræð-
is“ og frelsis“ Sjálfstæðis-
flokkurinn, en þau „spretta
eins og gorkúlur á haug“,
til andstöðu gegn óréttlæti
og rotnun þess þjóðfélags
sem við búum við og dæmi
má sjá um í bæjarmálum
hér á Siglufirði.
Þessir „aukafætur undir
starfsemi kommúnista á is-
landi“ eru íslenzkir aðilar,
sem meta stöðu lands síns
í umheiminum með þvi að
lita á heildina og afstöðu
hverra til annarra. Róttækir
aðilar á íslandi taka afstöðu
gegn þáttöku landsins í hern
aðarbandaiögum og gegn því
að sjálfsákvörðunarréttur
þjóða sé séertur.
Það er helber lygi að rót-
tækir aðilar, flokkar eða fé-
lög, hafi lýst yfir velþóknun
sinni á skerðingu skoðana-
og tjáningafrelsis í A-Evrópu
löndum, innrásinni í Tékkó-
slóvakíu og öðru því, sem
þar miður fer eða kalli það
„góðan yfirgang“. Hve oft
sem slíkar lygar verða á borð
bornar í Siglfirðingi, Morgun
blaðinu, eða öðrum blöðum
íhaldsins, verða þær aldrei
sannar, en bera vott um
megnustu lágkúru.
★
Það þykir alltaf farsælast
að gera hreint fyrir eigin
dyrum áður en vandalausir
eru atyrtir. íslenzkir sósíal-
istar búa ekkj í Sovétríkjun-
um og eru ekki sovézkir,,
þeir eru íslenzkir og búa á
íslandi. Island er ekki í
Varsjárbandalaginu heldur í
Atlantshafsbandalaginu,
NATO. Við skulum því líta
fyrst á stöðu Íslendinga í
íslenzku þjóðfélagi síðan á
stöðu landsins í þeirri heild
sem það, ráðamenn þess,
hefur skipað sér í og talið
sig eiga samleið með. Þvi
næst skulum við atliuga í
hverju andstæður heildanna
eru fólgnar og afstöðu okkar
til þeirra. (t. d. NATO og
Varsjárbandalagsins)
★
Eins og áður kom frain er
Island aðili að NATO, og
hlýtur fyrir það velþóknun
íhaidsmanna og brúnstakka.
í þessu sama hernaðarbanda-
lagi eru þjóðir sem fara með
meintan yfirgang á liendur
öðrum þjóðum. Þar eru og
þjóðir þar sem fasistar fara
með völd og loka hundruð
þúsunda íbúa á bak við lás
ogs lá vegna skoðana þeirra.
Voldugasta þjóð þessa „frið-
elskandi“ hernaðarbandalags
Bandaríkin, hefur tekið þátt
í nær öllum manndrápsstríð-
um sem háð hafa verið á
þessari öld og drýgir nú
hinn hroðalegasta glæp, sem
mannkynið hefur orðið
vitni að, þar sem er stríðið
í Víetnam.
1 NATO eru lönd eins og
Portúgal, sem drýgir þjóðar-
morð á innfæddum ibúum
Angóla, auk þess sem afskap-
lega lítið frelsi eða lýðræði
ríkir heimafyrir; Grikkland,
tugir eða ekki hundruð
þúsunda pólitískra fanga eru
kúgaðir í fangelsum, vegna
þess að pólitískar skoðanir
þeirra samrýmast ekki skoð-
unum lierforingjastjórnarinn
ar; Tyrkland, þar eru Jíflát
algeng vegna pólitískra sko.
ana og hundruð þúsunda
sitja á bak við lás og slá við
hinn versta aðbúnað. Þetta
er ekki kallað frelsisskerðing
ineðal NATO-sinna, enda í
samræmi við pólitíska stefnu
bandalagsins, sem veitir þess
um löndum bæði hernaðar-
lega og almenna aðstoð.
Bretar og V-Þjóðverjar
rísa upp á móti aðgerðum
Islendinga til að færa út
landhelgina, þeir láta gróða-
sjónamið brezkra og v-
þýzkra útgerðarfélaga (sem
skapa aðeins örlítið brot af
heildar, þjóðartekjum lands
síns) vega meira en
tilraunir Islendinga til að
treysta eða jafnvel skapa
sér tilverugrundvöll, auk
þess sem aðgerðir okkar
koma til með að verða til
hagsbóta fyrir alþjóðlegar
fiskveiðar þegar fram í
sækir. Stundarhagsmunir
brezkra og v-þýzkra útgerðar
auðhringa eru látnir sitja í
fyrirrúmi. Þannig er hugur
bandalagsþjóða okkar í
NATO til friðunaraðgerða
og tilverubaráttu okkar.
Norska stjórnin reynir nú
af öllum mætti að koma
landinu inn i Efnahags-
bandalag Evrópu. Með samn-
ingum sínum við EBE skuld-
bindur stjórnin sig til að
minnka landhelgi Noregs, á
næstu tíu árum, í 6 mílur á
stóru svæði.
Norskir sjómenn krefjast
hins vegar 50 mílna land-
helgi, en stjórnin er til-
neydd, vegna skuldbindinga
sinni við EBE, að andmæla
50 milna landhelgi hvort
sem er við Noreg eða Island.
Þannig rekast á hagsmunir,
annars vegar, norskra auð-
fyrirtækja og banka, sem
óska eftir samruna við ev-
rópskt auðvald og hins veg-
ar, norskra sjómanna og Is-
lendinga. Viðskiptasamning-
ar auðfyrirtækjanna eru mik-
ilvægari, þar sem það er
eina leið þeirra til að við-
halda óréttlætinu í skiptingu
framleiðsluarðsins, heldur en
skynsamleg samvinna ríkj-
anna, hvort sem hún kallast
norræn eða er innan vé-
banda NATO eða annarra
fjölþjóðlegra samtaka.
★
„Hin nýju vinnubrögð“
stjórnarandstöðunnar eru af-
argömul og rækilega út-
jöskuð vinnubrögð í íslenzk-
um stjórnmálum almennt.
Það er einungis hlægilegt
að halda því fram
að stjórnarandstaðan hafi
skapað þá þjóðareiningu, sem
í landhelgismálinu er. Til
þess að eining náist milli
tveggja eða fleiri aðila þarf
báða eða alla til að skapa þá
einingu, en hins vegar er
hægt að segja að einn sé
taglhnýtingur annars, sem
ieiðir framgang málsins. Og
þetta er einmitt það, sem
stjórnarandstaðan hefur gerl
og kallar „ný vinnubrögð",
hún hefur hnýtt sig aftan í
þá stefnu, sem stjórnarflokk-
arnir og „aukafætur“ þeirra
bótuðu í landhelgismálinu
og liafa nú framkvæmt.
Annað hvort af kjarkioysi
eða af hagsmunaástæðum
ihöfðu flokkar núverandi
stjórnarandstöðu ekki mótað
þá stefnu, sem þeir nú fyigja
í landhelgismálinu, á þeim
tólf árum, sem hömiungai
„viðreisnar“ stóðu.
★
1 leiðara Siglfirðings er
annaðhvort um að ræða al-
varleg tímaskekkju eða vís-
vitandj lygi. Iiugur höfund-
arins er e.t.v. ennþá að hrær
ast á þeim tíma sem Kommú
nistaflokkur Islands starfaði
og leiddi baráttu íslenzks
verkalýðs gegn ofstæki nas-
ista sem hér gengu eitt sinn
klæddir brúnum stökkum um
götur undir merki sínu,
hakakrossinum. Þeir gengu
einnig um göturnar hér á
Siglufirði.
★
Afli í ágúst
Stöðvarstjóraskipti
hjá Pósti og síma,
Siglufirði
1 ágústmánuði var landað á
Siglufirði 545 tonnum af fiski,
móti 953 tonnum á sama tíma
í fyrra. Munar þar mest um
aflann af Ilafliða og Siglfirð
ingi, sem báðir lögðu upp á
Siglufirði í fyrrasumar.
Ágústaflinn var sem hér seg-
ir.
Hafnarnes 150 smál.
Dagný 91 —
Dofri 25 ,
Tjaldur 20 —
Dagur 18 —
Dúfan 26 —
42 færabátar. . . . . 207
Bergliildur SK.. 8 —
Samtals 545 smál.
Línuaflinn í september hefur
verið mjög rýr. Dagur byrjaði
róðra 2. sept., Dofri 15. og
Tjaldur 16. sept. Þá eru minni
dekkbátar með Hnu og færi.
Færabátar hafa mjög lítið feng-
ið, sökum stopulla gæfta til
færaveiða.
Nýr bátur, Aldan Si 85, eign
Hinriksen-bræðra, mun hefja
línuróðra fljótlega.
Hlíf hefur verið á færuni
undanfarið og gengið vel. Út-
gerðin saltar sjálf aflann.
Nýr bátur
Fyrir skömmu var settur á
fiot hjá slippnum á Siglufirði
11 tonna dekkbátur, sem seldur
hefur verið til Stöðvarfjarðar,
hin snotrasta fleyta.
Stöðvarstjóri Pósts og Sima á
Siglufirði, Gissur Ó, Erlingsson,
liefur látið af því starfi og er
nú fluttur búferlum til Seyðis-
fjarðar, þar sem hann hefur
tekið við stöðvarstjóra- og um-
dæmisstjórastarfi hjá sömu
stofnun. Þann stutta tíma, rösk
tvö ár, sem Gissur dvaldi á
Siglufirði, aflaðí hann sér vin-
sælda i starfi, beitti sér fyrir
ýmsum breytingum til endur-
bóta lijá stofnuninni á staðnum
og var í viðskiptum lipur og
greiðvikinn. Þá beitti hann sér
fyrir stofnun Golfklúbbs Siglu-
fjarðar, sem síðan kom upp
golfvelli í landi Hóls og hafa
þeir golfmenn mikið starf unn-
ið þar.
Þegar þau ágætu hjón Valgerð
ur Óskarsdóttir og Gissur Ó.
Erlingsson eru flutt til nýrra
heimkvnna og starfa þar fylgja
þeim áreiðanlega hlýjar vel-
farnaðaróskir allra þeirra, sem
kost áttu að kynnast þeim. Það
er eftirsjá að hverju góðu fólki,
sem burtu flytur úr þessum bæ,
Staða stöðvarstjóra var í s"in-
ar auglýst laus til umsóknar og
er nú liðinn rúmur mánuður
síðan umsóknunarfresti lauk.
Um starfið sóttu a.m.k. sex
starfandi menn hjá Pósti og
síma, þar af tveir Siglfirðingar,
þeir Hjörtur Karlsson, ritsíma-
varðstjóri og Guðmundur Árna-
son, póstfuiltrúi. Hvor um sig
eru prýðismenn og ágætir starfs
menn á sínu sviði, og að sögn
hlotið álíka stuðning í starfs-
mannaráði. Það er samgöngu-
málaráðherra, Hannibal Valdi-
marsson, sem skipar í þessa
stöðu.
★
4 — MJÖLNIR