Fylkir - 28.06.1968, Side 1
20. argangur
Vestmannaeyjum, 28. júní 1968
5. tölublað
Málgagn
Sjálfstæðis-
flokksóns
JO. júní er dagurini!
Þá kjósum við íslendingar þriðja forseta hins
unga íslenzka lýðveldis.
Sá maður, sem í þetta starf velst, þarf að eiga
skapandi gáfur enda er þess brýn þörf að hann
sé ávallt viðbúinn á flestum sviðum mannlegra
hugsana, tilfinninga og athafna.
Jafnframt þessu þarf hann að vera sterkur per-
sónuleiki, gjörhugull og einarður, maður örugg-
ur og heilsteyptur í framkomu, maður, sem aldrei
er trúandi til að gefa loðin svör, né bera kápuna
á báðum öxlum.
Æfistarf dr .Gunnars Thoroddsens hefur frá æsku
dögum hans.verið á vettvangi þjóðmálanna. Hann
ÁVARP
TIL UNGRA KJÓSENDA í VESTMANNAEYJUM
Ungi kjósandi.
Við, sem sendum þér þetta bréf, höfum bundizt samtökum um
stuðning við Gunnar Tlioroddsen í forsetakosningunum 30. júní nk.
Innanlands og utan, er forsetaembættið tákn þjóðar vorrar og hins
unga íslenzka lýðveldis. Forsetaembættið er eina opinbeja embættið, sem
þú, ungi kjósandi, getur haft bem áhrif á og ráðið úrslitum um. Við, ung-
ir stuðningsmenn dr. Gunnars Thoroddsens í Vestmannaeyjum, viljum
eindregið hvetja þig, sem nú í fyrsta skipti kýst til forseta, til að neyta
þessa dýjmæta réttar þíns og íhuga vandlega valið í æðsta og virðuleg-
asta embætti þjóðar vorrar, þar sem fara verður saman stjórnvizka, víð-
sýni og höfðingsskapur. Forsti íslands getur haft mikil og heillavænleg
álirif í þjóðlífi okkaj og hann skipar embætti, sem er tákn lokasigurs
þjóðarinnar í 7 alda sjálfstæðisbaráttu beztu sona hennar Forsetans er
að gæta þessa dýrmæta sjálfstæðis okkar.
Vegna alls þessa er mikilvægt, að í forsetaembættið verði kjörinn
sá hæfasti maður, sem völ er á.
Með kjöri dr. Gunnars Thoroddsens í þetta vandasama og mikil-
væga embætti, tryggir íslenzk þjóð sér þjóðhöfðingja, sem verða mun
sómi þjóðarinnar, sverð og skjöldur.
Unga fólkið í landinu hefur úrslitavald í þessum kosningum, sem
munu verða okkar kynslóð til sóma, ef við tryggjum sigur dr. Gunnars
Thoroddsens í kosningunum 30. júní nk.
Ásamt glæsilegri og mikilhæfri eiginkonu sinni frú Völu Thorodd-
sen, munu þau hjónin sitja forsetasetrið með þjóðlegum myndarbrag.
í fullvissu um sigur dr. Gunnars Thoroddsens og frú Völu, send-
um við þéj- beztu kveðjur og árnaðaóskir.
UNGIR STUÐNINGSMENN
DR. GUNNARS THORODDSENS
í VESTMANNAEYJUM.
hefur samt aldrei látið vísindaiðkanir einangra
sig frá kröfum og önnum hversdagsinS/ heldur
haslað sér völl mitt í hita og þunga lífsbaráttunn-
ar til aukinna og bættra lífskjara almennings. Þar
hefur hann barist í fremstu víglínu fyrir augum
alþjóðar með svo hreinan skjöld/ að nú þegar
hann gefur kost á sér sem næsti forseti íslandS/
hefur hann engu að leyna né neitt að afsaka til
að fegra framboð sitt.
Vesímannaeyingarf stöndum samhuga um að
gera sigur dr. Gunnars Thoroddsens glæsilegan.
THORODDSEN
Stuðningsmenn Gunnars Thoroddsens, Vestmannaeyjum