Mjölnir - 20.12.1972, Side 4
Jólamatur
Hátíðamatur
Hamborgara-
svínahryggir
Hamborgara-
svínakótilettur
Svínslæri
Svínasneiðar
Svínakótelettur
Svínahryggir
Nýtt: úrb. reykt svíns-
læri ca. 1^4 kg-
Grillkjúldingar
Kjúklingar
Kjúklingabringur
Kjúklingalæri
Kjötkjúklingar
Ali-hænur
Kindalæri
Kindasneiðar
Kindahryggir
Kindakótelettur
Súpukjöt Hr. + læri
Ávaxtahryggir (Góm-
sætir)
Hamborgaralæri. Kinda
Jólahangikjöt
Jóla-úrbeinað læri
Jóla-úrbeinað framp.
Samskonar og í fyrra.
Frá Slátiu*f. Suðurl. BEK.
Vínarpylsur
Kálfabjúgu
Kindabjúgu
Hádegispylsur
Hreinsuð svið
Hamborgarar
52 teg. af áleggi og
mayonesi
Fryst rækja og reyktur
silungur
Nýir og niðursoðnir
ávextir seldir með
jólaverði
Öl. Gos. Súkkulaði og
Konfekt.
„MACHINGTOS“
Brauð og kökur
Rjómi og mjólk
Símar 71162 og 71265.
Við sendum kl. 11,30 og
6. daglega.
Pantið tímanlega. Fáið
yður pöntunarlista.
Jólagjafir í hundraðatali
Gleðjið yður. Gleðjið aðra
GLEÐILEG JÓL
Gestur
Fanndal
Orð-
sendlng
Þarf ráðsmaður sjúkrahúss
að fá skrifstufnaðstnð
til Siglfirðinga heima
og heiman og ann-
arra velunnara Siglu-
fjarðar.
Fyrir dyrum standa mikl-
ar endurbætur á Siglufjarð-
arkirkju. Á síðast liðnu
sumri átti kirkjuhúsið 40
ára vígsluafmæli. Það var
vígt 28. ágúst 1932.
Eins og ykkur er öllum
kunnugt, var Siglufjarðar-
kirkja eitt stærsta og veg-
legasba guðshús hérlendis á
sínum tíma og er reyndar
enn í dag. En á þessum 40
árum sem liðin eru frá vígslu
hennar, hefur margt orðið
tímans tönn að bráð og ann-
að látið á sjá, sem nú er
brýn þörf að bæta og laga.
Er þar fyrst að telja
glugga kirkjunnar, sem í ráði
er að endurnýja, og er það
metnaðarmál safnaðarins að
keyptir verði steindir glugg-
ar í kirkjuna frá Þýzkalandi
og er undirbúningur undir
það þegar hafinn.
Flestir þeirra, sem burtu
hafa flutzt, hafa notið
margra helgra stunda í þessu
gamla guðshúsi sínu og eiga
margar helgar minningar
við það tengdar, engu síður
en við sem enn höfum not
kirkjunnar.
Því er það einlæg ósk okk-
ar og von, að allir vinir
Sigluf jarðar leggist á eitt að
styðja að framgangi þessa
máls með fjárframlögum, á-
heitum og minningargjöfum.
Sóknarprestur og sóknar-
nefnd Siglufjarðarkirkju
veita móttöku öllum fram-
lögum til þessa verks.
Einnig hafa eftirtaldir
Siglfirðingar á Reykjavíkur-
svæðinu góðfúslega boðizt til
að veiita móttöku þvi fé er
safnast kynni.
1 Reykjavík: Séra Óskar
J. Þorláksson
Séra Ragnar Fjalar Lárus-
son
Jón Kjartansson, forstjóri,
í Kópavogi: Jón Skaftason
alþingismaður.
í Garðahreppi: Séra Bragi
Friðriksson, Ólafur Einars-
son, alþingismaður.
í Hafnarfirði: Erla Axels-
dóttir, Brekkugt. 13.
I Keflavík: Ingvi Brynjar
Jakobsson, lögregluvarðst.
Á Ákranesi: Guðrún Hjart
ar, Háholti 5.
Með fyrirfram þökk og
ósk um blessun Guðs á kom-
andi tímum.
Sóknarnefnd Siglufjarðar
★
Menn muna sennilega enn
þann mikla gauragang, sem
varð þegar ráðið var síðast
í stöðu sjúkrahússráðs-
maims. Margir sóttu um og
var því vahð erfitt. Guð-
mundur Þorláksson, trésmið-
ur, var ráðinn til starfans,
og honum greidd laun í 17.
launaflokk í fyrstu. Þegar
kjaradómur felldi úrskurð
um laun og kjör bæjarstarfs-
manna á s.l. ári, hækkaði
ráðsmaðurinn upp í 22 launa-
flokk, sem gerir um kr.
40.000 á mánuði. Þess má
geta til gamans að bæjar-
gjaldkerinn er í 21. launa-
flokki. Þessi úrskurður
kjaradóms byggist m.a.
á svofelldri lýsingu á
starfi ráðsmannsins: Eftir-
lit og umsjón á sjúkrahúsi.
Gerð reiknínga, hndieimta og
bókhald, ásamt kaupútreikn-
ingi og útborgun vinnulauna.
Mimiiháttar viðhaldsstörf.
Innkaup önnur en lyf og
hjúkrunarvörur. Óreglulegur
vimiutími. Ekki gert ráð fyr-
ir greiðslu yfirvinnu.
A. B. á móti
Nú hefur ráðsmaðurinn
óskað eftir heimild til þess
að ráða sér laðstoðarstúlku
í hálft starf. Þessa málaleit-
an samþykkti stjórn Sjúkra-
húss Siglufjarðar á fundi
sínum 13. nóv., gegn atkvæði
fulltrúa A. B. Máiið fór síð-
an fyrir bæjarstjórn, en þar
var afgreiðslu þess frestað,
eftir nokkrar umræður. \ í
umræðum um þessi mál
bentu fulltrúar Á. B. á. þessi
atriði málsins:
Aðstoð sú, sem ráðsmaður-
inn æskir eftir, er fyrst og
fremst vegna bóklialdsstarfa,
og yrði jafnvel ekki unnin
iiman veggja sjúkrahússins,
heldur einhversstaðar úti í
bæ. Ráðsmaður metur þetta
stárf sem hálft dagsverk,
eða 80 tíma á mánuði. Það
sem ráðsmaðurinn fer fram
á, er einfaldlega það, að hann
lialdi starfi sínu í 22. launa-
flokk, eftir að starf, sem
hann metur sjálfur sem
hehning af starfi sínu, er
falið öðrimi aðila. Fulltrúar
A. B. geta ekki fallist á að
afgreiða þetta mál með þess-
um hætti.
I umræðum benltu þeir á,
að hugsanleg lausn væri sú,
að skipta starfinu í tvennt og
ráða annarsvegar bókhald-
ara og hinsvegar sendil og
húsvörð. En ef að líkum læt-
ur heldur meirihiuti bæjar-
stjómar sama strik og meiri-
hluti Sjúkrahússstjórnar og
lætur þetta lítilræði eftir.
Vestmannaeyjar
og Isafjörður
Blaðið hefur aflað sér
-upplýsinga um fyrirkomulag
þessara mála í Vestmanna-
eyjum og á Isafirði. Á báð-
um þessum stöðum er
bókhald sjúkrahúsa unnið á
skrifstofum bæjarins. I Vest-
mannaeyjum er húsvörður
og sendill í 12-13 launaflokki.
Á Isafirði vinnur ráðsmaðm•
sjúkrahússins á bæjarskrif-
stofunum, sér um bókhald
þess og því um Mkt, enn
fremur er hann innkaupa-
stjóri bæjarins og tekur laun
eftir 21. launaflokki. Á Isa-
firði eru sendilstörf og þess
háttar undir eftirliti ráðs-
konu.
Hér á Siglufirði virðist
aftur á móti stefnt að því,
að koma upp smá skrifstof-
um út um hvippinn og hvapp
inn og búa til þægilegheita
bitlinga fyrir gæðinga meiri-
hlutans.
Súkkulaðiverksmiðjan LINDA h.f.
AKUREYRI
framleiðir fjölbreyttustu tegundir sælgætir á Islandi
úr fyrsta flokks hráefnum.
Allir borða LINDU-súkkulaði,
það eykur þrótt og gefur frísklegt útht.
Súkkulaðiverksmiðjan LINDA h.f.
Símar: 12800-11660 — Akureyri
Eyþór H. Tómasson
Mikið fannfergi
Mjög snjóasamt hefur ver-
ið undanfarnar vikur, eftir
eindæma gott haust hér
norðanlands. Fyrsti snjórinn
féll um vetumætur en tók
upp aftur. I nóvemberbyrjun
hófst svo snjókoma, og má
segja, að 'hún hafi staðið
úrtakalítið, og oft með mik-
illi veðurhæð, allt fram til
10. desember. Kyngdi niður
óhemju miklum snjó víða,
svo að miklar truflanir urðu
á samgöngum á landi og
innanlandsflugi. Frost hafa
hinsvegar ekki verið mikil,
allan illviðrakaflann var það
yfirleitt rétt fyrir neðan
núlhnarkið
Undanfarna viku hefur
verið þíðviðri og hefur
snjórinn minnkað geysimik-
ið, og eru samgöngur nú aft-
ur orðnar eðlilegar, ■ miðað
við árstíma.
Snjómokstur
á götum
Starfsmenn bæjarins hafa
sýnt mikinn dugnað við að
halda götunum hér bílfærum
í ótíðinni imdanfarnar vikur.
En síðan brá til þíðviðris,
hafa sumir fyllzt nokkurri
óþolinmæði eftir því, að
snjóruðningarnir minnkuðu,
og finnst að meira hefði
mátt gera að því að f jar-
lægjia snjó af gangstéttum
og frá húshliðum þar sem
umferð er mest, t. d. í ná-
grenni verzlana. Aldrað fólk
kvartar yfir því, að það
komizt vart frá húsunum,
t. d. við Suðurgötuna, í hall-
anum upp á Hafnarhæð, og
þegar það loks komizt út á
götuna, sé þar aðeins pláss
fyrir bíla. Sömu sögu er að
segja um ýmsar aðrar götur.
Vonandi hjálpast hlákan
og hinir' rösku ýtumenn að
við að fjarlægja* hvimleið-
ustu skaflana, svo ekki
hljótist alvarleg óhöpp í
jólaösinni.
4 — MJÖLNTR