Fylkir


Fylkir - 29.05.1954, Síða 4

Fylkir - 29.05.1954, Síða 4
4 F Y L K I R Innilegt þakklœti til allra, er sýndu okkur samúö og hluttekningu við andlát og jarðarför dóttur okkar HALLDÓRU Ásdís Guðmundsdóttir, Gísli Gíslason. Cement, Snowcem. Fyrirliggjandi. Tóinas M. Guðjónsson. Sími 5. HKHHHKHHHKHKHKHKHKHiKHiKHH^^ ALBOL-ÞVOTTALðGUR er ómissandi við hreingerningarnar. Kjarfan Friðbjamarson 4 Co. Ljósmyndaslofan verður opin fyrir fermingarbörn báða fermingardagana kl. 4—6 e. h. — Einnig á mánudag 31. maí eftir kl. 9,00, — og verður opin á sama tíma 8. júní 11. k. HÖRÐUR SIGURGEIRSSON. Landakirkja. Guðsþjónusta n. k. sunnudag kl. 2. e.h. Ferming. — Guðsþjón- usta á Hvítasunnudag kl. 2 e. h. Ferming. — Guðþjónusta á annan í Hvítasunnu kl. 2 e. h. Stokkseyrarferðir. Eins og undanfarin sumur mun m.b Gísli Johnsen halda uppi áætlunarlerðum mill Eyja og Stokkseyrar á miðvikudög- um og laugardögum. Gagnfrœðaskólanum sagt upp. 12. maí s. 1. var Gagnfræða- skólanum sagt upp. Hæstu eink unn í skólanum hlaut Árný Guðjónsdóttir, Dölum. Árný er nemandi í 1. bekk bóknáms- deildar. Aðra hæstu einkunn hlaut Guðmundur Lárusson, Akri, hann er nemandi í 2. bekk verknámsdeildar. Lítið um soðningu. Um þessar mundir kvartar fólk mjög yfir því hve erfitt sé að fá fisk til neyzlu. Sjór er lít- ið stundaður, nenta hvað nokkr ar trillur hafa stundað handfæra veiðar, en vegna hinnar mjög óstöðugu veðráttu líða oft nokkr ir dagar án þess að á sjó gefi fyr ir smábátana. 6 luku prófi við Stýrimannaskólann. Á þessu vori útskrifuðust 6 ungir Vestmannaeyingar frá Stýrimannaskólanum í Reykja- vík, eftir tveggja vetra nám. — Eru það þeir: Bjarni Sighvats- son, Ási; Ingvar Gunnlaugsson, Gjábakka; Jóhann Sigurðsson, Svanhól; Stefán StefánsSon, Gerði; Trausti Sigurðsson, Hæli og Valgarð Guðjónsson, Heiðarveg 25. Luku þeir allir prófi með góðri einkunn. Eins og margsinnis hefur verið bent á hér í blaðinu og víðar, þá vex stöðugt nauðsyn þess, að hægt sé að Ijúka a. m. k. fyrri hluta Stýrimannaskól- ans hér heima. Bátarnir stækka stöðugt, en eins og sakir standa þá er ekki hægt að afla sér stærra prófs, en gildir fyrir 30 tonna báta, án þess að sækja dýrt skólanám til Reykjavíkur. Má í því sambandi geta þess, að á síðastliðinni vertíð fengu yfir 30 skipstjórar og stýrimenn undanþágur til þess að gegna störfum sínunt á bátunum, sem gerðir voru út héðan. Þetta er mjög athyglisvert vandamál, sem verður að leysa. Það er staðreynd, að ekki eru nema fáir sjómenn, sem hafa á- stæður til þess að sitja í tvö ár á skólabekk í Reykjavík og þess vegna er það lágmarkskrafa, að konrið verði hér upp námskeið- um eða sjómannaskóla, þar sem Sjómannsefnin gætu að minnsta kosti lokið fyrri vetri Stýrimanna .skólans, sem gæfi þeim viss rétt indi, auk þess, að þeir fengju inngöngu í Sjómannaskólann til þess að ljúka námi. Vorhátíð ungra Sjálf- stæðismanna Eins og undanfarin ár munu ungir Sjálfstæðismenn efna til hátíðarhalda á HvítaSunnunni. Verður vandað til hennar að vanda. Von er á Heimdelling- um með m.s. Esju, sem væntan lega verður hér um Hvítasunn- una. Er vitað, að mikill fjöldi hefur tryggt sér far með skip- inu, svo búast má við fjölmenni um hátíðarnar. Síldveiðiundirbúningur. Allmikill iiugur er í útgerð- armönnum að gera út báta sína á síldveiðar fyrir Norðurlandi í sumar. I fyrra fóru héðan 14 bátar, en nú er búizt við því að sú tala tvöfaldist. Eins og menn rnuna, þá var aflinn í fyrrasum ar skástur miðað við sumurin þar á undan, og er vonandi að sumarið, sem fram undan er, verði gott síldarsumar. Samnorrœna sundkeppnin Undanfarið Iiafa skólabörn og þeir, sem á förum eru úr bænum, þreytt 200 m. sundið í Samnorrænu sundke])pninni. Þar sem sundlaugin er ekki enn þá fullbúin vegna vöntunar á hitatækjum má búast við því, að við verðum seinni að taka við okkur í sundkeppnina en aðrir Staðir á landinu, en jxar sem tækjanna er von mjög bráðlega ætti ekki að þurfa að kvíða því, að við látum okkar hlut eftir liggja, miðað við aðra kaupstaði á landinu. Endurbœtur á barnaleik- vellinum á Stakagerðis- túni. Verið er að endurbæta leik- völlinn á Stakagerðistúninu, en hann er elzti leikvöllur barna hér í bæ. Var full þörf á lag- færingu þessari, og eins væri mikil þörf á }rví að búa völlinn fjölbreyttari leiktækjum en fyr- ir voru. Það er nauðsynlegt að gera svo mikið ,sem hægt er til jress, að yngstu borgararnir geti unað sér á leikvölliun bæjarins, Svo fólk þurfi ekki stöðugt að vera lirætt um börn sín vegna hinnar miklu slysahættu, sem víða er sérstaklega í fjöllum og á bryggjunum. Skemmdarvargar á ferð. Fyrir nokkrum árum voru settir upp vandaðir og jrægileg- ir bekkir á nokkrum fögrum stöðum á Eyjunni. Bekkir Jress- ir voru vel þegnir af flestum, en ekki liafa allir verið ánægð- ir með jxá, jrví nú er búið að brjóta flesta þeirra niður, svo ekki sést neitt eftir. Er þessi eljusemi skemmdarvarganna frá bær, því fyrrnefndir bekkir voru rammléga gerðir, svo þurft hefur töluverð átök til }:>ess að koma þeim fyrir kattarnef. Væri óskandi, ef skennndarverkum sem Jressum mætti fækka í bæn um. Hœttulegur leikur. Fyrir nokkrum dögum tóku unglingsdrengir bifreið í leyfis- leysi og óku henni út af Dalveg inum, Jrar sem margir metrar eru niður á jafnsléttu. Það, sem meðal annars varð drengjum þessum til lífs var, að bifreiðin lenti á símastaur, og stoppaði við hann, en annars hefði bif- reiðin að öllum líkindum oltið niður á jafnsléttu. Enda þótt drengirnir, sem hér um getur, | hafi sloppið' ómeiddir í þetta sinn, ætti ökuferðin að verða öðrum til viðvörunar. Hressingarskálinn h. f. Fyrir nokkru var Stofnað fyr irtækið Hressingarskálinn h. f. af þeim Ragnari Hafliðasyni og Tryggva Guðmundssyni. Hefur Jjað látið byggja hús við Vest- mannabraut 30, Viðey, fyrir starfrækslu sína. Eru Jrar mjög vegleg húsa- kynni fyrir starfrækslu veitinga- Stofu og einnig verður Jrar verzlun. Fyrirhugað var að hefja reksturinn fyrir Hvíta- sunnu, en vegna Jress að töf varð á afhendingu húsgagna í veitingasalinn mun hann ekki verða tilbúinn Jrá. En verzlun- in, sem þarna verður opnuð mun hinsvegar taka til starfa laugardaginn fyrir Hvítasunnu. Málverkasýning Sveins Björnssonar. Eins og bæjarbúum er kunn ugt, efndi Sveinn Björnsson til nválverkasýningar hér um dag- inn. Lauk sýningu Sveins um síðustu helgi. Höfðu þá um 500 manns skoðað sýninguna og yf- ir 20 málverk selzt. Er Jress á- gæta aðsókn óvenjuleg og sýnir áhuga bæjarbúa fyrir verkum hins unga listamanns.

x

Fylkir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fylkir
https://timarit.is/publication/878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.