Fylkir - 28.01.1966, Qupperneq 5
FYLKI R
5.
leynivtpn Ithonns Bjmnor
Óþekkt pólitískt viðundur bæjarstjóraefni Framsóknar-
flokksins, ef hann kemst í valdaaðstöðu.
Við þnrfum að fá ópólitskan bæj-
arstjóra segir J. B. í síðasta Fram-
sóknarblaði. Telur hann það allra
meina bót og bendir á að þannig
sé þetta á Akureyri. Eg þekki bæj-
arstjórann á Akureyri, Magnús
Guðmundsson, vel og veit að þar
er um vandaðan drengskaparmann
að ræða. En ég veit ekki betur en
að hann hafi ákveðnar pólitískar
skoðanir þó að hann hafi ekki ver-
ið í framboði til bæjarstjórnar fyr-
ir sinn flokk. Og það er í fleiri
kaupstöðum en Akureyri, sem
þannig háttar til, og sé ég ekki að
þau skeri sig neitt úr um að út-
svör séu þar lægri eða framkvæmd
ir meiri en annarsstaðar. Það eru
allt aðrar ásæður, sem því ráða
heldur en hvort bæjarstjóri sé einn
ig bæjarfulltrúi eða ekki.
Annars er hugmynd J. B. um ó-
pólitískan aðila nokkuð út i hött.
Stjórnskipulag það sem við búum
við ætlast beinlínis til þess að hver
HÚSEIGENDUR.
Þeir sem hafa í huga að selja
fasteignir með vorinu, ættu vin-
samlegast að láta mig vita sem
fyrst. — Er með kaupendur á bið-
lista.
BRAGI BJÖRNSSON
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Vestmannabraut 31, Kaupangi.
Viðtalstími daglega kl. 17,30—19,00
Simi 1878. — Hcima 2178.
Útgefandi:
Sjálfstæðisfél. Vestmannaeyja
Ritstjóri:
Björn Guðmundsson,
Sími 1394 — Pósthólf 116
Auglýsingar:
Gísli Valtýsson,
Sími 1705.
Prentsmiðjan Eyrún h. f.
og einn, sem kosningarétt hefur,
hafi pólitíska skoðun og láti hana
í ljós við kosningar. Hvort Fram-
sóknarflokkurinn hefur eitthvert
ópólitískt viðundur sem leynivopn
í fórum sínum, ef hann nær hér
völdum veit ég ekki, en afast mjög
um það. Við síðustu kosningar var
þetta okkar ágæti Hrólfur Ingólfs-
son svo ópólitískur sem hann var,
en nú er hann farinn. Enda skipt-
ir það engu máli þó maður í stöðu
bæjarstjóra hafi ákveðnar pólitísk-
ar skoðanir. Aaðalatriðið er að
hann ræki starf sitt óhlutdrægt og
til hagsbóta fyrir almenning.
í grein J. B. stendur þetta orð-
rétt:
„Illa fer á því að í þess starfi sé
pólitískur valdastreitumaður, sem
metur allt eftir pólitík og lítur á
einstaklinginn, sem atkvæði, en
ekki sem almennan borgara, sem
allir eiga jafnan rétt á þeirri þjón-
ustu og þeim lífsþægindum, sem
nútíma bæjarfélag þarf að veita
bæjarbúum.”
Eg held að ekki fari milli mála
að hér er um beina aðdróttun að
ræða um að ég hafi minotað starf
mitt sem bæjarstjóri í pólitískum
tilgangi. Eg hefi verið bæjarstjóri
hér í rétt 12 ár. Veitt þúsundum
bæjarbúa viðtöl á skrifstofum bæj
arins og hundruðum manna margs-
konar fyrirgreiðslu bæði sem bæj-
arstjóri og einstaklingur.
Nú vil ég skora á Jóhann Björns
son, vegna framangreindra aðdrótt
ana, að tilfæra og færa sönnur á,
þó ekki væri nema eitt tilfelli, þar
sem ég hafi spurt fólk um stjórn-
málaafstöðu þess eða látið það
finna inn á að það fengi ekki sömu
afgreiðslu eða fyrirgreiðslu hvort
sem um var að ræða kjósendur
Sjálfstæðisflokksins eða annarra
flokka, er það kom á skrifstofu
mína til viðtals við mig sem bæjar-
stjóra. Geti J. B. þetta ekki verður
hann í þessu tilfelli eins og svo oft
áður að verða ómerkur orða sinna
og hljóta vansæmd fyrir, sem ó-
merkur rógberi. Annars skil ég vel
að J. B. á bágt með að trúa því að
ég hafi ekki gert þetta. Hann hef-
ur sýnt það á undanförnum árum
með skrifum sínum og fleiru, að
hann er Framsóknarmaður af
gamla skólanum, þar sem pólitík-
in og hatrið á andstæðingunum
ræður afstöðu þeirra og gerðum í
viðskiptum þeirra við meðborgara
sína. Sem betur fer er þessi hugs-
unarháttur að verða útdauður,
nema þá helst hjá einstaka eftir-
legukind af gamla skólanum inn-
an Framsóknarflokksins.
Og J. B. ætti alveg sérstklega að
hafa í huga hið gamla spamæli, að
þeir sem í glerhúsi búa eiga sízt
alli-a að vera með grjótkast.
Eða heldur hann að bæjarbúar
séu búnir að gleyma því er hann
Eg gerði á síðasta bæjarstjórn-
arfundi örstutta grein fyrir þessu
máli í sambandi við fyrirhugaðar
framkvæmdir kaupstaðarins á
þessu ári.
Þó að fátt nýtt hafi gerst í mál-
inu síðan þykir mér rétt að ræða
það nokkru nánar hér á þessum
vettvangi, þar sem hér er um eitt
stærsta og viðamesta mál að ræða
sem kaupstaðurinn hefur nokkurn-
tíma ráðist í. í upphafi var um það
rætt í bæjarstjórn að halda þessu
máli utan við dægurþras og póli-
tískar erjur flokkanna og er mér
ánægja í að viðurkenna að við
þetta hefur verið staðið af fulltrú-
um allra flokka í bæjarstjórn og
vona ég að svo verði einnig þeg-
ar að því kemur að taka lokaá-
kvörðun í málinu. Meirihluti bæj-
arstjórnar hefur ávallt látið minni
hlutanum í té ailar upplýsingar,
sem borizt hafa og málið verið
rætt í bæjarstjórn efnislega og bæj
arfulltrúar ávallt verið sammála
að leita upplýsinga og kanna
hverja þá leið, sem líklegast hefur
verið talin á hverjum tíma.
Málið er nú komið á það stig, að
ef ekkert óvænt skeður, mun hug
myndin um eimingarstöð til
vinnslu vatns úr sjó vera afskrif-
uð, bæði vegna mjög mikils stofn-
kostnaðar og þó enn frekar vegna
þess hve framleiðslukostnaður eft-
ir þessari leið er mikill.
Eg vil í þessu sambandi geta þess
eins og eflaust margir hafa veitt
athygli að í fréttaauka Ríkisút-
varpsins nú eftir áramótin, gat
Geir Magnússon, verkfræðingur
þess meðal annars að á síðasta ári
hefði komið fram ný aðferð til
vinnslu vatns úr sjó, sem væri mun
ódýrari, en áður hefði þekkst. Eg
gerði þá þegar ráðstafanir til þess
að hafa samband við þennan að-
ila, en hann reyndist vera staddur
erlendis, er starfsmaður Sölumið-
stöðvar Hraðfrystihúsanna á skrif
stofu þess í New York. Eg taldi mál
fyrir einar kosningar hér ekki alls
fyrir löngu fár útí að misnota fé
póstssjóðs með uppkaupum á fölsk
um ávísunum og allir vita hvað á
bak við lá. Hann veit það manna
bezt, að hann má þakka fyrir að
hann fékk að halda stöðu sinni eft
ir þessi mistök, og að hann á það
ekki neinum flokksbræðra stnna
að þakka að svo varð. Hann ætti
því frekar en aðrir að forðast að-
dróttanir í annarra garð um mis-
notkun í starfi og ekki síður að
vera með persónulega áreitni í
skrifum sínum.
Guðl. Gíslason.
ið það mikils virði, að ég átti sím
tal við hann þegar daginn eftir, en
því miður kom í ljós að hér var
um sömu upplýsingar að ræða og
fyrir bæjarstjórn lágu á fyrrihluta
síðasta árs. En aðferð þessi er enn
á það miklu frumstigi og það ó-
viss að bæjarstjórn ákvað þá þegar
að kanna frekar til hlýtar kostn-
aðinn við vatnsleiðslu frá fasta-
landinu.
Var það gert með því að Inn-
kaupastofnun ríkisins annaðist út-
boð á fyrirhugaðri leiðslu og einn
ig lögn hennar hingað út til Eyja.
Mjög mörg tilboð bárust í leiðsl-
nna sjálfa, en aðeins tvö í heildar-
verkið, annað frá norska fyrirtæk-
inu Porsgrund, en hitt frá amerí-
könsku fyrirtæki, Simplex. Var
alveg ljóst að varan frá hinu am-
erízka fyrirtæki var mun sterkari
sem óneitanlega er grundvalaratriði
í þessu sambandi. Var hér raun-
verulega um holan neðansjávar-
kapal að ræða. En hún hefur tvo
ókosti. í fyrsta lagi er verð hennar
mjög hátt. Og í öðru lagi treysti
fyrirtækið sér ekki til að afgreiða
þannig rör sverari en fjórar tomm-
ur, sem þýðir sterka dælustöð uppi
á fastalandinu. Verður slík stöð
dýr bæði í stofnkostnaði og einnig
í reksturskostnaði.
Þegar hér var komið þótti rétt
að leita fyrir sér hjá fyrirtækjum
í Evrópu sem framleiða neðansjáv-
arkapla hvort þau hefðu áhuga á
framleiðslu á leiðslu svipaðri gerð
og hið ameríska fyrirtæki bauð,
bæði til að kanna verð og skilmála.
Hvorki brezk né þýzk fyrirtæki,
sem leitað var til höfðu áhuga á
málinu. Hinsvegar óskaði Nordisk
Kabel og Traadfabrik A.S. í Kaup-
mannahöfn eftir viðræðum um mál
ið. Er hér um sama fyrirtækiið að
ræða og framleiddi og lagði raf-
strenginn milli lands og Eyja. Fór
Þórhallur Jónsson fyrverandi bæj-
arverkfræðingur, sem verið hefur
Framhald á 6. síðu
V a tnsveit umálið