Fylkir - 25.02.1966, Blaðsíða 2
2.
F Y L K I R
Útgefandi:
Sjálfstæðisfél. Vestmannaeyja
Ritstjóri:
Björn Guðmundsson,
Sími 1394 — Pósthólf 116
Auglýsingar:
Gísli Valtýsson,
Sími 1705.
Prentsmiðjan Eyrún h. f.
Nokkrar umræður hafa að undan-
förnu verið um söfn bæjarins,
byggðarsafnið og þó aðallega um
náttúrugripasafnið, og er það ekki
nema eðlilegt, þar sem hér er um
nokkuð sérstakt framtak bæjar-
stjórnar að ræða.
Fyrir utan Reykjavík er nú slíkt
safn aðeins til á Akureyri, en Norð
fjarðarkaupstaður er kominn með
málið á dagskrá hjá sér. Safn lif-
andi fiska er hins vegar hvergi til
á landinu enn og verða Vestmanna
eyingar vonandi fyrstir í þeim efn-
um.
Náttúrugripasafnið er þegar orð-
ið að evruleika og vonandi er ekki
langt þar til að bæjarbúum gefst
einnig kostur á að sjá og skoða hið
margumtalaða safn lifandi fiska,
sem einnig er ætlaður staður í hús
eign bæjarins að Heiðarvegi 14.
Um byggðarsafnið vil ég segja
það, að byggðarsafnsnefnd í heild
og ekki sízt þeir Þorsteinn Þ. Víg-
lundsson o gEyjólfur Gíslason, hafa
unnið þar mjög gott og þarft verk.
Og þó að mér hafi komið nokkuð
á óvart sú ákvörðun byggðarsafns-
nefndar að flytja safnið frá.Heið-
arvegi 14 og þangað sem það nú
er, sé ég nú, að sú ákvörðun nefnd-
arinnar var alveg rétt. Söfnin hefðu
komizt í vandræði vegna þrengsla,
ef þau hefðu verið þar öll undir
sama þaki, eins og bæjarstjórn ráð
gerði á sínum tíma. Byggðarsafnið
er nú komið í mjög gott horf. Búið
að hreinsa upp mikið af munum
þess, stilla þeim upp og merkja þá
og er nú unnið að skrásetningu
þeirra.
Um byggingu allsherjar safnhúss
fyrir kaupstaðinn er enginn ágrein
ingur. Aðeins spurning um, hve-
nær hægt verði að hrinda þeirri
hugmynd í framkvæmd. En því
fleiri söfn, sem kaupstaðurinn eign
ast, því meira aðkallandi verður
bygging safnhússins.
Guðl. Gíslason.
Sigorgeiri ennþd svarafdtt
Það hefur vakið mikla athygli
bæjarbúa, er ég benti á í blaða-
grein fyrir hálfum mánuði, hve
náið samband var í ákveðnu máli,
milli umræðna í bæjarstjórn og
birtingar í Nýjum vikutíðindum í
Reykjavík.
Eins og allir vita, sem fylgzt hafa
með skrifum þessa blaðs á undan-
förnum árum, hafa flestir er ein-
hverri trúnaðarstöðu gegna í bæj-
arfélaginu orðið fyrir persónuleg-
um árásum á hinn lúalegasta hátt.
Er þetta svo langt gengið að nálg-
ast oft á tíðum hreinar ofsóknir á
menn og þá auðvitað bæjarfélagið í
heild, ekki sízt út á við.
En fullyrða má, að ekkert bæjar-
félag á landinu hefur orðið svo fyr-
ir barðinu á þeim hatursfullu aðil-
um, sem að þessum skrifum standa,
eins og Vestmannaeyjar.
Frá /#Nýja
Bridgeklúbbnum".
Spilað hefur verið í Akógeshús-
inu undanfarin 4 föstudagskvöld.
Þátttaka hefur verið heldur dauf
eða mest 20 manns, sem er t. d.
lágmark fyrir tvímenningskeppni.
Má það teljast furðulegt, að Bridge
áhugamenn skuli ekki vera fleiri
hér, því ennþá hefur vertíðarann-
ríki tæpast hindrað marga. Það er
ljóst að nú fer í hönd. mikill anna
tími hér í Vestmannaeyjum og tími
til að byrja slíka félagsstarfsemi
því ef til vill ekki vel heppilegur.
En hugmyndin er að halda þessu
gangandi eitthvað áfram og hefjast
svo handa með stofnun félagsskap-
ar strax með haustinu.
í kvöld er áformað að byrja á
tvímenningskeppni, sem yrði þá
framhaldið tvö næstu föstudags-
kvöld og verðlaun veitt fyrir bezt-
an árangur. Æskilegt væri að menn
kæmu saman „paraðir“, en auðvit-
að eru allir velkomnir, þó að þeir
hafi ef til vill engan fastan „makk-
er“.
Nánari upplýsingar gefa:
Björn Dagbjartsson, sími 2101.
Guðmundur Karlsson ,síroi 2259.
Gunnlaugur Axelsson, sími 1767.
Það var því sláandi, sem nýskeð
átti sér stað, er ræða Sigurgeirs
Kristjánssonar, sem flutt var í bæj-
arstjórn 26. janúar, var að efni til
birt í Nýjum vikutíðindum, aðeins
tveim dögum síðar í Reykjavík. Að
þessu tilefni lagði ég nokkrar spurn
ingar fyrir Sigurgeir á dögunum.
Spurningunum er ósvarað, en S.
K. reynir í vonzku að svara út úr
þannig, „að hann hafi ekkert sam-
band við Ný vikutíðindi og þurfi
ekkert á því blaði að halda.
Og klikkir svo út með því að
hóta mér kæru til félagsmálaráðu-
neytisins og sömuleiðis geti svo far
ið, að um mig verði skrifað í Tím-
ann!!
Eg verð að segja, að aumari gat
málsvörn S. K. naumast orðið.
Ennþá stendur óhögguð ábending
mín og bæjarbúar krefja S. K. á-
fram um viðhlítandi svör.
Það breytir engu með afstöðu
mína, þótt mér sé hótað, ég tel það
skyldu mína gagnvart bæjarbúum,
að S. K .hreinsi sig af hinum rök-
studda grun, sem hann liggur und-
ir í máli þessu.. Heiður bæjarfélags
ins verður að vera hafinn yfir pers-
ónulegar árásir, og því er S. K. enn
spurður:
Eftir hvaða leiðum komst ræða
hans í bæjarstjórn 26. janúar í Ný
vikutíðindi, er út komu 28. sama
mánaðar?
Jóhann Friðfinnsson.
isag»
Síðasfa enskunámskeið
í vetur, hefst 3. inarz. — Dagtímar fyrir byrjendur kl. 4 e. h.
Reynir GuSsteinsson,
Simar: 2325 og 1585.
Atvinna.
Stúlka óskast til afgreiðslustarfa
strax.
VERZLUN GUÐJÓNS SCHEVING
Njarðarstíg 1. — Sími 1775.
Enskir
snurpi-vírar
2”, 214” og 214” í 300 og 360 faðma rúllum.
Þeir, sem einu sinni hafa notað enska SNURPI-
VÍRA, kaupa ekki annað.
GUÐLÁUGUR STEFÁNSSON
UMBOÐS- OG HEILDVERZLUN
Básaskersbryggju 1 — Simi 1139.
Polypropylene
teinatóg
MJÖG HAGSTÆTT VERÐ
GUÐLÁUGUR STEFÁNSSON
UMBODS- OG HEILDVERZLUN
Básaskersbryggju 1 — Sími 1139.
SSESS
í