Fylkir - 18.11.1966, Blaðsíða 4
Neðan frá sjó.
Veðráttan: Veður hafa verið held
ur umhleypingasöm undanfarna
daga. Norðanátt um helgina, vel
hvass og talsvert frost. f gær brá
svo til austan og suðaustanáttar
með rigningu. Tíðin hefur því ver-
ið erfið til sjósóknar, og lítið róið.
Línan: Sex bátar eru byrjaðir
með lftiu. Afli hefur verið tregur,
2—4 tonn hjá flestum. Hilmar á Sæ-
björgu fékk þó ágætis róður í fyrra
dag, liðlega 7 tonn.
Botnvörpubátarnir: Enn er sama
ördeyðan hjá trollbátunum, — al-
veg steindauður sjór. Aflinn ef til
vill 2—4 tonn eftir tvo daga túr.
Þarf ekki getum að því að leiða,
að erfitt mun um útgerð, þegar afla
brögðin eru ekki betri en raun ber
vitni um.
Síldin: Um 11 þúsund tunnur af
síld hafa borizt hingað síðan um
helgi. Og í dag er von á Halkion
með 2200 tunnur. Mestöll þessi síld
hefur farið til frystingar í frysti-
húsunum. Hefur þessi síldarfryst-
ing skapað mikla vinnu í „húsun-
um“. Unnið alla daga og sunnu-
daga langt fram á kvöld. Hefði at-
vinnuástandið í bænum verið með
daufara móti, svo ekki sé meira
sagt — ef síldin hefði ekki borizt
að austan.
Síldarsöltun: Eins og fyrr getur,
hefur mest allur síldaraflinn verið
frystur, þó hefur nokkuð verið salt
að. Er um tvo aðilja að ræða, Fisk-
iðjuna h. f., er saltað hefur í 555
tunnur og Ólaf & Símon h. f., er
saltað hafa í 400 tunnur. Er þessi
síld söltuð fyrir Póllandsmarkað.
Fleiri munu hafa í hyggju að salta.
Erfiðleikar: Miklar umræður hafa
orðið að undanförnu um erfiðleika
í útgerð smærri báta. Er í sjálfu
sér allt gott um það að segja, þó
orðin ein séu nú ekki einhlít til
útbóta. Það þarf nú aðeins meira
til. Sannleikurinn er sá, að erfið-
leikarnir eru næstum óyfirstíganleg
ir, og allt virðist hjálpast að, þurra
fúi, aflaleysi, lágt hráefnaverð og
dýrtíð. Það græða allir á útgerð,
verzlunin, iðnaðarmennirnir, pen-
ingastofnanirnar, allir sem eitthvað
koma yfirleitt nálægt útgerðinni
— nema útgerðarmennirnir sjálfir.
Þetta er hin ömurlega staðreynd,
er gerir það að verkum, að útgerð
smærri báta dregst saman ár frá
ári. Velflestum hér í bæ, a. m. k.,
er orðið ljóst, hverjar afleiðingar
slíkt muni hafa fyrir bæjarfélagið,
og menn bollaleggja ýmislegt til
úrbóta, en aðeins eitt er einhlítt,
og það er að skapa þessum bátum
starfsgrundvöll, — þ. e. að þeir
skili arði í venjulegu árferði.
Sæunn: í gær seldi Sæunn í
Grimsby rúmlega 24 tonn fyrir
Málgagn
Sjálfstæðis-
'. '.okksins
TILKYNNING
til innflytjenda:
Hér með er skorað á þá innflytjendur, er hafa ekki enn greitt
aðflutningsgjöld af vörum innfluttum á árinu 1965 að gera nú
þegar skil á aðflutningsgögnum og gjöldum af vörunum.
Hafi skil eigi verið gerð fyrir miðvikudaginn 30. nóv- n. k.
verða vörur þær, er hér um ræðir seldar á opinberu uppboði.
Vestmannaeyjum, 16. nóvember 1966.
Bæjarfógetinn í Vestmannaeyjum
* 1 * ÉlMl1111 K i > I 1» Wl iii •
ÁRSHÁTÍÐ
Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðanda verður i Sam-
komuhúsinu n. k. laugardag, 19. nóv. — Aðgöngumiðar í dag frá
kl. 4—6. STJÓRNIN.
verður til afgreiðslu eftir helgina. Þeir, sem eiga pantað þak- 1
járn hafi samband við okkur.
Bygingarvöruverzlun Ársæls Sveinssonar.
fi i ri ni rimv • —-^. ** ■».*■« **■
BAZAR systrafélagsins ALFA
verður sunnudaginn 20. nóvember kl. 3,30.
STJÓRNIN.
•> •> 9
■ ■ ■
Hver er munurinn á Alþýðu-
bandalagsfélagi og Sósíalista-
félagi?
Nú er hver orðinn síðastur
að gera skil í happdrættinu.
Dregið verður 22. nóv. n. k.
Skrifstofan er opin frá kl.
4—6. — Sími 1344.
2250 pund. Þetta er frekar léleg
sala, og er orsökin talin sú, að
vegna óveðurs við Englandsstrend-
ur, og Norðursjávarbátarnir því
allir „inni“, var óvenju mikill fisk
ur á markaðnum.
Bj. Guðm.
TEPPI
Ný mynstur.
Nýir litir.
Pantið sem fyrst. Aborgunar-
skilmálar.
Verzlunin Reynir
Bárugötu 5. — Sími 2340
FEBOLIT
Nylon teppin með áföstu
filtundirlagi.
Verð kr. 385,00 pr. m.
Verzlunin Reynir
Bárugötu 5. — Sími 2340
BRAGI BJÖRNSSON
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Vestmannabraut 31. (Kaupangi) —
Sími 1878. Heima 2178. Viðtalstími
17,30 — 19,00
Landakirkja.
Messað kl. 2. Séra Jóhann Hlíðar.
Betel.
Barnaguðsþjónusta kl. 1. Alm-
samkoma kl. 4,30.
Úrvals mynd.
Full ástæða er til að benda fólki
á Disney-myndina Mary Poppins,
en sýningar á henni standa nú yfir.
Er þetta afbragðs mynd fyrir alla
fjölskylduna.
Frá Bridge-félaginu.
Þriðjudaginn 22. nóv. hefst meist
arakeppni Vestmannaeyja í bridge
(svitakeppni) að Hótel HB kl. 7,30
eða hálftíma fyrr en verið hefur
og verður svo framvegis.
Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir að láta skrá sig hjá Antoni
Bjarnasen eða Richard Þorgeirs-
syni fyrir n. k. mánudagskvöld.
Frá íþróttafélaginu Þór.
Nú í þessari viku munu innan-
hússæfingar á vegum Þórs hefjast
af fullum krafti. Æfðar verða flest
ar íþróttir, sem félagsmenn hafa á-
huga á, svo og mun eldri félögum
og konum þeirra verða gefinn kost
ur á að æfa sig í leikfimi undir
handleiðslu góðra kennara.
Nýr knattspyrnuþjálfari hefur
verið ráðinn hjá félaginu, en það
er hinn tékkneski Rudolf Kreil, sem
Vestmannaeyingum er að góðu
kunnur. Hann mun fyrst um sinn
þjálfa 1., 2., 3. og 4. flokk, en Frið
finnur Finnbogason mun þjálfa 5-
flokk, sem mun verða tvískiptur
eins og sjá má á öðrum stað í blað
inu.
Frúarleikfimina mun Katrín
Magnúsdóttir fimleikakennari sjá
um, en þeir félagar Kjartan Kristj
ánsson og Símon Waagfjörð munu
fyrst um sinn stjórna karlaleik-
fimi. í athugun er að fá lærðan
fimleikakennara til þess. Handknatt
leikur stúlkna verður einnig stund-
aður í vetur, og munu þeir Jón
Óskarsson og Arnar Einarsson sjá
um að kenna hann.
Það er ósk stjórnar félagsins, að
sem flestir noti sér æfingartíma
þessa og styrki um leið sjálfa sig
og félagið.
Æfingatafla félagsins mun birtast
í blöðum bæjarins, og einnig mun
henni verða dreift sérprentaðri.
Stjórn ÞÓRS.
Vetrarfrakkar
3 gerðir, rykfrakkar 5 gerðir.
Alföt h. I.
Simi 1816.