Fylkir - 20.10.1967, Side 1
Nokkur orð um nýyrði
Við lýði er á íslandi hópur
manna, sem ber heitið nýyrða-
nefnd. Er verksvið nefndar þess-
arar að finna íslenzk nöfn yfir
erlenda hluti og hugtök, sem nafn
þurfa á íslenzka tungu. Nefnd
þessi hefur oft unnið gott starf,
en helzt mun mega finna henni
það til foráttu, að hún eða með-
limir hennar hafa verið heldur
seinir á sér að finna íslenzk heiti
yfir hlutina, áður en hin erlendu
hafa festst við þá.
Mjög algengt er þetta úr sjó-
mannamáli, þar sem ekki hefur
verið um það skeytt að finna strax
heppileg nöfn á hið fjölmarga, sem
þar að lýtur, þannig að erlend
orð, oft misjöfn að gæðum, hafa
fengið bólstað í málinu.
Ef tekin eru fáein dæmi um
slíkt, má nefna orðið koja, sem
mun sennilega aldrei verða út-
rýmt. íslenzka orðið er hvíla, en
kom fullseint fram, og hefur ekki
náð að festast í málinu. Orðið
troll yfir botnvörpu og botnvörpu-
veiðar verður áreiðanlega notað
áfram, hversu ákjósanlegt sem
það nú er. Fleiri orð, sem nátengd
eru botnvörpuveiðum hafa verið
„íslenzkuð” beint úr frummálinu
með misjöfnum árangri, svo sem
„messenger”, sem almennt mun
kallaður „messiséri”. Nýyrðanefnd
kom fram með tvö heldur hláleg
nöfn á vír þennan, sendill eða
sendiboði, sem hvorugt hafa náð
hylli, sem vonlegt er.
Hitt er annað, að sjómenn hafa
verið mjög fljótir til, oft og tíðum,
með að finna sjálfir ákjósanleg
nöfn yfir hlutina, og má þar til
nefna orðin stertur og gálgi, svo
að enn sé vitnað í botnvörpuveið-
ar.
Það, sem nýyrðanefnd hefur
mjög flaskað á við sínar nafngift-
ir, er að orð þeirra eru of löng
og stirð í munni, þar sem hin er-
lendu heiti eru stutt og laggóð.
Örðið lúkar vildu þeir nefna stafn-
káetu, og má nærri geta hverjar
viðtökur það orð fékk.
Hins vegar hefur nefnd þessari
oft tekizt afbragðsvel upp, til dæm
is, þegar síminn kom til sögunnar.
Flestar þjóðir tóku orðið „tele-
phone” upp hjá sér og samlöguðu
það sínum máls- og rithætti. En
íslendingar fundu sitt eigið orð yf-
ir fyrirbrigðið og kölluðu það
síma, sem var nafnið á sendiboða
guðanna í heiðinni trú. Gott nafn
og réttnefni. Sennilega mun eng-
um detta í hug að tala um tele-
fón á íslandi í dag.
Þá má einnig nefna dæmi um
nafngiftir á hinar ýmsu gerðir
flugvéla, en þar tókst nefndinni
einnig vel upp. Orðið þrýstilofts-
flugvél yfir þá tegund flugvéla,
sem á ensku nefnist „jet”, var til
skamms tíma notað, eða þar til
nýyrðið þota vék því til hliðar.
Framhald á 2. síðu.
Lækkar kosn-
ingaaldur í 20 ár
S.l. mánudag mælti forsætisráðherra, Bjarni Bene-
diktsson, fyrir frumvarpi til stjórnskipunarlaga um breyt-
ingu á stjórnarskránni. Frumvarpið er samhljóða frum-
varpi, sem var samþykkt á síðasta þingi og kveður á um,
að kosningaaldur verði lækkaður úr 21 ári í 20 ára aldur.
Forsætisráðherra sagði, að ekki hefði orðið neinn ágrein-
ingur um þetta mál i fyrra, og hefðu kosningarnar í
sumar sýnt samhljóða vilja þjóðarinnar á afgreiðslu þess.
Var frumvarpinu, að lokinni ræðu ráðherra, vísað til
allsherjarnefndar og annarrar umræðu.
Fyrsti snjórinn féll á mánudaginn var. Mikið frost fylgdi þessum vetrarboða og komst það hæst upp í
8 stig, sem er óvenjulega mikiðð miðað við þennan árstíma. Það var ekki ósvipað um að litast á mánu-
daginn og á þesari fallegu vetrarmynd, sem Sigur-geir Jónasson tók í fyrra.