Fylkir


Fylkir - 18.03.1949, Blaðsíða 2

Fylkir - 18.03.1949, Blaðsíða 2
2 F Y L K I R R í \ d ó m u r FYLKIR málgagn Sjálfstæðisflokksins Útgefandi: Sjálfstæðisfél. Vestmannaeyja Ábyrgðarmaður: Guðlaugur Gíslason Auglýsingástj'ófi; Finnbogi Friðfinnsson Prentsmiðjan Eyrún h. f. Sfálfstæðis- ilokkurínn Úrsögn Einars Sigurðssonar, bæjarfulltrúa úr Sjálfstæðis- flokknu virtist á sínum tíma skapa nokkurn úlfaþyt í herbúð- um andstæðinga Sjálfstæðis- flokksins. Jafnframt mátti lesa milli línanrra í blöðum þeirra, að jeir gerðu sér vonir um, að upp , hefði komið ágreiningur milli forysfumanna flokksins. , ; Innan Sjálfstæðisflokksins ; vakti þetta mál engan óróa og : sennilega mun minni eftirtekt en í fljótu bragði hefði mátt ætla eðlilegt. Ástæðan fyrir þessu er sú, að flokksmönnum er það fyllilega Ijóst, að þó að ein- hver af forystumönnunum telji sig ekki lengur hafa aðstöðu til að gegna þeim trúnaðarstöðum, sem honum hefur verið falið, að þá á flokkurinn innan sinna vé- banda fjölda af vel frambæri- legum mönnum til að fylla skarð ið, hvort heldur er til að taka sæti í bæjarstjórn eða til ann- arra starfa fyrir flokkinn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú opnað skrifstofu í hinu nýja húsi Landssímans hér og verður skrif- stofa þessi miðstöð fyrir starf- semi félaganna. Þá hefur flokkurinn ráðizt í útkomu þessa blaðs og verður það eitt málgagn flokksins. Vegna ágizkana Framsóknar- blaðsins og Brautarinnar um á- greining og átök innan Sjálfstæð isflokksins, vill blaðið taka það fram, að slíkt er hugarburður einn og mun enda reynast and- stæðingum flokksins hreinar tál- vonir. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei verið samtilltari en ein- mitt nú og alveg ákveðinn í að vinna í fullri alvöru og með festu að framgangi áhugamála flokks manna sinna. Honum er það vel Ijóst, að baráttan framundan kann að vera hörð. En hann mun þar hvergi eftir gefa, heldur hefja sókn gegn þeim auðnuleys- Kviður Hómers II, Odyss- eifskviða. Sveinbjörn Egilsson þýddi. K.ristinn Ármannsson og Jón Gísla son bjuggu til prentunar. Bókaútgáfa Menningar- sjóðs. Árið 1819 settist að kennara- stóli á Bessastaðaskóla einn sann .menntaðisti íslendingur frá upp- hafi og fram á þennan dag. Þessi -maður var Sveinbjörn Egilsson, er síðar varð fyrsti rektor lærða skólans í Reykjavík. Sveinbjörn var guðfræðingur að námi, en isöflum, sem ráðandi hafa verið hér í þessum bæ undanfarin ár, og sem með hreinu ráðleysi og trassaskap hafa sóað fjármun- um bæjarbúa, langt fram yfir það, sem nokkur kjósandi lét sig dreyma um fyrir þremur árum síðan. N ý k o m i Gúmmíslöngur, Koltjara, Hrátjara, Lakkfernis, Karbolin, Kubrinol. Nýkomið skrín, vindlingabox, stokkar o. fl. þess háttar úr íslenzku birki. VERZL. ÁSA & SIRRÍ Sími 202. ■ fe.—1 9— Ik Vi ---f V*-. -tf VL- Al Vi .jV—-TYrV V*- hann lagði litla stund á guð- fræði, heldur urðu klassísk fræði, íslenzk og grísk, aðalviðfangs- efni hans. Sveinbjörn vann allmikið að útgáfum íslenzkra fornrita á námsárum sínum í Kaupmanna- höfn og þýddi fjölmörg þeirra á latínu, enda var hann latínumað ur með ágætum. Síðar á ævinni vann hann að Biblíuþýðingu og þýddi 18 af ritum Biblíunnar úr hebresku. því verki hefur verið minna á lofti haldið en skyldi, því að vafasamt er, að nokkur önnur biblíuþýðing íslenzk. jafn- ist á við þessa þýðingu Svein- bjarnar að vandvirkni, málsmekk og stíltiIþrifum. En þau verk Sveinbjarnar, er beinlínis eru sp’rottin upp úr kennslunni í Bessastaðaskóla, eru þýðingar hans á sígildum rit- um fornaldarinnar, kviðum Hóm ers, lllíóns- og Odysseifskviðum. Framhald á 4, síðu. ð Silíurvörm* íslenzkar nýkomnor s. s. krossar, armbönd, hringir o. fl. Ennfremur ostahnífar úr riS- fríu stáli. Á S A & s I R R í Sími 202. Dægurmál Sá er nú háttur ýmsra blaða að birta smágreinar um gang hins daglega lífs. Þessir greinar- stúfar birtast með ýmsum heit- um, svo sem kunnugt er. „Fylkir" hefur ákveðið að birta slíkar smáklausur undir heitinu Dæg- urmál. Verða þar rædd almenn mál, svo sem ábendingar um ýmislegt, sem betur mætti fara, svo og get ið þess, sem vel er gert og til fyrirmyndar. Slíkum smágreinum er jafnan vel tekið í blöðum, og verða þær auðvitað því fjölbreyttari og skemmtilegri, því fleiri sem að þeim standa. Fylkir öskar því eft- ir, að lesendur hans sendi Dægur málum smágreinar til birtingar. Má afhenda þær á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Landssíma- húsinu. Greinarhöfundar mega nota dulnefni, en verða hinsvegar að láta fullt nafn fylgja með, því að annars verða greinarnar ekki birtar. Fyrir nokkru síðan var ég á gangi á Básaskersbryggjunni. Var þá nýkominn frá Reykjavík einn þessara litlu flutningabáta sem annast hafa vöruflutninga milli Reykjavíkur og Eyja. Heyrði ég þar á tal manrta um þessi flutningaskip, og þótti þeim þau helzt til smá. Bæði nú það, að t vondum vetrarveðrum mega þau sín ekki mikils, svo og hitt að varan verður dýrari með slíku fyrirkomulagi, að flytja hana á mörgum smáfleytum, í stað þess að fá meira flutt í ferðinni, svo sem var á meðan Laxfoss hélt uppi ferðum milli Reykjavíkur og Eyja, einu sinni í viku hverri. Á þessa leið röbbuðu þeir saman þarna niður á Básaskersbryggju. Þetta er fyllilega þess vert að taka til athugunar — og það I rækilega. Væri nú ekki ráð fyrir okkur Eyjabúa að eignast sjálfir hentugt skip, tiI að annast þessa vöruflutninga, skip, sem farið gæti örugglega með vörur og far- þega milli Reykjavíkur og Eyja allan ársins hring. Eins og við vitum er oft ófært flugveður lang tímum saman að vetrinum. Bíður þá oft fjöldi manns ferðar. En menn hliðrá sér hjá að taka sér far með smábátunum, sem eðli- legt er, þar sem þeir eru alls eng- in farþegaskip þótt góðir séu á sínu sviði sem fiskibátar. S Rúðustrikoðar reikningsbækur komnar HELGAFELL Vegna umbúðaskorts og örðugleika um úívegun um- búðapappírs og poka er þeim tilmæum bel.it til hátt- virtra viðskiptavina að þeir komi sjálfir með umbúðir utan um vörur þær, sem þeir koupa, þar sem að öðrum kosti ekki verður hægt að afgreiða vöruna. FÉLAG KAUPSÝSLUMANNÁ GUNNAR ÓLAFSSON & CO. G€^€M3ö©©©©€í©©00a©0000©©©«

x

Fylkir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.