Fylkir - 24.01.1950, Qupperneq 1
Málgagn
Ssálístraðis-
flokksin i
árgangur. Vestm.eyjum 24. janúar 1950 4. tölublað.
Málefnayfirlýsing Sjálfstæðis-
flokksins við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar 29. janúar 1950
Sjálfstæðisflokkurinn telur rétt að birta
nú þegar viðhorf sitt til hinna ýmsu mál-
efna kaupstaðarins, þannig að kjósend-
ur geti fyrirfram gert sér grein fyrir við-
horfi flokksins til þessara mála, fái
hann hreina meirihlutaaðstöðu að kosn-
ingunum loknum.
1. Fjármál.
Til greiðslu þeirra óreiðuskulda
sem safnast- hafa á bæinn og fyr
irfæki hans undanfarið kjörtíma-
bil, verði fengið eitt heildarlán
til sem lengst tíma.
Flokkurinn gerir sér alveg
Ijóst, þó ekki liggi fyrir nein
heildarskýrsla þar um, að skuldir
þessar eru orðnar svo miklar, að
þær verða alls ekki, auk alls ann
ars, lagðar á bæjarbúa í útsvör-
um á næstu árum.
Þá telur flokkurinn sjálfsagt,
að fjárhagur rafveitunnar og
hafnarinnar verði fráskilinn fjár-
hag bæjarins og telur þegar
fengna reynslu fyrir því, að fyr-
irkomulag það, sem upp var tek
ið fyrir nokkru í þessum efnum
hafi reynzt miður heppilegt.
2, Hafnarmál.
Haldið verði áfram dýpkun
innsiglingarinnar og hafnarinn-
ar og lokið verði sem fyrst við
byggingu bryggjunar , sem nú er
í smíðum í Friðarhöfn.
Sérstök áherzla verði lögð á,
og þegar hafist handa um bygg-
ingu bátakvíar.
Auk þess verði unnið að því
án tafar, að skipuleggja innan-
verða höfnina og jafnhliða at-
hugaðir möguleikar fyrir inn-
siglir.gu gegnum Eiðið.
Flokkurinn telur rétt, að at-
hugað verði hvort heppilegra
sé, að unnið verði að því, að
höfnin verði tekin í tölu lands-
hafna, eða byggð upp á sama
grundvelli og verið hefur.
3. Raforkumál.
Lögð verði áherzla á að full-
gera rafveituna.
Jafnhliða verði unnið að því
að fá rafmagn frá ,fastaland-
inu" svo fljótt sem auðið er og
að Vestmannaeyjar njóti í
þessum efnum aðstoðar af Mar-
shalifé, svo sem dæmi eru fyrir
um aðra kaupstaði og lands-
hluta.
Gjaldskrá rafveitunnar verði
endurskoðuð.
Áherzla; verði lögð á, að raf-
veitan fái innflutningsleyfi fyrir
og flutt verði inn nauðsynleg
rafmagnstæki til heimilsnotkun-
ar.
4. Menningarmál
Bygging Gagnfræðaskólans
verði fullgerð sem fyrst. Hafist
verði handa um byggingu eða
kaup á húsi fyrir húsmæðra-
skóla og vili flokkurinn í því
sambandi benda á, að úr ríkis-
sjóði er lagr fram allt að 75%
af kostnaðarverði slikra skóla.
Ennfremur mun flokkurinn
beita sér fyrir stofnun vélstjóra-
og sjóvinnuskóla.
Hlúð verði að barnaleikvellin-
um á Stakkagerðistúninu með
því að gera leiktæki betri og fjöl
breyttari og aðbúnaður allur
bættur. Ennfremur verði barna-
leikvöllunum fjölgað eftir því,
sem þörf krefur.
Flokkurinn lýsir yfir, að hann
mun stuðla að bindindisstarf-
semi og annarri heilbrigðri
menningarstarfsemi hér í bæ.
5. íþróttamál.
Iþróttasvæðið ofan Landa-
kirkju verði fullgert og sundlaug
bæjarins verði yfirbyggð og
hlynnt verði eftir föngum, að
öðru leyti, að íþróttastarfsemi í
bænum.
6. Heilbrigðismál.
Athugað verði um endurbæt-
ur á Sjúkrahúsi bæjarins eða
byggingu nýs sjúkrahúss.
Flokkurinn mun beita sér fyrir
byggingu sóttvarnahúss. Enn-
fremur fyrir endurbótum á
heilsuverndarstöðinni eða bygg-
ingu nýrrar stöðvar.
Endurbætt verði aðstaða til
Ijóslækninga í barnaskólanum.
Þvottahús Sjúkrahússins verði
fullgert hið bráðasta.
7. Arvmnumál.
Vegakerfið verði lagfært og
unnið verði að því skipulags-
bundið og markvisst að stein-
steypa aðalvegi bæjarins. Enn-
fremur verði keyptur nýtísku
veghefill.
Flokkurinn telur brýna nauð-
syn bera til þess, að ræktun
Keimaeyjar verði hraðað og viil
í því skyni veita allan þann
sfuðning, sem verða má, bænd-
um og öðrum þeim, sem að jarð
ræktarframkvæmdum og mjólk-
urframleiðslu vinna.
Ræktunarvegirnir verði teknir
í tölu þjóðvega.
8. Samgöngumál.
Krafa verði gerð til Rikisskip
um, að það haldi uppn föstum
ferðum til Eyja ákveðinn dag, að
minnsta kosti einu sinni í viku
með einu af skipum sínum.
Unnið verði að stækkun flug-
vallarins og ennfremur að því,
að fargjöld með flugvélum til og
frá Eyjum verði lækkuð.
9. Elliheimilið
verði fullgjört og starfræksla
þess hafin hið allra fyrsta.
10. Brunamái.
Brunavarnir verði efldar svo
sem unnt er.
Unnið verði þegar í stað að
útvegun þeirra tækja, sem á
vantar til að fullgera brunabíl
þann, se mbærinn hefur átt í
smíðum s.l. ár.
Sjóveita verði lögð hæfilega
víða um bæinn til afnota fyrir
slökkvil iðið.
11. Sorphreinsun.
Keyptur verði nýtízku sorp-
hreinsunarbíll eins og þegar hef-
ur verið samþykkt af bæjarstjórn
eftir tillögu sjálfstæðismanna.