Fylkir - 31.07.1964, Qupperneq 3
F Y L K I R
3
Vestmamoeyjahöfn ein mestn afshipunarhöfn ó landinu.
/ höfnina komu áriö 1963 samtals 1044 aðkomuskip, en
1036 árið 1962. — Um höfnina föru samtals 153 þús-
und og 600 tonn árið 1963 en 115 þúsund og fimm
hundruð tonn árið 1962.
Án efa er Vestmannaeyjahöfn
orðin ein mesta umferðar- og
afskipunarhöfn á landinu utan
Reykjavíkur.
Árið 1963 komu hingað alls
1044 aðkomuskip. Heimaflot-
inn er þar að sjálfsögðu ekki
með talinn. Árið 1962 komu
hingað í höfnina 1036 aðkomu-
skip.
Flutningur um höfnina hefur
farið vaxandi ár frá ári og ald-
rei verið meiri en síðastliðið
ár, er hann komst upp í rúm-
lega 153 þúsund tonn alls.
Skiptist út- og innflutningur
sem hér segir: 1962 1963
ÚTFLUTT tonn tonn
Isfiskur 3300 2900
Hraðfr. fiskur 11800 12400
Saltfiskur O O vO 5600
Skreið 5°° 5°°
Fiskimjöl 6500 9000
Lýsi 2800 5200
Ýmsar afurðir 19°° 190°
INNFLUTNINGUR.
Landaður afli 515°° 84100
Olíur 155°° 16100
Salt 75°° 4000
Aðrar vörur 10500 11900
Samtals tonn: 11750° 1536°°
Möguleikinn fyrir þessari
miklu umferð og flutningi um
höfnina byggist að sjálfsögðu á
þeirn hafnarframkvæmdum, sem
unnið hefur verið að hér á und
anförnum árum og áratugum.
Möguleikar fyrir verulegri
stækkun hafnarinnar eru enn
fyrir liendi, og verður að sjálf-
sögðu ráðizt í þær framkvæmd-
ir eftir því sem þörf krefur. En
það, sem mest er orðið aðkall-
andi er enn frekari dýpkun og
lagfæring innsiglingarinnar,
þannig að hin stærstu skip ís-
lenzka flotans geti farið óhindr-
að út og inn um höfnina, jafnt
á flóði sem fjöru og helzt hvern
ig sem viðrar.
Nýjasti hluti hafnarinnar
Þankabrot:
Hestamennska í Eyjum:
Hesturinn og hundurinn eru
tryggustu dýr sem hin íslenzka
þjóð hefur umgengizt. Bæði
liafa reynst hin nytsömustu fyr-
ir íslenzka bóndann í búrekstri
hans. Hér í Eyjnm er hundahald
bannað og á síðustu árum lief-
ur verið fátt um hesta og í eitt
ár aðeins Rauður Jóns í Gerði.
Rauður er nálægt þrítugu.
Það hefur verið í bígerð hjá
hestaáhugamönnum hér í sveit,
að fá hingað liesta. Nú fyrir
skömmu riðu tveir á vaðið, þeir
Tómas og Eyvindur Hreggviðs-
synir. Hestar þeirra komu hing-
að um síðustu helgi með Her-
jólfi frá Þorlákshöfn. Eru þetta
góð tíðindi, því að víst er það
eðlilegra fyrir börnin að geta
umgengizt algengustu liúsdýr
frá landnámi.
Innan tíðar verður stofnað
hér hestamannaefélag.
Er óskandi að iiestamensska
hér megi blómgazt þrátt fyrir
stuttar vegalengdir. Biðjurn við
þann skjótta (yvetra) og þann
gráa (5 vetra) velkomna til
Heimaeyjar.
Frá Gagnfræðaskólanum
Nemendur, sem ætla aS sfunda nóm í 3. og 4. bekk næsta skóla-
ór hafi samband við skólastjóra eigi síðar en 4. ógúst n.k.
Skólastjóri
Tilky nning
Skrifstofur bæjarfógetaembættisins eru
fluttar frá Tindastóli í hús Sparisjóðs Vest-
mannaeyja að Bárustíg 15.
BÆJ ARFÓGETI.
Þjóðhátíðarfatnaður á alla fjölskylduna
Happdræfti DAS
Dregið í 4. flokki 4. ógúst.
Munið að endurnýja.
Umboðsmaður
NÝTT URVAL
Drífandi h. f.
Sími 1128.
F3