Fylkir


Fylkir - 07.10.1949, Qupperneq 2

Fylkir - 07.10.1949, Qupperneq 2
2 F Y L K I R FYLKIR málgagn Sjálfstæðisflokksins Útgefandi: Sjálfstæðisfél. Vestmannaeyja Ábyrgðarmaður: Guðlaugur Gíslason Auglýsingastjóri; Finnbogi Friðfinnsson Prentsmiðjan Eyrún h. f. í þróttir 23. október. Þann 23. október n.k. verður gengið til alþingiskosninga. Þess - ar kosningar fara fram tæpu ári fyrr en reglulegar kosningar áttu að fara fram. Að þannig fór er fyrst og fremst vegna þess að samstarf lýðræðisflokkanna um stjórnarsamstarf hefur mistekist. Orsakir þess að svona fór verða ekki raktar hér, enda almenn- ingi að miklu leyti kunnar. En samvinnuslit lýðræðisflokkanna um stjórn landsins hafa fært heim sanninn um, að þjóðin verður að fá nýja forystu. Hún verður að fá einum flokki foryst una. Sjþlfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn, sem hefir mögu- , leika til þess að fá hreinan þing- , meirihluta. Við seinustu kosning ar fékk Sjálfstæðisflokkurinn 20 þingmenn, en til þess að hann öðlaðist hreinan meirihluta þurfa aðeins rúmir 400 kjósend- , ur að hætta að kjósa Alþýðu- og Framsóknarflokkinn í 8 kjördæm um. Stjórn landsins verður aldrei farsæl, nema að einn flokkur ] stjórni, beri ábyrgðina einn — og taki afleiðingunum einn. Þjóð ; in. er að skilja þetta. Allsstaðar irá berast fregnir um fylgisaukn ingu Sjálfstæðismanna. Og ósk- andi væri að sú fylgisaukning yrði það mikil að unnt væri að afloknum kosningum að taka upp þá einu heilbrigðu stjórnar- háttu, að einn flokkur — Sjálf- stæðisflokkurinn — færi með stjórn landsins. Hér í Vestmannaeyjum stend- ur baráttan við kosningarnar 23. október millum Sjálfstæðisflokks ins og kommúnista. Sú'barátta er reyndar ekki tvísýn, því áð auðvitað vita allir að Jóhann sigrar með miklum aktvæða- mun. En vissan um sigur Jó- hanns má ekki draga kraftinn úr því höggi, sem kommúnistarn ir eiga að fá 23. október. Þess- vegna verða allir lýðræðissinnar að vinna að því að sigur Sjálf- stæðisfjokksins hér í Eyjum verði sem mestur, og sýna þar með .kommúnistum að sól þeirra er að síga til viðar. , Framhald af 1. «íOu. þrautina með 2390 stigum. 800 m hlaup vann Magnús Helgason á 2.17 mín. 2. var Ingvar Gunnlaugsson á 2.18.9 sek. Fimmtudaginn 29. þ. m. hélt Knattspyrnufél. Týr Sig- ríði Bjarnadóttur frá Hoffelli kveðjusamsæti, en liún flytur nú úr bænum norður á land til búskapar. Sigríður, eða Sigga á Hoffelli, eins og hún hefur jafnan verið kölluð hér í Eyjum, liefur starfað leng- ur en nokkur önnur stúlka hér að íþróttamálum, og haft brennandi áhuga fyrir þeim allt frá bernsku. Fáar stúlkur munu eiga lengri íþróttasögu hér á landi en einmitt hún. Það hefði verið bæði fróðlegt og skemmtilegt að geta farið yfir keppnisferil hennar frá ] því að hún keppti í fyrsta ! skipti fyrir um það bil 15 ; árum og til þessa dags, þar j mundi áreiðanlega kenna margra grasa og margar góð- ■ ar og gamlar minningar rifj- ast upp, en til þess er hvorki tími né rúm hér. Sigríður varð snemma mjög góður handboltaspilari og einhver kræfasta skytta sem Týr hef- ur átL. Það mun varlega áætl- að að hún hafi á sínu keppn- istímabili sett ekki færri en 200 mörk bæði á kappleikj- um Týs og eins þar sem fé- lögin hafa keppt sameigin- 1 lega. Það er fjarri því að handboltinn hafi verið henn- ay eina áhugamái á sviði í- þróttanna, hún hefur einnig I S^OC: Edik Edikssýra Litað svkurvatn nýkomið Neytendaféiagið Til sölu nýlegt HÆNSNAHÚS í mjög góðu standi. Nokkur hænsn geta fylgt. Prentsmiðjan visar a. stundað aðrar íþróttir með ágætum árangri, svo sem leikfimi, sund og frjálsar í- þróttir, hún á til dæmis Vest mannaeyjamet í hástökki kvenna sem er 1.25 m. — Að lokum við ég segja þetta: Iþróttaferill Sigríðar er öðr- um til fyrirmyndar, ekki að- eins vegna þess hve vel hún hefur staðið sig, heldur miklu frekar vegna þess hve lengi og vel hún hefur stund- að æfingar. Og ég er viss um að þótt Sigríður flytji nú í annað hérað, þá muni hún ekki þar með hafa „lagt skóna á hilluna“. Að end- ingu þetta, um leið og við félagar hennar þökkum Sig- ríði langt og gott samstarf, óskum við henni og manni hennar farsællar framtíðar. K. J. Úr Eyjum Framhald af í. síðu. hér, bæði í heimalandinu og í úteyjum. í Álsey voru þeir Gísli Eyjólfsson Búastöðum, Guðjón Eyjólfsson Kirkjubæ, bróðir han.s, Einar bóndi Jónsson í Norðurgarði og 5 aðrir ónafngTeindir menn. Voru hinir 3 fyrrnefndu að ,,aðsækja“, sem svo er kall- að, — þ. e. að drepa fýlinn með álnarlöngum, sterkum sköftum, sem nefnd voru „fýlakeppir“. Þegar þeir nú voru af mesta kappi að drepa fýlinn hittist svo á, að þeir voru allir samtímis staddir í nokkuð stórri grastó. Kom þá mjög snarpur jarðskjálfta- kippur og skipti það tæpast sekuridum að torfan sem þeir voru í, losnaði frá berginu og fór til ferðar, en niður í sjó var margra tuga metra hátt berg, með sillum, nefjum og grastætlum. Það geta allir ímyndað sér, hve voðaleg aðstaða þeirra var LÍl að bjarga sér frá bráð- um dauða, og hve skelfilegt það var, að vera u.tan í bjargi í þessum mikla jarðskjálfta. Allt sýndist dinglandi laust og lítið. Mold, graskekkir og grjót á fljúgandi ferð allt í kringum þá og loftið titrandi af þrýstingi og hvin niður- lirapandi stórgrýtis. Alsey sýndist þeim öll ganga í bylgj um og skalf hún eins og hrísla í vindi og þeir þrír komnir til ferðar niður með grastorfunni, þar' sem bráður dauði virtist óumflýjanlega bíða þeirra allra. Frzmh*ld i 4. «íðu. Það er svo margt . . . Já, „það er svo margt ef að er gáð, sem um er þörf að ræða," sagði skáldið forðum. Þá voru dægurmálin rædd af miklum móð, og þau eru það enn í dag. Alltaf skapast ný og ný viðfangs efni. Þau eru rædd bæði af lærð- um og leikmönnum. Sjónarmiðin verða mörg og dómarnir misjafn ir. Jafnvel svo mjög, að það sem einum sýnist hvítt, segir annar svart vera. Báðir eru þeir þess fullvissir, að þeir sjái þann eina rétta litinn. Útvarpsumræðurnar. Fyrir fáum dögum kappræddu nokkrir ungir menn um stjórn- mál. Kappræðum þeirra var út- varpað, svo að þjóðin gæti sem bezt fylgst með málflutningi þeirra og boðskap. Þeir fluttu mál sitt skýrt og skörulega, hver frá sínu sjónarmiði. En sjónar- miðin urðu jafnmörg stjórnmála flokkunum, svo sem við var að búast. Það sem einn sagði hvítt, kvað annar svart vera o. s. frv. Allir gáfu þeir þó þjóðinni það fyrirheit, hver í sínu lagi, að ef þeirra flokkur stjórnaði ríkinu, myndi flest, sem aflaga hefur farið, breytastjil hins betra, því mættu allir treysta. Hlustendurnir. Þjóðin öll hlustaði. Henni bar að hlusta á stjórnmálamennina ungu, sem voru þarna mættir íyrir hönd flokka sinna. Þeirra er framtíðin og þeirra bíður það hlutskipti, að leysa marga erfiða þraut, til blessunar fyrir land sitt og þjóð. Meiri hluti kjósenda hefur skapað sér ákveðna skoðun í stjórnmálum. Þeir eiga ekkert erfitt með að átta sig á rétta litnum. En hvað svo með hina ó- vissu? Um þá er barizt. En varla verða nú margir þeirra jafn á- nægðir með frambjóðendurna almennt, og kjósandi nokkur á Austurlandi var fyrir nokkrum árum. Þegar hann hafði hlustað á þá alla á framboðsfundinum, víst frá fjórum flokkum, varð honum að orði: „Rólega hér ræður falla, rökin eru glögg og slyng. Hélzt ég vildi ykkur alla eiga til að senda á þing". En þetta var nú í þá daga. S.

x

Fylkir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.